Morgunblaðið - 13.10.2017, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Öldungaráð Suð-
urnesja hélt aðalfund
23. september 2017.
Þjónustu við Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja hefur farið aft-
ur. Öldungaráð
Suðurnesja krefst þess
að að þjónusta fyrir
sjúklinga við
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja verði færð
í sama horf og hún var fyrir um 12
árum og í það þjónustustig sem ætl-
að var frá upphafi. Aukið verði við
þjónustuna frá því sem nú er við
íbúa í Sandgerði, Garði og Vogum
með viðveru heimilislækna, hjúkr-
unarfræðinga og sérfræðinga. Þá
verði ráðnir heimilislæknar við
heilsugæslustöð og skipulagi verði
komið á viðveru þeirra.
Auka verður við starfsemi fæð-
ingardeildar og skurðdeildar og efla
slysa- og bráðamóttöku sjúkrahúss-
ins. Þjónusta við sjúkrahúsið og
heilsugæslustöðina verði eins og
áætlað var við byggingu sjúkrahúss-
ins, þar með talin fæðingardeild,
skurðdeildir og sjúkradeildir. Sem
dæmi um samdrátt í þjónustu
sjúkrahússins hefur fæðingum
fækkað mikið en voru 83 árið 2013
en á árunum fyrir 2004 voru fæð-
ingar milli tvö og þrjú hundruð á ári
á sjúkrahúsinu.
Tryggja verður öryggi sjúkra á
Suðurnesjum eins og áætlun um
uppbyggingu á heilbrigðisþjónustu
gerði ráð fyrir vegna aukinna um-
svifa og mikillar fjölgunar íbúa og
vaxandi umferðar á Keflavíkur-
flugvelli. Hér hefur orðið mis-
brestur á sem við verðum að fá jafn-
aðan með auknu
fjárframlagi til heil-
brigðismála. Stöndum
nú saman á rétti okkar
til jafnaðar í heilbrigð-
isþjónustu. Hér hefur
lengi verið vitlaust gef-
ið til okkar á Suður-
nesjum.
Landlæknir í
skýrslu sinni um Heil-
brigðisstofnun Suður-
nesja segir meðal ann-
ars svo:
Embætti landlæknis
hvetur stjórnendur heilsugæslu
HSS til að fylgjast markvisst með
aðgengi og biðtíma eftir læknisþjón-
ustu og vinna skipulega að því að
stytta biðtíma eftir þjónustu á dag-
vinnutíma.
Skilgreina gæðavísa. Embætti
landlæknis hvetur stjórnendur
heilsugæslunnar til að skilgreina
gæðavísa, s.s. biðtíma eftir þjón-
ustu, niðurstöður þjónustukannana
og árangur meðferðar og hafa sýni-
lega starfsmönnum.
Ráða bót á mönnun lækna.
Embætti landlæknis hvetur fram-
kvæmdastjórn til að endurskoða
mönnun lækna með það að leiðar-
ljósi að minnka vaktabyrði og frí-
tökurétt. Tryggja þarf að aukastörf
lækna valdi ekki hagsmuna-
árekstrum.
Ráða bót á mönnun hjúkr-
unarfræðinga. Embætti landlæknis
hvetur framkvæmdastjórn til að
leita allra leiða til að fjölga stöðu-
gildum hjúkrunarfræðinga svo hægt
sé að manna sólarhringsvaktir með
hjúkrunarfræðingum.
Í skýrslu landlæknis segir að lok-
um:
Hluta af vanda heilsugæslu HSS
má rekja til skorts á stefnumörkun
og ósýnileika framkvæmdastjórnar.
Ekki er skráð með sýnilegum hætti
hver stefna heilsugæslunnar er,
hvaða árangri heilsugæslan hyggst
ná, né hvernig árangur er gerður
sýnilegur sjúklingum og starfsfólki.
Hvorki er um heildræna gæðastefnu
né kerfisbundið umbótastarf að
ræða á heilsugæslu HSS.
Hér var sýnishorn af skýrslu
landlæknis en hana er að finna í
heild sinni hjá landlækni á netinu.
Öldungaráð spyr hvort ekki sé
komið nóg af misskiptingu fjár-
magns og að nú sé komið að því að
Suðurnesjamenn standi saman og
krefjist réttlætis. Ég endurtek að
tryggja verði öryggi sjúkra á Suð-
urnesjum eins og áætlun um upp-
byggingu heilbrigðisþjónustu á Suð-
urnesjum gerði ráð fyrir. Hér hefur
orðið misbrestur á sem við verðum
að fá jafnaðan með auknu fjár-
framlagi til heilbrigðismála.
Er ekki komið að því að Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum tilnefni
stjórn fyrir Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja eins og var á árum áður?
Að lokum legg ég til að við Suð-
urnesjafólk höldum opinn fund um
heilbrigðismál á Suðurnesjum.
Vitlaust gefið til heilbrigðis-
mála á Suðurnesjum
Eftir Eyjólf
Eysteinsson » Tryggja verður ör-
yggi sjúkra á Suður-
nesjum eins og áætlun
um uppbyggingu á heil-
brigðisþjónustu gerði
ráð fyrir vegna aukinna
umsvifa og fjölgunar
íbúa.
Eyjólfur Eysteinsson
Höfundur er formaður Öldungaráðs
Suðurnesja.
Vissulega eru það
tíðindi þegar hugs-
anleg mengun er til
umræðu og vart á
slíkt bætandi fyrir
íbúa Reykjanesbæjar
sem búa í nágrenni
við Helguvík. Bæj-
arfulltrúar hafa haft
stór orð um að nú sé
þetta orðið ágætt, nú
sé nóg komið o.fl. í
þeim dúr þegar fréttir
hafa borist af mengun frá Helgu-
vík. En svo bregðast krosstré sem
önnur tré. Þegar fjármuni vantar í
bæjarsjóð Reykjanesbæjar svo all-
ar framtíðarspár efnahagsreikninga
standist er öllu til tjaldað til að ná
sem mestu fjármagni inn í svo til
gjaldfallinn bæjarsjóð. Jafnvel þótt
útkoman kunni að verða allt annað
en framtíðarlausn fyrir sveitarfé-
lagið.
Nú stendur fyrir dyrum hugsan-
leg sameining Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja, Kölku, og Sorpu, sorp-
samlags höfuðborgarsvæðisins.
Íbúar kunna margir hverjir að
spyrja hvaða hagsmuni slík samein-
ing muni hafa í för með sér fyrir
íbúa Suðurnesja, sem og lands-
menn alla sem leið eiga um fjöl-
farnasta þjóðveg landsins, Reykja-
nesbraut.
Skoðum dæmið aðeins. Fyrir það
fyrsta þarf einhvern veginn að
koma þessum miklu hagsmunum til
okkar eða frá okkur, þ.e.a.s. sorp-
inu og þungmálmum. Fram að
þessu hefur þessu verið ekið um
Reykjanesbraut. Flestir ökumenn
sem leið eiga um hana
eru vel meðvitaðir um
að brautin er komin að
þolmörkum hvað
þungaflutninga varðar
og hafa Vegagerðin og
fleiri aðilar bent á
hættulegar rákir sem
myndast hafa í braut-
inni, rákir sem safna
vatni og valda því að
bifreiðar fljóta ofan á
þeim og afleiðingarnar
geta verið skelfilegar.
Það sem snýr að
Kölku, sorpeyðing-
arstöð Suðurnesja, er sú staðreynd
Kalka er með 12.000 tonna
brennslugetu á ári og í dag er hún
komin að þolmörkum. Þess vegna
er það óskiljanlegt með öllu að það
standi hugsanlega til að auka það
álag enn frekar! Nema þá að menn
séu að hugsa til frekari stækkunar
þar á bæ og ætli þá væntanlega að
leggja út í enn frekari kostnað
vegna urðunar á mengaðri flugösku
sem í dag er geymd í húsnæði stutt
frá íbúðarbyggð og síðan flutt út
með skipum til Noregs með gríð-
arlegum kostnaði eins og fram hef-
ur komið í fjölmiðlum.
Staðreyndin er sú að bæði
Reykjanesbrautin og Kalka,
Reykjanesbæ, eru komin að þol-
mörkum. Ekki viljum við auka um-
ferðarhættu á slysagildrunni
Reykjanesbraut með því að auka
þungaflutninga með sorp um hana.
Ekki viljum við verða einhver söfn-
unarstaður sorps fyrir íbúa í ná-
grenni Álfsness, urðunarstaðar
Sorpu, sem er á undanþágu um-
hverfisráðuneytis til ársins 2018, en
sú undanþága var gerð í kjölfar
kvartana íbúa vegna ýldulyktar
sem berst þaðan, rétt eins og fram
hefur komið í fréttum RÚV.
Því hlýt ég að spyrja ráðamenn
hér í Reykjanesbæ sem fara með
70% eignarhlut í Kölku, Sorpeyð-
ingarstöð Suðurnesja, hvað þeim
gangi til? Á að gera bakgarða íbúa
í nágrenni við kísilverksmiðjuna í
Helguvík að einum stærsta ýldu-
lyktarruslahaug landsins og um leið
láta þá ökumenn sem leið eiga um
Reykjanesbraut gjalda fyrir með
auknum þungaflutningum um einn
hættulegasta og fjölfarnasta þjóð-
veg landsmanna?
Mín skoðun er nei takk, ég hafna
öllum svona gylliboðum og skora
jafnframt á bæjarfulltrúa, sem fara
með 70% eignarhlut í Kölku, að
boða til borgarafundar um þetta
stóra mál og gefa okkur íbúum
tækifæri á að segja okkar skoðun,
ekki síst í ljósi alls þess gagnsæis
sem núverandi meirihluti boðaði
fyrir bæjarstjórnarkosningar 2014.
Hver veit nema við komumst
kannski að samkomulagi um að
fara t.d. sjóleiðina með sorpið og
þungmálminn, eða hreinlega skoð-
um aðra og betri kosti til að rétta
af bága fjárhagsstöðu bæjarsjóðs
Reykjanesbæjar. Fyrir alla muni
gerum það í sátt við umhverfið og
íbúa Reykjanesbæjar.
Á hvaða leið er Reykjanes-
bær í umhverfismálum?
Eftir Sigurjón
Hafsteinsson » Staðreyndin er sú að
bæði Reykjanes-
brautin og Kalka eru
komin að þolmörkum.
Sigurjón
Hafsteinsson
Höfundur er íbúi í Reykjanesbæ.
molikarlinn@simnet.is
Fasteignir
VINNINGASKRÁ
24. útdráttur 12. október 2017
314 9762 16860 28420 38715 48271 58007 68905
453 9840 17208 28701 38925 48349 58245 69277
567 9863 17454 28774 38979 48745 58579 69349
603 9986 18113 29410 39711 48782 58711 69421
838 10104 18278 29596 41406 49463 59201 69717
1112 10790 18405 30095 41547 49756 59805 70286
1130 10798 18419 30465 41923 50214 59858 70701
1135 11357 18486 30793 42262 50269 61102 71810
1163 11429 18520 30798 42389 50402 61335 71942
1428 11591 18854 30953 42965 50672 61388 72084
1673 12197 18987 31078 43048 50843 61489 72141
1954 12427 19258 31190 43306 50900 61911 72150
2024 12558 19320 31349 43533 50915 61926 72177
2030 12711 19831 31791 43614 50948 62335 72527
2296 13095 19913 31890 44089 52263 62423 72966
3457 13390 20804 32146 44330 52903 62753 74198
3480 13459 21298 32180 44522 53216 62896 74642
3682 13499 22445 32478 44596 53449 63070 74987
3747 13621 22726 32680 44748 53552 63108 75081
3804 13725 23639 32939 44878 53963 63583 75520
3957 14064 24035 33131 45611 54430 63963 77024
4089 14216 24239 33150 45736 54452 64213 77170
4274 14316 24397 33243 45997 54561 65086 77386
4785 14589 24437 33343 46106 54626 65223 77513
5257 14606 24760 33838 46330 54705 65539 77816
5280 14708 25213 34028 46401 54877 66264 77871
5464 15248 25298 34252 46792 56003 66273 78874
5616 15393 26050 34256 47035 56123 66482 79020
5649 15450 26416 34910 47048 56393 66563 79233
7609 15845 26422 35314 47137 56436 66804 79389
7707 15862 26486 35681 47171 56512 67199 79618
7727 15987 27018 37891 47184 56579 67936
8201 16009 27185 37995 47445 56625 68473
8906 16054 27307 38363 47451 57376 68517
8956 16209 27935 38507 47501 57807 68518
9217 16568 28181 38545 47889 57811 68679
9376 16782 28365 38598 48215 57827 68722
252 10339 22481 30181 43083 51907 60955 72448
467 10958 22551 31341 45051 52946 62415 73355
896 11352 22668 32992 45378 53661 62682 73688
999 12017 24185 33537 46916 53804 62954 73957
1129 12394 24326 34041 46994 53937 62991 76923
1358 12742 25044 34492 47299 54575 64760 77138
1364 14245 25277 34935 48073 55912 65190 78538
2775 14957 25416 36502 48226 56831 67867 78552
3291 15534 25864 38438 48970 57211 69229 78836
4482 18304 27820 39966 49073 57680 69699
5843 20818 28256 40039 49878 57783 69889
6265 20923 28271 40957 49999 58628 70982
8380 22002 29664 41350 50897 60916 71245
Næstu útdrættir fara fram 19., 26. okt & 2. nóv 2017
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
46454 67966 76893 79598
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3974 14387 35606 41715 48004 61813
7672 17308 37516 43708 49280 65133
11418 19635 40771 46291 49527 66065
12706 24286 41578 47669 52102 75563
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 3.000.000 (tvöfaldur)
5 5 5 6 5