Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt þér finnist gaman að láta sjá
verka þinna stað, skaltu hafa hugfast að
magn er ekki sama og gæði. Hafðu enga eft-
irsjá því þú munt fljótt finna frelsi og frið.
20. apríl - 20. maí
Naut Flutningar eða breytingar á starfs-
högum eru líklegar á næstu árum. Alls ekki
taka að þér fleiri verk.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð tækifæri til að skipta á
hæfileikum þínum og beinhörðum pen-
ingum. Viðurkenndu staðreyndir mála og
freistaðu þess að ná samkomulagi sem allir
geta sætt sig við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur oft verið erfiðara að
ákveða hlutina en framkvæma þá. Lexía
dagsins er sú að vera samúðarfullur og
skilja sjónarmið hins aðilans.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vertu heima og slappaðu af í dag ef þú
mögulega getur. Ef þú beitir ekki þving-
unum munu orð þín hafa tilætluð áhrif. En í
guðsbænum láttu þau ekki bitna á öðrum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er langt því frá að allt sé úti þótt
þú þurfir að breyta um áherslur í starfi. Að-
eins nýjar staðreyndir eiga að koma þér á
aðra skoðun.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þetta er ekki rétti tíminn til að efast um
sköpunarverkin. Hann vill hafa eitthvað
spennandi og nýstárlegt fyrir stafni og helst
vera á ferðalagi á ókunnum slóðum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki láta hugfallast þó að
hindranir séu til staðar í vinnunni. Treystu
eigin ratvísi. Mundu að hægt er að gera við
flesta hluti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki auðvelt að neita
þegar einhver vill að maður sé sammála
honum. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt
því tækifærin eru við höndina. Gefðu þér
góðan tíma og rasaðu ekki um ráð fram.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er mikilvægt að þú haldir
áfram að einfalda hlutina í lífi þínu. Stund-
um verða aðrir að fá að ráða för. Beittu eðl-
islægri þolinmæði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er sannleikskorn í því að
hálfnað er verk þá hafið er. Stilltu þig um að
reyna hið sama við aðra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert fullur af rausnarskap, hvatvísi
og hreinskilni þessa dagana, sem gæti end-
að í bræðiskasti. Ef þú lætur aðra halda að
þeir stjórni, stjórnar þú þeim.
Helgi R. Einarsson yrkir þrjárlimrur, þar sem tíkur koma
við sögu. Fyrst er „Fyrirmyndir í
pólitíkinni?“:
Nú kosninga- hafið er -harkið
og á HM við komnir í sparkið.
Vert er að kjósa
og köppum að hrósa
sem miða og hitta í markið.
Síðan eru það annars konar tík-
ur sem koma við sögu: – Ég fékk
póst frá Vopnafirði með limru
eftir tíkina Ronju. Bragi bóndi á
Bustarfelli var að skera mör og
hraut einn og einn biti á gólfið
sem hvarf í hundskjaft, en jafnvel
hundar geta fengið nóg því henni
varð að orði:
Hunda má hafa að fíflum
að hendast á eftir hnýflum,
en dónalegt það
drengur minn að
þá drepa úr kransæðastíflum.
Og að síðustu segir Helgi: Tátu
minni barst þetta til eyrna og
gerðist hrokafull, enda þétt-
býlistík og það hreinræktuð!:
Hér ruslfæði ekkert við etum
því einstigi hógværðar fetum
og með öðrum hundum
við hreyfingu stundum,
þó mörinn að sjálfsögðu metum.
Davíð Hjálmar Haraldsson
yrkir um nýjustu tíðindi í pólitík-
inni:
Ráðsnjall og fær, með harðan hupp,
heiðvirður, knár og þrekinn:
Benedikt sagði eldsnöggt upp
áður en hann var rekinn.
Ármann Þorgrímsson skrifar í
Leirinn: „Nýbýlið að fara í eyði“:
Bóndinn flæmdur burtu var
breytast lítið væntingar
þó Bjarnastaðabeljurnar
bauli fyrir kosningar.
Ingólfur Ómar segir frá því, að
á miðvikudagsmorgun hafi verið
héla á grasi er hann fór út og
farið að kólna smá og Esjan
fengið snjó á kollinn:
Nú er jörðin bleik á brá
blöð af greinum falla.
Hæðardrögin hélugrá
og hvítar strýtur fjalla.
Og Sigrún Haraldsdóttir segir
frá sinni reynslu:
Súr var ég og samanskroppin,
svip með lítið fínum,
er kroppa þurfti köld og loppin
klaka af bílnum mínum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af tíkum og
Bjarnastaðabeljunum
„ÁÐUR EN ÞÚ FERÐ YFIR ÞETTA SKALTU
SPYRJA ÞIG HVER TEKUR SKELLINN
VERÐI EINKUNNINÓFULLNÆGJANDI“
„TAKTU BARA AÐEINS AF HLIÐUNUMOG
SMÁ AFTAN AF“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að koma henni til
bjargar
HEFURÐU
EKKERT AÐ GERA?
LÍTTU Á BJÖRTU HLIÐARNAR
ORKUGJAFA
JÚ!
ÉG ER AÐ
GLEYPIGLÁPA Á LOFTIÐ
Í ÞAÐ MINNSTA NOTA ÞEIR ENDURNÝJANLEGA
Víkverji er mikill aðdáandi okkarglæsilega borgarstjóra. Þess
vegna tók það Víkverja skiljanlega
sárt þegar fólk á Ingólfstorgi baul-
aði á Dag Bergþóruson Eggertsson
þegar árangri karlalandsliðsins í
knattspyrnu var fagnað.
x x x
Víkverji sat heima í sófanum ogfylgdist með því sem fram fór
þetta kvöld. Fagnaði ákaft úrslit-
unum í landsleiknum og beið spennt-
ur eftir því að stuðningsmennirnir
myndu hylla landsliðsmennina okk-
ar.
x x x
Víkverji átti sér einskis ills vonþegar fólk baulaði á borgar-
stjórann sem var svo velviljaður að
hann reif blað úr ávísanahefti borg-
arinnar til að borga fyrir samkom-
una, þrátt fyrir að fjárhagsstaðan sé
ekkert of góð sökum einhverrar
seinheppni sem Víkverji nennir ekki
að setja sig inn í.
x x x
Þessir stuðningsmenn landsliðsinshljóta að vera harðsoðnir hægri
menn. Við baulum ekki á sameining-
artákn okkar borgarbúa á einum
mesta dýrðardegi lýðveldisins. Ekki
var baulað á Þorgerði Katrínu þegar
hún stóð fremst á sviðinu þegar silf-
urdrengirnir komu heim frá Ólymp-
íuleikunum í Peking. Fjölmiðlar hafa
ekki birt myndir af þessum hildar-
leik í framhaldinu, sem betur fer.
Ljósmyndarar blaðanna hafa nú
hundelt borgarstjórann síðustu árin
og varla gefið honum vinnufrið.
x x x
Laun heimsins eru vanþakklæti.Víkverji veit að hans maður mun
koma sterkur inn í kosningabarátt-
una þrátt fyrir þessi leiðindi. Enda
er Dagur sérlega agaður eins og
fram kom í máli Dags í Frétta-
blaðinu í febrúar 2003:
„Eftir að hafa lesið Vefarann
mikla frá Kasmír greip ég þá hug-
mynd mjög sterkt á lofti að það væri
mjög dyggðum prýdd og góð leið að
stæla viljann og verða að betri
manni að stunda skírlífi. Þannig
myndi ég feta í fótspor Steins Elliða,
þessa höfuðsnillings.“
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lát ekki hið vonda sigra þig en sigra
þú illt með góðu.
(Róm. 21:21)
skornirthinir.is
LYT NS
4 SEASONS
OS LE FLORIA
25% af LYTOS
útivistarskóm*
LE FLORIANS
4 SEASONS
100% vatnsheldir
Vibram sóli
Tilboðsverð: 17.246
Verð áður: 22.995
Stærðir 36-47
6 litir
* Gildir til 31. október