Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 12

Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 Valgerður Þ. Jónsdóttir von@mbl.is Píka í merkingunni stúlka eða vinnu-stúlka er orð sem oft er notuð íspaugi, samkvæmt Snöru, orðabók-inni handhægu á netinu. Þar er orðið einnig sagt notað um sköp konu, oft sem grófyrði og líka sem gróft skammar- yrði um konu. Gagnleg sem Snara óneitan- lega er, má kannski segja að skýringar hennar að þessu leytinu séu ekki alveg í takti við tímann. Enda eru æ fleiri sem nota orðið kinnroðalaust um kynfæri kvenna og eru hvorki að spauga né ætla sér að viðhafa dónaskap með orðalaginu eins og Snara ýj- ar að (í svigunum). Að sögn Lindu Jóhannsdóttur, hönn- uðar, stílista og eiganda hönnunarfyrirtæk- isins Pastelpaper, eru samt enn margir, sér- staklega konur, sem hreinlega blána í framan þegar þeir heyra orðið. Og þeim storkar hún væntanlega svolítið með list- og sölusýningunni Píka, sem opnuð verður með pompi og prakt kl. 18 í kvöld að Hverfis- götu 16. Fimmtíu verk af jafnmörgum pík- um í stærðinni A5, sem hún vann með vatnslitum og blandaðri tækni, prýða þar veggi. Allar eru myndirnar í sérhönnuðum römmum úr plexígleri eftir Lindu. Engar tvær eins „Verkin eru unnin til að vekja athygli á píkunni og gera hana sýnilegri í samfélag- inu. Mig langar að sýna bæði fegurðina, dulúðina og töfrana sem hún býr yfir og um leið að vinna gegn því að bæði hún og heiti hennar séu tabú,“ segir Linda. Hún er á því að slíkt sé síst til að hjálpa stelpum og kon- um að elska sig sjálfar og segist einfaldlega vilja leggja sitt af mörkum til að breyta því að orðið sé feimnismál hjá báðum kynjum. „Þótt engar tvær píkur séu eins, eiga þær það allar sameiginlegt að vera fallegar og mér finnst mikilvægt að senda þau skila- boð út í samfélagið. Einkum í ljósi þess hversu margar stelpur fara í fegrunar- aðgerðir án þess að nokkuð raunverulegt sé að þeirra píku,“ heldur hún áfram og segist stundum velta því fyrir sér hversu margar píkur stelpur hafi eiginlega séð þegar þær ákveði að fara í slíka aðgerð. „Enda ekki eins og að láta fjarlægja fæðingarbletti,“ bendir hún réttilega á. Linda gefur ekki upp hvort myndirnar eigi sér raunverulegar fyrirmyndir. „Þetta eru abstrakt verk, ætluð sem veggjaskraut. Hluti ágóðans rennur til UN Women á Ís- landi. Ef til vill mála ég nýjar píkur og geri eftirprentanir af þeim, en af myndunum á sýningunni verða ekki gerðar eftirprent- anir. Þær eru einstakar og engum líkar.“ Pjölla og pjása penna orðalag? Linda segist hafa gengið með hug- myndina að píkumyndunum í um hálft ár áður en hún hófst handa fyrir nokkrum mánuðum. „Raunar byrjuðu pælingarnar þegar ég var að skrifa ritgerð um klæða- burð kynjanna í fatahönnunarnámi mínu í Listaháskóla Íslands fyrir nokkrum árum. Mér fannst athyglisvert hversu mikil áhersla er alltaf lögð á hversu ólík kynin eru.“ Upp á grínið er Linda spurð hvað amma hennar segi við tiltæki barnabarns- ins. „Ég hef ekki sagt henni frá því, en hún býr reyndar erlendis. Mér fannst svolítið fyndið þegar sumir, sem vissu að ég var að undirbúa sýninguna Píka, spurðu hvernig mér gengi með pjölluna eða pjásuna, rétt eins og það væri penna orðalag. Svo var fólk líka að spyrja eldri strákinn minn, níu ára, hvað honum fyndist um að mamma hans væri að teikna píkur. Þegar ég út- skýrði fyrir honum hugsunina að baki, fannst honum það bara flott.“ Sjálf kveðst Linda vera alin upp við að tala hispurslaust um píku og sama sé uppi á teningnum þegar synir hennar eiga í hlut. Hún er spennt að vita hverjir mæta á sýn- inguna í kvöld. Píkumyndir upp á punt og pælingar Linda Jóhannsdóttir, hönn- uður og stílisti, opnar í dag listsýninguna Píka. Þar getur að líta fimmtíu teikningar í pastellitum sem hún vann með vatnslitum og blandaðri tækni. Töfrar og tabú eru leiðarstefið í verkunum. Á teikniborðinu Linda sýnir fimmtíu teikningar sem hún vann með vatnslitum og blandaðri tækni og sérhannaði síðan ramma utan um allar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hönnuðurinn Linda Jóhannsdóttir segist með sýningunni vilja vinna gegn því tabúi sem píkan og heiti hennar er ennþá í samfélaginu. Facebook: Pastelpaper. Sýningin verður opnuð kl. 18 í kvöld, miðvikudag 1. nóvember og opin til kl. 22. Síðan virka daga kl. 13 - 20 og kl. 13 - 18 um helgina. „Sannleikurinn er einfaldlega sá, að þessi sýning er óborganlegt leikhús“ BS. DV „Túlkun Atla Rafns Sigurðarsonar á Mikael er í einu orði sagt stórkostleg“ SBH. Morgunblaðið „Vel skrifað íslenskt leikverk í kraftmikillri uppfærslu“ MG. Fréttablaðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.