Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Valgerður Þ. Jónsdóttir
von@mbl.is
Píka í merkingunni stúlka eða vinnu-stúlka er orð sem oft er notuð íspaugi, samkvæmt Snöru, orðabók-inni handhægu á netinu. Þar er
orðið einnig sagt notað um sköp konu, oft
sem grófyrði og líka sem gróft skammar-
yrði um konu. Gagnleg sem Snara óneitan-
lega er, má kannski segja að skýringar
hennar að þessu leytinu séu ekki alveg í
takti við tímann. Enda eru æ fleiri sem nota
orðið kinnroðalaust um kynfæri kvenna og
eru hvorki að spauga né ætla sér að viðhafa
dónaskap með orðalaginu eins og Snara ýj-
ar að (í svigunum).
Að sögn Lindu Jóhannsdóttur, hönn-
uðar, stílista og eiganda hönnunarfyrirtæk-
isins Pastelpaper, eru samt enn margir, sér-
staklega konur, sem hreinlega blána í
framan þegar þeir heyra orðið. Og þeim
storkar hún væntanlega svolítið með list- og
sölusýningunni Píka, sem opnuð verður með
pompi og prakt kl. 18 í kvöld að Hverfis-
götu 16. Fimmtíu verk af jafnmörgum pík-
um í stærðinni A5, sem hún vann með
vatnslitum og blandaðri tækni, prýða þar
veggi. Allar eru myndirnar í sérhönnuðum
römmum úr plexígleri eftir Lindu.
Engar tvær eins
„Verkin eru unnin til að vekja athygli á
píkunni og gera hana sýnilegri í samfélag-
inu. Mig langar að sýna bæði fegurðina,
dulúðina og töfrana sem hún býr yfir og um
leið að vinna gegn því að bæði hún og heiti
hennar séu tabú,“ segir Linda. Hún er á því
að slíkt sé síst til að hjálpa stelpum og kon-
um að elska sig sjálfar og segist einfaldlega
vilja leggja sitt af mörkum til að breyta því
að orðið sé feimnismál hjá báðum kynjum.
„Þótt engar tvær píkur séu eins, eiga
þær það allar sameiginlegt að vera fallegar
og mér finnst mikilvægt að senda þau skila-
boð út í samfélagið. Einkum í ljósi þess
hversu margar stelpur fara í fegrunar-
aðgerðir án þess að nokkuð raunverulegt sé
að þeirra píku,“ heldur hún áfram og segist
stundum velta því fyrir sér hversu margar
píkur stelpur hafi eiginlega séð þegar þær
ákveði að fara í slíka aðgerð. „Enda ekki
eins og að láta fjarlægja fæðingarbletti,“
bendir hún réttilega á.
Linda gefur ekki upp hvort myndirnar
eigi sér raunverulegar fyrirmyndir. „Þetta
eru abstrakt verk, ætluð sem veggjaskraut.
Hluti ágóðans rennur til UN Women á Ís-
landi. Ef til vill mála ég nýjar píkur og geri
eftirprentanir af þeim, en af myndunum á
sýningunni verða ekki gerðar eftirprent-
anir. Þær eru einstakar og engum líkar.“
Pjölla og pjása penna orðalag?
Linda segist hafa gengið með hug-
myndina að píkumyndunum í um hálft ár
áður en hún hófst handa fyrir nokkrum
mánuðum. „Raunar byrjuðu pælingarnar
þegar ég var að skrifa ritgerð um klæða-
burð kynjanna í fatahönnunarnámi mínu í
Listaháskóla Íslands fyrir nokkrum árum.
Mér fannst athyglisvert hversu mikil
áhersla er alltaf lögð á hversu ólík kynin
eru.“
Upp á grínið er Linda spurð hvað
amma hennar segi við tiltæki barnabarns-
ins. „Ég hef ekki sagt henni frá því, en hún
býr reyndar erlendis. Mér fannst svolítið
fyndið þegar sumir, sem vissu að ég var að
undirbúa sýninguna Píka, spurðu hvernig
mér gengi með pjölluna eða pjásuna, rétt
eins og það væri penna orðalag. Svo var
fólk líka að spyrja eldri strákinn minn, níu
ára, hvað honum fyndist um að mamma
hans væri að teikna píkur. Þegar ég út-
skýrði fyrir honum hugsunina að baki,
fannst honum það bara flott.“
Sjálf kveðst Linda vera alin upp við að
tala hispurslaust um píku og sama sé uppi á
teningnum þegar synir hennar eiga í hlut.
Hún er spennt að vita hverjir mæta á sýn-
inguna í kvöld.
Píkumyndir upp á punt og pælingar
Linda Jóhannsdóttir, hönn-
uður og stílisti, opnar í dag
listsýninguna Píka. Þar getur
að líta fimmtíu teikningar í
pastellitum sem hún vann með
vatnslitum og blandaðri
tækni. Töfrar og tabú eru
leiðarstefið í verkunum.
Á teikniborðinu Linda sýnir fimmtíu teikningar sem hún vann með vatnslitum og blandaðri tækni og sérhannaði síðan ramma utan um allar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hönnuðurinn Linda Jóhannsdóttir segist með sýningunni vilja vinna gegn því tabúi sem píkan og heiti hennar er ennþá í samfélaginu.
Facebook: Pastelpaper. Sýningin verður
opnuð kl. 18 í kvöld, miðvikudag 1. nóvember
og opin til kl. 22. Síðan virka daga kl. 13 - 20
og kl. 13 - 18 um helgina.
„Sannleikurinn er einfaldlega sá, að þessi
sýning er óborganlegt leikhús“
BS. DV
„Túlkun Atla Rafns Sigurðarsonar á
Mikael er í einu orði sagt stórkostleg“
SBH. Morgunblaðið
„Vel skrifað íslenskt leikverk
í kraftmikillri uppfærslu“
MG. Fréttablaðið