Morgunblaðið - 01.11.2017, Qupperneq 16
AFP
Pug Þegar dagur var að kveldi kominn höfðu margir komið við í Pugs and Pals, sem opnað var í London í fyrradag.
Pug-hundar eru sagðir það heitasta í tískunni áBretlandi um þessar mundir. Algjört tískuæðiog þarfaþing, ef svo má þýða „must have“ einsog hermt er á fréttavef AFP. Pug-hundaeig-
endur elska þessi litlu krumpuðu og kubbslegu krútt
með stóru augun og eru í auknum mæli farnir að taka
þau með sér þegar þeir fá sér síðdegiste á kaffi-
húsum eða jafnvel í kokteilboð. Og eru hundarnir þá
yfirleitt klæddir eins og hæfir tilefninu.
Enn sem komið er geta íslenskir pug-hundaeig-
endur ekki tileinkað sér þessa tísku því ólöglegt er
að taka hunda eða önnur gæludýr með sér á kaffi-
hús eða veitingastaði. Breytingar á regluverkinu
hafa verið til umræðu, en hugsanlega taka þær ekki
gildi áður en tískuæðið rennur sitt skeið á enda.
Svo getur líka verið að pug-hundarnir verði sígildir
sem nokkurs konar fylgihlutir þeirra sem vilja tolla
í tískunni.
Víða um Bretland hafa verið opnuð svokölluð
pop-up pug kaffihús, sem sérstaklega eru ætluð
pug-hundum og eigendum þeirra. Fyrst reið á
vaðið kona að nafni Anushka með pug-kaffihúsi í
Guildford, heimaborg sinni. Síðan hefur hún haft
ærinn starfa við að skipuleggja pug-viðburði í
kaffihúsum sem sífellt eru að skjóta upp kollinum.
Pug-hundarnir gátu t.d. fagnað hrekkjavökunni
með eigendum sínum á pug-kaffihúsum og þar
verður þeim heldur ekki í kot vísað um jólin. Nýj-
asta kaffihúsið þessarar gerðar, Pugs and Pals,
var opnað í Brick Lane hverfinu í London í fyrra-
dag. Þar kostar 5
pund, eða um 700
krónur, að ganga
í bæinn, og tvö-
falt meira fyrir þá
sem engan hund-
inn hafa.
Með pug-hunda í hanastélin
Á Bretlandi er talað um tískuæði
því pug-hundar njóta vaxandi vin-
sælda, pug-kaffihús eru opnuð og
pug-hundaeigendur taka hundana
jafnvel með sér í samkvæmi.
Sjálfa Eigandi Pugs and Pals með hundinum sínum.
Í góðum félagsskap Gestir gæða sér á tertu á meðan
hundurinn þeirra unir sér hið besta á kaffihúsinu.
Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Movie Star
hvíldarstóll
Verð frá 398.000,-
Borgarbókasafnið og Kóder í samstarfi við CCP og RÚV
halda upp á Norrænu leikjavikuna 2017 með allsherjar
Leikjadjammi í Gerðubergi, 3. - 5. nóvember. Djammið
hefst með málþinginu „Tölvuleikir sem skapandi afl“ kl.
14, föstudaginn 3. nóvember, og er ætlað kennurum, frí-
stundaleiðbeinendum og foreldrum. Þátttakendur eiga
það sameiginlegt að telja rétta notkun á tölvuleikjum geta
haft jákvæð áhrif. Meðal þátttakenda eru Bergur Finn-
bogason, þróunarstjóri hjá tölvuleikjaframleiðandanum
CCP, Nökkvi Jarl Bragason, tölvuleikjafræðingur, og Tinna
Breiðfjörð Guðjónsdóttir, MA í tæknitengdri kennsluhönn-
un.
Á laugardeginum er sýning kl. 13 - 15 í þar sem aðilar úr
ýmsum áttum verða með sýningarbása. CCP verður með
sýndarveruleikagleraugu, Spilavinir og Nexus með pop-up
búð, ásamt því að kynna allskonar spil, RÚV kynnir undur
Micro:bit tölvunnar og krakkar úr Hólabrekkuskóla sýna
hvað þau hafa verið að bralla með Arduino tölvur.
Kl. 12 - 16 á laugardag og sunnudag er svo boðið upp á
tölvuleikjasmiðjur þar sem ungt fólk á aldrinum 10-16 ára
getur lært að búa til tölvuleiki í 3d, með aðstoð forritanna
Unity 3d og Alice.
Skráning: www.borgarbokasafn.is
Djammið Málþing, tölvuleikjasmiðja og leikjasýning.
Allsherjar leikjadjamm
1861 Pug-
hundar voru fyrst
sýndir á hunda-
sýningu á Eng-
landi 1861. Í stíl Sumir pug-hundar eiga fleiri flíkur en eigendurnir.
Norrænu leikjavikunni 2017 fagnað í Gerðubergi