Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ný talning Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til að um 8.000 nýjar íbúðir verði fullgerðar á höfuðborgarsvæð- inu á árunum 2017 til 2020. Nú séu alls 3.734 íbúðir í byggingu, eða 55,5% fleiri en fyrir tveimur árum. Til samanburðar áætlar Íbúðalána- sjóður að uppsöfnuð þörf á landinu öllu sé um 4.845 íbúðir og er stærsti hluti þess á höfuð- borgarsvæðinu. Við þetta bætist árleg þörf fyrir nýjar íbúðir sem er mikil um þess- ar mundir, m.a. vegna mikillar fólksfjölgunar. Sigurður Hann- esson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar- ins, segir það munu ráðast af hag- sveiflunni hvort jafnvægi muni nást í framboði og eftirspurn árið 2020. Verði í samræmi við áætlun í ár Hann segir nýju talninguna hjá SI leiða í ljós að fleiri íbúðir eru í bygg- ingu en verið hafa. „Það er nokkurn veginn í takt við okkar áætlanir frá síðustu talningu. Það sem kannski kemur á óvart er spáin fyrir næstu ár. Okkur sýnist að það verði fullgerðar færri íbúðir en við áætluðum áður. Að byggðar verði álíka margar íbúðir í ár og við áætl- uðum í febrúar en fleiri íbúðir á næsta ári en við áætluðum. Það er hins veg- ar útlit fyrir færri nýjar íbúðir árin 2019 og 2020 en við áætluðum,“ segir Sigurður og vísar til spár SI í febrúar sl. „Samkvæmt talningunni hefur hægt á fjölgun íbúða sem eru á fyrstu byggingarstigum.“ 774 færri íbúðir en talið var Spurður hvað skýri að samtökin hafa endurmetið áætlunina til lækk- unar segir Sigurður það geta haft áhrif að framkvæmdir taki lengri tíma en áður var áætlað. „Það er að einhverju leyti út af leyf- ismálum. Við áætlum nú að það verði 774 færri íbúðir fullgerðar á höfuð- borgarsvæðinu á tímabilinu 2017- 2020 en við áætluðum áður. Ástæðan fyrir því er m.a. tafir en nú er reiknað með lengri byggingartíma en í fyrri spá vegna áherslu á þéttingu byggð- ar. Þétting byggðar hægir á fram- kvæmdum. Það er m.a. vegna þess að hún eykur á flækjustig í framkvæmd. Það þarf t.d. að sækja um afnot af borgarlandi þegar steypa á vissa byggingarhluta sem tekur langan tíma í afgreiðslu.“ Spurður hvaða afleiðingar það geti haft á markaðnum að minna verði byggt en spáð var segir Sigurður það hljóta að hafa áhrif til hækkunar. Dregur úr hagvexti „Það er heilmikil spurn eftir hús- næði og framboð hefur verið of lítið. Saman hefur þetta leitt til mikillar verðhækkunar. Á móti kemur að það er að draga úr hagvexti og er því spáð að það haldi áfram. Það þýðir að eftir- spurn á íbúðamarkaði mun ekki vaxa jafn hratt og áður. Framboðið er að aukast en þó minna en við reiknuðum með áður. Við sjáum því fyrir okkur betra jafnvægi á þessum markaði, þ.e. minni verðhækkun en verið hef- ur. Áfram verður þó framboðsskortur og verð mun hækka frekar,“ segir Sigurður. Vegna minna framboðs en áður var reiknað með muni tímabil spennu á húsnæðismarkaði verða eitthvað lengra en áður var talið. Þ.e.a.s. að lengra sé í að jafnvægi verði á framboði og eftirspurn. Sigurður rifjar upp að sveitar- stjórnarkosningar fari fram í vor. „Ég gef mér að skipulagsmál verði eitt af stóru málunum hjá sveitar- félögunum á höfuðborgarsvæðinu. Það getur vel verið að áherslur breyt- ist þannig að sveitarfélög fari að skipuleggja nýjar lóðir og ný hverfi í meira mæli en verið hefur,“ segir Sig- urður Hannesson. Færri nýjar íbúðir en talið var  Samtök iðnaðarins áætla nú að færri íbúðir verði tilbúnar á næstu árum en þau áætluðu í febrúar  Hægagangur við leyfisveitingar ein skýringin  Takmarkað framboð er talið munu þrýsta á verðið Fullgerðar íbúðir áhöfuðborgarsvæðinu,spáSI Heimild: Samtök iðnaðarins Spá í okt. 2017 Spá í feb. 2017 2.500 2000 1.500 1.000 500 0 2016 raun 2017 áætlun 2018 spá 2019 spá 2020 spá Íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt talningu SI Heimild: Samtök iðnaðarins Febrúar 2016 September 2016 Febrúar 2017 September 20171.600 1.200 800 400 0 Reykjavík Kópavogur Garðabær Hafnarfjörður Mosfellsbær Seltjarnarnes Fullgerðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu 13.813 íbúðir 2001-2008 6.252 íbúðir 2009-2016 8.002 íbúðir 2017-2020 Heimild: Samtök iðnaðarins 2.500 2000 1.500 1.000 500 0 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 20 Uppsöfnuð þörf nú: 4.845 íbúðir á landinu öllu að mati íbúðalánasjóðs Morgunblaðið/Eggert Framkvæmd Uppsteypa á 12 hæða íbúðaturni á Höfðatorgi er langt komin. Sigurður Hannesson Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Inga Sæland, formaður Flokks fólks- ins og Guðmundur Ingi Kristsinsson, þingmaður Flokks fólksins, missa bæði réttindi sín til örorkubóta nú þegar þau eru orðin launþegar en þau voru bæði öryrkjar fyrir kjör sitt til Al- þingis. Guðmundur sem er einnig for- maður Bótar, að- gerðahóps um bætt samfélag, segir að öll rétt- indi hverfi. „Við missum allt það og verðum launþegar,“ segir Guðmundur í sam- tali við Morgunblaðið. Endurgreiðsla líklega 2018 Hann segir líklegt að þau muni síð- an bæði upplifa skerðingu á næsta ári vegna þeirra tekna sem þau fá í lok árs. „Já, það skerðist og við þurf- um að endurgreiða og alls konar. Við eigum eftir að lenda í einhverju skrýtnu 1. júlí á næsta ári þegar upp- gjör ársins fer fram. Það munu koma stórfurðulegir hlutir úr þeim potti og ég hlakka eiginlega bara til að sjá hvernig það kemur út,“ segir Guð- mundur og bætir við að það sé raunin með margra öryrkja sem ná að afla sér einhverra tekna meðan þeir þiggja bætur. „Hinn 1. júlí er kall- aður skerðingardagurinn, fyrir flesta. Þetta er bara eins og hlut- skipti flestra öryrkja sem er auðvitað alveg skelfilegt, að tekjurnar skuli hafa svona rosalega mikil áhrif.“ Guðmundur segir að slíkt sé fælandi fyrir öryrkja að taka að sér vinnu meðan þeir eru á bótum því slíkt get- ur valdið skerðingum og endur- greiðslu. „Ég veit um marga sem hafa feng- ið tekjur og þeir tapa bara á þeim. Sumir hafa fengið 500 þúsund krónur í tekjur og tapað síðan 100 til 200 þúsund krónum. Tapa kannski húsa- leigubótum og fleira.“ Spurður um hvort hann viti til þess að tveir örykjar hafi farið beint inn á þing eins og hann og Inga segist hann ekki vita til þess. „Ég var nú að koma af síðasta kjararáðsfundi hjá Öryrkjabandalaginu og mér skilst að það hafi aldrei gerst að einhver fari beint úr þessum hópi og inn á þing.“ Fá ekki örorku- bætur á Alþingi  Þingmenn Flokks fólksins glata bótum Guðmundur Ingi Kristinsson Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Nettoline fær 5 stjörnur frá dönskum gagnrýnendum styrkur - ending - gæði Eldhúsinnréttingar hÁgÆÐa dansKar OpiÐ: Mán. - fim. kl. 09 til 18 Föstudaga kl. 09 til 17 Laugardagar kl. 11 til 15 úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.