Morgunblaðið - 01.11.2017, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hjólaþjófnaður er ekki að aukast,
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í Reykjavík og í Hafnarfirði. Á
Facebooksíðu Reiðhjólabænda var
sett inn færsla í
vikunni þar sem
sagður var vera
faraldur af þjóf-
um sem ferðuð-
ust milli hverfa á
höfuðborgar-
svæðinu og stælu
hjólum og vesp-
um og sendu úr
landi. Tilkynn-
ingum um hjóla-
og vespuþjófnað
hefur ekki fjölgað hjá lögreglunni á
þessu ári og eru ekki fleiri í ár en í
fyrra.
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson,
upplýsingafulltrúi lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, segir tilkynn-
ingum um hjólastuld alltaf fjölga á
vorin, frá maí og fram á haust eru
þær fleiri en á öðrum árstímum.
Í september í fyrra bárust lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu 67 til-
kynningar um stolin reiðhjól en þær
voru 50 í september í ár. Þegar til-
kynningarnar eru sem flestar fara
þær hátt í 70 á mánuði en fæstar nið-
ur í sjö eins og í janúar á þessu ári.
Þegar afbrotatölfræði Lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu í sept-
ember 2017 er skoðuð má sjá að til-
kynningar um stolin reiðhjól voru 51
í maí, 48 í júní, 47 í júlí og 68 ágúst.
Eru þetta svipaðar tölur og síðustu
ár.
Yfir 100 hjól boðin upp árlega
Gunnar Rúnar segir að þeim sé
ekki kunnugt um að stolin reiðhjól
séu sett í gám og send úr landi.
Hvað verður þá um öll þessi stolnu
reiðhjól? „Hjólum er oft stolið og þau
skilin eftir einhversstaðar og enginn
hirðir um að sækja þau, það er það
sama með vespurnar. Einhverjir
leggja sig fram um að hafa uppi á
hjólinu sínu. Sum hjólin enda hjá
okkur og við reynum að hafa uppi á
eigendum og þau komast stundum
aftur til þeirra en önnur eru skilin
eftir. Lögreglan heldur reiðhjóla-
uppboð á hverju ári þar sem eru
aldrei færri en hundrað óskilahjól
boðin upp.“
Hjólaþjófnaður
hefur ekki aukist
Lögreglan fékk tilkynningar um
fimmtíu horfin hjól í september
Hjólað Mest hverf-
ur af hjólum frá maí
fram í október.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Hafréttarsáttmálinn er ekki með
lausnir á því ef grunnlínupunktar
hverfa vegna hækkunar sjávarmáls.
Miklir hagsmunir eru í húfi ef við
myndum þurfa að draga línuna innar.
Við þurfum að fylgjast vel með þróun
mála í þjóðarétti og sjá hvað hægt er
að gera til að tryggja grunnlínu-
punkta,“ segir Svava Pétursdóttir
lögfræðingur. Í meistaranámi sínu
við Háskólann í Reykjavík rannsak-
aði hún hvort grunnlínur við Ísland
standast hafréttarsamning Samein-
uðu þjóðanna.
Svava segir að grunnlínur land-
helginnar standist að meginstefnu til.
Ákveðin atriði þurfi þó að hafa í huga,
eins og hækkun sjávarmáls vegna
loftslagsbreytinga.
Segir hún að nefnd fræðimanna sé
að fjalla um viðbrögð við hækkun
sjávarmáls og áhrif þess á landhelgi
ríkja ef grunnlínupunktar hverfa.
Hún segir mikilvægt fyrir íslensk
stjórnvöld að fylgjast með en tekur
fram að mörg ár hafi tekið að gera
hafréttarsamninginn og honum verði
ekki auðveldlega breytt.
Ekki víst að punktar tapist
Sagt er frá rannsókn Svövu í Tíma-
riti Háskólans í Reykjavík sem kem-
ur út á næstu dögum. Þar kemur
fram að hafsvæði ríkja eru yfirleitt
ekki mæld út frá strandlengjunni
sjálfri heldur grunnlínum. Út frá
þeim er meðal annars landhelgi og
efnahagslögsaga ákvörðuð, þar á
meðal fiskveiðilögsaga sem er mikið
hagsmunamál fyrir Íslendinga. Fram
kemur að almennt eigi grunnlínur að
fylgja stórstraumsfjöruborði strand-
lengjunnar en þegar hún er mjög
vogskorin og óregluleg, eða ef
strandeyjaröð er í næsta nágrenni,
getur ríki dregið beina línu á milli við-
eigandi grunnlínupunkta. Sú aðferð
er notuð hér á landi.
Svava segir að mörg ríki hafi dreg-
ið óhóflegar grunnlínur, meðal ann-
ars til að loka stórum flóum. Slík mál
hafa farið fyrir Alþjóðadómstólinn.
Bandaríkjamenn hafa verið dug-
legastir við að mótmæla þannig
vinnubrögðum. Svava segir að þeir
hafi ekki mótmælt okkar grunnlínum
þótt málið hafi verið til umræðu með-
al fræðimanna og hugsanlegt að þeir
mótmæli seinna. Hún bendir jafn-
framt á að með samningum við ná-
grannaríki okkar um afmörkun haf-
svæða hafi fengist viðurkenning
þeirra á nokkuð mörgum grunn-
línupunktum. Spurningin sé hins veg-
ar hvort grunnlínupunktarnir haldi ef
þeir fara í kaf. Sumir fræðimenn telji
að þeir geti eigi að síður staðist.
Viðkvæmasti punkturinn fyrir
okkur Íslendinga er Geirfugladrang-
ur út af Reykjanesi. Hann var um 10
metra hár en er nú flæðisker. Tapi
hann stöðu sinni minnkar íslenska
lögsagan um 10 til 15 þúsund ferkíló-
metra. Miklir hagsmunir eru því í
húfi, ekki síst fyrir fiskveiðarnar en
einnig aðra málaflokka sem taka mið
af grunnlínupunktum.
Ekki ráðlegt að steypa
Í ritgerðinni kemur fram að flestir
sem þekkja til málaflokksins séu
þeirrar skoðunar að ríki eigi ekki að
bregðast við með því að byggja
mannvirki ofan á hverfandi grunn-
línupunkta eins og við Íslendingar
gerðum með byggingu þyrlupalls á
Kolbeinsey. Fyrir mörgum árum var
samþykkt á Alþingi að setja radíóvita
á Geirfugladrang en ekkert varð úr
því.
Grunnlínupunktar í hættu
Ekki ljóst hvað gerist ef sker sem ráða stærð landhelginnar hverfa vegna hækkunar sjávarmáls
Íslenska lögsagan minnkar um 10-15 þúsund ferkílómetra ef Geirfugladrangur missir stöðu sína
Morgunblaðið/Golli
Í fjöru Svava Pétursdóttir hefur lengi haft áhuga á málefnum hafsins. Tók hún hann í arf frá afa sínum.
Geirfugladrangur
Eldey
Geirfugladrangur
Svava Pétursdóttir hefur lengi
haft áhuga á auðlindarétti og
hafrétti. Hún segir að það megi
að einhverju leyti rekja til þess
að afi hennar, Vilhjálmur Árna-
son lögmaður, var sjómaður á
yngri árum og ræddi mikið mál-
efni hafsins. Hún starfar nú sem
lögfræðingur hjá Umhverfis-
stofnun og fæst við önnur mál.
Hún segir að rannsóknar-
vinnan hafi verið skemmtileg.
Hún fékk styrk frá Samtökum
fyrirtækja í sjávarútvegi og not-
aði hann til að afla sér upplýs-
inga á bókasafni í London. Hún
fékk ekki sömu viðtökur þegar
hún óskaði eftir gögnum á Þjóð-
skjalasafni Íslands sem tengj-
ast vinnu við að skilgreina bein-
ar grunnlínur fyrr á árum. Hún
fékk synjun á þeim forsendum
að upplýsingarnar vörðuðu
hagsmuni íslenskra ríkisins. Á
því sést hversu viðkvæmt um-
fjöllunarefnið er.
Fékk ekki að
skoða gögn
VIÐKVÆMT MÁLEFNI