Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur staðfest synjun
umhverfis- og skipulagsráðs á
breyttu skipulagi fyrir lóðina Norð-
urbrún 2 í Laugarási. Áform voru
uppi um að byggja tvær hæðir með
íbúðum ofan á verslunarhæð. Íbúar
í nágrenninu mótmæltu harðlega og
í framhaldinu ákváðu eigendur lóð-
arinnar að endurskoða tillöguna.
THG arkitektar ehf. lögðu upp-
haflega inn umsókn í byrjun þessa
árs varðandi breytingu á deiliskipu-
lagi fyrir lóðina nr. 2 við Norður-
brún. Í breytingunni fólst að hækka
húsið um tvær inndregnar hæðir og
breyta notkun þess úr verslunar-
húsnæði í atvinnuhúsnæði með
íbúðum, 30-90 fermetrar að stærð.
Fjöldi íbúða yrði samtals átta. Á
götuhæð áttu að vera verslun og
þjónustustarfsemi.
Verslunarrekstur gekk ekki
Lóðin sem um ræður er á horni
Austurbrúnar og Norðurbrúnar.
Gegnt henni, að Norðurbrún 1, eru
þjónustuíbúðir fyrir aldraða og fé-
lagsmiðstöð. Neðar í Laugarásnum
er Hrafnista, sem er næst stærsta
öldrunarheimili landsins.
Fram kemur í greinargerð THG
arkitekta ehf. að á lóðinni hafi verið
byggt verslunarhús á einni hæð ár-
ið 1965. Lengi vel hafi reksturinn
gengið vel en með tilkomu lág-
vöruverðsverslana hafi hallað und-
an fæti. Ekki hafi verið rekin versl-
un í húsinu undanfarin ár og það sé
í niðurníðslu. Ítrekað hefur verið
kvartað yfir sóðaskap í og við húsið.
Tillaga að breyttu skipulagi var
auglýst frá og með 13. júní til og
með 25. júlí 2017. Fjölmargar at-
hugasemdir bárust frá íbúum í ná-
grenninu.
Eftirfarandi svar er þverskurður
af þeim mótmælum sem íbúarnir
höfðu uppi:
„Við sem erum eigendur og/eða
leigutakar íbúðarhúsanna við Norð-
urbrún 4-20 mótmælum harðlega
fyrirhuguðum byggingaáformum á
lóð nr. 2 sem fráleitum, bæði hvað
varðar stærð byggingar, skugga-
myndun sem er veruleg og þreng-
ingar götunnar úr 7,5 metrum í 5,5
metra. Veruleg fækkun bílastæða,
óskilgreint hvaða verslunarrými
eða annar atvinnurekstur verður,
brot á reglugerð þar sem ekki er
gert ráð fyrir stæði fyrir hreyfi-
hamlaða. Fyrirhuguð bygging er í
engu samræmi við skipulag það
sem fyrir er og mun ef af verður,
skerða lífsgæði þeirra sem búa í
þesu hverfi.“
Eigendur eignar við Norðurbrún
benda á að verði áformin að veru-
leika muni gæði eignarinnar skerð-
ast og þeir verða fyrir umtalsverðu
tjóni. „Samkvæmt tillögunum mun
skuggavarp Norðurbrúnar 2 hindra
sólarljós inn í garðinn okkar drjúg-
an hluta úr degi, eða á milli 15-19.
Það er einmitt sá tími dagsins þar
sem útiaðstöðu verður helst notið
mestan hluta árains, “ segir m.a. í
athugasemdunum. Því séu þessi
áform algerlega óásættanleg.
Niðurstaða skipulagsfulltrúans í
Reykjavík var eftirfarandi:
„Í samráði við umsækjendur/
eigendur hefur verið ákveðið að
endurskoða tillöguna meðal annars
með tilliti til innkominna athuga-
semda. Í ljósi þess er athugasemd-
unum ekki svarað efnislega heldur
mælt með því að tillagan verði ekki
samþykkt. Ef breytt tilaga berst
verður hún kynnt.“
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkur og síðar borgarráð
staðfestu þessa niðurstöðu skipu-
lagsfulltrúans.
Mótmæli nágranna tekin til greina
Áform voru uppi um að byggja tvær hæðir með íbúðum ofan á verslunarhæð að Norðurbrún 2
Nágrannarnir mótmæltu harðlega og hætt var við áformin Húsnæðið ónotað og er í niðurníðslu
Morgunblaðið/RAX
Norðurbrún 2 Húsið var byggt árið 1965. Þar var verslun rekin til margra ára. Engin starfsemi hefur verið í húsinu undanfarið og það er í niðurníðslu.
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Til sölu býli í suður Svíþjóð (Ostralen, Simrishamn) 120 km frá
CPH. Íbúðarhúsið er 240 m2, byggingarár 1927. Húsið var
uppgert í upprunalegum stíl 2011, nýtt þak, gólfhiti, kamína, loft-
kæling m.m. Útihús er 100 m2 og er nýuppgert, þ.m.t. þak ásamt
nýjum hurðum m.m. Eignarlóð 1,3 hektarar, eigið vatn.
Uppl. email palljonsson1@gmail.com, sími 612 0668.
Til sölu býli í suður Svíþjóð
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Á kaffihúsum þarf að vera hlýleg-
ur bragur og heimilisleg stemning.
Gólfflöturinn hér er ekki stór en á
móti kemur að hér er hlýlegt and-
rúmsloft og góð stemning. Gestum
finnst notalegt að heyra marrið í
timurfjölunum þegar gengið er um
gólf þessa húss, sem er eitt það elsta
á Selfossi,“ segir Tómas Þórodsson
á Kaffi krús á Selfossi. Staðurinn er
25 ára um þessar mundir og vegna
þessa hefur verið bryddað upp á
ýmsu skemmtilegu að undanförnu,
svo sem tilboðum af matseðli.
Uppáhelling í boði
Tíðindum þótti sæta haustið 1992
að austur á Selfossi var opnað kaffi-
hús, það fyrsta utan höfuðborgar-
svæðisins að talið er. Anna Árna-
dóttir sem að þessu stóð þótti
framúrstefnukona og margir höfðu
efasemdir um framtakið. „Ég man
að einhverjir sögðu að svo víða væri
í boði uppáhelling og tíu dropar af
kaffi að þetta væri algjör óþarfi.
Enginn færi að kaupa kaffi og
svona rekstur bæri sig aldrei. Ann-
að átti þó eftir að koma á daginn,“
segir Tómas sem tók við rekstr-
inum árið 2010. Við veitinga-
starfsemi á Selfossi hefur hann
starfað í um þrjátíu ár.
Kaffi krús er í næsta húsi austan
við verslunarhús Krónunnar á Sel-
fossi; það er að Austurvegi 7 sem er
háreist timburhús, byggt árið 1934.
Eldhús er í kjallara, en í salar-
kynnum á jarðhæð og í risi eru sæti
fyrir alls 68 manns. Á seðli dagsins
eru allra handa heimabakaðar tert-
ur, kökur og brauðréttir, skyndibit-
ar og eldbakaðar pitsur svo eitt-
hvað sé nefnt.
„Á svona stað þarf að vera fjöl-
breytni. Gestir vilja hafa úr mörgu
að velja,“ segir vertinn.
Rekur þrjá veitingastaði
Tómas rekur alls þrjá veitinga-
staði á Selfossi sem eru nánast hver
við hliðina á öðrum. Þetta eru Kaffi
krús, hollustustaðurinn Yellow sem
er í sama húsi og Krónan og við Ölf-
usárbrúna er Tryggvaskáli sem er
veitingastaður af fínni sortinni.
„Þessir þrír staðir á sömu þúf-
unni eru auðvitað hver öðrum ólík-
ari, en að grundvöllur sé fyrir starf-
semi þeirra allra endurspeglar að
Selfossbær hefur gjörbreyst á ekki
löngum tíma. Ég rakst um daginn á
gamlar myndir teknar um 1990 á
miðjum degi af Austurveginum,
sem er aðalgatan hér í bænum, og
þar sést ekki einn einasti bíll á ferð-
inni. Í dag er hins vegar endalaus
umferð alla daga í gegnum bæinn
og margt ferðafólk sem gjarnan
kemur á Kaffi krús. Hjá mörgu af
heimafólki er líka fastur liður að
líta hér inn; sumir vinahópar mæta
alltaf einu sinni í viku á sama tíma,“
segir Tómas sem nú undirbýr að
bæta aðstöðuna á sólpallinum sunn-
an við kaffihúsið. Stendur til að það
verði yfirbyggt að hluta, og bekkir
og borð verða sett upp – svo þar
geti fólk fengið sér veitingar og
kaffi úr krús.
Krúsin við Austurveginn í 25 ár
Fyrsta kaffihúsið
utan Reykjavíkur
Marr í fjölum
Reisulegt Kaffi krús er að Austur-
vegi 7 í miðbænum á Selfossi, einu
af elstu húsunum þar í bæ.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hnallþórur Tertur á kaffihúsinu eru allar heimabakaðar sem fólk kann vel
að meta. Á myndinni eru Ásta Kristín Helgadóttir og Tómas Þóroddsson.