Morgunblaðið - 01.11.2017, Side 34
Þorleifur Guðmundsson „Ég efast um að pabbi hafi nokkurn tímann neytt
slíkra efna fyrr en hann notaði kannabisolíuna,“ segir Málfríður.
Ég er enginn glæpamaður Málfríður Þorleifsdóttir er nú fyrir dómi í Danmörku í einu umtalaðasta fíkniefnamáli
síðari tíma þar í landi, þar sem hún og fjórir aðrir eru ákærð fyrir brot á fíkniefna- og læknalögum.
VIÐTAL
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Ég hef alltaf verið löghlýðin og
ég átti aldrei von á að vera í þess-
ari aðstöðu. Ég er enginn glæpa-
maður.“ Þetta segir Málfríður Þor-
leifsdóttir, íslensk kona sem er
sakborningur í einu mest umtalaða
fíkniefnamáli síðari tíma í Dan-
mörku, en það snýst um fram-
leiðslu og sölu á kannabisolíu í
lækningaskyni. Réttarhöld yfir
Málfríði og fjórum öðrum fara nú
fram fyrir héraðsdómi í bænum
Holbæk á Sjálandi í Danmörku og
verði þau fundin sek gæti margra
ára fangelsi beðið þeirra.
Forsaga málsins er að faðir Mál-
fríðar, Þorleifur Guðmundsson sjó-
maður, var greindur með krabba-
mein í maga og vélinda í febrúar
2014. Þau lyf, sem honum voru
gefin, slógu ekki á þá verki og
óþægindi sem veikindunum fylgdu.
Hann fór að leita sér upplýsinga
um aðra möguleika á netinu og sá
þar ýmsar greinar og umfjallanir
um að krabbameinssjúklingar
hefðu neytt kannabisolíu sem
verkjastillandi lyfs með góðum ár-
angri.
Þorleifur vakti máls á því við
Málfríði að hann vildi reyna
kannabisolíu til að lina þjáningar
sínar. Hann var búsettur á Íslandi
en hún í Danmörku þar sem tals-
vert auðveldara er að nálgast efnið
að hennar sögn. „Pabbi var með
krabbamein í maga og hann hélt
engu niðri. Um leið og hann borð-
aði eitthvað, kom það strax upp
aftur. Mér fannst virkilega erfitt
að vera beðin um að gera eitthvað
ólöglegt, en á sama tíma hikaði ég
ekki eina sekúndu þegar hann bað
mig um þetta; ég hefði gert hvað
sem var til að láta honum líða bet-
ur,“ segir Málfríður.
Var mikið á móti fíkniefnum
Hún segist hafa alist upp við að
fíkniefni, eins og kannabis, bæri að
varast og því kom þessi beiðni föð-
ur hennar henni mikið á óvart.
„Pabbi og mamma höfðu alltaf
sterkar skoðanir á fíkniefnum og
ég efast um að pabbi hafi nokkurn
tímann neytt slíkra efna fyrr en
hann notaði kannabisolíuna síðustu
mánuði ævi sinnar,“ segir Mál-
fríður.
Eftir að faðir hennar vakti máls
á þessu las Málfríður sér til um
áhrif kannabisefna á líðan krabba-
meinssjúklinga, en segist hafa ver-
ið „gjörsamlega græn“ hvað þetta
varðaði og lítið velt kannabisefnum
fyrir sér fram að því. „Það eru svo
margar tilfinningar sem tengjast
þessu. Þarna var maður, sem var
mér afar kær með banvænan og
kvalafullan sjúkdóm og ég var á
leiðinni að brjóta lög. Ég leitaði
lengi þangað til ég fann góða fram-
leiðsluvöru, sendi pabba hana og
þetta var það eina sem gat linað
þjáningar hans.“
Þorleifur faðir Málfríðar lést
síðla árs 2014 og hún segir að
neysla olíunnar hafi gert síðustu
stundir hans bærilegri.
Byrjaði eftir veikindi dóttur
Málfríður keypti olíuna af manni
að nafni Claus Nielsen, sem hefur
viðurnefnið „Moffe“ og er hann nú
einnig fyrir rétti í Danmörku í
sama dómsmáli og hún. Hún segir
að Claus hafi byrjað að vinna olíu
úr kannabisplöntunni þegar dóttir
hans veiktist af krabbameini en ol-
ían var það eina sem sló á verki
hennar. Í byrjun keypti fjöl-
skyldan olíuna í Kristjaníu en þar
var hún svo dýr að þau höfðu ekki
ráð á því og Claus fór sjálfur að
útbúa kannabisolíu fyrir dóttur
sína. Í kjölfarið fór hann að selja
öðrum sjúklingum olíuna og þann-
ig hófust kynni þeirra Málfríðar.
Þau ákváðu að hefja samstarf
um framleiðslu kannabissúkkul-
aðis, sem Málfríður útbjó í eldhús-
inu heima hjá sér, og seldu það á
facebooksíðunni „Moffes“ og á
samnefndri vefsíðu. „Við pössuðum
upp á að selja eingöngu sjúkling-
um, við vitum ekki til þess að við
höfum selt olíuna til fólks sem vildi
komast í vímu enda er miklu ódýr-
ara að reykja kannabis ef tilgang-
urinn er að komast í vímu,“ segir
Málfríður.
Ólöglegt, en ekki rangt
Heimaframleiðsla og sala kanna-
bisolíu er ólögleg í Danmörku, rétt
eins og hér á landi. Lögregla
stöðvaði starfsemina í september
2016, Málfríður og Claus voru
handtekin og ákærð ásamt þremur
öðrum fyrir stórfellt brot á fíkni-
efnalöggjöf Danmerkur, en við-
urlög við þeim brotum sem þau
eru ákærð fyrir gætu varðað allt
að tíu ára fangelsi. Réttarhöld
standa núna yfir, þau hófust 23.
október, þeim lýkur 6. nóvember
og búist er við því að dómur falli í
málinu 21. nóvember.
Málið sjálft og réttarhöldin hafa
verið mikið til umfjöllunar í dönsk-
um fjölmiðlum og vakið ýmsar
spurningar um hvort leyfa eigi
kannabis til lækninga. Sakborning-
unum hefur borist stuðningur víða
að, m.a. frá stjórnmálamönnum og
ýmsum samtökum, enda er litið á
málið sem nokkurs konar prófmál
og stuðningsmenn þeirra Claus,
Málfríðar og félaga þeirra hafa
mætt fyrir framan dómhúsið og
lýst yfir stuðningi sínum við þau.
„Það er skelfilegt að eitthvað, sem
hefur hjálpað öðru fólki svona mik-
ið, skuli vera ólöglegt,“ hefur
Danska ríkissjónvarpið, DR, eftir
einum stuðningsmanninum.
DR gerði heimildamynd um
Claus „Moffe “Nielsen og kanna-
bisframleiðslu hans undir heitinu
„Kannabismaðurinn frá Holbæk“.
Þar segir hann m.a. að hann selji
eingöngu krabbameinssjúklingum
og öðrum sem líða kvalir sjúkdóma
sinna vegna. „Ég veit að það sem
við erum að gera er ólöglegt. En
það er ekki rangt,“ segir Nielsen í
myndinni.
Við réttarhöldin hafa margir
kaupendur kannabissúkkulaðisins
borið vitni, þeirra á meðal for-
eldrar barna með krabbamein og
hvítblæði og athygli vakti í síðustu
viku þegar í vitnastúku steig Per-
nille Vermund, sem er formaður
danska Borgaraflokksins, en hún
keypti kannabisolíu af Claus handa
fársjúkri móður sinni.
Spurð hvers vegna þau hafi
„Ég hefði gert hvað sem
Málfríður er sakborningur í einu mest umtalaða fíkniefnamáli Danmerkur Útvegaði krabba-
meinssjúkum föður sínum kannabisolíu til að lina þjáningar hans Fór að selja kannabissúkkulaði
Ljósmynd/Skjáskot af dr.dk
„Moffe“ Hann hefur verið kallaður
kannabismaðurinn frá Holbæk.
Kannabis er leyft í lækninga-
skyni víða um heim, m.a. í
Frakklandi og í sumum ríkjum
Bandaríkjanna. Hér á landi geta
læknar ávísað á lyf sem inni-
halda kannabis að því gefnu að
lyfið hafi verið heimilað af
Lyfjastofnun, þ.e. fengið mark-
aðsleyfi eða verið heimilað með
sérstakri undanþágu sem er
bundin einstökum lækni og ein-
stökum sjúklingi.
Í svari Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar, þáverandi heilbrigðis-
ráðherra, við fyrirspurn á þingi
fyrir tveimur árum kom fram að
nú þegar væru til lyf með mark-
aðsleyfi hér á landi sem inni-
halda kannabis og væru þau
m.a. notuð til að draga úr ein-
kennum vegna fylgikvilla heila-
og mænusiggs.
Kannabislyf
eru leyfð hér
á landi
LÖGLEGT VÍÐA UM HEIM
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017