Morgunblaðið - 01.11.2017, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Það er um áratugur síðan Eric Nel-
son flutti til Seattle. Ástæðan fyrir
flutningunum þangað var sú að hann
hafði þá nýlega verið ráðinn nýr
safnstjóri yfir Norræna safninu
(Nordic Heritage Museum) þar í
borginni.
Þá hafði safnið verið starfrækt í
tæpa þrjá áratugi og fyrir dyrum
stóðu miklar breytingar á högum
þess. Eric var maðurinn sem stjórn
safnsins taldi best til þess fallinn að
leiða þá vinnu áfram og nú tíu árum
síðar sér fyrir endann á stóra mark-
miðinu því í maí á næsta ári flytur
safnið úr upprunalegu húsnæði sínu
í glæsilegt stórhýsi sem reist hefur
verið utan um það á besta stað.
Nú í haust settust blaðamaður og
ljósmyndari Morgunblaðsins niður
með Eric í því skyni að fræðast um
safnið og það sem fyrir dyrum
stendur á vettvangi þess. En hvert
má rekja upphaf þessa safns og þess
mikla starfs sem þar hefur verið
unnið á síðustu áratugum?
„Það höfðu verið gerðar nokkrar
tilraunir allt frá 1908 til að opna
skandinavískt safn hér á svæðinu.
Hér eru landnemabyggðir fólks frá
Norðurlöndum. Hingað fluttust Ís-
lendingar og Norðmenn til að vinna í
sjávarútvegi og skipasmíðum og
Finnar og Svíar einkum vegna timb-
urframleiðslu svo að hér myndaðist
stórt samfélag fólks frá þessum
löndum og það á m.a. við um íslenska
samfélagið hér.
Nokkrar tilraunir gerðar til
að koma safni á laggirnar
1906 stofnaði Washington-háskóli
norræna deild sem helguð er tungu-
málum Norðurlanda. Í tengslum við
það var ákveðið að ráðast í stofnun
safns um sömu málefni en það varð
ekki að veruleika. Önnur tilraun var
gerð á fjórða áratugnum. Svo var
það árið 1962 sem stór sýning var
haldin og fólk með tengsl við Skand-
inavíu stóð fyrir hátíðum og öðru
slíku. Þá var mikill áhugi fyrir því að
byggja upp menningarmiðstöð og
safn. Það var svo undir lok 8. áratug-
arins sem félag var stofnað um fyr-
irætlanir af þessum toga. 1979 fengu
forsvarsmenn félagsins augastað á
þessari skólabyggingu sem hýsir
safnið í dag. Henni var jafnt og þétt
breytt í safn og menningartorg þar
sem fólk hefur getað komið saman
og sú starfsemi hefur verið hér óslit-
ið frá vori 1980.“
Starfseminni óx jafnt og
þétt fiskur um hrygg
Eric segir að í upphafi hafi starf-
semin ekki verið stór í sniðum en að
henni hafi jafnt og þétt vaxið fiskur
um hrygg og það hafi m.a. skipt
sköpum að til safnsins hafi ráðist
sænskur bókasafnsfræðingur sem
fylgdi því á uppvaxtarárum þess.
„Lengi vel stefndu forsvarsmenn
safnsins að því að kaupa þá bygg-
ingu sem starfsemin hefur haldist í
frá upphafi en sökum mikils upp-
gangs hér í Ballard-hverfinu í
Seattle voru skólayfirvöld á svæðinu
aldrei reiðubúin til að selja húsið.
Það olli því að leita varð annarra
leiða til að koma skikki á framtíðar-
staðsetningu safnsins.“
Af mikilli forsjálni hófst safn-
stjórnin handa við að kaupa bygg-
ingarland undir safnið árið 2003.
Þegar stofnuninni óx ásmegin var
svo tekið til við að undirbúa bygg-
ingu á landinu sem keypt hafði verið
og samhliða því sem Eric var ráðinn
til verksins voru arkitektar fengnir
til að teikna húsið. Var það árið 2009.
„Það var svo árið 2009 sem við
kölluðum arkitekt til samráðs við
okkur og ákveðið var að hefja und-
irbúning að byggingu safns við Mar-
ket Street sem er ekki mjög fjarri
núverandi staðsetningu safnsins.
Nýja staðsetningin er þó nær iðandi
mannlífi og þá er hún einnig við
höfnina og ströndina sem gefur góða
tengingu við þá menningu sem teng-
ir svo sterkt við upprunaslóðirnar.“
Tengingar yfir hafið
Hann segir að allt frá upphafi hafi
meginstefið verið að safnbyggingin
hefði skýra og beina skírskotun til
Norðurlandanna og að af þeim sök-
um hafi finnskur arkitekt verið feng-
inn til samstarfs við arkitektastofu í
Seattle um hönnun hússins.
„Húsið dregur einkenni sín af
Skandinavíu og Íslandi. Þar bregður
fyrir stórum vegg sem menn geta
tengt beint við jökulbreiðurnar og
þá skiptist húsið í tvo hluta sem
tengdir eru saman með miklu mið-
rými en það fer ekki framhjá fólki að
það tengir við hina djúpu dali sem
svo einkennandi eru fyrir vest-
urströnd Noregs og raunar lands-
lagið á Íslandi og víða í Finnlandi
einnig.“
Framkvæmdir hófust svo við
safnið í fyrra en þá hafði gríðarleg
vinna verið lögð í undirbúning þess
og m.a. hafði hið heimsþekkta sýn-
ingahönnunarfyrirtæki Ralph Ap-
pelbaum Associates verið kallað til
ráðgjafar við verkefnið.
„Aðdragandinn að opnun safnsins
hefur sannarlega verið langur en
núna er það lokafrágangurinn sem
er eftir. Við stefnum að því að fá
lyklana að safnbyggingunni í desem-
ber og þá mun okkur gefast nægi-
legur tími til að koma upp sýning-
unum og opna húsið almenningi í
byrjun maí á næsta ári.“
Heildarkostnaður við bygginguna
er ekkert smáræði eða um 48 millj-
ónir dollara en það jafngildir um 5
milljörðum króna. Er þá tekið tillit
til fjárfestingar í byggingarlandi og
uppsetningu grunnsýningarinnar
sem prýða mun húsnæðið nýja. En
hvernig hefur þetta risavaxna verk-
efni verið fjármagnað?
AP-Møller sjóðurinn lagði safn-
inu til mikið fjármagn
„Safnið er í raun reist fyrir söfn-
unarfé. Nokkuð af fjármagninu hef-
ur komið frá Skandinavíu og Íslandi.
Þar munar ekki síst um 5 milljón
dollara (500 milljónir íslenskra
króna) framlag úr AP-Møller sjóðn-
um danska. Þá hafa sjóðir í Noregi
einnig lagt mikið til og þá er einnig
mikið um einstaklinga sem lagt hafa
verkefninu lið. Það á meðal annars
við um fólk frá Norðurlöndum sem á
síðustu árum hefur flust til Norður-
Norræna safnið í Seattle
tekur stökk inn í framtíðina
Framkvæmdum við nýtt safnhús að ljúka Uppbyggingin kostar um 5 milljarða íslenskra króna
Morgunblaðið/RAX
Áratugur 10 ár eru frá því að Eric Nelson tók við Norræna safninu í Seattle. Á þeim tíma hefur hann safnað nærri 5 milljörðum til byggingar nýs safns.
Gamli tíminn Nú er verið að taka niður gömlu sýninguna en hún hefur staðið lítið breytt síðustu áratugina.
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
., '*-�-��,�rKu�,
æli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
K