Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 37

Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 37
FRÉTTIR 37Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 Ameríku. Einnig hefur borist stuðn- ingur frá San Fransisco og yfir- völdum hér á svæðinu.“ Eric segir að lítið fjármagn hafi komið frá opinberum aðilum en stuðningur frá ríkisstjórnum land- anna hafi verið af öðrum toga. „Það er eðlilegt að þetta hafi þróast með þessum hætti því menn- ingarmálaráðuneyti hvers lands leggur áherslu á að leggja fjármuni í verkefni heima fyrir. Þá er einnig rétt að nefna að við höfum fengið nokkurn stuðning frá Norræna ráð- herraráðinu. Þá kemst ég ekki hjá því að nefna framlag allra sendiráða norrænu ríkjanna hér í Bandaríkj- unum. Starfsmenn þeirra hafa að- stoðað okkur gríðarlega í undirbún- ingnum að opnun nýja safnsins og einnig tryggt að við það tilefni verða hér fulltrúar konungsfjölskyldna og aðrir þjóðhöfðingjar.“ Breyttar áherslur í nýju safni Eric bendir á að safnið hafi verið stofnað sem grasrótarhreyfing. Það hafi verið einstaklingar frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Dan- mörku sem komu saman og mynd- uðu tengsl á árlegri hátíð sem haldin var í hópi þeirra. Þeir hafi ekki haft mikil fjárráð en á grundvelli sjálf- boðavinnu komst safnið á legg. „Jafnt og þétt var safnið byggt upp og stendur í raun á þremur grunnstoðum. Á jarðhæðinni er sýn- ing sem á uppruna sinn á þjóðar- sögusafninu í Danmörku en sú sýn- ing fjallar um fólkið sem hingað fluttist. Þessi sýning hefur verið lög- uð að því að varpa sem skýrustu ljósi á fólksflutningana sem leiddu fólk hingað á þessar slóðir. Á annarri hæðinni hefur verið fjallað um þau viðfangsefni sem fólk hefur tekið sér fyrir hendur á vettvangi atvinnulífs- ins og það eru þættir sem ég nefndi hér áður, m.a. sjávarútvegur, skipa- smíðar, skógrækt og timburfram- leiðsla. Á þeirri hæð höfum við einn- ig haldið úti rými fyrir tímabundnar sýningar af ýmsu tagi sem varpað hafa ljósi á menningu Norðurlanda. Á efstu hæðinni hefur svo hverri og einni þjóð verið helgað sýningarrými helgað þeirri spurningu hvernig það var á sínum tíma að vera Íslend- ingur, Norðmaður, Dani, Svíi eða Finni og að koma hingað og setjast hér að.“ Horfa lengra aftur Eric segir að aðstandendur safns- ins varðveiti góðar minningar frá þeim dögum þegar leitað var hóf- anna eftir safngripum fyrir sýning- arstarfið. Þær sögur teygi sig m.a. til Íslands þar sem maður hafi geng- ið undir manns hönd í þeirri viðleitni að útvega muni á safnið. „Það á m.a. við um uppstoppaðan ref sem hér er til sýnis. Gripirnir tengjast flestir lífi fólksins eins og það var þegar það reif sig upp og fluttist hingað. Við hyggjumst hins vegar nálgast viðfangsefni okkar með öðrum hætti á nýja safninu. Þar kjósum við að horfa lengra aftur og við rekjum söguna alveg aftur til járnaldar og jafnvel steinaldar. En eldri gripir úr safninu munu þó að sjálfsögðu skipa mikilvægan sess í safninu aftur.“ Hann segir að safnið hafi efnt til samstarfs við þjóðminjasöfnin í hverju landi og að samkomulag sé komið á við söfnin um lán á merkum gripum sem verða til sýni í nýja safnhúsinu. „Þannig höfum við m.a. notið mjög góðs stuðnings af samstarfi við Þjóð- minjasafn Íslands og Margrét Hall- grímsdóttir þjóðminjavörður hefur reynst okkur mikilvægur banda- maður.“ Gamli tíminn enn sýnilegur Það fer ekki framhjá þeim sem sækja gamla safnið í Ballard heim að þar er byggt á gömlum grunni. Minna sýningarrýmin, sem nú er verið að taka niður hvert á fætur öðru í aðdraganda opnunar nýja safnsins, helst á Þjóðminjasafnið hér heima á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Eric segir að stjórn safnsins hafi fyrir löngu gert sér grein fyrir að tími væri kominn á að breyta sýningum safnsins. „Það má kannski miða við að grunnsýning í safni sem þessu standi að mestu óbreytt í 10 ár og myndi þannig ákveðinn grunn að safninu. Hins vegar hefur þessi sýn- ing í gamla húsinu staðið í um þrjá áratugi. Það sést ágætlega á henni og hún er barn síns tíma. Það skýrir kannski helst hversu lengi við höf- um dregið að gera á henni breyt- ingar að um langt skeið höfum við róið að því öllum árum að koma upp nýja safninu og öll orkan og fjár- munir safnsins hafa farið í þann far- veg.“ Miklu stærri tækifæri framundan í nýju safnhúsi Hann bendir á að þó að grunnsýn- ingin hafi haldist að mestu óbreytt síðustu áratugi þá hefur safnið stað- ið fyrir tímabundnum sýningum. „það hefur reynst vel. Hins vegar hefur húsnæðið ekki boðið upp á mjög umfangsmiklar og flóknar sýningar og það hefur staðið okkur fyrir þrifum. Í nýja safninu verður okkur gert kleift að draga til okkar heimsklassasýningar frá stóru þjóð- arsöfnunum og það er mikið til- hlökkunarefni. Það má t.d. nefna að við höfum rætt við Uppsalasafn um víkingasýningu sem þar hefur verið sett upp af miklum myndarskap og einnig Þjóðminjasafnið í Helsinki um stóra Alvar Aalto-sýningu. Það er því margt spennandi í farvatninu hjá okkur.“ Það er ekki síst vegna nútíma tæknibúnaðar sem bæði tryggir öryggi safngripa, rétt hita- stig og lýsingu sem opnast fyrir nýja möguleika safnsins til að laða að sér gesti á grundvelli glæsilegra sýn- inga. Ákváðu að höfða til samfélagsins í heild Eric segir áhugavert hversu margir í Bandaríkjunum tengi við hina norrænu arfleifð. „Það er talið að um 12% íbúanna eða um 800.000 manns sem geri það hér um slóðir þannig að hlutfallið er mjög hátt. Forfeður þessa fólks höfðu mikil áhrif á framgang þessa samfélags og hvernig það hefur þróast, m.a. í pólitískum skilningi og þetta eru áhrif sem ekki eru jafn áberandi á öðrum stöðum í Banda- ríkjunum. Nefni ég þar m.a. ákveðna sýn á samfélagið, umhverfismál og annað í þeim dúr.“ Hann bendir þó á að fyrir átta ár- um hafi forsvarsmenn safnsins tekið þá stefnumarkandi ákvörðun að hætta að beina boðskapnum sem heldur á lofti þessum rótum, fyrst og fremst að því fólki sem tengir við hann á grundvelli ættartengsla. „Þess í stað höfum við búið boðskap- inn þannig úr garði að hann höfði til alls þorra almennings og það eykur á þekkingu og skilning á þeim áhrif- um sem norræna fólkið sem hér settist að hefur haft á samfélagið. Við viljum ekki að Norræna safnið sé aðeins klúbbur fyrir það fólk sem á tengingar til þessara landa. Skír- skotunin verður í okkar huga að vera víðtækari og tengja bæði við löngu horfna tíma og það sem er að gerast á Norðurlöndum í dag.“ Ekkert viðlíka safn í allri Norður-Ameríku Að lokum spyr blamaður Eric hvort fleiri söfn í Bandaríkjunum hafi fetað sömu slóð og Norræna safnið í Seattle. „Ég held að ég geti fullyrt að það sé ekkert safn í Norður-Ameríku sem hefur jafn augljósa skírskotun til Norðurlanda og Norræna safnið í Seattle. Það er Norrænt hús í New York en það tekur ekki með sama hætti á sögulegum bakgrunni og þeim rótum sem mannlífið hér bygg- ist á. Þá eru einnig ýmis söfn í Mið- vesturríkjunum sem í einhverri mynd varpa ljósi á fólksflutningana frá einstaka löndum en þessi heild- stæða saga er hvergi sögð með sama hætti og hér.“ Nýja safnbyggingin Hún er stór í sniðum, um 5.200 fermetrar. Miðrýmið minnir á djúpa firði á vesturströnd Noregs. Eric segir að safnið hafi fyrst og fremst tekist á við að varpa ljósi á söguna að baki fólksflutningunum til Norður-Ameríku. „Af hverju flutti það frá heima- landinu? Hvernig fann það leiðina hingað? Hvernig reiddi því af? Hvaða tækni og þekkingu flutti það með sér og hvaða áhrif hefur það haft á framþróun svæðisins og Norður-Ameríku í heild sinni? Þetta eru spurningarnar sem við höfum leitað svara við og reynt að miðla áfram.“ Hann segir að með nýja safn- húsinu sé stefnt að því að stíga skrefinu lengra og víkka sjóndeild- arhringinn sem safnið býður upp á. Af þeim sökum kölluðu forsvars- menn þess á fyrirtækið Ralph Applebaum Associates til sam- starfs um hönnun hinnar nýju sýn- ingar. Fyrirtækið nýtur viðurkenn- ingar um allan heim á þessu sviði. „RAA hefur m.a. hannað Hel- fararsafnið í New York, þeir hafa nýlega hannað Smithsonian safnið sem helgað er sögu og menningu þeldökkra Bandaríkjamanna, ýmis safnaverkefni á Norðurlöndunum og okkur þótti áhugavert að fá fyr- irtækið til að stilla upp sýningu sem varpaði ljósi á menningarleg sérkenni þess norræna fólks sem hingað fluttist og dreifst hefur um Norður-Ameríku,“ segir Eric. Meðal annarra stórverkefna sem RAA hefur komið að er hönn- un forsetabókasafns Bill Clintons, Bílahöll Volkswagen í Wolfsburg í Þýskalandi og Norðurslóðasafnið í Anchorage í Alaska. Fengu heimsþekkta hönnuði að hönnun sýningarinnar NÝJUSTU AÐFERÐUM BEITT VIÐ MIÐLUN ÞEKKINGAR Tölvuteikning/Nordic Heritage Museum LISTHÚSINU Lúsíurnar komnar aftur í Kaiu Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.