Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk framleiðsla
• Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta
og ráðgjöf
Í dag, 1. nóvember
2017, eru 20 ár síðan
stofnþing Íþrótta- og
Ólympíusambands Ís-
lands (ÍSÍ), samein-
aðra samtaka Íþrótta-
sambands Íslands og
Ólympíunefndar Ís-
lands (ÓÍ), fór fram á
Grand Hótel Reykja-
vík.
Fyrir sameininguna
sá Ólympíunefnd Íslands um und-
irbúning og þátttöku Íslands í Ól-
ympíuleikum en Íþróttasamband
Íslands sameinaði íþróttahreyf-
inguna á Íslandi undir einu merki,
vann að því að breiða út íþrótta-
áhuga, efla innra starf og var sam-
nefnari í baráttu fyrir hagsmuna-
málum hreyfingarinnar.
Íþróttasamband Íslands var stofn-
að árið 1912 m.a. vegna þess að Ís-
lendingar vildu taka þátt í Ólymp-
íuleikum það árið og til þess að
eiga þess kost þurfti að stofna
formlega samtök íslenskrar
íþróttahreyfingar. Það má því
segja að Ólympíuleikar hafi verið
forsenda stofnunar Íþrótta-
sambandsins. Tæplega áratug síð-
ar, eða árið 1921, skipaði Íþrótta-
sambandið sérstaka Ólympíunefnd
til að sjá um undirbúning og þátt-
töku Íslendinga í Ólympíuleikum.
Sömu einstaklingarnir stjórnuðu
lengst af hvorum tveggja þessum
samtökum enda um samsvarandi
hugsjónir og hagsmuni að ræða
innan þeirra.
Meginástæður sameiningar ÍSÍ
og ÓÍ voru nokkrar. Ein var sú
trú margra í hreyfingunni að það
væri öllum til hags-
bóta að öll íþróttamál,
hvort sem þau heyrðu
undir ÍSÍ eða ÓÍ,
væru skipulagslega
sem ein heild, undir
einni lýðræðislega
kjörinni stjórn. Einn-
ig að hreyfingin stæði
sameinuð gagnvart
stjórnvöldum og sýndi
ábyrgð í rekstri með
því að hagræða,
fækka yfirstjórnum
og lækka kostnað. All-
ir sætu jafnir til borðs.
Ekki var átakalaust að sameina
þessi tvenn samtök og ágreiningur
um ágæti þess gjörnings var há-
vær um tíma. Verkefnið var afar
flókið og á margan hátt erfitt,
bæði skipulagslega og tilfinn-
ingalega. Lykilatriðið í undirbún-
ingi sameiningarinnar var að vel
tókst til að verja hag bæði sér-
sambanda og íþróttahéraða við
gerð laga nýrra samtaka og að
íþróttahreyfingin sannfærðist um
að undir merkjum einna samtaka
yrði starfið öflugra, markvissara
og ekki síst hagkvæmara.
Eftir sameiningu hefur enginn
litið til baka með eftirsjá því strax
varð ljóst að sameiningin var mik-
ið heillaskref fyrir íþróttahreyf-
inguna í landinu. Sameinuð samtök
hófu af krafti að efla starfið og
færa það í nútímalegan búning.
Stofnuð voru þrjú fagsvið innan
ÍSÍ til að stýra þróunar- og
fræðslumálum, afreks- og ólympíu-
málum og almenningsíþróttum en
samkvæmt Ólympíusáttmála Al-
þjóðaólympíunefndarinnar þá er
ÍSÍ m.a. skylt að hafa forgöngu
um almenningsíþróttir (Sport for
All). Svo vel telst hafa tekist til við
sameiningu ÍSÍ og ÓÍ að samskon-
ar samtök í öðrum löndum hafa
horft til okkar sameiningar þegar
unnið hefur verið að skipulags-
breytingum á þeim vettvangi.
Uppbygging íþróttahreyfing-
arinnar í landinu hefur verið gríð-
arleg á síðustu 20 árum og nú, ár-
ið 2017, er svo komið að aðstaða til
íþróttaiðkunar og fjölbreytt val um
íþróttaiðkun er eitt af þeim grunn-
skilyrðum sem almenningur setur
sér þegar hann tekur ákvörðun um
búsetu á landinu. Íþróttir eru mik-
ilvægt byggðamál og niðurstaða
rannsókna meðal ungs fólks styður
einnig vel við starfið í hreyfing-
unni þar sem margsannað er að
þeir sem stunda reglubundið
íþróttir innan skipulagðs starfs
íþróttafélaganna í landinu verða
síður áfengi, tóbaki og fíkniefnum
að bráð. Árangur Íslendinga í
íþróttum síðustu árin hefur verið
einstaklega góður og vakið gríð-
arlega athygli út fyrir landstein-
ana. Hjartað í þjóðinni slær í takt
við gengið í íþróttunum.
Ábyrgðarmikið verkefni
Sérsamböndum ÍSÍ hefur á síð-
ustu 20 árum fjölgað úr 23 sér-
samböndum í 32 og viðurkenndar
íþróttagreinar innan vébanda ÍSÍ
eru orðnar um 50 talsins þannig
að það er úr mörgu að velja fyrir
þá sem hafa áhuga á hreyfingu og
ástundun íþrótta. Íþróttahéruðum
hefur eðlilega fækkað úr 28 í 25
talsins í kjölfar sameiningar sveit-
arfélaga um land allt. Allt starf
innan hreyfingarinnar hefur orðið
faglegra á þessum tveimur áratug-
um og samstarf hreyfingarinnar
við sveitarfélög víða um land er til
fyrirmyndar. Uppbygging mann-
virkja hefur víða verið hröð og
mikil og má segja að á flestum
þéttbýlisstöðum landsins sé ásætt-
anleg vegalengd í góð mannvirki.
Íþróttahreyfingunni hefur verið
treyst fyrir því ábyrgðarmikla
verkefni að vera þátttakandi í að
ala upp þjóð og það er mín sann-
færing að þar hafi okkur tekist
einstaklega vel upp. Fjárframlag
ríkisins til afreksíþróttamála hefur
margfaldast á þessum tíma og eru
spennandi tímar framundan hjá
sérsamböndum ÍSÍ í enn frekari
uppbyggingu afreksíþróttamála.
Ferðasjóður íþróttafélaga var
stofnaður árið 2006 og hefur árleg
úthlutun úr sjóðnum létt verulega
undir ferðakostnað félaga á lands-
vísu. Sérsambönd ÍSÍ fá nú árlega
fjárframlag frá ríkinu sem eykur
möguleika þeirra á því að þau geti
ráðið til sín starfsmann.
Íþróttahreyfingin stendur og
fellur með starfi sjálfboðaliða og
það er ekkert minna en stór-
fenglegt að líta inn á við til þeirra
miklu starfa sem sjálfboðaliðar í
hreyfingunni leggja til á hverjum
degi til að viðhalda öflugu og um
margt merkilegu íþróttastarfi á
þessari harðbýlu eyju. Veðurfar og
aðstæður vinna ekki alltaf með
okkur en úr þessu umhverfi virðist
spretta ómældur fjöldi afreks-
íþróttafólks í ólíkum íþróttagrein-
um. Það er ekki sjálfgefið og má
ætla að samstaða okkar Íslend-
inga, dugnaður og stuðningur við
íþróttastarfið komi þar eitthvað
við sögu. Fornt víkingagen
skemmir sennilega ekki heldur
fyrir! Foreldrar sem styðja við
íþróttaiðkun barna sinna, fyr-
irmyndir úr hópi foreldra og
íþróttafólks, þjálfarar, stjórn-
arfólk, starfsfólk – allir tilbúnir að
leggja allt í verkefnin og líka þetta
aukalega sem til þarf til að gera
góða hluti frábæra. Íþróttahreyf-
ingin sýndi og sannaði hvað í
henni býr á árunum í kjölfar efna-
hagshrunsins á Íslandi þegar mik-
ið mæddi á hreyfingunni. Þá var
tekin meðvituð ákvörðun um það
að slá hvergi af, standa saman og
keyra hefðbundið íþróttastarf fyrir
samfélagið svo að börn og ungling-
ar hefðu íþróttirnar sem fastan
punkt í lífinu, á meðan svo margt
annað í umhverfinu var í miklu
uppnámi. Þrátt fyrir skerðingu á
fjárframlögum til hreyfingarinnar
var hvergi hnikað og af því meg-
um við vera stolt.
Við þessi tímamót horfum við
hjá ÍSÍ fram á veginn og hlökkum
til að gera enn betur. Enn sem
fyrr ætlum við að leggja metnað í
starf hreyfingarinnar og hjálpast
að líkt og verið hefur, við að efla
íþróttastarfið í landinu enn frekar.
Ég er þakklátur fyrir þau tutt-
ugu ár sem að baki eru í samein-
uðum samtökum. Þau hafa verið
viðburðarík og eftirminnileg og
samstaðan í hreyfingunni hefur
verið áþreifanleg. Það eru spenn-
andi tímar að baki en það eru ekki
síður spennandi tímar framundan.
Eftir Lárus L.
Blöndal » Við þessi tímamót
horfum við hjá ÍSÍ
fram á veginn og
hlökkum til að gera
enn betur.
Lárus L. Blöndal
Höfundur er forseti ÍSÍ.
Sameinuð samtök – farsælt starf í 20 ár