Morgunblaðið - 01.11.2017, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 01.11.2017, Qupperneq 45
UMRÆÐAN 45 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Í dag, 1. nóvember 2017, eru 20 ár síðan stofnþing Íþrótta- og Ólympíusambands Ís- lands (ÍSÍ), samein- aðra samtaka Íþrótta- sambands Íslands og Ólympíunefndar Ís- lands (ÓÍ), fór fram á Grand Hótel Reykja- vík. Fyrir sameininguna sá Ólympíunefnd Íslands um und- irbúning og þátttöku Íslands í Ól- ympíuleikum en Íþróttasamband Íslands sameinaði íþróttahreyf- inguna á Íslandi undir einu merki, vann að því að breiða út íþrótta- áhuga, efla innra starf og var sam- nefnari í baráttu fyrir hagsmuna- málum hreyfingarinnar. Íþróttasamband Íslands var stofn- að árið 1912 m.a. vegna þess að Ís- lendingar vildu taka þátt í Ólymp- íuleikum það árið og til þess að eiga þess kost þurfti að stofna formlega samtök íslenskrar íþróttahreyfingar. Það má því segja að Ólympíuleikar hafi verið forsenda stofnunar Íþrótta- sambandsins. Tæplega áratug síð- ar, eða árið 1921, skipaði Íþrótta- sambandið sérstaka Ólympíunefnd til að sjá um undirbúning og þátt- töku Íslendinga í Ólympíuleikum. Sömu einstaklingarnir stjórnuðu lengst af hvorum tveggja þessum samtökum enda um samsvarandi hugsjónir og hagsmuni að ræða innan þeirra. Meginástæður sameiningar ÍSÍ og ÓÍ voru nokkrar. Ein var sú trú margra í hreyfingunni að það væri öllum til hags- bóta að öll íþróttamál, hvort sem þau heyrðu undir ÍSÍ eða ÓÍ, væru skipulagslega sem ein heild, undir einni lýðræðislega kjörinni stjórn. Einn- ig að hreyfingin stæði sameinuð gagnvart stjórnvöldum og sýndi ábyrgð í rekstri með því að hagræða, fækka yfirstjórnum og lækka kostnað. All- ir sætu jafnir til borðs. Ekki var átakalaust að sameina þessi tvenn samtök og ágreiningur um ágæti þess gjörnings var há- vær um tíma. Verkefnið var afar flókið og á margan hátt erfitt, bæði skipulagslega og tilfinn- ingalega. Lykilatriðið í undirbún- ingi sameiningarinnar var að vel tókst til að verja hag bæði sér- sambanda og íþróttahéraða við gerð laga nýrra samtaka og að íþróttahreyfingin sannfærðist um að undir merkjum einna samtaka yrði starfið öflugra, markvissara og ekki síst hagkvæmara. Eftir sameiningu hefur enginn litið til baka með eftirsjá því strax varð ljóst að sameiningin var mik- ið heillaskref fyrir íþróttahreyf- inguna í landinu. Sameinuð samtök hófu af krafti að efla starfið og færa það í nútímalegan búning. Stofnuð voru þrjú fagsvið innan ÍSÍ til að stýra þróunar- og fræðslumálum, afreks- og ólympíu- málum og almenningsíþróttum en samkvæmt Ólympíusáttmála Al- þjóðaólympíunefndarinnar þá er ÍSÍ m.a. skylt að hafa forgöngu um almenningsíþróttir (Sport for All). Svo vel telst hafa tekist til við sameiningu ÍSÍ og ÓÍ að samskon- ar samtök í öðrum löndum hafa horft til okkar sameiningar þegar unnið hefur verið að skipulags- breytingum á þeim vettvangi. Uppbygging íþróttahreyfing- arinnar í landinu hefur verið gríð- arleg á síðustu 20 árum og nú, ár- ið 2017, er svo komið að aðstaða til íþróttaiðkunar og fjölbreytt val um íþróttaiðkun er eitt af þeim grunn- skilyrðum sem almenningur setur sér þegar hann tekur ákvörðun um búsetu á landinu. Íþróttir eru mik- ilvægt byggðamál og niðurstaða rannsókna meðal ungs fólks styður einnig vel við starfið í hreyfing- unni þar sem margsannað er að þeir sem stunda reglubundið íþróttir innan skipulagðs starfs íþróttafélaganna í landinu verða síður áfengi, tóbaki og fíkniefnum að bráð. Árangur Íslendinga í íþróttum síðustu árin hefur verið einstaklega góður og vakið gríð- arlega athygli út fyrir landstein- ana. Hjartað í þjóðinni slær í takt við gengið í íþróttunum. Ábyrgðarmikið verkefni Sérsamböndum ÍSÍ hefur á síð- ustu 20 árum fjölgað úr 23 sér- samböndum í 32 og viðurkenndar íþróttagreinar innan vébanda ÍSÍ eru orðnar um 50 talsins þannig að það er úr mörgu að velja fyrir þá sem hafa áhuga á hreyfingu og ástundun íþrótta. Íþróttahéruðum hefur eðlilega fækkað úr 28 í 25 talsins í kjölfar sameiningar sveit- arfélaga um land allt. Allt starf innan hreyfingarinnar hefur orðið faglegra á þessum tveimur áratug- um og samstarf hreyfingarinnar við sveitarfélög víða um land er til fyrirmyndar. Uppbygging mann- virkja hefur víða verið hröð og mikil og má segja að á flestum þéttbýlisstöðum landsins sé ásætt- anleg vegalengd í góð mannvirki. Íþróttahreyfingunni hefur verið treyst fyrir því ábyrgðarmikla verkefni að vera þátttakandi í að ala upp þjóð og það er mín sann- færing að þar hafi okkur tekist einstaklega vel upp. Fjárframlag ríkisins til afreksíþróttamála hefur margfaldast á þessum tíma og eru spennandi tímar framundan hjá sérsamböndum ÍSÍ í enn frekari uppbyggingu afreksíþróttamála. Ferðasjóður íþróttafélaga var stofnaður árið 2006 og hefur árleg úthlutun úr sjóðnum létt verulega undir ferðakostnað félaga á lands- vísu. Sérsambönd ÍSÍ fá nú árlega fjárframlag frá ríkinu sem eykur möguleika þeirra á því að þau geti ráðið til sín starfsmann. Íþróttahreyfingin stendur og fellur með starfi sjálfboðaliða og það er ekkert minna en stór- fenglegt að líta inn á við til þeirra miklu starfa sem sjálfboðaliðar í hreyfingunni leggja til á hverjum degi til að viðhalda öflugu og um margt merkilegu íþróttastarfi á þessari harðbýlu eyju. Veðurfar og aðstæður vinna ekki alltaf með okkur en úr þessu umhverfi virðist spretta ómældur fjöldi afreks- íþróttafólks í ólíkum íþróttagrein- um. Það er ekki sjálfgefið og má ætla að samstaða okkar Íslend- inga, dugnaður og stuðningur við íþróttastarfið komi þar eitthvað við sögu. Fornt víkingagen skemmir sennilega ekki heldur fyrir! Foreldrar sem styðja við íþróttaiðkun barna sinna, fyr- irmyndir úr hópi foreldra og íþróttafólks, þjálfarar, stjórn- arfólk, starfsfólk – allir tilbúnir að leggja allt í verkefnin og líka þetta aukalega sem til þarf til að gera góða hluti frábæra. Íþróttahreyf- ingin sýndi og sannaði hvað í henni býr á árunum í kjölfar efna- hagshrunsins á Íslandi þegar mik- ið mæddi á hreyfingunni. Þá var tekin meðvituð ákvörðun um það að slá hvergi af, standa saman og keyra hefðbundið íþróttastarf fyrir samfélagið svo að börn og ungling- ar hefðu íþróttirnar sem fastan punkt í lífinu, á meðan svo margt annað í umhverfinu var í miklu uppnámi. Þrátt fyrir skerðingu á fjárframlögum til hreyfingarinnar var hvergi hnikað og af því meg- um við vera stolt. Við þessi tímamót horfum við hjá ÍSÍ fram á veginn og hlökkum til að gera enn betur. Enn sem fyrr ætlum við að leggja metnað í starf hreyfingarinnar og hjálpast að líkt og verið hefur, við að efla íþróttastarfið í landinu enn frekar. Ég er þakklátur fyrir þau tutt- ugu ár sem að baki eru í samein- uðum samtökum. Þau hafa verið viðburðarík og eftirminnileg og samstaðan í hreyfingunni hefur verið áþreifanleg. Það eru spenn- andi tímar að baki en það eru ekki síður spennandi tímar framundan. Eftir Lárus L. Blöndal » Við þessi tímamót horfum við hjá ÍSÍ fram á veginn og hlökkum til að gera enn betur. Lárus L. Blöndal Höfundur er forseti ÍSÍ. Sameinuð samtök – farsælt starf í 20 ár
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.