Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
móti eikinni á stóra veggskápnum
til hliðar.“
Undir ofninum er er hitaskúffa
sem kemur sér vel þegar verið er
að elda fyrir stóra fjölskyldu. „Þá
er hægt að halda heitum mat sem
þegar er til meðan annað er í ofn-
inum. Einnig er hægt að hita
diska þar. Hún hitnar ekki meira
en 75 gráður. Kemur sér vel þar
sem það er vinsælt hjá dóttur
minni að setja alls konar dót
þarna ofan í og kveikja síðan á,“
segir Guðrún en eldhúsið er nota-
legur í verustaður sem fjölskyldan
notar mikið.
Fallegu svörtu vasarnir á borð-
inu eru úr verslunni Seimei sem
Guðrún er annar eigandinn að.
„Seimei er að verða tveggja ára
núna í janúar, við byrjuðum fyrst
sem netverslun en höfum nú opn-
að verslun í Síðumúla 13. Það hef-
ur verið ótrúlega gaman að sjá
netverslunina stækka og dafna en
það var kominn tími til að opna
verslun vegna þess að okkur lang-
aði að hafa meira af húsgögnum
og það er erfitt eingöngu með net-
verslun,“ segir Guðrún en stólarn-
ir fallegu við borðstofuborðið eru
einmitt úr versluninni.
Aðspurð hvaða straumar og
stefnur séu vinsælust í versl-
uninni sem stendur segir Guðrún
að marmarinn eigi enn nokkuð
inni og þá helst í bland við hlý-
lega liti og notagildið er sett á
oddinn. „Við reynum að fylgjast
með straumum og stefnum dags-
ins í dag. En það vill svo til að nú
er mjög hlýlegur stíll í tísku og
húsgögn bólstruð og í litum. Mkið
um stungin húsgögn með tölum
og hnöppum. Litir hlýlegir, mikið
bleikt hefur verið í gangi en einn-
ig fallega blár litur og grænn.
Metallitir á borðum og marmari.
Einnig sérstakir hlutir sem ekki
eru til mörg eintök af. Það er
bara úti að vera eins og allir aðr-
ir, loksins. Fólk getur hjá okkur
valið úr ótal sófum en einnig sér-
sniðið sófann að sínu heimili með
úrvali af áklæðum og litum. Við
erum líka með úrval af teppum
sem setja alltaf punktinn yfir i-ið
og smávöru sem öll fellur undir
sama funktionalisma og eldhúsið
mitt. Ef þú hefur ekki not fyrir
það, þá hefur það ekkert að gera
inn á heimili þitt,“ segir Guðrún
og deilir með okkur að lokum ljúf-
fengri tertu sem hún fékk frá
matarbloggsíðunni Hanna.is sem
er í miklu uppáhaldi hjá henni.
„Þar eru líka yndisleg brauð og
ég veit að Hanna sem heldur úti
síðunni gerir sjálf leirpottana sem
hún bakar brauðin í. Þeir eru
hrein undur og eru efst á óskalist-
anum hjá mér fyrir eitthvað í eld-
húsið hjá mér. Hef bara ekki hug-
mynd um hvort hún selur þá eða
ekki.“
Veglegur vínrekki Takið eftir
innbyggðuum vínrekkanum
sem nýtir rýmið til hins ýtrasta.
Svart og hvítt Svörtu vas-
arnir eru frá Seimei og gera
alla blómvendi veglegri.
Botn
2 pakkar dökkt Oreo-kex
(taka kremið af og geyma)
80 g smjör – brætt
Fylling
400 g rjómaostur (Philadelphia) –
við stofuhita
2 dl sýrður rjómi – við stofuhita
4 egg – við stofuhita
½ tsk. salt
2 tsk. vanillusykur
Kremið úr kexinu
1 dl sykur
Til að toppa með: Frábær kara-
mellusósa og 1 dl af söltuðum jarð-
hnetum.
Botn
Kremið skafið af kexinu og sett
til hliðar.Kexið er mulið í mat-
vinnsluvél eða í mortéli.
Smjör brætt og blandað saman
við mulninginn. Bökunarpappír
settur í botninn á 22-23 cm bökun-
arformi og mulningnum dreift
jafnt á botn og hliðarnar. Best að
nota fingurna til að þjappa muln-
ingnum vel saman. Geymt í kæli á
meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
Ofninn hitaður í 160°C (yfir- og
undirhiti). Rjómaostur, kremið úr
kexinu, sykur og sýrður rjómi –
hrært saman. Eggjum bætt við
einu í einu og því næst vanillu-
sykri. Allt hrært saman þar til
blandan verður slétt og fín. Sett í
bökuformið yfir kexmulninginn.
Bakað í ofni í rúma klukkustund
(u.þ.b. 65-70 mínútur) – gott að
láta kökuna kólna á grind og síðan
er hún sett inn í kæli í nokkrar
klukkustundir eða yfir nótt.
Stundum myndast sprunga í kök-
una en hana má fela með hnet-
umulningi og karamellusósunni.
Frábær karamellusósa
2½ dl sykur
1 dl vatn
1½ dl rjómi eða matreiðslurjómi
½ tsk. salt
1 tsk. vanilluessens
Smjörklípa
Blanda saman rjóma, salti og
vanilluessens í skál/könnu. Sykur
og vatn sett í pott – hrært saman.
Hitað upp og haft á meðalhita –
passa að láta ekki sjóða um of.
Mikilvægt að hræra ekki í á með-
an soðið er – tekur u.þ.b. 15-20
mínútur eða þangað til liturinn er
orðinn gullinbrúnn.
Ekki hefur gefið góða raun að
stoppa suðuna og halda áfram síð-
ar. Best að fylgjast vel með suð-
unni. Þegar sykurblandan er orð-
in gullinbrún er potturinn tekinn
af hellunni og rjómablöndunni
hellt í – þá getur myndast mikil
suða – hræra rólega þar til bland-
an verður slétt. Má hafa á mjög
lágum hita.
Smjörklípa sett í karamellu-
blönduna í lokin og blandað saman
við.
Ath.: Ekki hræra í sósunni á
meðan sykurinn er að dökkna –
mikilvægt að fylgjast vel með þeg-
ar hann byrjar að dökkna – það
gerist hratt og sykurblandan má
ekki verða of dökk.
Karamella – hana má búa til
daginn áður eða nokkrum dögum
áður og geyma í krukku í kæli.
Áður en hún er sett yfir kökuna er
betra að velgja hana aðeins en
samt ekki of mikið. Ef notuð er
uppskriftin frábær karamellusósa
nægir að nota hálfa uppskriftina.
Hnetum stráð yfir hugsanlegar
sprungur sem hafa myndast í kök-
unni. Karamellusósu hellt yfir og
skreytt með jarðhnetum. Þegar
kakan er geymd í kæli þarf ekki
setja plast yfir hana.
Kakan geymist vel í nokkra
daga í kæli.
Oreo-ostakaka með karamellusósu
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Best er að baka kökuna daginn áður, segir matarbloggarinn Hanna Þóra á hanna.is en fallegast er
þegar karamellusósan er sett á rétt áður en hún er borin fram. Guðrún í Seimei heldur mikið upp á
þessa ljúffengu ostaköku sem slær alltaf í gegn.
Karamellutryllingur
Sósan virkar einnig
vel á ískaffi og í
kalda kaffidrykki.
Oreo-bomba Uppskriftina að
þessari gúmmelaðibombu
fékk Guðrún á hanna.is.