Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Viðurkenningin Tilberinn 2017
var veitt laugardaginn síðastlið-
inn, 28. október, á hátíð Dags
myndlistar í höfuðstöðvum Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna
og hlaut verðlaunin átakið Við
borgum myndlistarmönnum, með
Jónu Hlíf Halldórsdóttur, for-
mann SÍM, í forsvari. Var þetta í
þriðja sinn sem Tilberinn er
veittur.
Að Tilberanum standa mynd-
listarkonurnar Bryndís Hrönn
Ragnarsdóttir og Sigrún Sirra
Sigurðardóttir og er hann viður-
kenning sem veitt er árlega þeim
sem þykja hafa sýnt útsjónar-
semi, dugnað, hugrekki og stað-
festu á sviði myndlistar og auðg-
að þannig menningar- og listalíf
landsins, eins og því er lýst í til-
kynningu. Honum fylgi jafnframt
orða sem heiðursverðlaunahafinn
sé sæmdur til frambúðar. Þá fær
handhafi Tilber-
ans verðlauna-
grip til varð-
veislu í eitt hár,
honum til hvatn-
ingar og inn-
blásturs.
Gripurinn var
unninn úr end-
urunnum áldós-
um sem safnað
var af lista-
mönnum frá
listamönnum,
sýningarstöðum og listmennta-
stofnunum.
Um átakið Við borgum mynd-
listarmönnum segir m.a. að það
marki upphaf stéttabaráttu
myndlistarfólks á Íslandi. Í krafti
átaksins hafi loksins skapast
grundvöllur þar sem vinna mynd-
listarmanna sé virt að verðleik-
um, til jafns við önnur störf.
Átakið Við borgum myndlistarmönnum
hlaut viðurkenninguna Tilberinn
Jóna Hlíf með
Tilberann 2017.
Gallerí i8 hefur fengið tíma-bundna andlitslyftingu ogminnir nú frekar á skart-gripaverslun en sýning-
arrými fyrir myndlist. Áprentaðar
markísur eru yfir gluggunum sem
hafa verið klæddir rauðu satíni að
innan og útstilling eðalsteina sem
bíða efnaðra kaupenda blasir við
vegfarendum. Inn um gluggann má
einnig sjá vídeóverk sem kynnir
bakgrunn „listamannanna“ Ûgh og
Bõögâr og tilurð verkanna á sýning-
unni. Hér er á ferðinni þriðja einka-
sýning Feneyjafarans Egils Sæ-
björnssonar í galleríinu en jafnframt
fyrsta sýning tröllanna Ûgh og Bõ-
ögâr en þeir eru hugarfóstur lista-
mannsins og hafa verið „samstarfs-
menn“ hans á undanförnum árum.
Þeir komu fyrst fram í vídeóverki
Egils „Wall to wall“ (2008) þar sem
mynd af tveimur verum er varpað
var á vegg hvorri gegnt annarri og
eiga í samræðum sín á milli. Á þessu
ári hafa þeir haft sig töluvert í
frammi, fyrst á sýningunni Out of
Controll sem opnuð var í Feneyjum
fyrr á þessu ári, þar sem þeir félag-
ar hafa meðal annars ropað, rekið
við og gætt sér á ferðamönnum sem
eru þar á hverju strái, og nú koma
þeir fram sem sjálfstæðir listamenn
með opnun skartgripasýningar á Ís-
landi.
Sýningarrýmið hefur verið málað
og teppalagt í fagurbláum lit og ým-
iskonar tröllvöxnum dýrgripum hef-
ur verið raðað snyrtilega uppá
glansandi hvítar sýningarhillur með
speglum á bakvið sem magna upp
yfirdrifið andrúmsloft ríkidæmis.
Hér má meðal annars finna háls-
festi, armbönd, hringa auk ýmiskon-
ar lokka fyrir eyru, tungu, nafla,
geirvörtur og nef, gerð úr leir og
hrauni sem hefur verið perlu- eða
gullhúðað. Gríðarstór hálsfesti
„Nargodd Straka“ (2017) hangir á
vegg við innganginn, þar hafa
hraun- og leirskífur verið þræddar
upp á polyester-band og húðaðar að
hluta með gulli og perluhúð. Í einu
verkanna „Güddi, Rüddi og Püddi“
(2017) hafa tröllin hnoðað saman
ólíkum efnum og mynda úr þeim
gimsteina, eins og hrauni og leir,
rúbínhúð o.fl. ásamt náttúrulegum
mosa sem þarf að vökva reglulega til
að halda lifandi. En Ûgh og Bõögâr
draga aðeins úr glysinu í verkum
eins og „Tüttkürükk“ (2017) sem er
stór gullhúðaður leirhringur þar
sem formið fær að njóta sín. Á sýn-
ingunni má einnig sjá nokkur fag-
urlega gerð ilmvatnsglös úr hand-
blásnu gleri en von er á ilmvatni
tröllanna úr framleiðslu á næstu
dögum en tröllin hafa komið að gerð
ýmiss konar söluvarnings á síðustu
mánuðum, hafa til að mynda haldið
tískusýningu, gert tónlist o.fl.
Egill hefur nú sleppt tökunum á
sköpunarverkinu, þ.e. á tröllunum
Ûgh og Bõögâr og gefið þeim frjáls-
ar hendur til eigin listsköpunar og
fríar sig þar með ábyrgð á gjörðum
þeirra. Gullið er áberandi í verk-
unum á sýningunni en notkun þess á
sér langa hefð í listum og það hefur
til að mynda verið tákn um trúar-
lega upphafningu, til dæmis í gull-
mósaíkflísum sem lýsa upp kirkju-
rými í miðaldakirkjum. En gullið er
líka tákn um auð og völd og nokkrir
af þekktustu listamönnum samtím-
ans eins og Damien Hirst og Jeff
Koons hafa notað það í verkum sín-
um. Verk þeirra seljast fyrir stjarn-
fræðilegar upphæðir og þeir bæði
vefja listmarkaðnum um fingur sér
og senda honum fingurinn á sama
tíma. Á sýningunni er áhorfendum
boðið uppá kaffi úr tröllabollum með
gylltri rönd á meðan þeir virða fyrir
sér glingrið í galleríinu. Í gegnum
tröllin hæðist Egill að listheiminum
á mjög svo írónískan hátt, heimi sem
bæði listamaðurinn og galleríið lifa
og hrærast í.
Í sýningartexta kemur fram að
tröllin Ûgh og Bõögâr hafi komið
sér upp rúmgóðri vinnuaðstöðu und-
ir Gullfossi, sem líkt og Feneyjar,
dregur að sér gríðarlegan fjölda
ferðamanna á hverju ári. Hvað ger-
ist með massífum túrisma? Á tímum
þegar allt er til sölu vaknar spurn-
ingin um hvort náttúruperlurnar
okkar og hraunið séu verðmætari en
gull? Tröllin í samfélaginu leynast
víða og reyna á mörk, reglur og heil-
brigða skynsemi og það er samsöm-
un í athöfnum sumra manna og
trölla. Egill bendir okkur á tröllin í
pólitíkinni, tröllin sem knýja hag-
kerfið, tröllin sem nærast á túr-
istaflóðinu, tröllin í okkur sjálfum.
Og takist Ûgh og Bõögâr með full-
tingi gallerísins, sem gengur alla
leið í sýningarumgjörðinni, að selja
listmuni hannaða af ímynduðum
tröllakarakterum hlýtur markmið
listamannsins að hafa heppnast full-
komlega. Erum við kannski öll orðin
að tröllum sem látum blekkjast af
glópagulli?
Glópagull
i8 gallerí
Ûgh & Bõögâr Jewellery bbbmn
Egill Sæbjörnsson.
i8 Gallerí, Tryggvagötu 16. Til 25. nóv-
ember 2017. Opið þriðjudaga - föstu-
daga frá kl. 11–18 og frá kl. 13 – 17 á
laugardögum.
ALDÍS ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tröllasýning Tröll Egils Sæbjörnssonar koma fram sem sjálfstæðir listamenn með opnun skartgripasýningar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Skart Egill með gullhúðaðan hring, eitt verkanna á sýningunni.
SÝND KL. 8, 10.10SÝND KL. 8, 10.25
SÝND KL. 3.50, 5.50
SÝND KL. 10
SÝND KL. 3.50, 5.50, 8
SÝND KL. 3.50, 5.50
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM!
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Þýska merkið Greiff framleiðir
hágæða fatnað með áherslur á
nútíma hönnun, þægindi og
fjölbreytt vöruúrval.
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
STARFSMANNAFATNAÐUR
FYRIR HÓTEL
OG VEITINGAHÚS.