Morgunblaðið - 09.11.2017, Qupperneq 1
MAREL
MÆTIR NÝJUM
ÁSKORUNUM
NÝR REKTOR
TEKINN
VIÐ Í MR
FULLT AF FÍNUM
JÓLAGJAFA-
HUGMYNDUM
ELÍSABET SIEMSEN 14 16 SÍÐNA BLAÐAUKIVIÐSKIPTAMOGGINN
Ljósmynd/Reitir
Kringlusvæði Mikið verður byggt í fram-
tíðinni ef hugmyndir verða að veruleika.
Vinningstillaga í hugmynda-
samkeppni um Kringlusvæðið gerir
ráð fyrir byggingu 500-600 íbúða.
Þá er gert ráð fyrir danshúsi suð-
austast á svæðinu, gegnt aðalbygg-
ingu Verslunarskóla Íslands. Torg
myndast á milli þess og Borgarleik-
hússins. Hjálmar Sveinsson, for-
maður umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkur, segir ekki áform um
að byggja mislæg gatnamót til að
anna umferð en til skoðunar sé að
setja Miklubraut í stokk. »2
Gert ráð fyrir bygg-
ingu 500-600 íbúða
á Kringlusvæðinu
Steingrímur J. Sigfússon, starfandi forseti Al-
þingis, hefur boðað formenn þingflokkanna til
fundar á Alþingi í dag til að fara yfir þau verk
sem framundan eru. Meðal annars þarf að und-
irbúa kosningar í nefndir. Nítján nýir þingmenn
sóttu í gær kynningu hjá skrifstofu Alþingis, eins
og venja er að loknum kosningum. Fjallað var
um þingstörfin, starfsaðstöðu alþingismanna og
þjónustu skrifstofunnar við þá.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýir þingmenn í starfsþjálfun í alþingishúsinu
Tveimur vin-
sælum tónleika-
stöðum í miðborg
Reykjavíkur hef-
ur nýlega verið
lokað. Rósenberg
við Klapparstíg
verður breytt í
írskan pöbb og
rekstur Græna
herbergisins við
Lækjargötu stóð
ekki undir sér.
Nýráðinn verkefnastjóri Tónlist-
arborgarinnar Reykjavíkur, María
Rut Reynisdóttir, telur að til greina
komi að borgin styðji við rekstur
tónleikastaða og hyggst kanna
grundvöll þess. »10
Vinsælum tónleika-
stöðum lokað
María Rut
Reynisdóttir
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Líklegast er talið að formlegar
stjórnarmyndunarviðræður Sjálf-
stæðisflokks, Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs og Framsókn-
arflokks hefjist í dag eða í síðasta
lagi á morgun, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins.
Síðustu daga hafa forystumenn
stjórnmálaflokkanna rætt ýmsa
kosti til stjórnarmyndunar. „Eftir
að það slitnaði upp úr hjá þessum
fjórum flokkum hefur í raun og veru
verið opin lína hjá öllum,“ sagði
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
við mbl.is í gær. Formenn flokkanna
þriggja sem eru að undirbúa form-
legar viðræður kynntu stöðu mála á
þingflokksfundum í gær og upplýstu
hvað líklegast væri að gerðist næst.
Málefnavinnan eftir
Þótt svo kunni að fara að þessir
þrír flokkar hefji fljótlega viðræður
er samtal um málefni vart hafið á
milli þeirra. Fyrir liggur að VG
sækir það fast að Katrín Jakobs-
dóttir verði forsætisráðherra. Verði
það niðurstaðan og samstaða náist
um málefnasamning hefur Morgun-
blaðið heimildir fyrir því að Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem er með 16
þingmenn, muni gera ákveðna kröfu
um aukinn fjölda ráðherra í nýrri
ríkisstjórn, en VG hefur ellefu þing-
menn og Framsóknarflokkur átta.
Forseti Íslands hefur ekki skýrt
frá því hvenær hann stígi inn í
óformlegar viðræður stjórnmála-
flokkanna til að fela einum foringja
umboð til stjórnarmyndunar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, undrast ró-
legheit forsetans. Segir að allir séu
í biðstöðu á meðan hann veitir ekki
einhverjum tilteknum flokksfor-
manni umboð til stjórnarmyndun-
ar.
Þrír að hefja viðræður
Líklegast talið að Sjálfstæðisflokkur, VG og Framsóknarflokkur hefji formlegar
viðræður um stjórnarmyndun Sigmundur Davíð undrast rólegheit forsetans
MViðræður »4
Fjármálaeftirlitið hefur hafið
nánari athugun á mótaðilaáhættu
íslenskra færsluhirðingarfyr-
irtækja í kjölfar þess að Kortaþjón-
ustan tapaði öllu eiginfé sínu
vegna greiðslustöðvunar flug-
félagsins Monarch. Þetta segir að-
stoðarforstjóri FME sem einnig
bendir á að Kortaþjónustan haldi
nú lengur eftir fyrirframgreiðslum
viðskiptavina sinna en fyrir áfallið.
»Viðskipti
FME tekur kortafyrir-
tækin til skoðunar
F I M M T U D A G U R 9. N Ó V E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 264. tölublað 105. árgangur