Morgunblaðið - 09.11.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Friðjón Sigurðarson, framkvæmda-
stjóri þróunarsviðs hjá Reitum, seg-
ir mögulegt að nýtt Kringlusvæði
verði fullbyggt 2025.
Greint var frá því í Ráðhúsinu síð-
degis í gær að Kanon arkitektar
urðu hlutskarpastir í hugmynda-
samkeppni Reykjavíkurborgar og
Reita sem unnin var í samstarfi með
Arkitektafélagi Íslands.
Friðjón segir Reiti munu rýna til-
löguna og máta hana við framtíðar-
sýn félagsins og Kringlunnar varð-
andi heildaruppbyggingu á svæðinu.
„Það er ljóst að það er mikið verk
framundan,“ segir Friðjón.
Hann reiknar með að uppbygg-
ingin verði í áföngum og hefjist jafn-
vel þegar árið 2020. Vonir séu
bundnar við að svæðið verði full-
byggt 2025. „Svæðið er viðkvæmt.
Það þarf því að byggjast upp hratt
og örugglega,“ segir hann.
Aukið um 180 þúsund fermetra
Samkvæmt vinningstillögunni
verður nettó byggingarmagn aukið
um samtals 180 þúsund fermetra
ofanjarðar og byggðar 5-600 íbúðir.
Skal tekið fram að dómnefnd taldi
„nýjar byggingar sem mynda krans
utan um Kringluna varla raunhæf-
ar“. Þá sé fyrirhuguð Kringlustétt
austur af Húsi verslunarinnar „held-
ur of stór“.
Hjálmar Sveinsson, formaður um-
hverfis- og skipulagsráðs, telur „all-
ar líkur á að þessi tillaga fari í upp-
byggingu og verði í takt við það sem
hér er sýnt“. „Dómnefnd tiltekur
það sem kosti við tillöguna að auð-
velt sé að áfangaskipta henni, hún
feli í sér sveigjanleika og feli í sér
þekkt byggðamynstur. Þ.e.a.s.
klassískt gatnanet með blandaðri
umferð. Hús standa út við götur og
það eru inngarðar. Það er hið klass-
íska borgarumhverfi sem við þekkj-
um úr Vesturbænum og víðar. Að
því leyti eru engir meiriháttar
þröskuldar í vegi þess að svæðið
byggist upp í þessum stíl,“ segir
Hjálmar og bendir á að gert sé ráð
fyrir að nýbyggingar trappist niður
til austurs við Kringlumýrarbraut
og til suðurs við Miklubraut. Að
jafnaði verða húsin 5-7 hæðir.
Danshúsið á hugmyndastigi
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir svonefndu danshúsi suðaustast
á svæðinu, sem yrði gegnt aðalbygg-
ingu Verslunarskóla Íslands.
„Danshúsið er hugmynd um að
víkka út þennan hluta svæðisins sem
menningarsvæði og gera svolítið
meira torg fyrir framan Borgarleik-
húsið,“ segir Hjálmar og leggur
áherslu á að ekki muni allir hlutar
tillögunnar verða að veruleika.
Samkvæmt tillögunni verður bið-
stöð fyrir fyrirhugaða borgarlínu
vestur af Kringlusvæðinu til móts
við Suðurver. Spurður um þetta seg-
ir Hjálmar ekki útilokað „að síðari
tíma útfærslur taki borgarlínuna í
gegnum svæðið“. „Þá lest eða hrað-
vagnakerfi,“ segir Hjálmar og ítrek-
ar að allt bendi til að borgarlínan
verði kerfi hraðvagna en ekki létt-
lesta. Myndi borgarlínan liggja þar
sem nú er akbraut. Gerir tillagan
ráð fyrir að byggt verði yfir götuna.
Mislæg gatnamót ekki í bígerð
Jafnframt fyrirhugaðri uppbygg-
ingu 5-600 íbúða á Kringlusvæðinu
er byrjað að byggja 361 íbúð á lóðum
við RÚV, steinsnar frá svæðinu.
Spurður hvernig brugðist verði
við aukinni bílaumferð um þennan
hluta borgarinnar segir Hjálmar
„ekki mikið meira pláss í borginni
fyrir mikla aukningu bílaumferðar“.
„Eina leiðin til að stemma stigu
við vandanum er að efla almennings-
samgöngur,“ segir Hjálmar og tekur
aðspurður fram að ekki sé áformað
að byggja mislæg gatnamót til að
anna aukinni umferð. Hins vegar sé
til skoðunar að setja Miklubraut í
stokk frá gatnamótunum við Grens-
ásveg að gatnamótum Bústaðaveg-
ar, Miklubrautar og Snorrabrautar.
Vinningstillagan gerir ráð fyrir
torgi austan við Hús verslunarinnar.
Þar hefur verið teiknað Parísarhjól.
Hjálmar segist aðspurður telja hug-
mynd um Parísarhjól óraunhæfa.
Spurður hvort áformað sé að þétta
byggðina suður af Kringlusvæðinu í
Ofanleitinu, þar sem Háskólinn í
Reykjavík var til húsa, segir Hjálm-
ar „ekki ólíklegt að samhliða upp-
byggingu á Kringlusvæðinu muni
menn sjá tækifæri þar“. Að sama
skapi komi til greina að þétta byggð-
ina í Safamýri, norður af Kringlu-
svæðinu. „Við sjáum ekki fyrir okk-
ur óbreytt íþróttasvæði,“ segir
Hjálmar og á við svæði Fram.
Nýtt Kringlusvæði tilbúið 2025
Vinningstillaga að fjölda nýbygginga við Kringluna kynnt Gert er ráð fyrir 500-600 íbúðum
Reitir hyggjast byggja upp svæðið árin 2020-25 Vegna staðsetningar verði uppbyggingin hröð
Teikning/Kanon arkitektar
Vinningstillagan Hvítar byggingar eru fyrirhugaðar nýbyggingar. Gamla Morgunblaðshúsið verður rifið.
Ljósmynd/Reitir
Horft yfir svæðið Hugmyndir eru um danshús við suðausturenda svæðisins.
Uppruni aukinnar rafleiðni í Jökulsá
á Fjöllum er líklega í Kverkfjöllum,
að mati Veðurstofu Íslands. Ekki var
hægt að kanna svæðið úr lofti í gær
en vísindamenn eru að greina nánar
öll aðgengileg gögn, svo sem um
vatnamælingar, gervitunglamyndir,
jarðskjálfta og fleira. Stefnt er að
könnunarflugi í dag.
Vísindamenn hjá Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands hafa borið
saman ratsjármyndir af norðvestur-
hluta Vatnajökuls, annars vegar frá
26. október og hins vegar frá 7. nóv-
ember. Þær benda til lítilsháttar
breytinga í vestanverðum Kverk-
fjöllum, á jarðhitasvæði í svokölluðu
Gengissigi. Því til viðbótar getur
Veðurstofan um það í tilkynningu að
fundist hafi nokkuð sterk jarðhita-
lykt af ánni inni við Kverkfjallaskála
á sunnudag, svipuð lykt og fundist
hefur áður í tengslum við lítil vatns-
skot undan jöklinum. Er því talið lík-
legast að aukin rafleiðni í ánni komi
úr Kverkfjöllum.
Rafleiðni í Jökulsá hefur farið
hækkandi undanfarnar tvær vikur
og er nú tvöföld við Upptyppinga,
miðað við það sem venja er á þessum
árstíma. Í gærkvöldi virtist rafleiðni
stöðug og rennsli var ekki að aukast.
Veðurstofan hvetur fólk til þess að
sýna aðgát við upptök árinnar vegna
mögulegs gasútstreymis þar.
helgi@mbl.is
Jarðhitavatn
úr Gengissigi
Rennsli ekki að aukast í Jökulsá á
Fjöllum og rafleiðni helst stöðug
Jökulsá á Fjöllum
Jö
ku
ls
á
á
Fj
öl
lu
m
G
ru
nn
ko
rt
/L
of
tm
yn
di
re
hf
.
Kverkfjöll
Upptyppingar
Grímsstaðir
VATNAJÖKULL
Fyrsti farmurinn af hráefnum fyrir
ljósbogaofn kísilvers PCC Bakki-
Silicon ehf. kom með skipi til Húsa-
víkur í gær. Hráefnin voru flutt
með vörubílum um göngin í gegn
um Húsavíkurhöfða og sett í hrá-
efnageymslu verksmiðjunnar.
Með skipinu komu 3200 tonn af
kvartsi og um 700 tonn af kolum.
Kolin eru frá Kólumbíu en skipið
flutti þau frá Rotterdam. Kvartsið
kemur úr námum sem PCC á í Pól-
landi, að sögn Freys Ingólfssonar,
vörustjóra hráefna hjá PCC.
Á næstunni er von á fleiri förm-
um af hráefni enda tekur hrá-
efnageymslan um 30 þúsund tonn.
Það hráefni sem komið er verður
notað við prófanir á búnaði verk-
smiðjunnar en þær hefjast í desem-
ber. Nákvæm dagsetning er ekki
komin á gangsetningu en miðað
hefur verið við 13. desember.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Löndun Kvartsi og kolum var í gær landað úr flutningaskipi í Húsavíkurhöfn. Hráefnið var flutt í geymslur PCC.
Fyrsti hráefnafarmurinn