Morgunblaðið - 09.11.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Stórhýsi Iðnaðarbankans var reist við Lækj-
argötu 12 á árunum 1959-1964, steinsteypt á fimm
hæðum með kjallara og 347 fermetrar að flat-
armáli. Húsið var teiknað af Halldóri H. Jónssyni
arkitekt í stíl fúnksjónalisma. Undanfarið hefur
stórhýsið staðið autt og yfirgefið og beðið örlaga
sinna, en árið 2014 seldi bankinn, þá orðinn Ís-
landsbanki, bygginguna og flutti starfsemi sína
alfarið þaðan. Núverandi bygging sameinast brátt
aftur jörðinni og ný bygging mun þar rísa og bera
með sér hugmyndir okkar tíma sem framtíðin
mun kveða upp sinn dóm um. ernayr@mbl.is
Vel gengur að rífa niður bygginguna sem áður hýsti Íslandsbanka en var upphaflega Iðnaðarbankinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stefnumót uppbyggingar og niðurrifs í Lækjargötu 12
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, segist telja
að í gær hafi allir forystumenn
stjórnmálaflokkanna verið að bíða
eftir því að forseti Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson, veitti einhverjum
flokksformanni umboð til stjórnar-
myndunar, og undrast hann róleg-
heit forsetans í þessum efnum.
„Satt best að segja er ég hissa á
því að forseti skuli ekki hafa veitt
umboðið á nýjan leik, strax í dag (í
gær – innskot
blm.), vegna þess
að það eru allir í
biðstöðu á meðan
hann veitir ekki
einhverjum til-
teknum flokks-
formanni umboð
til stjórnarmynd-
unar,“ sagði Sig-
mundur Davíð í
samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöld.
Sigmundur Davíð telur að eðlilegt
sé að allir bíði í þeirri biðstöðu sem
hann lýsir. „Einfaldlega vegna þess
að Bjarni Benediktsson gerir vænt-
anlega ráð fyrir því að hann fái um-
boðið, og þá gerist ekkert í millitíð-
inni. Aðrir eru hættir að reyna, eftir
því sem ég kemst næst, þannig að
þau samtöl sem átt hafa sér stað
eru, að mínu mati, málamyndasam-
töl,“ sagði Sigmundur Davíð.
Aðspurður hvort hann teldi að
einhver skriður gæti komist á
stjórnarmyndunarviðræður á nýjan
leik í dag, fimmtudag sagði formað-
ur Miðflokksins: „Já, ég myndi
halda það.“
Sigmundur Davíð undrandi
á rólegheitum forsetans
Formaður Miðflokksins telur að viðræður forystumanna
flokka hafi verið til málamynda í gær og fyrradag
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon, starfandi
forseti Alþingis, heldur í dag fund
með formönnum allra átta þingflokk-
anna sem nú eiga kjörna fulltrúa á Al-
þingi.
„Ég hef boðað til fyrsta fundar með
nýjum formönnum allra þingflokka,
til þess að fara yfir það sem fram-
undan er, aðallega á praktískum nót-
um, þannig að það verða þó nokkuð
margir dagskrárliðir á fundinum,“
sagði Steingrímur í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Steingrímur segir að þetta hafi ver-
ið gert með svip-
uðum hætti í
fyrra. „Það bíður
þingflokksfor-
mannanna tals-
verð vinna, alveg
burtséð frá því
hvernig gengur
með ríkisstjórnar-
myndun. Það þarf
að fara að undir-
búa samninga um
kosningar í nefndir Alþingis og undir-
búa dagskrá fyrir 1. desember, svo ég
nefni eitthvað,“ sagði Steingrímur.
Aðspurður hvort aðstæður nú hvað
varðar afgreiðslu fjárlaga væru ólíkar
þeim sem voru í fyrra, sagði Stein-
grímur: „Nei, það er að mörgu leyti
mjög hliðstæð staða og aðstæður eru
mjög líkar og voru í fyrra, a.m.k. enn
sem komið er.“
Benedikt Jóhannesson, starfandi
fjármálaráðherra, féll af þingi eins og
kunnugt er. Hann mun samt sem áð-
ur mæla fyrir fjárlagafrumvarpinu:
„Benedikt er auðvitað ráðherra í
starfsstjórn og það breytir í sjálfu sér
engu um það, nema kannski að það
má segja að bakland þess frumvarps
sem hann myndi flytja er veikara, því
það eru 20 þingmenn á bak við það
núna. En þetta breytir engu um emb-
ættisskyldurnar,“ sagði Steingrímur.
Talsverð vinna bíður
þingflokksformanna
Forseti Alþingis fundar með þingflokksformönnum í dag
Steingrímur J.
Sigfússon
Vinnsla á kolmunna hófst á ný hjá
fiskimjölsverksmiðju HB Granda á
Vopnafirði í fyrradag. Skip fyrirtæk-
isins, Venus NS og Víkingur AK,
lönduðu þar um 800 tonna afla.
„Skipin komu inn vegna brælu á
miðunum og slæms veðurútlits og
voru því með minni afla en ella,“ seg-
ir Sveinbjörn Sigmundsson verk-
smiðjustjóri í frétt á vef HB Granda.
Að hans sögn er kolmunninn gott
hráefni, hann er feitur og fallegur.
Á árinu hafa íslensk fiskiskip veitt
alls 192 þúsund tonn af kolmunna.
Aflinn kemur mikið úr færeysku lög-
sögunni en einnig á Austfjarða-
miðum. Heildarkvótinn er 264 þús-
und tonn.
Dugar fram í desember
Sveinbjörn segir að miðað við
kvótastöðu skipa félagsins muni kol-
munnaafli duga verksmiðjunni vel
fram í næsta mánuð. „Framhaldið
veltur auðvitað mest á því að kol-
munninn gefi sig til og á tíðarfarinu.
Mér skilst að vertíðin hafi byrjað vel
út af Seyðisfirði en síðan hafi aflinn
dregist saman. Það má vel vera að
fara þurfi dýpra og lengra eftir kol-
munnanum en það kemur í ljós á
næstu dögum og vikum.“
Kolmunni
unninn á ný
Afli Kolmunna dælt í lest.
Enn er kvóti eftir
Leitar þú að traustu
BÍLAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÍMAPANTANIR
587 1400
Við erum sérhæfðir í viðgerðum
á amerískum bílum.
Mótorstilling býður almennar
bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla.
„Staðan er einfaldlega sú að það eru
allir að tala við alla og ég var bara að
fara yfir það með þingflokknum mín-
um í dag. Eftir að það slitnaði upp úr
hjá þessum fjórum flokkum hefur í
raun og veru verið bara opin lína hjá
öllum,“ segir Katrín Jakobsdóttir,
formaður VG. „Það hefur í rauninni
lítið gerst í dag nema bara mikið af
símtölum og svo náttúrulega þessir
þingflokksfundir.“
„Þessi fjögurra flokka stjórn var
auðvitað okkar fyrsti kostur. Þegar
hún er út úr myndinni þá eru bara
nokkrir augljósir kostir sem fjöl-
miðlar eru náttúrulega búnir að kort-
leggja og við líka. Núna er bara verið
að þreifa. Hvað
nær maður langt
með sín mál og í
hvaða samhengi.“
„Við verðum
auðvitað að leggja
eitthvað á okkur
ef við ætlum að
fara í ríkisstjórn
og ég hef bara
verið að keyra þá
línu hart að ég vilji
halda öllu opnu svo fremi að það náist
einhver viðunandi árangur. Eitthvað
sem við getum sagt að við séum stolt
af að gera með þeim hætti.“
hjortur@mbl.is
Í raun og veru
opin lína hjá öllum
Katrín
Jakobsdóttir
Katrín segir búið að kortleggja kostina