Morgunblaðið - 09.11.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Allir leiðtogar stjórnmálannahafa verið settir í að leika
Fallin spýtan. Einn stendur við
spýtuna og telur
upp í hundrað.
Hinir fela sig. Sá
við spýtuna reyn-
ir að finna þá
týndu og ná til
hennar á undan
þeim og hrópa:
Fallin spýtan
fyrir Sigga, Kötu
eða Loga. Nái einhver felumanna
spýtunni hrópar hann: Fallin spýt-
an fyrir alla og þá hefst leikurinn
aftur. Páll Vilhjálmsson lýsir stöð-
unni hins vegar svona:
Vinstri grænir láta þau boð útganga að ekkert liggi á að
mynda ríkisstjórn. Þeir eru minn-
ugir eineltisins á samfélagsmiðlum
í fyrra þegar Björt framtíð fékk
yfir sig gusurnar fyrir að mynda
ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki.
Vinstri grænir eru í eftirfarandivalþröng. Í fyrsta lagi geta
þeir myndað veika 4-5 flokka rík-
isstjórn þar sem Framsóknarflokk-
urinn yrði með forsætisráðuneytið.
Í öðru lagi ríkisstjórn með Sjálf-
stæðisflokki og Framsókn/
Miðflokknum. Þar gæti Katrín orð-
ið forsætisráðherra. Umræðan á
samfélagsmiðlum yrði hávær,
einkum frá bloggher Samfylk-
ingar og Pírata. Þriðji kosturinn
er að sitja á friðarstóli í stjórn-
arandstöðu og vísa frá sér allri
ábyrgð á landsstjórninni. Sá friður
gæti orðið dýrkeyptur til lengri
tíma litið.
Vinstri grænir færu í sama flokkog Píratar, óstjórntækir.
Sjálfsagt er að veita Vinstrigrænum langan frest.
Liggur nokkuð á að myndastjórn fyrir jól?“
Fallin spýtan
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.11., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri 1 snjókoma
Nuuk -3 skúrir
Þórshöfn 9 rigning
Ósló 7 léttskýjað
Kaupmannahöfn 7 þoka
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 4 skýjað
Lúxemborg 5 rigning
Brussel 6 þoka
Dublin 8 rigning
Glasgow 8 rigning
London 8 léttskýjað
París 7 alskýjað
Amsterdam 7 þoka
Hamborg 8 skýjað
Berlín 8 skýjað
Vín 8 rigning
Moskva 1 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 16 skýjað
Winnipeg -9 snjókoma
Montreal 2 alskýjað
New York 5 alskýjað
Chicago 3 heiðskírt
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:38 16:46
ÍSAFJÖRÐUR 9:59 16:34
SIGLUFJÖRÐUR 9:43 16:17
DJÚPIVOGUR 9:12 16:11
Eggert Þorfinnsson
aflaskipstjóri er látinn,
81 árs að aldri. Hann
lést í umferðarslysi á
gatnamótum Sæbraut-
ar og Kirkjusands í
Reykjavík síðastliðinn
mánudag.
Eggert var fæddur á
Raufarhöfn 19. janúar
1936 og ólst þar upp til
fullorðinsára. For-
eldrar hans voru Sum-
arlín Gestsdóttir og
Þorfinnur Jónsson
bátaformaður þar.
Hann hóf ungur sjó-
mennsku á Raufarhöfn. Vann við
síldarsöltun á sumrin og var þar
verkstjóri en stundaði fiskveiðar á
vetrarvertíð. Eggert fór í Stýri-
mannaskólann og lauk meira fiski-
mannaprófi árið 1964.
Eggert var stýrimaður og síðan
skipstjóri á fiskiskip-
um. Hann var með
Óskar Halldórsson
RE á síld í tíu ár og
tók við Hilmi SU nýj-
um 1980. Hann var á
ýmsum síldar- og
loðnuskipum, síðast á
Oddeyrinni EA, til
ársins 2003 að hann
lét af störfum eftir
tæp fimmtíu ár á sjó.
Eggert hlaut sérstaka
viðurkenningu fyrir að
vera aflahæsti loðnu-
skipstjórinn í tíu ár í
röð.
Eftirlifandi eiginkona Eggerts er
Kristín Ólafsdóttir húsmóðir úr
Reykjavík. Synir þeirra eru Þor-
finnur Pétur vélfræðingur og
starfsmaður Nýherja og Sigurður
Jónas tölvunarfræðingur og starfs-
maður WOW air.
Andlát
Eggert Þorfinnsson
Lögð var fram hjá Umhverfis- og
skipulagsráði Reykjavíkurborgar
þann 29. október sl., að nýju, umsókn
THG Arkitekta ehf., varðandi breyt-
ingu á deiliskipulagi Landssímareits,
skv. upplýsingum frá skipulags-
fulltrúanum í Reykjavík.
Breytingin felst í meginatriðum á
að borgarlandinu á milli lóðanna Vall-
arstrætis 4 og Aðalstrætis 7 sé skipt
upp á milli þeirra og lóðirnar stækk-
aðar sem því nemur og að leyfilegt
verði að fjarlægja viðbyggingu frá
1967 við Landssímahúsið/Thorvald-
sensstræti 6 og byggja hana í sömu
mynd.
Fallið sé frá kröfu um að opna skuli
samkvæmissal NASA út í Vallar-
stræti, bætt við skilmálum um bíla-
stæði, ásamt ýmsum smærri breyt-
ingum og lagfæringum. Engar
breytingar eru gerðar á stærðum og
hæðum húsa og húshluta aðrar en nú-
verandi kjallara Vallarstrætis 4 er
bætt við, skv. uppdrætti THG Arki-
tekta ehf. Átta manns höfðu sent inn
athugasemdir og Minjastofnun og
Borgarsögusafn sendu inn umsagnir.
Umhverfis- og skipulagsráð hafn-
aði athugasemdunum og vísar málinu
til afgreiðslu í borgarráði ásamt því
að bóka eftirfarandi:
,,Umhverfis- og skipulagsráði þyk-
ir mikilvæg sú umhyggja fyrir al-
mannarými, minjum og sögu Reykja-
víkur sem birtist í athugasemdum við
deiliskipulagsbreytingar á Lands-
símareit. Á hitt er hins vegar að líta
að deiliskipulagið í heild sinni endur-
speglar og tekur fullt mið af fyrri nið-
urstöðu um vernd húsa á reitnum og
fyrir liggur eftir fornleifarannsókn,
sem ekki er að fullu lokið, að gera má
ráð fyrir að minjum um byggð eða
greftrun á reitnum verði ekki raskað
frekar en orðið er vegna byggingar-
framkvæmda sem þar standa fyrir
dyrum. Eftir sem áður þarf að gæta
fyllstu varúðar við þær framkvæmdir
allar í góðu samráði við Minjastofnun
og borgaryfirvöld. Loks er minnt á að
ákveðið hefur verið að halda sam-
keppni um torgið yfir Víkurgarði og
að þar verði haldið á lofti minningu
garðs og kirkju sem þar stóð um ald-
ir.“ ernayr@mbl.is
Athugasemdum hafnað
Umsókn um breytingu á deiliskipulagi á Landssímareit lögð fram að nýju
Umhverfis- og skipulagsráð vísaði umsókninni til afgreiðslu í borgarráði
Tölvumynd/THG Arkitektar
Skipulag Svona mun Landssímareitur ásamt Víkurgarði líta út.
Flugfreyjufélag Íslands hefur til skoð-
unar nokkur tilfelli þar sem flugliðar á
tímabundnum samningum hjá flug-
félaginu WOW air hafa verið sendir
einhliða í launalaust leyfi. Upplýsinga-
fulltrúi WOW air segir að með þessum
aðgerðum hafi verið hægt að gefa fleir-
um tækifæri til að vinna stóran hluta
vetrar.
„Flugfreyjufélagið er með þessa
samninga til skoðunar. Það var ein-
hliða ákveðið að senda fólk á tíma-
bundnum ráðningarsamningum í
launalaust leyfi. Lögfræðingur félags-
ins hefur gert athugasemdir fyrir hönd
félagsins en það hefur ekki verið
brugðist við því,“ segir Berglind Haf-
steinsdóttir, formaður Flugfreyju-
félags Íslands.
Berglind segir að ekki liggi fyrir um
hversu marga sé að ræða þar sem fé-
lagið hafi einungis nokkur tilfelli til
skoðunar en hún telur að heildarfjöld-
inn geti numið tugum. Þá segir hún að
allur gangur sé á því hversu langt leyf-
ið sé. „Við erum að skoða hvort þetta
samrýmist lögum eða meginreglum
vinnuréttar. Einhverjir eru byrjaðir að
hefja töku þessara launalausa leyfa og
eru réttindalausir á meðan að okkar
mati.“
Í svari upplýsingafulltrúa WOW air
við fyrirspurn mbl.is kemur fram að
rétt eins og hjá flestum evrópskum
flugfélögum sé meira flug yfir sumarið
en yfir veturinn. WOW air hafi brugð-
ist við þessum árstíðabundnu sveiflum
með því að skipta vinnu á milli flugliða
yfir veturinn frekar en að segja upp
stórum hópi flugliða. tfh@mbl.is
Flugliðar sendir
í launalaust leyfi
WOW air til skoðunar hjá FFÍ