Morgunblaðið - 09.11.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Mennta- og menningarmálaráð-
herra og framkvæmdastjóri Sam-
taka iðnaðarins afhentu fyrstu
Microbit-smátölvurnar til um 100
nemenda í 6. bekk Austurbæjar- og
Hólabrekkuskóla í gær, en tölv-
urnar eru notaðar til að kenna for-
ritun. Þetta er annað árið sem nem-
endur fá Microbit-smátölvur og að
þessu sinni fá allir 6. bekkingar í
grunnskólum landsins tölvur.
Microbit er verkefni sem hleypt var
af stokkunum haustið 2016 af
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu, Samtökum iðnaðarins,
Menntamálastofnun, KrakkaRúv
og fjölda fyrirtækja á Íslandi.
Markmiðið er að efla þekkingu og
áhuga barna á forritun og tækni.
6. bekkingar fengu
forritunartölvur
Embætti sóknarprests Hjalla-
prestakalls, Reykjavíkurprófasts-
dæmi eystra, var auglýst laust til
umsóknar 8. október sl. Átta um-
sækjendur sóttu um embættið, sem
eru í stafrófsröð: séra Arnaldur
Arnold Bárðarson, cand. theol.
Bryndís Svavarsdóttir, séra Bára
Friðriksdóttir, mag. theol. Helga
Kolbeinsdóttir, mag. theol. Henn-
ing Emil Magnússon, séra Kristín
Pálsdóttir, séra Sunna Dóra Möller,
og séra Sveinn Alfreðsson.
Umsóknarfrestur um embættið
rann út 3. nóvember og skipar bisk-
up Íslands í embættið frá 1. janúar
nk. til fimm ára. Umsóknir fara til
umfjöllunar matsnefndar um hæfni
til prestsembættis og að fenginni
niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd
prestakallsins um umsóknirnar.
Kjörnefnd kýs að því búnu milli um-
sækjendanna og skipar biskup Ís-
lands þann umsækjanda sem hlýtur
löglega kosningu.
Átta sóttu um
í Hjallakirkju
Hjallakirkja Átta umsækjendur eru um
stöðu sóknarprests í kirkjunni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er erfiður rekstur,“ segir
Jógvan Hansen, tónlistarmaður og
eigandi tónleikastaðarins Græna
herbergisins í Lækjargötu.
Græna herberginu var lokað á
dögunum en staðurinn hafði um
nokkurt skeið verið vinsæll til tón-
leikahalds og skemmtana. Jógvan
segir að kostnaður við reksturinn
hafi reynst of mikill.
„Það er há leiga í miðbænum og
svo er allt hitt mjög dýrt, starfs-
mennirnir, skattarnir og fleira. Við
hefðum kannski átt að vera með
minni stað. Það var nóg af fólki sem
kom og við erum ofboðslega þakk-
látir fyrir viðtökurnar. Það var leið-
inlegt að þetta gat ekki gengið.“
Breytt í írskan pöbb
Græna herbergið er annar tón-
leikastaðurinn í miðborginni sem
lokað er á skömmum tíma. Hinn
fornfrægi Rósenberg við Klapp-
arstíg hefur lagt upp laupana og nýir
eigendur ætla að breyta honum í
írskan pöbb.
Þar með eru skörð höggvin í flóru
tónleikastaða, sér í lagi þar sem
þessir tveir hafa verið athvarf þeirra
sem sækja í heimilislega stemningu
þar sem nándin er mikil. Þarna hafa
og margir tónlistarmenn fengið að
stíga sín fyrstu skref.
Eftir stendur þó fjöldi tónleika-
staða í miðborginni; Gaukurinn,
Húrra, Gamla bíó, Kex hostel,
Bryggjan brugghús, Hard Rock,
Iðnó og auðvitað Harpa en margir
setja verðið fyrir sig á þeim bænum.
Borgin gæti stutt við bakið
María Rut Reynisdóttir tók ný-
lega við starfi verkefnastjóra Tón-
listarborgarinnar Reykjavíkur. Hún
segir að eitt af sínum fyrstu verkum
sé að kortleggja tónlistarborgina og
tónleikastaðir verði þar framarlega í
flokki.
„Ég mun skoða tónleikastaðina.
Ekki bara fjölda þeirra heldur líka
stefnu og gæði og hvernig þeir þríf-
ast í regluverki borgarinnar.“
María segir að það sé vissulega
söknuður að hverjum tónleikastað
sem leggur upp laupana. Slíkt gerist
þó í bylgjum og vanalega komi nýir í
staðinn.
Kemur til greina að styðja við
bakið á tónleikastöðum?
„Já, mér finnst það borðleggjandi
ef hægt er að koma því við. Ég mun
kynna mér hvernig aðrar borgir
standa að þeim málum. Við viljum
halda fjölbreyttri flóru, það græða
allir á því.“
Tónleikastöðum lokað í bænum
Rósenberg og Græna herberginu lokað Há leiga og kostnaður fór með rekst-
urinn, segir tónleikahaldari Kemur til greina að borgin styðji við tónleikastaði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rósenberg Vinsæll tónleikastaður við Klapparstíg sem hafði verið í rekstri frá 2004. Breytist í írskan pöbb.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Græna herbergið Stemningsstaður í Lækjargötu. Reksturinn stóð ekki
undir sér og staðnum var lokað í síðustu viku.
Jógvan
Hansen
María Rut
Reynisdóttir
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
MIÐNÆTURSPRENGJA Í
KRINGLUNNI
í kvöld 9. nóvember
20-40%AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
Opið til
miðnættis
Hjá Samtökunum ’78, hagsmuna- og
baráttusamtökum hinsegin fólks á
Íslandi, er stöðugt unnið að því að
finna nýjar leiðir til að vinna gegn
dreifingu kynsjúkdóma hér á landi.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í gær hafa kynsjúkdómar
aukist mjög hér á landi og eru sára-
sótt og lekandi í sögulegum hæðum.
Flestir sem greinast með þá kyn-
sjúkdóma eru karlmenn sem stunda
kynlíf með öðrum karlmönnum.
Í viðræðum við Landspítala
Daníel E. Arnarsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna ’78, segir
að í húsnæði samtakanna á Suð-
urgötu 3 sé hægt að fá ókeypis
smokka og sleipiefni. Þá hafi þau
verið í viðræðum við húð- og kyn-
sjúkdómadeildina og smitsjúkdóma-
deild Landspítalans um að koma
reglulega til þeirra á Suðurgötu og
bjóða upp á greiningarpróf.
„Þetta verkefni hefur verið til um-
ræðu í nokkurn tíma. Smitsjúkdóma-
deildin kom hingað varðandi verkefni
um lifrarbólgu C og var með hrað-
prófanir í húsinu og það gekk mjög
vel. Okkur langar til að prófa fyrir
kynsjúkdómum og með því bæta að-
gengið að greiningarprófunum. Um-
hverfið eins og það er í dag er mjög
klínískt og því teljum við að með því
að fá smitsjúkdómadeildina hingað
reglulega geri það fólki auðveldara
fyrir, það getur bara litið inn,“ segir
Daníel en fyrirmyndina sækja þau til
nágrannalandanna þar sem farið er
að bjóða upp á greiningarpróf með
þessum hætti.
Góð lyf eiga ekki að
auka kæruleysi í kynlífi
Daníel segir að flest hinsegin fólk
hér á landi sé meðvitað um hættuna
á kynsjúkdómum. „Maður hefur
heyrt út undan sér að það eru túr-
istar að koma til landsins sem eru á
lyfi sem heitir Prepp og á að koma í
veg fyrir HIV-smit. Það hefur orðið
til þess að sumir hommar leggja
smokkinn á hilluna en gleyma um
leið að það er hægt að smitast af öll-
um öðrum kynsjúkdómum þótt þú
sért á Preppi,“ segir Daníel og legg-
ur áherslu á að góð lyf við HIV-
sjúkdómnum eigi ekki að auka kæru-
leysi í kynlífi. „Það eina sem getur
spornað gegn því að smitast af sára-
sótt og lekanda er smokkurinn.“
ingveldur@mbl.is
Vinna markvisst
gegn kynsjúkdómum
Vilja bæta aðgengi að greiningu
Flestir meðvitaðir um hættuna