Morgunblaðið - 09.11.2017, Page 12
Fliss Vinkonur spjalla, María Georgsdóttir í hlutverki
sínu sem Kata og Karen Rut Robertsdóttir sem Dóra.
Listafélag VerzlunarskólaÍslands frumsýnir á morg-un, föstudag þann 10. nóv-ember, glænýtt verk sem
ber heitið SKÖMM. Í verkinu er inn-
blástur sóttur í norsku sjónvarps-
þættina SKAM sem hafa notið gríð-
arlegra vinsælda bæði hér heima á
Íslandi og í Noregi, en þeir fjalla um
líf unglinga í nútímasamfélagi á afar
opinskáan og raunsæjan hátt.
Í tilkynningu kemur fram að
krakkarnir í Listafélaginu hafi unnið
að gerð verksins síðastliðna tvo
mánuði, en undirbúningur hefur
staðið allt frá því í byrjun sumars
með viðtölum við ungt fólk á aldr-
inum 16-20 ára.
Dominique Gyða Sigrúnardóttir
leikstýrir leikhóp Listafélagsins í
SKÖMM en þetta er í annað sinn
sem hún gerir það, því í fyrra leik-
stýrði hún sýningunni The Break-
fast Club sem skólinn setti upp og
naut mikilla vinsælda.
Í verkinu SKÖMM hafa 10 leik-
arar búið til sína eigin sýningu frá
grunni undir leiðsögn Dominique,
með því sem kallað er „devised“ að-
ferð, eða samsköpunarleikhús, en
vinnan við það er mjög krefjandi fyr-
ir þá sem að því koma.
Þó verkið beri nafnið SKÖMM er
verkið sjálfstætt og persónurnar
nýjar og aðrar en þær sem eru í
norsku þáttunum, enda nóg af
spennandi og hæfileikaríkum ung-
lingum til að sækja innblástur í hér á
Íslandi.
Leikpersónur lifa sjálfstæðu
lífi á Instagram
Hópurinn notar ýmsa miðla til að
halda í hráan raunveruleikann sem
einkennir einnig norsku þættina
SKAM, til dæmis hefur hver per-
sóna í verkinu sína eigin insta-
gram-síðu. Persónurnar munu halda
áfram að lifa sjálfstæðu lífi í gegnum
instagram meðan á sýningum stend-
ur og aldrei að vita hvað svo tekur
við. Þau sem standa að SKÖMM eru
metnaðarfull og ætla sér að slá í
gegn, enda hefur sýningin nú þegar
náð að vekja áhuga ekki minni
manna en Guðna Th. Jóhannes-
sonar, forseta Íslands, en hann
mætti á forsýningu verksins og gaf
sér góðan tíma til að spjalla við leik-
ara og leikstjóra eftir sýninguna.
Hann lýsti hrifningu sinni með því
að skrifa status um verkið á Face-
book-síðu sinni þar sem hann sagðist
hafa skemmt sér vel og tengt við
ýmsar senur verksins, sem rifjuðu
upp fyrir honum feimni og vesen
unglingsáranna.
SKÖMM er íslenskt SKAM
Krakkarnir í Listafélagi
Verzlunarskóla Íslands
gerðu sér lítið fyrir og
sköpuðu nýjar íslenskar
persónur í leikverkinu
SKÖMM, en innblástur
sóttu þau í hina vinsælu
norsku þætti SKAM.
Ljósmyndir/Antoníus Freyr
Félagar Ungt fólk prófar ýmislegt, Skarphéðinn Vernharðsson sem Berti og Pétur Már Sigurðsson sem Darri.
Forseti á forsýningu F.v Máni Huginsson, Selma Kristín Gísladóttir, Guðni
Th. Jóhannesson, Antoníus Freyr Antoníusson og Ása Valdimarsdóttir.
Samskipti kynjanna geta verið flókin Vilberg Andri
Pálsson sem Óli og Rán Ragnarsdóttir sem Blær.
Miðasala er hafin og hægt er að
nálgast miða á vefsíðunni:
nfvi.is/midasala.
Vert er að taka fram að aðeins er
sýnt út nóvember og að selt er á
tvær sýningar í senn. Hægt er að
kynna sér persónur verksins á
instagram-síðu Listafélags Verzl-
unarskóla Íslands, listoverzlo.
Ljósmynd/Sigurjón Björn Torfason
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, var stofnað
til að gera listsköpun sýnilegri í bæjarfélaginu. Gróska
fagnar ævinlega komu vetrar jafnt sem sumars með
myndlistarsýningum, en heldur þar fyrir utan fleiri
sýningar. Gróska stendur líka fyrir ýmsum opnum
fyrirlestrum um myndlist og menningu, býður upp á
námskeið og hverskonar samhristing fyrir félagsmenn.
„Með gróskumiklu starfi sínu hefur Gróska skapað
mikilvægan vettvang fyrir skapandi samneyti mynd-
listarmanna og orðið mörgum hvatning til að koma
fram með faldar perlur í formi listaverka,“ segir í til-
kynningu frá Grósku um árlega haustsýningu félagsins
og bætir við að sýningin „tendri listrænt ljós í skamm-
deginu“.
Þetta haustið unnu listamennirnir með þemað „Sól í
myrkri“ og eru sýnendur margir, og næsta víst að fjöl-
breytni verður nokkur í túlkun á þemanu. Kannski
verða margar sólir á lofti? Haustsýningin verður opn-
uð í dag, fimmtudaginn, kl. 20 í sýningarsal Grósku á
2. hæð á Garðatorgi við hliðina á versluninni Víði. Dú-
ettinn Artemis flytur tónlistaratriði og boðið verður
upp á léttar veitingar. Sýningin verður opin áfram dag-
ana 10.-12. nóvember kl. 12 til 18. Allir eru velkomnir.
Sól í myrkri – Haustsýning Grósku
Ólíkar túlkanir listamanna á sól í myrkri
Barokkdans á jökli Þetta verk eftir Ósk Laufdal er meðal
þeirra sem verða á haustsýningunni hjá Grósku.
Möttulstrókurinn sem núna er undir
Vatnajökli er lífæð Íslands. Án hans
og þeirra efna sem hann flytur upp
væri Ísland löngu sokkið í sæ eins og
Atlanshafshryggurinn fyrir sunnan
og norðan landið. Svo segir í tilkynn-
ingu um fyrirlestur sem Sæmundur
Ari Halldórsson jarðefnafræðingur er
með í dag, fimmtudag, í Öskju HÍ,
stofu 132, kl. 16.
Sæmundur ætlar að fjalla um
möttulstróka, sem eru umfangsmikil
lághraðasvæði í möttli jarðar sem al-
mennt eru tengd við varmaupp-
streymi frá neðri hluta möttuls og/
eða kjarna. Í þessum fyrirlestri verð-
ur fjallað um þær upplýsingar sem
möttulgös er losna úr læðingi við eld-
virkni á Íslandi og í austurafríska sig-
dalnum geyma. Öllum opið.
Fyrirlestur í dag í HÍ
Morgunblaðið/RAX
Vatnajökull Jökullinn okkar stóri.
Hvað geyma
möttulgos?
Ómar Ragnarsson er landsmönnum
öllum að góðu kunnur eftir áratuga
nærveru bæði á sjónvarpsskjánum
sem og á öðrum vettvangi. Hann er
einstaklega orkumikill og hefur kom-
ið mörgu í verk og á gott með að láta
fólk fara að hlæja. Ómar á sér mörg
andlit og hefur tekið að sér hin ólík-
ustu hlutverk; hann er fréttamaður,
skemmtikraftur, metsölubókahöf-
undur, ljóðskáld og lagahöfundur, svo
fátt eitt sé nefnt. Ómar verður gestur
dagsins í opnu húsi fyrir eldriborgara
í safnaðarheimili Akraneskirkju í dag,
fimmtudag, kl. 14.30. Hann ætlar að
skemmta áheyrendum í tali og tónum
í rúma klukkustund. Allir velkomnir.
Opið hús í Akraneskirkju
Morgunblaðið/RAX
Kátur Ómar Ragnarsson
Ómar ætlar að
skemmta fólki
MIÐNÆTUR
SPRENGJA!
Í KRINGLUNNI
20% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
OPIÐ TIL 24:00