Morgunblaðið - 09.11.2017, Page 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Sérhönnuð húsgögn fyrir gælu-
dýr verða æ vinsælli og IKEA
svaraði þeirri eftirspurn með því
að kynna sérstaka línu undir
heitinu LURVIG í haust, en þar
voru ferfættir fjölskyldumeðlimir
hafðir í huga við hönnun hús-
gagna fyrir fólk. Einnig voru sér-
stök húsgögn fyrir gæludýr þar á
meðal, hundarúm og fleira. Á
vefsíðunni mymodernmet.com er
sagt frá því að þegar japanska
fyrirtækið Okawa Kagu ákvað að
hanna og framleiða húsgögn fyr-
ir ketti var hugmyndin sú að
sameina gríðarlegar vinsældir
katta á netinu og hæfileika jap-
anska handverksfólksins. Ekkert
var til sparað; sérvalið timbur er
í þessum hágæða kattahús-
gögnum og tillit tekið til hins
heimspekilega jafnvægiskerfis
Feng shui. Þeir kattaeigendur
sem njóta þess að dekra við ketti
sína fagna þessari fegurð og
vandvirkni. Af myndunum að
dæma virðast kettirnir nokkuð
sáttir við nýju línuna, en ekki víst
að fjóskettir kæri sig um slíkan
munað.
Kattarúm Heldur betur notalegt að kúra svolítið.
Kattahúsgögn
Sófi Hvaða köttur vill ekki láta fara vel um sig í sófa?
IKEA Fjölnota borð fyrir kisu.
Japönsk hönnun á gæðahúsgögnum fyrir ketti vekur
athygli og loðnum ferfætlingunum líkar nokkuð vel.
Vaskir sjómenn, vígreifir banka-
menn, krúttleg lopatröll, léttfættir
séntilmenn, þrekmiklir bændasynir:
Það er misjafnt hvað þykir karl-
mannlegt, breytilegt eftir stað,
stund og stétt. En hvernig hefur
karlmennskan þróast í tímans rás
og hvernig bera menn sig karlmann-
lega í dag? Þessara spurninga
spurði þjóðfræðingurinn Sæbjörg
Freyja Gísladóttir sem hefur rann-
sakað hvernig karlmennska birtist í
ljósmyndum frá árunum 1914 til
2014, hvaða líkamsstaða þykir karl-
mannleg á hverjum tíma og hvernig
líkamar karlmanna endurspegla
samfélagsbreytingar.
Í tilkynningu kemur fram að Sæ-
björg hafi safnað og greint um eitt
þúsund ljósmyndir frá Skjalasafni
Austfirðinga og Skjalasafninu á Ísa-
firði frá fyrstu áratugum 20. aldar.
Hún ljósmyndaði einnig þrjátíu karl-
menn sem eru búsettir á Egils-
stöðum, Reykjavík og í Önundarfirði.
Afrakstur þessa er ljósmyndasýn-
ingin Alvöru karlmenn sem þegar
hefur verið sýnd víða um land og
ratar nú á veggi Háskóla Íslands á
Háskólatorgi.
Sýningaropnun var í gær og full
ástæða til að hvetja fólk til að gera
sér ferð á Háskólatorg og berja
dýrðina augum, sjálfa karlmennsku
íslenskra karlmanna í hinum ólík-
ustu myndum og frá ólíkum tímum.
Sýningin er á vegum Námsbrautar
í þjóðfræði og safnafræði við Há-
skóla Íslands og Rannsóknaseturs
HÍ á Ströndum - Þjóðfræðistofu.
Sýningin Alvöru karlmenn á göngum Háskólatorgs
Karlmaður Þessi tekur sig heldur betur vel út með sláttuvélina.
Hvernig hefur karlmennskan
þróast í tímans rás?
Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði
í okkar fullbúnu gleraugnaverslun
á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
Ábyrgðar- og þjónustuaðilar:
Optical Studio Smáralind, s. 528 8500
Optical Studio Keflavík, s. 4213811
Með öllum margskiptum
glerjum fylgir annað par FRÍTT
með í sama styrkleika