Morgunblaðið - 09.11.2017, Síða 16
Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæ-
fellsbæ, segir að haustið hafi verið á pari
við sama tíma í fyrra. Rúmlega 1.500 tonn-
um hafi verið landað í höfnunum þremur,
Ólafsvík, Rifi og Arnarstapa, í september
og um 1.200 tonnum í október bæði árin.
Talsverður afli hafi tapast í sjómannaverk-
fallinu síðasta vetur og hann hafi ekki
náðst þá mánuði sem liðnir eru síðan.
Hann segir að dragnótabátar af Snæ-
fellsnesi hafi eins og undanfarin ár meðal
annars landað í Bolungarvík í haust. Línu-
bátarnir hafi flestir verið fyrir norðan land
og segir Björn að þetta sé hefðbundið
munstur, en bátarnir komi síðan flestir
heim er líði á nóvember.
Sama munstur
RÓLEGRA Á SNÆFELLSNESI
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eins og síðustu ár hefur verið líf og fjör við
höfnina á Siglufirði í haust, miklu landað þar af
fiski og tíðin verið hagstæð til sjósóknar. Öfl-
ugir aðkomubátar gera þaðan út frá sept-
ember og fram í nóvember, en fiskurinn er þó
aðeins að litlu leyti unninn á Siglufirði. Flutn-
ingabílar eru mættir á staðinn kvöldið fyrir
löndun bátanna og er algengt að bílstjórar
leggi sig í bílunum yfir nóttina. Þeir eru svo til-
búnir að keyra fiskinn til vinnslu í Grindavík, á
Snæfellsnesi og annars staðar um leið og fisk-
inum hefur verið landað.
Siglufjörður var sú höfn á landinu þar sem
mestu var landað af þorski á síðasta fisk-
veiðiári, eða alls 20.513 tonnum. Höfuðborgin
var sjónarmun á eftir með 20.509 tonn og í
þriðja sæti var Grindavík með tæplega 19 þús-
und tonn af lönduðum þorski, en hins vegar er
verulegur hluti af þorski sem landað er á
Siglufirði keyrður suður til vinnslu í Grinda-
vík. Fiskveiðiárið 2015/16 komu 21.588 tonn af
þorski á land í Reykjavík, tæplega 1400 meira
en á Siglufirði.
Aflabrögð í meðallagi,
gengið hefur gefið eftir
Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnarins í
Grindavík, segir að haustið hafi á margan hátt
verið í meðallagi. Það eigi við um aflabrögð og
verð fyrir afurðir, en gengið hafi hins vegar
gefið eftir. Fyrirtækið hefur verið með fjóra
stóra línubáta fyrir norðan land í haust og hafa
þeir yfirleitt landað á Siglufirði á þriggja daga
fresti. Eiríkur áætlar að í hverri viku hafi
flutningafyrirtækið Jón og Margeir flutt 150-
200 tonn af þorski til vinnslu í Grindavík. Ýsa
og annað sem skipin koma með að landi fer
hins vegar á fiskmarkað á Siglufirði, en það er
aðeins lítill hluti aflans.
Þorbjörn hf. í Grindavík hefur í áratugi lagt
megináherslu á að salta fisk fyrir Spánar-
markað og haft trausta stöðu í Barcelóna og
víðar í Katalóníu. Eiríkur segir að þessi staða
sé óbreytt, en einnig eigi þeir talsverð við-
skipti í Portúgal og í samstarfi við Vísi hf. í
Grindavík reki þeir einnig lítið innflutningsfyr-
irtæki í Grikklandi. Þá segir Eiríkur að fyr-
irtækið hafi aðeins tekið þátt í útflutningi á
ferskum fiski með flugi til Bandaríkjanna, en
saltfiskurinn sé eftir sem áður uppistaðan í út-
flutningi fyrirtækisins. Afurðir tveggja frysti-
togara fyrirtækisins fara einkum á markað í
Evrópu, en einnig til Bandaríkjann og Asíu.
Haustvertíðina byrjuðu Þorbjarnarbátarnir
reyndar fyrir austan land og lönduðu nokkrum
sinnum á Djúpavogi. Þá fluttu þeir sig norður
fyrir og verða þar fram eftir þessum mánuði.
Þá flytja þeir sig suður fyrir og róa úr heima-
höfn þar til hefðbundinni vertrarvertíð lýkur.
Flestir dagar bókaðir hjá
löndunargenginu á Siglufirði
Steingrímur Óli Hákonarson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðar Siglufjarðar, segir að
mikið hafi verið að gera í haust og aðeins þrír
dagar séu óbókaðir hjá löndunargenginu það
sem eftir er af nóvember. Auk báta frá Þor-
birninum þjónusta þeir meðal annars báta frá
Hellissandi, Rifi, Stykkishólmi og báta frá
Stakkavík í Grindavík. Flutningabílar frá Jóni
og Margeiri, Ragnari og Ásgeiri, sem keyra á
Snæfellsnesið, Flytjanda og fleiri fyrirtækjum
eru fastagestir í bænum.
Sextán manns starfa við löndun og á mark-
aðnum þá daga þegar landað er úr tveimur
skipum, að sögn Steingríms. Harður kjarni
heimamanna standi vaktina, en í hópnum sé
einn Pólverji. Hann hafi reyndar flutt heim til
Póllands í fyrra, en komið aftur til Siglufjarðar
fyrir nokkrum vikum til að taka þátt í törninni
í haust, enda geti tekjurnar verið góðar.
Steingrímur segir að bátarnir hafi fyrst
reynt fyrir sér úti fyrir Norðurlandi í lok
ágúst, en þá hafi verið mikið æti í fiskinum,
meðal annars loðna og síld, og þeir því farið
austur fyrir land í nokkra daga.
Flest stærri línuskipin hafa verið fyrir
Norðurlandi í haust og má nefna að bátar Vísis
hafa landað á Sauðárkróki, eftir að hafa und-
anfarin ár landað á Dalvík, Siglufirði og
Skagaströnd.
Haustin hafa oft verið lífleg á Djúpavogi og í
september í haust var landað þar 1955 tonn-
um, en þá lönduðu stóru línuskipin þar nokkr-
um sinnum. Talsvert dró úr löndunum á
Djúpavogi í október og heimabátar voru þá
nánast alls ráðandi. Í september í fyrra var
landað 727 tonnum af bolfiski á Djúpavogi.
Líf og fjör við höfnina á Siglufirði
Mestu af þorski var landað á Siglufirði á síðasta fiskveiðiári Fjöldi flutningabíla flytur fiskinn til
vinnslu í Grindavík, á Snæfellsnesi og víðar Þorbjörn í Grindavík selur mikið af saltfiski til Katalóníu
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Löndun Jón Rúnar Gíslason, Steinar Þór Jónsson og Sturlaugur Kristjánsson við löndun úr Sturlu GK, skipi Þorbjarnarins, á Siglufirði í gær.
Veiðar á íslensku sumargotssíldinni
eru byrjaðar og voru nokkur skip að
veiðum djúpt vestur af Reykjanesi í
gær. Þeirra á meðal voru Jóna Eð-
valds og Ásgrímur Halldórsson frá
Hornafirði, Heimaey VE, Álsey VE
og Beitir NK. Jóna Eðvalds var fyrst
á miðin og landaði á Höfn á mánudag
um 250 tonnum.
Þær upplýsingar fengust frá
Skinney-Þinganesi í gær að vertíðin
færi ágætlega af stað og var Ásgrím-
ur Halldórsson kominn með um 440
tonn í gærmorgun, sem fengust í
tveimur holum. Síldin er stór og er
unnin fyrir hefðbundna markaði, m.a.
í Austur-Evrópu.
Hafrannsóknastofnun lagði í sum-
ar til að veiðar á íslensku síldinni á
þessu fiskveiðiári færu ekki yfir 39
þúsund tonn. Afföll hafa orðið í stofn-
inum síðustu ár vegna sýkingar og í
tveimur umhverfisslysum veturinn
2012/13 þegar talið er að yfir 50 þús-
und tonn hafi drepist í Kolgrafafirði.
Nýliðun í stofninum hefur farið
minnkandi.
Ráðgjöf fyrir síðasta fiskveiðiár var
upp á 63 þúsund tonn. Í fyrrahaust
veiddist síldin á stóru svæði djúpt
vestur af landinu. Veiðar gengu erfið-
lega framan af þar sem síldin var
dreifð yfir stórt svæði og í minni torf-
um en vanalega á þessum árstíma.
Kolmunni og norsk-íslensk
Á mánudagskvöld kom Börkur NK
til Neskaupstaðar með rúmlega 1.100
tonn af norsk-íslenskri vorgotssíld,
sem öll fór til vinnslu í fiskiðjuveri
Síldarvinnslunnar. Veiðiferðin byrj-
aði í færeyskri lögsögu og var síldinni
síðan fylgt í norður og endað í Smug-
unni, en aflinn fékkst í fimm holum.
Skip HB Granda, Eskju og fleiri
eru á kolmunna. Skipin hafa verið
austast í íslenskri lögsögu, en dauft
verið yfir veiðum. Ekki er ólíklegt að
þau færi sig suður á bóginn og inn í
lögsögu Færeyja á næstu dögum.
aij@mbl.is
Ágæt byrjun
á nýrri vertíð
Veiða íslenska sumargotssíld vestur af
Reykjanesi Nokkrir enn á kolmunna
Vertíð Síldin er herramannsmatur.
LISTHÚSINU
Lúsíurnar
komnar aftur í Kaiu
Listhúsinu við Engjateig,
105 Reykjavík, sími 551 2050
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15
Verð 15.900 kr.