Morgunblaðið - 09.11.2017, Side 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti fór
í opinbera heimsókn til Kína í gær og
ræðir við forseta landsins í dag, með-
al annars um erfið mál á borð við
deilur landanna um viðskipti og
kjarnorku- og eldflaugatilraunir
einræðisstjórnarinnar í Norður-
Kóreu. Fylgst er grannt með fundi
leiðtoganna, enda stjórna þeir tveim-
ur stærstu hagkerfunum og viðræð-
ur þeirra geta haft mikla þýðingu
fyrir ríki heims. Mikil óvissa er um
niðurstöður leiðtogafundarins, m.a.
vegna misvísandi skilaboða frá Do-
nald Trump. Hann var mjög harð-
orður í garð Kínverja fyrir forseta-
kosningarnar fyrir ári en hefur ekki
gripið til refsiaðgerða gegn þeim
eins og hann hafði hótað.
Trump og eiginkona hans, Mel-
ania, fengu mjög hlýjar móttökur
þegar þau komu til Peking. Börn
héldu á bandarískum fánum og veif-
uðu til forsetahjónanna þegar þau
gengu eftir rauðum dregli við undir-
leik herhljómsveitar. Athöfnin var
mjög ólík móttökunum sem Barack
Obama fékk þegar hann fór til Kína
nokkrum vikum áður en hann lét af
embætti forseta Bandaríkjanna.
Kínverjar brugðu þá út af þeirri
venju að taka á móti erlendum
þjóðarleiðtogum með rauðum dregli
og talið var að þeir hefðu gert það af
ásettu ráði til að sýna Obama lítils-
virðingu, að sögn breska ríkisút-
varpsins.
Sýndur óvenju mikill sómi
Xi Jinping tók Trump tveim hönd-
um í Peking og sýndi honum For-
boðnu borgina sem var aðsetur keis-
ara Kína á árunum 1420 til 1912.
Peking-óperan hélt sýningu þar til
heiðurs gestunum. Trump og eigin-
kona hans snæddu síðan kvöldverð í
Forboðnu borginni ásamt Xi og konu
hans, en þetta er í fyrsta skipti sem
bandarískum forseta er sýndur sá
heiður, að sögn fréttasjónvarpsins
CNN.
Markmið Kínverja með því að
sýna Trump svo mikinn sóma er m.a.
að höfða til sjálfsdýrkunar hans og
fullnægja þörf hans fyrir aðdáun, að
því er The Wall Street Journal hafði
eftir stjórnarerindrekum og frétta-
skýrendum. Þeir telja að markmið
Kínverja sé einnig að breiða yfir lít-
inn árangur í viðræðum ríkjanna um
viðskiptadeilurnar og leggja áherslu
á sterka stöðu Xi sem er valdamesti
leiðtogi Kína í áratugi, að sögn blaðs-
ins. Fréttaskýrendur The Wall
Street Journal benda einnig á að
staða kínverska forsetans er mjög
ólík veikri stöðu Donalds Trump
heima fyrir vegna lítils fylgis hans
samkvæmt skoðanakönnunum og
rannsóknar á tengslum aðstoðar-
manna hans í kosningabaráttunni við
stjórnvöld í Rússlandi. Xi styrkti
mjög stöðu sína á flokksþingi komm-
únista í síðasta mánuði og frétta-
skýrendur telja að það minnki lík-
urnar á því að hann fallist á
verulegar tilslakanir í viðræðunum
við Trump, að sögn breska ríkisút-
varpsins.
Sterk staða kínverska leiðtogans
gæti þó orðið Trump til framdráttar,
að mati Christophers Johnson, fyrr-
verandi sérfræðings bandarísku
leyniþjónustunnar CIA í málefnum
Kína. Hann skírskotar til þess að Xi
getur ekki borið því við að hann hafi
ekki nægan stuðning heima fyrir til
að fallast á tilslakanir og kennt öðr-
um um. „Ég geri ráð fyrir því að
Trump leiki þessu spili út í viðræð-
unum,“ hefur The Wall Street
Journal eftir Johnson. Hann telur að
Kínverjar leggi mikla áherslu á að
nota leiðtogafundinn til að bæta
samskiptin við Bandaríkjastjórn.
Hótaði refsitollum
Fréttaskýrandi CNN telur að
hlýju móttökurnar sem Trump fékk í
Peking endurspegli létti kínverskra
ráðamanna yfir því að hann hefur
Erfiðar viðræður eftir mjög hlýjar
Mikil óvissa um niðurstöður fundar leiðtoga tveggja stærstu hagkerfa heims Forsetar Bandaríkj-
anna og Kína ræða viðskiptadeilur landanna og ágreining þeirra um kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu
Viðskipti með vörur
Sæti á heimslista,
2016
321 milljón
BANDA-
RÍKIN
Útflutningur kínversks varnings til Bandaríkjanna
Vöruútflutningur
Helstu viðskiptaríki, 2016
Viðskiptamagn, 2016
í milljónum dollara
Útflutningur til Innflutningur frá
Útflutningur til Innflutningur frá
ESB
Suður-Kórea
Japan
Taívan
Bandaríkin
Bandaríkin
ESB
Hong Kong
Japan
Suður-Kórea
ESB
Kanada
Mexíkó
Kína
Japan
Kína
ESB
Mexíkó
Kanada
Japan
18,3%
16,1
13,8
6,1
4,5
18,7%
18,3
15,9
8,0
4,4
21,4%
18,9
13,2
12,6
6
13,1%
10,0
9,2
8,8
8,5
BNA
Kína
Vöruútflutningur Vöruinnflutningur
Vöruinnflutningur
Þjónustu-
útflutningur
Þjónustu-
innflutningur
Viðskipti sem
% af vergri
landsframleiðslu
2.
2.
2.
20,013,9
1.454.607 2.251.351 Flytur meira
inn en útFlytur meira
út en inn 2.098.161 1.587.431
1.
1.
1.
1.
5.
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
Í milljörðum dollara
54 63 70 70
92 104
111
288
321 338 296
365
399 426
2013 2014
468
124
440
122
Útflutningur bandarísks varnings til Kína 483
116 116
2015 2016
463
91
365
2017
Jan.-sept.
Heimildir: Hagstofa Bandaríkjanna/Alþjóðaviðskiptastofnunin
Viðskipti Bandaríkjanna og Kína
1,3 milljarðar
KÍNA
BNA Kína
BNA
Kína
Íbúafjöldi
Kína einangri N-Kóreu
» Kínaheimsókn Donalds
Trump stendur í einn og hálfan
dag og er liður í tíu daga ferð
hans um Asíu.
» Áður hafði Trump heimsótt
Japan og Suður-Kóreu. Eftir
viðræðurnar í Peking í dag fer
hann til Víetnams og Filipps-
eyja.
» Donald Trump ávarpaði þing
Suður-Kóreu í fyrradag og
hvatti Kínverja til að leggja
meira af mörkum til að ein-
angra einræðisstjórnina í
Norður-Kóreu og þvinga hana
til að eyða öllum kjarnavopn-
um sínum.
Franska þingið hefur svipt Marine
Le Pen þinghelgi, að sögn frétta-
veitunnar AFP. Le Pen, sem er for-
maður frönsku Þjóðfylkingarinnar
(Front National), birti árið 2015
myndir á Twitter af grimmdar-
verkum íslamskra hryðjuverka-
manna, meðal annars af bandaríska
blaðamanninum James Foley, sem
var hálshöggvinn.
Le Pen er sökuð um brot á lögum
sem banna dreifingu á „ofbeldis-
fullum skilaboðum þar sem hvatt er
til hryðjuverka“ og getur átt yfir
höfði sér allt að þriggja ára fang-
elsi, að sögn AFP í gær.
FRAKKLAND
Marine Le Pen svipt þinghelgi
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk
gæða heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Stærðir XS-XXL
Verð 16.995 kr.
Ný glæsileg
sending
frà InWear
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt