Morgunblaðið - 09.11.2017, Qupperneq 19
ekki gripið til refsiaðgerða gegn
Kína vegna viðskiptadeilna land-
anna. Í kosningabaráttunni hótaði
Trump að leggja allt að 45% refsi-
tolla á kínverskan varning og óttast
var að það gæti leitt til viðskipta-
stríðs milli ríkjanna tveggja. Varað
var við því að það myndi hafa slæmar
afleiðingar fyrir heimsviðskipti og
gæti leitt til nýrrar heimskreppu.
Trump skírskotaði einkum til þess
að vöruútflutningurinn frá Kína til
Bandaríkjanna er miklu meiri en
innflutningur Kínverja á bandarísk-
um varningi. „Við getum ekki leyft
Kínverjum að nauðga landinu okkar
og það gera þeir núna. Þetta er mesti
þjófnaður í sögu heimsins,“ sagði
hann meðal annars á kosningafundi í
maí á síðasta ári. Trump hefur ekki
staðið við stóru orðin, enn sem komið
er a.m.k., en ekkert bendir til þess að
viðhorf hans til útflutningsstefnu
kínverskra stjórnvalda hafi breyst.
Misvísandi skilaboð
Stefna Trumps er þó enn mjög
óljós og skilaboðin frá honum og
stjórn hans hafa verið misvísandi.
Nokkrir hátt settir embættismenn í
Hvíta húsinu sögðu fyrr í vikunni að
Trump myndi ekki fallast á neinar
tilslakanir í viðskiptadeilunum gegn
því að Kínverjar féllust á að auka
þrýstinginn á einræðisstjórnina í
Norður-Kóreu til að knýja hana til
að láta af kjarnorku- og eldflaugatil-
raunum sínum. Trump hefur þó
sjálfur gefið til kynna að hann ljái
máls á tilslökunum í viðskiptadeilun-
um ef Kínverjar herði aðgerðir sínar
gegn Norður-Kóreustjórn, að sögn
fréttaskýranda CNN.
Fréttaveitan AFP hafði í gær eftir
hátt settum embættismanni í föru-
neyti Donalds Trump að kínversk
stjórnvöld væru að „gera miklu
meira en nokkru sinni áður“ til að
þjarma að einræðisstjórn Norður-
Kóreu en gætu samt gert meira til að
knýja hana til að láta af kjarnorku-
og eldflaugatilraunum sínum þar
sem Kínverjar væru helstu banda-
menn hennar. Ráðamennirnir í Kína
hafa hins vegar sagt að þeir hafi þeg-
ar gert það sem þeir geti og að
Bandaríkjastjórn ofmeti áhrif þeirra
í Norður-Kóreu.
móttökur
AFP
Í höll keisara Donald Trump og eiginkona hans í Forboðnu borginni í Pek-
ing ásamt gestgjafanum Xi Jingping, forseta Kína, og eiginkonu hans.
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Demókratar í Virginíu og New Jer-
sey fóru með sigur af hólmi í fyrra-
dag í ríkisstjórakosningum sem voru
álitnar prófsteinn á það hvaða áhrif
Donald Trump forseti geti haft á
fylgi repúblikana í lykilríkjum sem
ráða oft úrslitum í forseta- og þing-
kosningum í Bandaríkjunum.
Úrslitin í Virginíu og New Jersey
eru álitin ills viti fyrir Repúblikana-
flokkinn, að mati margra stjórn-
málaskýrenda. Talið er að þau geti
magnað enn erjurnar milli stuðn-
ingsmanna Trumps og þeirra repú-
blikana sem aðhyllast hefðbundna
frjálshyggjustefnu flokksins. Sumir
forystumenn repúblikana óttast að
innanflokkserjurnar og óvinsældir
Trumps verði til þess að repúblik-
anar missi meirihluta sinn í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings í kosningun-
um í nóvember á næsta ári, á miðju
kjörtímabili forsetans.
Í Virginíu sigraði ríkisstjóraefni
demókrata, Ralph Northam, með níu
prósentustiga mun og demókratar
náðu nokkrum sætum á þingi ríkis-
ins af repúblikönum.
Áfall fyrir repúblikana
Tom Davis, repúblikani og fyrr-
verandi þingmaður í Virginíu, segir
ósigrana áfall fyrir repúblikana.
Kjósendur í borgunum hafi sent
þeim skýr skilaboð um að þeir þurfi
að breyta stefnu sinni, m.a. í innflytj-
endamálum.
Að sögn fréttaskýranda The Wall
Street Journal hafði ríkisstjóraefni
repúblikana, Ed Gillespie, reynt að
vera „nógu hófsamur“ til að höfða til
óháðra kjósenda en einnig nógu mik-
ill „Trumpmaður“ til að geta fengið
atkvæði stuðningsmanna forsetans.
„Ósigur Gillespies sýnir hversu erf-
itt það er að þræða þetta einstigi.“
Í kosningabaráttunni lagði Gill-
espie áherslu á mál sem Trump hef-
ur hamrað á, m.a. baráttuna gegn
glæpum og innflytjendamál. Forset-
inn studdi Gillespie í tísti á Twitter
að morgni kjördagsins en kom ekki
fram á neinum kosningafundum
hans. Eftir kosningarnar virtist
Trump reyna að þvo hendur sínar af
ósigrinum. „Ed Gillespie lagði hart
að sér en tók mér ekki opnum örm-
um, eða því sem ég stend fyrir.“
Í New Jersey sigraði demókratinn
Phil Murphy repúblikanann Kim
Guadagno með þrettán prósentu-
stiga mun. Murphy tekur við ríkis-
stjóraembættinu af repúblikananum
Chris Christie, sem hefur stutt
Trump. bogi@mbl.is
Ósigrarnir taldir ills
viti fyrir repúblikana
Biðu ósigur í ríkisstjórakosningum í tveimur lykilríkjum
AFP
Sigurvegari Ralph Northam fagnar
kosningasigri sínum í Virginíu.
Stjórnvöld á Spáni íhuga nú að gera breytingar á
stjórnarskrá landsins sem geri héruðum kleift að efna
til atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Breska ríkisútvarpið
hefur þetta eftir Alfonso Dastis, utanríkisráðherra
Spánar. Með þessu eru spænsk stjórnvöld sögð vera að
bregðast við atburðum undanfarinna vikna í Katalóníu,
þar sem héraðsstjórnin var leyst upp eftir að katalónska
þingið lýsti yfir sjálfstæði. Átta af ráðherrum héraðs-
stjórnarinnar eru í fangelsi og hafa verið ákærðir fyrir
uppreisn í tengslum við sjálfstæðisyfirlýsinguna sem
brýtur í bága við núgildandi stjórnarskrá Spánar.
DEILAN UM KATALÓNÍU
Handtökum mót-
mælt í Barcelona.
Íhuga að breyta stjórnarskrá Spánar
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma