Morgunblaðið - 09.11.2017, Qupperneq 24
Þann 22. janúar 1935
skall á ofsaveður úr
vestri fyrir Vestur-
landi. Jafnvel togarar
urðu að leita í var.
Um miðjan þann dag
var togarinn Jería GY
á siglingu um fjórar
sjómílur út af Bjarg-
töngum. Fékk hann þá
yfir sig ógnarlegan
brotsjó. Varð skipið
nánast sem flak, vél-
arvana og stjórnlaust.
Rak það svo undan
ofsaveðri og stórsjó í átt að Látra-
bjargi með mennina 13 innanborðs.
Sent var út neyðarkall, en engin
skip voru nálæg. Þrír enskir tog-
arar sem voru komnir í var á Pat-
reksfirði, allir frá Grimsby, brutust
þó umsvifalaust út í veðurofsann til
að reyna björgun. Öll hjálp reyndist
vonlaus.
Í þrjá klukkutíma var Jería á
þessu reki í átt að dauðanum við
Látrabjargið ógurlega. Og að lokum
kom hið harmþrungna síðasta kall,
kveðja heim til Englands.
Menn frá Hvallátrum voru fengn-
ir til þess að svipast um á bjarginu.
Urðu sex menn til þeirrar ferðar.
» Ótal frásagnir eru til
sem lýsa því, að látnu
fólki er annt um jarð-
neskar leifar sínar og
hefur leitað eftir hjálp.
Togarinn Jería
tapar baráttunni
og sendir
hinstu kveðju
heim
til Grimsby
fjallháir brotsjóir
falla
með ósköpum
en dúnmjúk
er sængin
í sjódauðanum
svipur látins
hímir hjá
nöktu líki
undir bjargveggnum
loks grillir
í mann
á himinhárri
bjargbrúninni
Þyngdarlaus vofan
fylgir honum
að Hvallátrum.
Ótal frásagnir eru til sem lýsa
því, að látnu fólki er annt um jarð-
neskar leifar sínar og hefur leitað
eftir hjálp.
Í Breiðuvíkurkirkjugarði í
Vesturbyggð er jarðsettur enskur
togarasjómaður sem fórst undir
Látrabjargi í hörmulegu og ógn-
vekjandi sjóslysi. Hann leitaði til
manna um að bjarga líkinu.
Eftir Helga Krist-
jánsson
Helgi Kristjánsson
Sjómaður frá
Grimsby
Biblían – lykillinn að
menningu Vesturlanda
Fá ef nokkur rit
hafa haft meiri áhrif
á menningu okkar en
Biblían. Það er sama
hvert litið er. Frá-
sagnir Biblíunnar
endurspeglast í
myndlist, högg-
myndum, tónlist, lög-
um, siðfræði, heim-
speki og
bókmenntum svo fátt
eitt sé talið. Íslensk tunga væri
löngu týnd ef ekki hefði komið til
þýðing Biblíunnar á íslensku á 16.
öld svo eitt dæmi sé tekið. Frá-
sagnir, persónur og tákn Biblíunn-
ar endurspeglast í kvikmyndum
samtímans allt frá Hobbitanum yf-
ir í Armageddon. Þannig er Bibl-
ían lykillinn að menningu Vest-
urlanda.
Í þessari síðustu grein minni um
Biblíuna ætla ég að gefa sögum
Biblíunnar orðið – og rifja í leið-
inni upp þær þekktustu. Þetta eru
allt sögur og sagnapersónur sem
allir þekktu fyrir fáeinum árum en
margir hafa í dag tapað sambandi
við. Þú getur svo slegið um þig
með Biblíuþekkingu þinni í næsta
fjölskylduboði. Hér er líka að finna
nokkrar „svartar frásagnir“ sem
sjaldan er talað um í kirkjunni á
venjulegum sunnudegi – en er þess
meir vitnað í sem tákn í listum.
Við skulum byrja á sköpunar-
sögunum. Sú fyrri, eða fyrsta,
fjallar um það hvernig Guð skapar
heiminn á sjö dögum. Þessi saga er
í fyrsta kafla Fyrstu
Mósebókar. Markmið
hennar er ekki að út-
skýra vísindalega til-
urð jarðarinnar – held-
ur að undirstrika
blessun Guðs. Síðari
sagan er líka í Fyrstu
Mósebók og byrjar á
versi 5 í öðrum kafla.
Þar segir frá ald-
ingarðinum Eden og
þeim Adam og Evu og
höggorminum.
Um þá bræður Kain
og Abel og fyrsta bróðurmorðið
má lesa í fjórða kafla Fyrstu
Mósebókar. Svo er það Nói og örk-
in hans – saga syndaflóðsins er í
Fyrstu Mósebók, sjötta kafla.
Babelsturninn og það hvernig
Guð ruglaði tungumálum jarð-
arinnar – frá þeirri sögu segir í
Fyrstu Mósebók, ellefta kafla. Síð-
an kemur frásögnin um Sódómu og
Gómorru – hún er í Fyrstu Móse-
bók, nítjánda kafla. Abraham fer
með son sinn Ísak til að fórna hon-
um á altari Drottins í tuttugasta
og öðrum kafla Fyrstu Mósebókar.
Í sautjánda og tuttugasta og fyrsta
kaflanum má síðan lesa um Ísmael,
ættföður múslíma. Móses fæðist í
Annarri Mósebók, öðrum kafla.
Um uppruna páska gyðinga má
líka lesa í Annarri Mósebók, tólfta
og þrettánda kafla. Þar er að finna
hina hræðilegu frásögn af því þeg-
ar Drottinn fer eins og illur vættur
um Egyptaland og myrðir alla
frumburði Egypta, en gengur
framhjá útidyrum gyðinga. Hinn
illi vættur sem Drottinn breytist í
– eða lætur vinna hið blóðuga verk
– kallast „Eyðandinn“. Gæti þess
vegna verið „Tortímandinn“. Tor-
tímandinn er því eitt af hinum bibl-
íulegu heitum Drottins. Flótti Ísr-
aels gegnum hafið – og hafið sem
klofnar – á sér stað í Annarri
Mósebók, fjórtánda kafla. Um
Samson má lesa í Dómarabókinni.
Saga Davíðs konungs er færð til
bókar í Fyrri og Síðari Samúels-
bók. Þar er sagt frá Davíð og Golí-
at í Fyrri Samúelsbók, sautjánda
kafla. Og áfram rennur blóðið í
stríðum straumum. Ekkert fyrir
börn … Öllu friðsamari er textinn
um Friðarboðann í níunda kafla
Jesaja. Þessi texti er lesinn á jól-
um í öllum kirkjum kristninnar.
Tortímandinn og Friðarboðinn.
Tvær algerlega andstæðar myndir
Guðs. Boðorðin 10 eru rituð í 2.
Mósebók, 20. kafla og 5. Mósebók,
5. kafla. Jónas í hvalnum er gleypt-
ur í bók Jónasar að sjálfsögðu. Og
Daníel í ljónagryfjunni er í Daní-
elsbók. María móðir Jesú mætir
Gabríel erkiengli í fyrsta kafla
Lúkasarguðspjalls og fær boð um
að fæða son Guðs í heiminn. Þar er
líka að finna þakkarsöng Maríu. Sá
lofsöngur er fyrirmyndin að Mar-
íubæn kaþólskra manna og ótelj-
Eftir Þórhall
Heimisson
Þórhallur Heimisson
» Þetta eru allt sögur
og sagnapersónur
sem allir þekktu fyrir
fáeinum árum en margir
hafa í dag tapað sam-
bandi við.
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Fasteignir
Allt um sjávarútveg
Kókosjógúrt
Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt:
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Traustur kostur.
Power Max®
• Vél:
fjór
• Elds
• Vinnslubreidd: 71 cm
• Afkastageta á klst: 57 tonn*
• Gírar: 6 áfram / 2 afturábak
• Ljós: Já
• Startari: Handtrektur/rafstart
• Blásturslengd: 13,5 m* 200°
• Þyngd: 121 kg
1028 OXHE
sá „stærsti“
302 cc Toro
gengis 10 hö
neytistankur: 3,2 l Verð kr
m. vsk
349.500
Vnr: 38826
P
sá
o •
ö •
•
•
Afkastageta á klst: 52 tonn* •
Gírar: 6 áfram / 2 afturábak •
Ljós: Nei •
Startari: Handtrektur/rafstart •
Blásturslengd: 12 m* 200° •
Þyngd: 79 kg •
ower Max® 726 O
„stærri“
Vél: 212 cc Tor
fjórgengis 7 h
Eldsneytistankur: 2,2 l
Vinnslubreidd: 66 cm
Verð kr
m. vsk
209.900
Vnr: 38813