Morgunblaðið - 09.11.2017, Page 25
Vonlaust reyndist með öllu að leita
að strandstaðnum. Var óveðrið slíkt
að mannhætta var á bjargbrúninni.
Komu þeir heim kl. 9 um kvöldið.
Næsta dag fóru þeir aftur en fundu
ekki strandstaðinn.
Ásgeir Erlendsson á Hvallátrum
gekk þreyttur til náða eftir heim-
komuna og sofnaði brátt. Dreymdi
hann þá hvað eftir annað um nótt-
ina að hann sæi nakið lík sem væri
undir bjarginu.
Sex dögum eftir slysið gaf svo til
leitar á bjargbrúninni. Bjó Ásgeir
Erlendsson sig þá til leitar við
fjórða mann. Þegar hann var að
hafa sig til fundu hann og kona
hans undarlega lykt í húsinu og
ræddu nokkuð um án þess að finna
ástæðu þess.
Skömmu fyrir rökkur fundu
mennirnir loks lík af afar hraustleg-
um ungum manni í grjóturð eftir að
hafa klöngrast niður í fjöru á þeim
eina stað sem fær þótti án þess að
síga. Hafði Ásgeir verið eins og
teymdur á staðinn og vakti þrái
hans undrun félaganna. Líkið var
kviknakið. Hefur maðurinn afklætt
sig í drukknuninni eins og þekkt er.
Gerðu þeir líkinu til góða, og
færðu það undan sjó upp á syllu í
bjarginu. Klæddu þeir það í föt af
sér og báru að því grjót til varnar
vargfugli. Þá fann Ásgeir glögglega
sömu lykt og hann og kona hans
fundu um morguninn heima á Hval-
látrum.
Ekki þótti fært að ná líkinu úr
bjarginu næstu dagana. Var það
loks jarðsett í Breiðuvík þann 9.
febrúar. Það var sr. Þorsteinn
Kristjánsson í Sauðlauksdal sem
jarðsöng.
Átta árum síðar, 16. febrúar 1943,
fórst séra Þorsteinn í hinu mikla
slysi þegar MS Þormóður fórst í
Faxaflóa með 31 manni.
Það var svo 12.-15. desember
1947 að unnið var björgunarafrekið
við Látrabjarg sem er líklega mesta
hetjudáð sem íslenskur hópur
manna hefur unnið.
Heimildir: Þrautgóðir á raunastund 1.
bindi
Steinar J. Lúðvíksson 1969.
Höfundur býr í Ólafsvík.
sandholt7@gmail.com
andi tónverkum sögunnar sem
ganga undir heitinu „Ave María“.
Jólaguðspjallið er í öðrum kafla
Lúkasarguðspjalls.
Fjallræða Jesú er í fimmta til
sjöunda kafla Matteusarguðspjalls.
Þar finnur þú líka í upphafi ræð-
unnar Sæluboðorðin svokölluðu.
Öll guðspjöllin fjögur segja písl-
arsögu Jesú, söguna af síðustu
dögum hans, handtöku, krossfest-
ingu, dauða og upprisu. Píslar-
sagan byrjar hjá Matteusi í tutt-
ugasta og sjötta kafla, hjá Markúsi
í fjórtánda, Lúkasi í tuttugasta og
öðrum og Jóhannes segir sömu
sögu í þrettánda kafla og frá og
með þeim átjánda.
Ekki má gleyma Faðirvorinu í
sjötta kafla Matteusarguðspjalls.
Textinn um Trú, Von og Kærleika
er skrifaður í Fyrra Korintubréfi,
þrettánda kafla. Í fimmtánda kafla
Fyrra Korintubréfs eru frábærar
vangaveltur um lífið, dauðann og
það sem bíður okkar eftir dauðann.
Lærisveinarnir tólf heita Pétur,
Jakob, Jóhannes, Andrés, Filipus,
Barþólomeus, Matteus, Tómas,
Jakob, Taddeus, Símon Kananæos,
Júdas Ískaríot – og auk þeirra eru
María Magdalena, Jóhanna og
Súsanna nefndar til sögunnar. Op-
inberunarbókin geymir fjölmörg
tákn sem notuð hafa verið aftur og
aftur í bókmenntum og listum ald-
anna. Þar er tala dýrsins, 666, fjór-
ir riddarar heimsendis og þúsund
ára ríkið. Mikael erkiengill drepur
drekann í tólfta kaflanum – og
frummynd íslenska skjaldarmerk-
isins er skráð í fjórða kafla Op-
inberunarbókarinnar … Og að lok-
um má ekki gleyma algildum
siðaboðum Gullnu reglunnar í sjö-
unda kafla Matteusarguðspjalls og
Tvöfalda kærleiksboðorðinu í tí-
unda kafla Lúkasar. Gangi þér vel
með lesturinn. Og góða skemmtun!
Höfundur er prestur.
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Ráðleggingar um
mataræði koma frá
Embætti landlæknis.
Þær byggjast á sam-
antekt sérfræðinga
frá Norðurlöndunum
sem fara reglulega
yfir nýjustu rann-
sóknir á þessu sviði1).
Tilgangur ráðlegging-
anna er í megin-
atriðum að skilgreina
það fæði sem veitir
öll lífsnauðsynleg næringarefni og
minnkar líkur á sjúkdómum á borð
við sykursýki af tegund 2, hjarta-
og æðasjúkdóma og krabbamein
miðað við bestu vísindalegu þekk-
ingu. Þó má hafa í huga að ein-
staklingar sem lifa mjög heilsu-
samlegu lífi geta einnig fengið
umrædda sjúkdóma.
Heildræn nálgun
Í dag er lögð áhersla á matar-
æðið í heild og gæði matarins í
stað þess að einblína of mikið á
einstakar fæðutegundir.
Mælt er með því að borða:
Ávexti og grænmeti daglega eða
um 500 grömm. Til að ná þessu
magni þyrfti að hafa alltaf ávöxt
og/eða grænmeti með í hverri mál-
tíð og borða einnig á milli mála.
Heilkornavörur minnst tvisvar á
dag. Dæmi um heilkornavörur eru
heilhveiti, rúgur, bygg, hafrar, ma-
ís, hirsi, heilmalað spelt og hýðis-
hrísgrjón.
Fisk og sjávarfang tvisvar til
þrisvar í viku. Mikilvægt er að
muna eftir að borða líka feitan fisk
alla vega einu sinni í viku svo sem
lax, bleikju, lúðu, síld eða makríl.
Fituminni mjólkurvörur sem eru
án viðbætts sykurs. Dæmi um
slíkar vörur eru brauðostur, létt-
mjólk, AB-mjólk, hreint skyr og
jógúrt.
Belgjurtir og hnetur.
Jurtaolíur og viðbit úr jurta-
olíum í staðinn fyrir smjörlíki og
smjör.
Mælt er með því að taka D-
vítamín daglega (lýsi, perlur, töfl-
ur).
Mælt er með því að takmarka:
Unnar kjötvörur. Hér er átt við
kjöt sem er reykt,
saltað og/eða rotvarið
með nítrati eða nítríti.
Sem dæmi má nefna
saltkjöt, spægipylsu,
pepperóní, beikon,
pylsur, bjúgu, kjöt-
fars, hangikjöt og
skinku.
Rautt kjöt. Hér er
átt við til dæmis
nautakjöt, lambakjöt
og svínakjöt.
Matvæli og drykki
sem innihalda mikinn
viðbættan sykur eins
og kökur, kex, sælgæti og sykraða
gosdrykki.
Salt í matargerð og matvæli
sem innihalda mikið af salti.
Nýjustu rannsóknir
Nýleg rannsókn frá Harvard,
þar sem fylgst var með þátttak-
endum í 24-30 ár, sýndi að með því
að borða mjúka fitu (finnst í jurta-
olíum, feitum fiski, hnetum og
fræjum) í staðinn fyrir harða fitu
(finnst í smjöri, rjóma, feitum osti
og feitu kjöti) og heilkornavörur í
staðinn fyrir fínunnin kolvetni
(korntegundir með lítið af trefjum)
og viðbættan sykur minnkuðu lík-
ur á kransæðasjúkdómum2).
Í samantekt bandarísku hjarta-
samtakanna (AHA) á lífsstíls-
þáttum til varnar hjarta- og æða-
sjúkdómum sem kom út á þessu
ári3) kemur fram að til að minnka
líkur á hjarta- og æðasjúkdómum
er æskilegt að hugað sé að eftir-
farandi þáttum:
Fara eftir ráðleggingunum um
mataræði (sambærilegar þeim sem
koma frá Embætti landlæknis).
Reykja ekki.
Hreyfa sig reglulega.
Í lokin er líka mikilvægt að
muna að þó að farið sé eftir ráð-
leggingunum frá Embætti land-
læknis er auðvitað í lagi að gera
sér dagamun af og til en mik-
ilvægt er samt að halda stærstum
hluta mataræðisins í samræmi við
ráðleggingarnar.
Heimildir:
1) Nordic Nutrition Recommendations
2012 – Integrating nutrition and physical
activity. 2014, Nordic Council of Min-
isters.
2) Li, Y., et al., Saturated Fats Compared
With Unsaturated Fats and Sources of
Carbohydrates in Relation to Risk of
Coronary Heart Disease: A Prospective
Cohort Study. J Am Coll Cardiol, 2015.
66(14): p. 1538-1548.
3) Benjamin, E.J., et al., Heart Disease
and Stroke Statistics-2017 Update: A Re-
port From the American Heart Associa-
tion. Circulation, 2017. 135(10): p. e146-
e603.
Eftir Jóhönnu E.
Torfadóttur » Tilgangur ráðlegg-
inganna er í meg-
inatriðum að skilgreina
það fæði sem veitir öll
lífsnauðsynleg næring-
arefni og minnkar líkur
á sjúkdómum.
Jóhanna E.
Torfadóttir
Höfundur er næringar- og lýðheilsu-
fræðingur hjá Miðstöð í lýðheilsu-
vísindum við Háskóla Íslands.
Hjartvænt mataræði
Matur
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
STARFSFÓLK
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Handafl er traust og fagleg
starfsmannaveita með margra
ára reynslu á markaði þar sem við
þjónustum stór jafnt sem smá fyrirtæki.
Aðalmarkmið okkar er að spara
viðskiptavinum tíma, fyrirhöfn og
fjármuni með því að auðvelda þeim
leit að hæfu og ábyrgu starfsfólki.
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.