Morgunblaðið - 09.11.2017, Síða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
✝ Elsa Borgfæddist á
Borgum á Skógar-
strönd á Snæfells-
nesi 10. september
1934. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Hömrum í
Mosfellsbæ 2. nóv-
ember 2017.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Jósep Einarsson,
f. 1903, d. 1983, og Guðbjörg
Eysteinsdóttir húsfreyja frá
Snóksdal í Miðdölum, f. 1903,
d. 1955. Bræður Elsu voru
Einar, f. 1930, d. 1999, og Ey-
steinn, f. 1939, d. 2016.
Þann 16. október 1955 gift-
ist hún eiginmanni sínum,
Guðjóni Þorsteinssyni frá Efri-
Hreppi í Skorradal í Borg-
arfirði, hann lést 6. febrúar
2012. Guðjón var sonur
hjónanna Þorsteins Jónssonar
frá Neðri-Hreppi og Guðrúnar
Jóhönnu Guðmundsdóttur frá
Melshúsum í Leiru. Börn Elsu
og Guðjóns eru: 1) Guðbjörn
Jósep, f. 9. júlí 1955, hann var
kvæntur Kristínu Emmu Finn-
bogadóttur og eiga þau þrjú
börn: a) Guðjón Eðvarð sem er
í sambúð með Margrét Helga-
rós Erlu Benediktsdóttur og
d) Signýju Borg. Fyrir á Jón
soninn Arnar Óla sem er gift-
ur Auði Kapitola Moritz og á
hann fjögur börn. 4) Kolbrún,
f. 26. september 1969, gift
Finni Ingimarssyni og eiga
þau þrjú börn: a) Sigmar Jós-
ep, b) Katrínu Rós og c) Ingi-
björgu Sólveigu.
Elsa Borg fæddist og ólst
upp á Borgum á Skógarströnd
en flutti með foreldrum sínum
og systkinum til Keflavíkur
árið 1950 þegar foreldrar
hennar hættu búskap.
Elsa Borg stundaði nám við
Hússtjórnarskólann á Löngu-
mýri í Skagafirði veturinn
1953-1954.
Elsa Borg og Guðjón hófu
sinn búskap í Keflavík en
fluttu í Kópavoginn árið 1966
og bjuggu þar alla tíð síðan,
lengst af í Furugrund 14. Þau
fluttu síðan að Funalind 1 í
Kópavogi. Elsa Borg bjó síð-
ustu árin á Hjúkrunarheim-
ilinu Hömrum í Mosfellsbæ.
Elsa Borg var lengst af
húsmóðir og þegar börnin
fóru að vaxa úr grasi vann
hún við hin ýmsu störf.
Elsa Borg og Guðjón stund-
uðu hestamennsku í mörg ár
og voru þau félagar í Hesta-
mannafélaginu Gusti í Kópa-
vogi.
Útför Elsu Borgar fer fram
frá Digraneskirkju í dag, 9.
nóvember 2017, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
dóttir og á hann
eina dóttur úr
fyrra sambandi,
b) Finnborgu
Elsu, gift Bene-
dikt Elvari Jóns-
syni og eiga þau
fjögur börn, c)
Heimi Loga, gift-
ur Guðbjörgu
Söndru Óðins-
dóttur og eiga
þau þrjár dætur.
Guðbjörn Jósep eignaðist síð-
an tvö börn með Rannveigu
Harðardóttur, þau heita Sóley
Huldrún og Jósep Friðrik,
hann á einn son. 2) Þorsteinn
Rúnar, f. 17. ágúst 1960. Á
hann fjögur börn: a) Ámunda
Sigurð, í sambúð með Tinnu
Margréti Valgarðsdóttur,
eiga þau tvö börn, b) Val-
gerði, gift Sigurði Magnúsi
Árnasyni og eiga þau þrjú
börn, c) Guðjón og síðan d)
Ágúst Snæ sem er í sambúð
með Hrafnhildi Lind Þor-
valdsdóttur og eiga þau einn
son. 3) Sigrún Borg, f. 6.
febrúar 1964, gift Jóni Krist-
jánssyni og eiga þau fjögur
börn: a) Hilmar Má, látinn
2005, b) Elsu Borg, c) Ester
Ýri Borg, í sambúð með Ást-
Elsku mamma mín, það er
sárt að sakna en minningarnar
ylja mér um hjartarætur. Þú
varst kletturinn minn og gat ég
alltaf leitað til þín.
Þú studdir mig í öllu sem ég
tók mér fyrir hendur og hvattir
mig alltaf til þess að láta
drauma mína rætast. Þú varst
ávallt tilbúin til að aðstoða mig
ef svo bar undir.
Minningarnar streyma fram,
samverustundirnar, faðmlögin,
ferðalögin, jógastundirnar í
stofunni heima þegar þú leyfðir
mér sem smástelpu að gera æf-
ingarnar með þér, það voru
góðar stundir.
Árin eftir að pabbi féll frá
voru þér þungbær enda voruð
þið samrýmd hjón. Svo kom að
því að heilsan fór versnandi og
þú fluttir á Hjúkrunarheimilið
Hamra í Mosfellsbæ.
Ég var svo lánsöm að búa
nálægt þér og áttum við marg-
ar góðar stundir saman sem ég
mun aldrei gleyma.
Ég er svo þakklát fyrir að
hafa fengið að vera hjá þér við
leiðarlokin og þó sársaukinn sé
mikill þá veit ég að pabbi og
ástvinir þínir hafa tekið vel á
móti þér.
Þú ert eflaust farin í hesta-
ferð með pabba og búin að
skella þér í dansskóna.
Elsku mamma mín, takk fyr-
ir allt og ég sendi þér stóran
fingurkoss þangað til við
sjáumst næst.
Þín dóttir,
Kolbrún (Kolla).
Hún amma Elsa var einstök
manneskja.
Hún var svo ótrúlega góð-
hjörtuð, hugulsöm, elskandi og
þolinmóð og setti fjölskylduna
alltaf í fyrsta sæti.
Ég á margar góðar minn-
ingar frá tímum okkar saman,
og þegar ég hugsa til hennar sé
ég hana fyrir mér að sauma eða
baka og svo á hestbaki með afa.
Það var alltaf svo gaman að
koma til ömmu og afa, maður
mátti alltaf búast við því að
vera dekraður.
Þegar mér leið illa komu þau
og hresstu mig við með nokkr-
um bröndurum, leikjum og
fleiru.
Ég held að ég eigi ekki eftir
að gleyma öllum ferðunum upp
í hesthús og við krakkarnir
reyndum að laumast og fá okk-
ur kex úr kattarkrukkunni
þeirra en það komst upp um
okkur í hvert skipti, gat ekki
verið að krukkan mjálmaði?
Amma og afi hlógu alltaf jafn
mikið að því. Það er erfitt að
gleyma því hversu einstakar
manneskjur hún og afi voru,
enda ætla ég mér ekki að gera
það.
Ég mun alltaf elska þig og
ég sakna þín, en ég veit að þú
ert komin á betri stað og ég
vona og trúi því að afi Guðjón
og Hilmar
Már hafi tekið á móti þér
með opinn faðminn og þið hafið
farið beina leið í einn útreiðar-
túr og ball um kvöldið.
Hvíldu í friði, elsku amma
mín.
Sólin þín,
Ingibjörg Sólveig.
Elsa Borg
Jósepsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma mín.
Þú hefur lifað löngu og
spennandi lífi og núna ertu
á betri stað, langt í burtu, á
himnum.
Þú varst alltaf til staðar
fyrir mig og ég mun aldrei
gleyma þér, aldrei!
Þú munt alltaf vera til
staðar í hjarta mínu, þegar
ég þarfnast þín.
Kveðja,
þín ömmustelpa,
Signý Borg.
Haustið er fallegt
með alla sína liti.
Fegurð er af-
stætt hugtak. Sagt er um fólk að
það sé fallegt utan sem innan,
allavega var Jenna falleg og inn-
rætið gott.
Þegar hún kom með börnin sín
tvö, Láka og Jónu, til að hefja bú-
skap með Óla bróður mínum í
gamla góða Hraundalnum og ég
var enn heima unglingur um jólin
var ég búin að kaupa margar
Jenney
Þorláksdóttir
✝ Jenney Þor-láksdóttir
fæddist 25. desem-
ber 1933. Hún and-
aðist 17. október
2017.
Jenney var jarð-
sungin 31. október
2017.
gjafir fyrir skyld-
fólkið en fékk enga
jólagjöf.
Hún hugsaði sig
um andartak, fór í
Borgarnes með ná-
grannanum og
keypti gjöf fyrir
mig, lítinn sauma-
kassa, sem ég á enn.
Jenna var svo
dugleg, vann eins og
veifa, „þar til öll
verk eru búin“, sagði móðir mín.
Mér fannst hún beina sneið að
mér því ég var svolítið að hlaupa
úr einu í annað.
Okkur öllum í fjölskyldunni
þótti vænt um Jennu.
Ég þakka samfylgdina og
votta fjölskyldu hennar innilega
samúð.
Elín Margrét Tryggvadóttir.
Elsku Daddi,
vinur, frændi, mág-
ur, sameigandi. Já,
upptalningin er
löng því tengslin eru margvís-
leg.
Það er svo margs að minnast
nú þegar komið er að kveðju-
stund því leiðir okkar lágu sam-
an á svo mörgum sviðum. Ver-
andi systkinabörn (Daddi og
Gerður) og að alast upp í sama
húsi fram yfir fermingu tengdi
okkur nú líklega sterkari bönd-
um en gerist og gengur. Síðar
höguðu örlögin því þannig að við
frændsystkinin úr Ásgarði
(Daddi og Gerður) giftumst
systkinunum úr Grímsey (Birnu
og Willa) og þegar börnin okkar
komu í heiminn var því skyld-
leikinn mikill og tengslin líka
þar sem samgangur var mikill
milli fjölskyldnanna og tengslin
sterk.
Eftir að hafa verið skipstjórar
og stýrimenn hjá öðrum fannst
okkur tími til kominn að fara að
sprikla sjálfir í útgerð og stofn-
uðum því Fiskanes hf. ásamt fé-
lögum okkar, Venna mági okkar
Birnu, Stjána, Ingu systur okk-
ar Birnu og Rósu.
Við vorum nokkuð stórhuga
og keyptum bát, sem við gáfum
nafn í höfuðið á útdauðum fugli,
Geirfugl. Fyrstu árin vorum við
allir á sjó og þú gekkst í margar
stöður um borð, stýrimaður,
skipstjóri, annar vélstjóri ásamt
því að vera forstjóri fyrirtæk-
isins með skrifstofuna heima hjá
þér og bókhaldið í stórum
pappakassa. Þetta var erfiður
róður í byrjun og við höfðum
ekki mikið milli handanna og til-
Dagbjartur Garðar
Einarsson
✝ DagbjarturGarðar Ein-
arsson fæddist 26.
júní 1936. Hann lést
18. október 2017.
Útför Dagbjarts
fór fram 30. októ-
ber 2017.
kynntum eiginkon-
unum að næstu árin
yrði vinnan og fyr-
irtækið númer eitt
og tvö og þær yrðu
að sætta sig við að
vera númer þrjú,
enda heimilin öll
veðsett í topp.
Seinna þegar þú
varst kominn í land
vílaðir þú ekki fyrir
þér að skella þér
aftur á sjóinn til að taka að þér
að vera skipstjóri á öðrum ver-
tíðabátum sem við leigðum
ásamt því að sinna forstjóra-
starfinu.
Það er eftirminnilegur tími
þegar við vorum að byggja á
sama tíma og búin að selja ofan
af okkur húsin og fluttum með
fjölskyldurnar í verbúðina sem
við vorum nýbúin að reisa í
Fiskanesi og bjuggum þar sam-
an heilan vetur.
Þessi vetur var skemmtileg-
ur, ýmsar uppákomur og óend-
anlega dýrmæt samvera sem
styrkti vináttu og fjölskyldu-
böndin enn frekar.
Þú gast verið fastur fyrir og
hentaði þér ekki að breytingarn-
ar gerðust of hratt, eins og þeg-
ar við vorum að laga sumarbú-
staðinn sem við áttum saman við
Þingvallavatn og þú vildir ekki
fá klósett heldur halda í gamla
kamarinn. Það er skemmst frá
að segja að þú tapaðir þeirri
baráttu.
Elsku vinur, við gætum fyllt
heila bók af skemmtilegum
minningum sem við geymum í
huga okkar.
Lífið var fjörugt og skemmti-
legt með þér og þú settir sann-
arlega lit á umhverfið. Við erum
óendanlega þakklát fyrir allar
góðu samverustundirnar og
minningarnar. Hvíldu í friði.
Elsku Birna, börn og fjöl-
skyldur, hugur okkar er hjá
ykkur.
Gerður og Willard.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morg-
unblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda
inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést
og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einn-
ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar
Allar minningar á einum stað.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
R
48
70
7
01
/1
0
–– Meira fyrir lesendur
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar
Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá
árinu 2000 og til dagsins í dag.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BERGUR JÓNSSON
rennismiður,
Aflagranda 40,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
mánudaginn 30. október.
Útförin fer fram í Neskirkju föstudaginn 24. nóvember
klukkan 13.
Jón Bergsson Guðrún Sederholm
Björn Bergsson
Kristjana Bergsdóttir Atli Árnason
Elín Bergsdóttir Sveinbjörn Jónsson
Arndís Bergsdóttir Björn Þorláksson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
EGGERT ÞORFINNSSON
skipstjóri,
Kirkjusandi 1,
lést af slysförum mánudaginn 6. nóvember.
Kristín Ólafsdóttir
Þorfinnur P. Eggertsson Sara Halldórsdóttir
Sigurður J. Eggertsson Friðrika K. Stefánsdóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og bróðir,
ERLINGUR RAGNARSSON
vélstjóri,
Grímsstöðum við Mývatn,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 2. nóvember.
Útför fer fram í Reykjahlíðarkirkju laugardaginn 11. nóvember
klukkan 12.
Guðrún Ösp Erlingsdóttir Theodór Páll Theodórsson
Þórunn Birna Ragnarsdóttir
Sigríður Lilja Ragnarsdóttir