Morgunblaðið - 09.11.2017, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR
Keðjurnar eru til í mörgum gerðum og í öllum
mögulegum stærðum á vinnuvélar, vöru- og
flutningabifreiðar, dráttarvélar og lyftara
FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR
Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar
Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur
Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur
M
arta Bíbí Guðmunds-
dóttir fæddist á Ísa-
firði 9.11. 2017 og
ólst þar upp. Hún
lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar
1948.
Marta Bíbí vann á Símstöðinni á
Ísafirði 1948-58, Langlínumiðstöð-
inni og skrifstofu Bæjarsímans í
Reykjavík 1958-65, á Stokkseyri
1965-77 og var stöðvarstjóri þar frá
1967, var stöðvarstjóri í Mosfellsbæ
á árunum 1977-92 og loks í Hafnar-
firði 1992-97.
Marta Bíbí æfði og keppti á skíð-
um frá því á unglingsárunum og varð
ein fræknasta skíðakona landsins á
sínum tíma. Hún keppti fyrir Ísa-
fjörð á skíðum í alpagreinum1952-58
og fyrir KR á árunum 1959-66 og
varð margfaldur Reykjavíkur- og Ís-
landsmeistari. Hún sat í stjórn
Marta Bíbí Guðmundsdóttir, fyrrv. símstöðvarstjóri – 85 ára
Morgunblaðið/Eggert
Afmælisbarnið Marta Bíbí Guðmundsdóttir heima í stofu á glæsilegu heimili sínu og alltaf flott í tauinu.
Afrekskona á skíðum
sá um símasambandið
Skíðakonur 1960 Jakobína Jakobsdóttir, Marta Bíbí Guðmundsdóttir og
Karólína Guðmundsdóttir, helstu skíðakempur kvenna á þeim árum.
Þórunn Snorradóttir,útibússtjóri Sjóvárá Ísafirði, er fimm-
tug í dag. Hún er nýtekin
við starfi útibússtjóra en
hefur starfað hjá Sjóvá síð-
an árið 2000 og bjó í Hafn-
arfirði áður en hún flutti
vestur í vor.
„Ég er Skagfirðingur en
flutti til Ísafjarðar nítján
ára gömul og bjó hér í tæp
nítján ár og flutti svo suð-
ur og bjó í tólf ár. Bestu
árin mín eru hérna; ég
gifti mig og átti börnin
mín hér og er komin með
heilmiklar rætur hérna.
Það er gott að vera komin
hingað, í faðm fjalla
blárra. Svo á lognið lög-
heimili hérna.“
Fjórir vinna í útibúi Sjó-
vár, sem er svæðisútbú. „Sjóvá er með umboðsmann á Patreksfirði og
annan á Hólmavík þannig að við sinnum öllum Vestfjörðum.“
Eiginmaður Þórunnar er Jón Ágúst Björnsson, vélstjóri í Noregi.
„Hann vinnur fimm vikur í Noregi og er fimm vikur hér heima, þann-
ig að þetta er smápúsl.“ Börnin þeirra, Ingibjörg Kristín sundkona 23
ára og Björn Ágúst 21 árs, búa síðan í Hafnarfirði.
Þórunn býr sem stendur í sumarbústaðnum sínum fyrir vestan.
„Það er erfitt að finna húsnæði hérna en vonandi stendur þetta til
bóta, ég keypti bústaðinn fyrir tveimur árum, löngu áður en ég vissi
af því að ég væri að koma að vinna hérna. Mig langaði að eiga aðkomu
hér en ég hef aldrei misst tengslin við Ísafjörð.“
Þórunn er söngkona og hefur sungið á böllum í 30 ár. „Núna er ég
að syngja í dúettinum Þórunn og Halli en áður var ég í stórsveitinni
Dolby. Ég syng í brúðkaupum og á skemmtunum og þorrablótin eru
síðan aðaltíminn. Um síðustu helgi var ég að syngja á systrakvöldi hjá
frímúrurum og um næstu helgi syng ég í brúðkaupi í bænum. Svo
syng ég alltaf á hinu fræga Ögurballi sem er haldið næstsíðustu
helgina í júlí, ég hef sungið á því balli í tæp 20 ár og er æviráðin þar.“
Auk söngsins hefur Þórunn mikinn áhuga á íþróttum. „Ég var að
byrja í golfi og finnst það ansi skemmtilegt og ég er íþróttafrík, fer á
alla leiki sem ég kemst á með Haukum í körfuboltanum og fylgist líka
vel með þeim í handbolta. Á kvöldin dunda ég mér í fjarnámi í við-
skiptalögfræði á Bifröst, en ég á nokkrar mínútur eftir fyrir það.
Í dag ætlar dóttir mín að fara með mig í óvissuferð, en hún segist
ætla að fara með mig á Hrafnistu. Ég verð því ekki með afmælisveislu
núna en ætla að halda stórt partí seinna og það verður tónlistarpartí.“
Útibússtjórinn Þórunn Snorradóttir.
Í faðmi fjalla blárra
Þórunn Snorradóttir er fimmtug í dag
Auður Björg Ármannsdóttir og Hildur Inga Hákonardóttir, 8 ára gamlar, héldu
tombólu fyrir utan Hlíðarkjör í Stigahlíð. Þar söfnuðu þær 3.742 kr. sem þær
færðu Rauða krossinum að gjöf.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í afmælisgrein um Þórð Þór-
arinsson, framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, sem
birtist í Morgunblaðinu í
gær, féll út síðasta setningin:
Síðari kona Þórarins og
stjúpmóðir Þórðar er Rósa
Jónsdóttir, f. 12.7. 1943, hús-
freyja og fyrrverandi leik-
skólastarfsmaður í Reykja-
vík.
ÁRÉTTING
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frámerkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
stórafmælum, hjónavígslum, barns-
fæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón