Morgunblaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Úr frændgarði Mörtu Bíbíar Guðmundsdóttur
Marta Bíbí
Guðmundsdóttir
Ingibjörg Hermannsdóttir
húsfr. á Atlastöðum
Brynjólfs Þorsteinsson
b. á Atlastöðum
Þórunn Jóhanna
Brynjólfsdóttir
húsfr. á Sléttu
Jónas Dósóþeusson
hreppstj. á Sléttu í Sléttuhreppi
Sigurjóna Guðmundína
Jónasdóttir
Margrét Sturludóttir
húsfr. í Görðum
Dósóþeus Hermannsson
b. í Görðum í Sléttuhreppi
Rannveig
Guð-
mundsdóttir
fyrrv.
alþingis-
maður og
ráðherra
Sigur-
jóna
Sverris-
dóttir
leik-
kona
og MBA
Ingibjörg
Sakaríasd.
húsfr. á
Atlastöðum
Guðni
Kjartanss.
b. í Hælavík
Stefanía
Guðnad.
húsfr. í
Hælavík
og á
Hesteyri
Þorvaldína
Jónasdóttir húsfr.
á Ísafirði
Brynhildur Jónasdóttir
ljósmóðir á Ísafirði og
við Landspítalann
Brynjólfur Sigurðsson
prófessor emeritus við HÍ
og forstj. Happdrættis HÍ
Sigurfljóð
Sakaríasd.
húsfr. á
Sæbóli
Árni
Jónss.
skipstj.
á Ísafirði
Ásta
Árnad.
húsfr.
í Rvík.
Árni
Gunnarss.
fram-
kvæmdastj.
og alþm.
Þórlaug
Ragnarsd.
kjóla-
meistari í
Kópavogi
Gissur Páll
Gissurarson
óperusöngvari
Helga
Friðriksdóttir
húsfr. í
Stakkadal
Sakarías Sakaríasson
b. í Stakkadal
Sigríður Helga
Sakaríasdóttir
húsfr. í Stakkadal
Guðmundur
Guðmundsson
b. í Stakkadal í
Aðalvík
Guðmundur Kr. Guðmundsson
skipstj. á Ísafirði
Karólína
Ólafsdóttir
húsfr. á
Atlastöðum og
á Látrum
Guðmundur Þeófílusson
b. á Atlastöðum og
Látrum í Aðalvík
Stefán H.
Aðalsteinss.
skrifstofum.
í Rvík.
Hinrik
Stefánsson
Aníta Hinriksd.
heimsmeistari
og Evrópumeist-
ari í hlaupum
Ragnar
Aðalsteinss.
kaupm. og
athafnam. í
Rvík.
Aðalsteinn
Guðmundss.
trésm. í Rvík
Helgi
Guðmundsson
sjómaður
Anna María Helgad.
bæjarfulltr. á Ísafirði
Helgi Már Arthúrss.
fréttamaður
Fríða
Sigurðard.
rithöf.
Jakobína
Sigurðard.
skáld og
rithöf.
Kristján
Sigurðss.
yfirlæknir
í Keflav.
Elsa Haraldsdóttir
hárgreiðslukona,
eigandi Salon VEH
Skíðadeildar KR 1978-79. Marta
Bíbí var formaður deildar stöðvar-
stjóra 1979-89, ritari Félags ís-
lenskra símamanna og sat í samn-
inganefnd FÍS 1979-89. Hún hefur
verið félagi í Zontaklúbbi Reykjavík-
ur og gegndi oft trúnaðarstörfum
fyrir klúbbinn.
Fjölskylda
Marta Bíbí giftist 31.12. 1961 Er-
lingi Magnússyni, þau skildu.
Marta Bíbí giftist 27.12. 1969 Geir
Jónassyni, f. 14.6. 1940, d. 18.1. 1970,
skipstjóra á Stokkseyri. Foreldrar
hans voru Jónas Larsson, verslunar-
maður á Stokkseyri, og Aðalbjörg
Jónsdóttir.
Marta Bíbí var í sambúð frá 1986
með Þorvarði Guðjónssyni, f. 28.1.
1929, d. 24.1. 2011, framkvæmda-
stjóra. Þau giftust 31.1. 2001. For-
eldrar hans voru Guðjón Guðjónsson
og Sveinfríður Sigurðardóttir,
bændur á Hesti í Önundarfirði.
Dætur Mörtu Bíbíar: Hjördís Er-
lingsdóttir, f. 24.10. 1959, sölustjóri í
Reykjavík en dóttir hennar er Andr-
ea, f. 1989; Jóhanna Erlingsdóttir, f.
14.12. 1962, verkefnastjóri í Svíþjóð
en maður hennar er Sigurður
Hjálmarsson og eiga þau synina
Tómas, f. 1987, Hjálmar, f. 1988, og
Martein, 1990; Geirný Ósk Geirs-
dóttir, f. 26.8. 1970, flugvallarstarfs-
maður, búsett í Osló en maður henn-
ar er Erik Stöhle en dóttir Geirnýjar
er Friðrikka, f. 1994.
Systkini Mörtu Bíbíar eru Guðrún
Sigríður Sæmundsen, f. 1.8. 1926,
fyrrv. skólaritari í Reykjavík; Mar-
grét Valgerður Guðmundsdóttir, f.
8.2. 1928, d. 18.6. 2004, fyrrv. banka-
fulltrúi í Kópavogi; Hulda Rósa Guð-
mundsdóttir, f. 12.2. 1930, d. 9.5.
1996, verslunarmaður á Ísafirði;
Jónas Þór Guðmundsson, f. 6.11.
1934, d. 5.7. 2003, stýrimaður og síð-
ar sendibílstjóri í Reykjavík; Helga
Gunnur Guðmundsdóttir, f. 6.8.
1937, fyrrv. deildarstjóri hjá Lífeyr-
issjóði ríkisins í Reykjavík; Rann-
veig Guðmundsdóttir, f. 15.9. 1940,
fyrrv. alþingismaður og ráðherra,
búestt í Kópavogi; Gunnbjörn Guð-
mundsson, f. 23.2. 1944, prentari í
Reykjavík.
Foreldrar Mörtu Bíbíar voru Guð-
mundur Kristján Guðmundsson, f.
15.8. 1897, d. 4.1. 1961, bóndi í
Stakkadal og síðar skipstjóri á Ísa-
firði, og k.h., Sigurjóna Guðmundína
Jónasdóttir, f. 14.1. 1903, d. 9.9. 1954,
húsfreyja í Stakkadal og á Ísafirði.
Marta Bíbí verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Magnús Ásgeirsson fæddistað Reykjum í Lundar-reykjadal í Borgarfirði
9.11. 1901. Foreldrar hans voru Ás-
geir Sigurðsson, bóndi að Reykjum,
og Ingunn Daníelsdóttir kennari.
Magnús var bróðir dr. Leifs Ás-
geirssonar stærðfræðiprófessors,
Ingimundar, fræðimanns á Hæli í
Flókadal, Björns, bónda á Reykjum
og Sigurðar, bónda þar, föður Inga
sagnfræðiprófessors. Meðal föður-
systra Magnúsar voru Sigurbjörg,
móðir Péturs Ottesen alþingis-
manns, og Oddný, móðir Jóns
Helgasonar, ritstjóra og rithöf-
undar. Magnús var kominn í beinan
karllegg af Jóni Magnússyni sýslu-
manni, bróður Árna handritasafn-
ara. Móðir Ásgeirs, Hildur, var hins
vegar af Efstabæjarætt og frænka
Halldórs Kiljan Laxness.
Magnús var tvíkvæntur, fyrri
kona hans var Anna Ólafsdóttir og
eignuðust þau þrjár dætur, en síðari
kona hans var Anna Guðmunds-
dóttir, dóttir Guðmundar Björns-
sonar, sýslumanns í Borgarnesi, og
Þóru Leopoldínu Júlíusdóttur.
Magnús og Anna Guðmundsdóttir
eignuðust eina dóttur.
Magnús lauk gagnfræðaskóla-
prófi utan skóla árið 1920 og stúd-
entsprófi tveim árum síðar. Hann
innritaðist í norrænudeild Háskól-
ans og stundaði norrænunám um
skeið.
Magnús starfaði lengi við þing-
skriftir og blaðamennsku og var
bókavörður í Hafnarfirði frá 1941 og
til æviloka. Þá var hann ritstjóri
menningartímaritsins Helgafells,
ásamt Tómasi Guðmundssyni á ár-
unum 1942-46.
Magnús sló í rauninni aldrei í
gegn með eigin ljóðum. Hann auðg-
aði hins vegar mjög íslenskar bók-
menntir sem mikilvirkur ljóðaþýð-
andi. Hann er almennt talinn, ásamt
Helga Hálfdanarsyni, afkastamesti
og mikilhæfasti þýðandi bundins
máls á íslensku. Mest þýddi hann
eftir norsk og sænsk skáld, eins og
til dæmis Fröding, en auk þess
þýddi hann ýmis stórvirki úr öðrum
tungumálum. Hann lést 30.7. 1955.
Merkir Íslendingar
Magnús
Ásgeirsson
85 ára
Finnbogi Kr Arndal
Gísli Jóhannesson
Hörður Guðmundsson
Jóhanna G. Frímannsdóttir
Marta B. Guðmundsdóttir
80 ára
Ásgerður Höskuldsdóttir
Karen Irene Guðrún
Jónsdóttir
75 ára
Guðlaug Konráðsdóttir
Guðrún Sigríður
Gunnarsdóttir
Jón Ragnar Óskarsson
Róslín Jóhannesdóttir
Stefán H. Þorsteinsson
70 ára
Adam Ashiq Shamsudin
Arnar Hauksson
Haukur Viðar Guðmundsson
Lilja Friðriksdóttir
Margrét Sigtryggsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
Örn Þórhallsson
60 ára
Auður F. Halldórsdóttir
Ágúst Gunnar Oddgeirsson
Franz Ploder
Guðmundur Birgir
Stefánsson
Herjolvur Edvinsson
Júlíana Gísladóttir
Lilja Sólveig Kristinsdóttir
Lýdía Pálmarsdóttir
Ragnheiður L. Jóhann-
esdóttir
Signý Ólafsdóttir
Sigurður Theodór
Guðmundsson
Sveinbjörn Þórisson
50 ára
Bjarni Sigurgeir Guð-
jónsson
Björg Ragna Erlingsdóttir
Erla Magnúsína
Pálmadóttir
Francois Emile
Theodorus Claes
Guðmundur M. Sigurðsson
Guðný Helga Helgadóttir
Inese Kravale
Kristín Ásta Hafstein
Ólafur Þór Smárason
Ólöf Bryndís Hjartardóttir
Skúli Georgsson
Þórunn Snorradóttir
40 ára
Bergey Edda Eiríksdóttir
Haraldur Örn Sturluson
Magdalena Smáradóttir
Margrét Inga Guðnadóttir
Perla Þrastardóttir
Sigurður Arnar
Jónsson
30 ára
Anna Katrín Sigfúsdóttir
Anna Nicole Grayson
Bjarney Guðmundsdóttir
Blöndal
Elías Sigurðsson
Halla Ruth Halldórsdóttir
Hayder Falih Kareem
Janusz Andrzej
Pacholek
Júlíus Rafn Ármann
Marco Coppeto
Mateusz Gocek
Natalia Switon
Ósk Ingadóttir
Sigríður Margrét
Einarsdóttir
Sigurður Samúel
Sigurðsson
Silja Björg Halldórsdóttir
Særún Ómarsdóttir
Tinna Björk Helgadóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Anna Katrín er
Reykvíkingur, lauk meist-
araprófi frá lagadeild HÍ
og starfar sem lögfr. hjá
Landsbankanum hf.
Maki: Gísli Örn Kjart-
ansson, f. 1983, lögfr. hjá
Fjármálaeftirlitinu.
Barn: Jón Emil Gíslason,
f. 2017.
Foreldrar: Sigfús Jóns-
son, framkvæmdastjóri, f.
1951, og Kristbjörg
Antonsdóttir, f. 1954, hús-
móðir.
Anna Katrín
Sigfúsdóttir
30 ára Sigríður ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BA-prófi í tómstunda- og
félagsmálafræði frá HÍ og
starfar á Tark arkitekta-
stofu.
Maki: Aron Steinn Ás-
bjarnarson, f. 1988, tón-
listarmaður.
Sonur: Jón Kári, f. 2014.
Foreldrar: Ingibjörg Pét-
ursdóttir, f. 1958, iðju-
þjálfi, og Einar Gylfi Jóns-
son, f. 1950, sálfræðingur.
Þau búa í Reykjavík.
Sigríður M.
Einarsdóttir
30 ára Júlíus ólst upp í
Mosfellsbæ, er nú búsett-
ur í Reykjavík, lauk at-
vinnuflugmannsprófi frá
Flugskóla Íslands og er
flugmaður hjá flugfélag-
inu WOW air.
Maki: Tinna Ósk Þór-
arinsdóttir, f. 1983, nemi.
Foreldrar: Júlíus J. Ár-
mann, f. 1947, fyrrv. lög-
reglumaður í Mosfellsbæ,
og Svanhvít Eygló Ingólfs-
dóttir, f. 1954, fyrrv. lög-
reglumaður í Kópavogi.
Júlíus Rafn
Ármann
HÁGÆÐA POTTAR
OG PÖNNUR
Á ALLAR GERÐIR ELDAVÉLA