Morgunblaðið - 09.11.2017, Side 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú færð frábærar hugmyndir í dag um
það hvernig græða má peninga. Nýttu þér það
til þess að átta þig á því hvað þú vilt til til-
breytingar. Margt á eftir að koma þér á óvart.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt bækur séu til margs nytsamlegar
er lífið líka utan blaðsíðna þeirra. Allir spyrja
hvort þú skiljir hvað þeir eiga við. Breytingar
(og átök) verða þér hins vegar til góðs.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það mun færa þér gleði að bæta
heimili þitt. Vertu opin/n fyrir hugmyndum
annarra um það hvernig þú getur aukið lífs-
gæði þín.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er allt fullt af tækifærum í kring-
um þig og segja má að þú hafir ekki við að
notfæra þér þau sem þér hentar. Vel unnið
verk talar sínu máli og þú munt uppskera laun
erfiðis þíns.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur reynst erfitt að losa sig við
gamla siði jafnvel þótt þeir reynist manni dýr-
keyptir. Lítil ferð á nýjan stað er tilvalin, því
þig vantar ævintýri og ögrun.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samstarfsfólk þitt er óvenju hjálplegt
þessa dagana og þú ert líka tilbúin/n til að
hjálpa því. Ef þú heldur að þú sért ekki á rétt-
um stað, skaltu hugsa þig um tvisvar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér lætur betur að láta verkin tala en að
setja á langar orðræður um hlutina. Verslun
og viðskipti, málaleitanir og samningar ganga
vel í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú verðurðu að halda þér til hlés
og ýta frá þér fólki sem tekur frá þér orku.
Hristu af þér slenið, brettu upp ermarnar og
taktu til starfa.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Líflegar samræður við vini og ætt-
ingja eru líklegar til þess að eiga sér stað í
dag. Annaðhvort líkar þér eitthvað eða ekki,
það gildir líka um fólk.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samræður um daginn og veginn
geta gengið úr hófi. Að detta inn og út úr
augnablikinu gerir kvöldið að fjarstæðu-
kenndri upplifun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
tekur ákvörðun sem snertir sameign eða
sameiginlega hagsmuni. Þú ljómar í viðtölum,
kynningum og á fundum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að læra að nýta þér þann eig-
inleika sem fær fólk til þess að opna hjarta
sitt fyrir þér. Stígðu fram sem nýr og betri
maður.
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-16 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Menn og menntir eftir PálEggert Ólafsson eru meðal
þeirra bóka sem ég erfði eftir föð-
ur minn. Það er skemmtilegt rit
og fróðlegt og það má sjá á kili
IV. bindis að það er mest lesið, en
þar er fjallað um skáld á sið-
skiptaöld. Að þessu sinni staldra
ég við Þórð Magnússon í Strjúgi í
Langadal, sem hefur verið einna
nafnkunnastur og vinsælastur
með alþýðu manna af skáldum á
16. öld. Páll Eggert hefur orð á
því að jafnvel Páll lögmaður Víd-
alín hæli kveðskap Þórðar í vísu
einni:
Þórður undan arnarhramm
aldrei hreytti leiri
skaraði ’ann langt úr skáldum fram
sem skírast gull af eiri.
Fjósarímur eftir Þórð eru 67
erindi og mikill fjöldi fornkappa
kemur við sögu. Þessar vísur seg-
ir Páll Eggert að hvert manns-
barn á Íslandi hafi kunnað og
kunni enn:
Karlamagnús keisari dýr
kenndi trúna hreina;
aldrei hann fyrir aftan kýr
orustu háði neina.
Þórðu hreða þegna vo
þessi bjó á Ósi;
breytti aldrei bóndinn svo
að berði menn í fjósi.
Þessi er síðasta vísa Þórðar:
Kær bið ég ráði Kristur því,
kóngurinn öllum meiri,
hvort ég lifi heimi í
hvítasunnur fleiri.
Eftir Odd Einarsson biskup er
þessi staka, sem enn lifir:
Borgarfjörður er besta sveit,
ber hún því langt af öðrum,
hefur svo margan heiðursreit
sem haninn er þaktur fjöðrum.
Séra Ólafur Jónsson á Söndum
þýddi úr þýsku kvæði sem kveðið
var „til skemmtunar við öl-
drykkju“ og mun lengi hafa verið
notað hér á landi. Þar er þetta
undurfallega vers:
Eittt sinn fór ég yfir Rín
á laufblaði einnar lilju;
lítil var ferjan mín.
Alþýðumaðurinn og Snæfelling-
urinn Jón Pétursson orti um gæði
himnaríkis. Þar er þetta viðlag:
Skemman gullinu glæst
glóir hún öll að sjá;
þar leikur jafnan minn hugurinn á.
Bjarni skáldi orti um sig og
Margréti konu sína:
Bjarni skáldi ber um haus
bar sig að fastna Möngu;
elskað hefur sú arma taus
aulann þann fyrir löngu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Góðar vísur frá siðskiptaöld
Í klípu
HUMPTY DUMPTY VAR MEÐ FRÁBÆRAN
KLÆÐSKERA
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LÖGGAN LÉT DRAGA BÍLINN SVO ÉG
KEYPTI BARA NÝJAN“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem bjargar
þér úr rústunum
ÞÚ VIRKAR
MJÖGGRANNUR
ÚTSALA
ÉG RÉÐ SMIÐ TIL AÐ GERA VIÐ BORÐIÐOKKAR.
FYLGSTU MEÐOG REYNDU AÐ LÆRA EITTHVAÐ
ÉG KANN
ÞETTA ORÐ!
AH!
ÞAÐ ER STAÐURINN SEM VIÐ
NOTUÐUM TIL AÐ BIRTA SJÁLFUR
MYNDA-
ALBÚM
MYNDA-
ALBÚM,
HVAÐ ER
ÞAÐ?
HVAÐ ERTU
AÐ SKOÐA,
KÖTTUR?
Í inngangi að Málheimum nefnirAri Páll Kristinsson að Íslend-
ingar búi við „það „þægilega“
ástand að opinber tunga þjóðar-
innar er jafnframt móðurmál níu
tíundu hluta þjóðarinnar“.
x x x
Þessu er öðruvísi farið víða ann-ars staðar – um daginn birtist
á vefsetri BBC frásögn af manni
sem „fann“ 780 tungumál á Ind-
landi, en þau voru vitanlega ekki
„týnd“, nema fyrir þeim sem kunnu
þau ekki. (Til gamans: Þar í landi
notast menn við 65 leturgerðir til
að skrifa efni á þessum tungu-
málum.)
x x x
Tungumál breytast og ný verðatil. Gamalt fólk finnur þeim
breytingum flest til foráttu, enda
var allt betra í gamla daga. Pól-
verjinn Jacek Godek, sem ólst upp
hér á landi, benti til að mynda á
það í viðtali við blaðið fyrir stuttu
að íslenskan eins og hún er töluð í
dag væri allt öðruvísi en sú ís-
lenska sem hann heyrði talaða sem
táningur á Grenimelnum.
x x x
Mállýskumunur í íslensku er þófyrst og fremst, og kannski
bara, hljóðfræðilegur, enda löngum
að því stefnt, leynt og ljóst, að allir
ættu að tala rétt; samskonar ís-
lensku. Í hverri mállýsku eru
menningarverðmæti sem eru þar
með horfin.
x x x
Í heita pottinum í Suðurbæjarlaugvar ungur drengur, á að giska
fimm ára gamall, og lét vaða á súð-
um. Ekki var gott að skilja hvað
hann sagði – enska, nei, kannski
flæmska, eða eitthvert annað tor-
kennilegt mál.
x x x
Þegar faðir drengsins ávarpaðihann síðan á íslensku stóðst
ung kona í pottinum ekki mátið:
Fyrirgefðu, en hvaða mál er hann
að tala? Faðirinn leit vandræða-
legur á hana og svaraði svo: Hann
er að tala jútúb. vikverji@mbl.is
Víkverji
Það er andinn sem lífgar, maðurinn
án hans megnar ekkert. Orðin sem ég
hef talað til yðar, þau eru andi og þau
eru líf.
(Jóh. 6:63)