Morgunblaðið - 09.11.2017, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er stór biti og mjög spenn-
andi verkefni. Ef allt gengur upp
held ég að ég verði fyrsti Íslending-
urinn til að syngja Wotan allan,“
segir Bjarni Thor Kristinsson bassi
sem tekið hefur að sér hlutverk Wot-
ans eða Óðins í Niflungahringnum
eftir Richard Wagner sem settur
verður upp í Kassel í Þýskalandi á
árunum 2018 til 2019. Fyrsta óperan
af fjórum sem mynda hringinn, þ.e.
Rínargullið, verður frumsýnd haust-
ið 2018 og á næstu 18 mánuðum
fylgja hinar þrjár í kjölfarið, þ.e.
Valkyrjan, Siegfried eða Sigurður
Fáfnisbani og Ragnarök.
Óðinn er aðalgimsteinninn
„Ég hef áður sungið hlutverk Óð-
ins í Rínargullinu, sem er léttasti
Óðinn raddlega séð. Hringurinn er í
mínum huga krúnudjásnið í kórónu
Wagner. Persónulega finnst mér
Wotan þar vera aðalgimsteinninn og
það var ástæða þess að ég sagði já
við þessu tilboði, því ég vildi alls ekki
missa af þessu tækifæri,“ segir
Bjarni Thor, en þess má geta að
hlutverk Óðins er skrifað fyrir barí-
tón, en Bjarni Thor er sem kunnugt
er bassi. „Ég er að reyna fyrir mér í
öðru fagi. Hlutverk Óðins er skil-
greint sem hetjubarítón og teygir
sig dálítið upp fyrir hefðbundið
bassa-raddsvið. Þó ég sé bassi ætla
ég að skella mér út í djúpu laugina
með þetta hlutverk,“ segir Bjarni
Thor sem prófaði að syngja sig í
gegnum alla erfiðustu kafla hlut-
verksins með píanista áður en hann
tók tilboðinu.
„Ég vildi vera viss um að ég réði
vel við þetta,“ segir Bjarni Thor sem
æfir nú reglulega með píanista til að
undirbúa sig fyrir átökin sem fram-
undan eru. „Ég mun eyða góðum
tíma í að syngja hlutverkið inn í
röddina. Óðinn syngur í þremur óp-
erum af fjórum í hringnum. Ég verð
því með annan fótinn í Kassel næstu
tvö árin rúmlega,“ segir Bjarni Thor
sem er þaulkunnugur tónsmíðum
Wagner enda hefur hann sungið nær
öll bassahlutverkin í Wagner-
óperum, þeirra á meðal nokkur hlut-
verk í Niflungahringnum.
Nóg að gera á næstunni
„Þó ég bregði mér í hlutverk
hetjubarítónsins Óðins mun ég eftir
sem áður syngja mín bassa-
hlutverk,“ segir Bjarni Thor sem
staddur var í Napólí þegar blaða-
maður náði tali af honum. Þar var
hann staddur til að syngja hlutverk
Osmin í Brottnáminu úr kvenna-
búrinu eftir W.A. Mozart hjá Teatro
di San Carlo. „Þetta er rómuð upp-
færsla leikstjórans Giorgio Strehler
sem ferðast hefur um heiminn frá
því hún var frumsýnd fyrir um hálfri
öld. Þetta er tímalaus uppfærsla
sem er mjög vinsæl, enda viðtökur
ávallt góðar. Ég hef verið svo gæfu-
samur að syngja Osmin í þessari
uppfærslu í fjórum óperuhúsum víðs
vegar um Evrópu,“ segir Bjarni
Thor og bendir á að það sé svolítið
eins og að hitta gamlan vin að koma
aftur að Osmin og fara í búninginn,
sem ásamt leikmyndinni er geymdur
í gámi milli uppfærslna.
„Þegar ég var að byrja að syngja
var það draumur minn að fá að
syngja hlutverk styttunnar í Don
Giovanni. Ég var sannfærður um að
það yrði toppurinn á tilverunni. Síð-
an hef ég komist að því að það eru
mörg önnur bassahlutverk í tónbók-
menntunum sem eru mun skemmti-
legri og meira gefandi. Engu að síð-
ur er lokasenan einn af hápunkt-
unum í óperum Mozart þar sem
styttan sækir Don Giovanni og fer
með hann til helvítis.“
Að sögn Bjarna Thors er nóg að
gera hjá honum á næstunni. Frá
Napólí heldur hann til Kölnar þar
sem hann syngur hlutverk fangels-
isstjórans Franks í Leðurblökunni
eftir Johann Strauß. „Á næsta ári
bíður mín hlutverk styttunnar í Don
Giovanni annars vegar í Köln og hins
vegar í Peking auk hlutverks Baron
Ochs í Rósariddaranum eftir Rich-
ard Strauss í Düsseldorf svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Sönglögin veita innsýn í
íslenska þjóðarsál
Vegna anna sér Bjarni Thor sér
ekki lengur fært að halda úti tón-
leikaröðinni Perlur íslenskra söng-
laga sem hann hefur staðið fyrir frá
opnun tónlistarhússins Hörpu vorið
2011. „Fyrst var tónleikaröðin bara
á sumrin, en vatt upp á sig þar sem
við bættum við áramótatónleikum
og síðan dagskrá bæði á vorin og
haustin,“ segir Bjarni Thor og áætl-
ar að haldnir hafi verið 400 til 500
tónleikar á síðustu sex árum.
„Frá fyrsta degi hafa viðtökur
verið mjög góðar. Þetta hefur verið
góður tími og ánægjulegt hversu vel
þetta hefur gengið,“ segir Bjarni
Thor og bendir á að tónleikaröðin
hafi fyrst og fremst verið ætluð er-
lendu ferðafólki. „Markmiðið með
röðinni var að kynna íslenska söng-
tónlist fyrir ferðafólki og opna þenn-
an heim fyrir því,“ segir Bjarni Thor
og bendir á að tónleikagestir setji
sig reglulega í samband við sig til að
fá upplýsingar um hvar hægt sé að
nálgast upptökur og nótur af þeim
lögum sem flutt eru á tónleikunum.
„Það hefur verið mjög gaman að
verða vitni að því hversu hrifnir er-
lendir gestir eru af íslensku sönglög-
unum. Tónlist hverrar þjóðar er
hluti af þjóðarkarakternum. Með því
að mæta á tónleika er þannig hægt
að fá ákveðna innsýn í íslenska þjóð-
arsál,“ segir Bjarni Thor og tekur
fram að sér hafi líka þótt ánægjulegt
að geta veitt stórum hópi söngvara
og tónlistarfólks tækifæri til að
koma fram, en hann áætlar að á
bilinu 40 til 50 söngvarar og hljóð-
færaleikarar hafi komið fram á tón-
leikaröðinni. „Ég er mjög þakklátur
öllu þessu góða tónlistarfólki og
finnst gott að hafa getað unnið í
þessu frábæra tónlistarhúsi,“ segir
Bjarni Thor sem frá upphafi hefur
haldið utan um skipulag tónleikarað-
arinnar samhliða störfum sínum sem
óperusöngvari erlendis.
Myndi taka slíku boði
„Ég hef stundum þurft að sleppa
verkefnum erlendis út af tónleika-
röðinni, en langar nú til að sinna
söngnum betur og þá hef ég ekki
lengur tíma fyrir tónleikaröðina. Við
ætlum að klára þá dagskrá sem við
vorum búin að auglýsa. Þrennir
hefðbundnir tónleikar verða í þess-
um mánuði, þ.e. 11., 18. og 25. nóv-
ember. Síðasta jóla- og áramóta-
dagskráin okkar verður flutt í níu
skipti frá 27. desember til 5. janúar,“
segir Bjarni Thor, en allar nánari
upplýsingar um tónleikana má nálg-
ast á vefnum pearls.is.
Ekki er hægt að sleppa Bjarna
Thor án þess að forvitnast hvenær
Íslendingar fái næst að heyra í hon-
um á óperusviðinu hérlendis, en
seinasta hlutverk Bjarna Thors á
sviði hér á landi var Dr. Bartolo í
Rakaranum í Sevilla fyrir rúmum
tveimur árum í uppfærslu Íslensku
óperunnar. „Ef ég hefði tíma og mér
væri boðið að syngja í óperu hér
heima myndi ég örugglega segja já,
því mér finnst mikilvægt að koma
reglulega fram hér heima. Það hefur
hins vegar ekkert verið leitað til mín
seinustu tvö árin, en sem betur fer
er nóg að gera erlendis,“ segir
Bjarni Thor að lokum.
Skelli „mér út í djúpu laugina“
Bjarni Thor Kristinsson mun syngja Óðin í uppfærslu á Niflungahringnum eftir Wagner í Kassel
2018 til 2019 Þarf vegna anna erlendis að hætta með tónleikaröðina Perlur íslenskra sönglaga
Morgunblaðið/Eggert
Spennandi „Ef allt gengur upp
held ég að ég verði fyrsti Íslending-
urinn til að syngja Wotan allan,“
segir Bjarni Thor Kristinsson.
Rúmenskir kvikmyndadagar hefjast
í Bíó Paradís í dag og standa til
sunnudags, en þetta er í annað sinn
sem slíkir dagar eru haldnir hér-
lendis. Að þessu sinni verða á boð-
stólum átta kvikmyndir sem eru
þverskurður af rúmenskri kvik-
myndamenningu.
Opnunarmynd kvikmyndadag-
anna er Ana, Mon Amour (Ana, ástin
mín) frá 2017 í leikstjórn Cãlins Pet-
ers Netzer þar sem Diana Cavallioti
og Mircea Postelnicu fara með aðal-
hlutverkin. Myndin hlaut Silfur-
björninn á kvikmyndahátíðinni í
Berlín fyrr á árinu. Myndin verður
sýnd klukkan 18 í dag, aðgangur er
ókeypis og Diana Cavallioti verður
viðstödd sýninguna og situr fyrir
svörum áhorfenda að henni lokinni.
Aðrar myndir sem sýndar verða
eru Moartea domnului Lãzãrescu
(Dauði herra Lãzãrescu) frá 2005
sem Cristi Puiu leikstýrði; A fost sau
n-a fost? (sem á ensku er nefnd 12:08
East of Bucharest) frá 2006 í leik-
stjórn Corneliu Porumboiu; 4 luni, 3
saptamâni si 2 zile (4 mánuðir, 3 vik-
ur og 2 dagar) frá 2007 í leikstjórn
Cristians Mungiu; Marti, dupã
Crãciun (Þriðjudagur, eftir jólin) frá
2017 sem Radu Muntean leikstýrði;
Morgen (Á morgun) frá 2017 í leik-
stjórn Marians Crisan; Aferim! frá
2015 sem Radu Jude leikstýrði og
De ce eu? (Af hverju ég?) frá 2015 í
leikstjórn Tudors Giurgiu.
Allar nánari upplýsingar um
myndirnar, sem allar eru sýndar
með enskum texta, má finna á vefn-
um bioparadis. is.
Rúmenskir kvikmynda-
dagar haldnir í annað sinn
Ástin Diana Cavallotti og Mircea
Postelnicu í Ana, Mon Amour.