Morgunblaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Söngkonan Unnur Sara Eldjárn og
píanóleikarinn Kjartan Jósefsson
Ognibene koma fram á tónleikum í
í Petersen-svítunni í Gamla bíói í
kvöld kl. 21 og er aðgangur ókeyp-
is. Á efnisskránni eru frönsk kaffi-
húsalög sem flestir kannast við í
flutningi listamanna á borð við
Serge Gainsbourg og Edith Piaf.
Frönsk kaffihúsa-
lög í Gamla bíói
Dúó Unnur Sara Eldjárn og Kjartan
Jósefsson Ognibene skemmta í kvöld.
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Hörpu í kvöld hljóma verk-
ið Námur eftir Þórð Magnússon,
hornkonsert eftir Reinhold Glière og
Sinfónískir dansar eftir Sergej Rak-
hmanínov. Aðalstjórnandi sveitar-
innar, Yan Pascal Tortelier, sveiflar
tónsprotanum.
Einleikari kvöldsins, tékkneski
hornleikarinn Radek Baborák, þykir
einn fimasti einleikari samtímans á
hljóðfærið. Hann var aðeins 18 ára
þegar hann var ráðinn aðalhornleik-
ari Fílharmóníuhljómsveitar Tékk-
lands og hann gegndi einnig stöðu
aðalhornleikara Berlínarfílharm-
óníunnar um sjö ára skeið. Frá árinu
2010 hefur hann helgað sig ferli ein-
leikarans og komið fram með mörg-
um helstu sinfóníuhljómsveitum.
Konsertinn sem hann leikur er eftir
Reinhold Gliére, sem var kennari
tónskáldanna Prokofíevs og Katsja-
túrjans.
Sinfónískir dansar voru síðasta
tónsmíðin sem Rakhmanínov lauk
við fyrir andlát sitt, tilþrifamikið og
meistaralega útsett verk þar sem
hann sækir innblástur meðal annars
í rússneskan kirkjusöng. Verk Þórð-
ar Magnússonar byggist hins vegar
á ljóði eftir Guðberg Bergsson og
kallast á við Adagio eftir Jón Nordal.
„Hljómsveitin flytur nú nýja út-
gáfu eftir mig af Námum,“ segir
Þórður um upphafsverk tónleikanna
en það var frumflutt af Sinfóníu-
hljómsveitinn í Langholtskirkju fyr-
ir sjö árum.
„Ég gerði formið aðeins knappara
og verkið skýrara í þessari nýju út-
gáfu; satt best að segja var ég ekki
alveg sáttur við það á sínum tíma,
hvernig það dó út í lokin, og því
skerpti ég nú á því.
Sem tónskáld finnst manni að allt-
af megi laga verkin og bæta.
Verkið var pantað hjá mér á sín-
um tíma og átti ég að byggja það að
ákveðnu leyti á prósa eftir Guðberg
Bergsson sem fjallar um námugröft,
Bláa lónið og Svartsengi.“ Það kall-
ast líka á við lykilverk í íslenskri tón-
listarsögu, Adagio eftir Jón Nordal,
en verkin deila sömu hljóðfæra-
skipan.
„Strengirnir eru fullskipaðir í
þessu verki en auk þeirra eru flauta,
harpa og píanó,“ segir Þórður. Og
hann segir það hafa verið skemmti-
legt að taka verkið nú aftur fram og
laga það til. efi@mbl.is
Ný útgáfa af
Námum Þórðar
Kunnur hornleikari með SÍ í kvöld
Morgunblaðið/Einar Falur
Tónskáldið Þórður Magnússon.
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnandinn Yan Pascal Tortelier.
Thor er fangelsaður í hinum enda alheimsins án
hamarsins síns og er í kapphlaupi við tímann til að
komast aftur heim til Ásgarðs til að stöðva heims-
endi sem hin miskunnarlausu Hela er ábyrg fyrir.
En fyrst verður hann að berjast fyrir lífi sínu.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 72/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 17.15, 20.00, 21.00, 22.45
Sambíóin Kringlunni 16.45, 18.00, 19.30, 21.00, 22.15
Sambíóin Akureyri 17.10, 20.00, 22.50
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.50
Smárabíó 16.30, 19.10, 19.20, 22.00, 22.10
Thor: Ragnarok 12
Undir trénu 12
Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta
húsi. Stórt og fagurt tré
sem stendur í garði foreldr-
anna skyggir á garð ná-
grannanna, sem eru þreytt-
ir á að fá ekki sól á pallinn.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 6,9/10
Laugarásbíó 20.00
Smárabíó 17.10
Háskólabíó 18.10
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Only the Brave 12
Úrvalslið slökkviliðsmanna
berst við skógarelda í Ya-
mell í Arizona í júní 2013.
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.00,
20.00, 22.50
Sambíóin Egilshöll 18.00,
19.45, 22.30
Sambíóin Kringlunni
18.00, 21.00
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50
Sambíóin Keflavík 20.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Island Songs
Ólafur Arnalds tónskáld
ferðast um Ísland og skapar
tónlist ásamt margs konar
samstarfsfólki.
Bíó Paradís 18.00
Final Portrait
Hinn dáði listamaður Alberto
Giacometti rekst á gamlan
vin í París 1964 og sannfærir
hann um sitja fyrir á
portrettmynd.
Bíó Paradís 20.00
The Party
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 73/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 20.30
Thelma
Ung stúlka flytur til Óslóar
og verður ástfangin af skóla-
systur sinni en uppgvötar
dularfulla krafta.
Metacritic 74/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 22.00
The Death of
Mr. Lazarescu
Bíó Paradís 22.00
Blindrahundur
Bíó Paradís 18.00
Ana, mon amour
Bíó Paradís 18.00
RÖKKUR 16
IMDb 5,4/10
Nokkrum mánuðum eftir
sambandsslitin fær Gunnar
símhringingu frá fyrrverandi
kærastanum sínum, Einari.
Hann er í miklu uppnámi og
Gunnar er hræddur um að
hann muni fara sér að voða
Smárabíó 22.30
Háskólabíó 20.50
The Foreigner 16
Metacritic 55/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Háskólabíó 17.50, 20.50
Suburbicon 16
Innrás á heimili skekur syfju-
legt úthverfi árið 1959.
Metacritic 42/100
IMDb 4,7/10
Smárabíó 17.00, 19.30,
21.55
Háskólabíó 18.10, 21.00
Geostorm 12
Þegar loftslagsbreytingar
ógna öllu lífi á jörðinni sam-
einast yfirvöld um alheims-
net gervihnatta.
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.20
The Lego Ninjago
Movie Sex ungar ninjur fá það verk-
efni að verja eyjuna sína,
Ninjago.
Metacritic 55/100
IMDb 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Akureyri 17.40
Hneturánið 2 Ævintýramynd um sérvitran
íkorna og vini hans.
Metacritic 37/100
IMDb 5,8/10
Laugarásbíó 17.30
Smárabíó 15.10, 17.25
Skrímslafjölskyldan
IMDb 5,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Mother! 16
Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 74/100
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 22.30
Sumarbörn Systkinin Eydís og Kári eru
send til sumardvalar á af-
skekkt barnaheimili vegna
heimiliserfiðleika og
fátæktar.
Morgunblaðið bbbmn
Bíó Paradís 20.00
Home Again
Líf einstæðrar móður tekur
óvænta stefnu þegar hún
leyfir þremur ungum mönn-
um að flytja inn til sín.
Metacritic 41/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Egilshöll 17.50
Blade Runner 2 16
Nýr hausaveiðari kemst að
gömlu leyndarmáli sem gæti
valdið miklu umróti í sam-
félaginu.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 82/100
IMDb 8,8/10
Smárabíó 15.45, 19.20
Happy Death Day 16
Tree Gelbman verður að
upplifa afmælisdaginn sinn
ótal sinnum til að komast að
því hver reynir að myrða
hana og hvers vegna.
Metacritic 57/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 22.00
The Snowman 16
Lögreglumaðurinn Harry
Hole óttast að hræðilegur
fjöldamorðingi sé kominn
aftur á stjá.
Metacritic 34/100
IMDb 5,4/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.30
A Bad Mom’s
Christmas 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,7/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.15
Sambíóin Keflavík 22.50
Háskólabíó 18.00, 20.50
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður
meðal annars upp á nýtt
ökumannshús með góðu
aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu