Morgunblaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
AF MYNDASÖGUM
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Þegar ég leit inn á fésbókar-síðu Frosks útgáfu á dög-unum varð ég þess áskynja
að forsíða nýútgefinnar myndasögu
hennar virtist hafa valdið svolitlum
usla. Fjöldi fólks hafði þar smellt
reiði- og gráttáknum á færslu út-
gáfunnar og tjáð hneykslun sína á
því hvernig forsíða bókarinnar þótti
kyngera tvær spengilegar tánings-
stúlkur sem standa þar sigri hrós-
andi í sviðsljósinu og ýta til hliðar
slánalegri og
óálitlegri vin-
konu sinni. Með
þessu væri ver-
ið að setja ung-
um stúlkum
óraunhæf
fegurðarviðmið.
Ég hafði fyr-
ir tilviljun feng-
ið þessa
myndasögu í hendurnar og lesið
hana nokkru áður. Um er að ræða
fransk-kanadísku myndasöguna
Skvísur: Ekki með á nótunum (Les
nombrils - Pour qui tu te prends? á
frummálinu) eftir hjónin Maryse
Dubuc og Marc „Delaf“ Delafon-
taine. Bókin er fyrsta hefti í mynda-
söguflokki sem nýtur nokkurra vin-
sælda í Quebec og fjallar um líf
menntaskólastelpnanna Agnesar,
Signýjar og Beggu. Ég verð að
viðurkenna að við lestur bókarinnar
hvarflaði aldrei að mér að verið
væri að senda stúlkum óviðeigandi
skilaboð með vaxtarlagi Signýjar og
Beggu („skvísnanna“ umdeildu á
forsíðunni) því mér þótti liggja í
augum uppi að ekki var ætlast til
þess að þær væru teknar til fyr-
irmyndar. Bókin er háðsádeila á
kynvæðingu og útlitsdýrkun ung-
lingamenningarinnar og útmálar
Signýju og Beggu sem það versta
sem slík menning hefur upp á að
bjóða. Þær eru vitgrannar, grunn-
hyggnar, hrokafullar, eigingjarnar,
athyglissjúkar og strákaóðar og
koma fram við hina „ljótu“ (í raun
venjulegu) Agnesi vinkonu sína eins
og rusl. Samúð lesandans liggur
ávallt hjá Agnesi og húmor bók-
arinnar felst í því að leiða í ljós hve
fáránlegar Signý og Begga eru í
raun og veru; hve fáránlegt er að
þær séu vinsælar þrátt fyrir per-
sónugalla sína einfaldlega vegna
þess að þær gæta þess að standast
fegurðarkröfur samfélagsins. Boð-
skapur bókarinnar kemur mjög vel
í ljós í einni skrýtlunni, þar sem við
sjáum stelpurnar fara á fætur:
Signý og Begga vakna klukkan
fimm til að mála sig og gera sig
sætar en Agnes sefur til kl. sjö og
mætir vel upplögð í skólann. Þegar
Signý og Begga mæta loksins er
óveðrið búið að gera út af við allt
puntið þeirra.
Hvar endar ádeila?
Ég hef vonandi komið því á
hreint að ég tel bókina ekki verð-
skulda þá gagnrýni sem hún fékk á
fésbókarsíðu Frosks. Ég vil brýna
fyrir lesendum að dæma bókina
ekki af kápunni og halda að hún sé
hluti af sömu útlitsdýrkunarmenn-
ingu og hún gerir grín að. Þó þykir
mér gagnrýnin áhugaverð og enn
áhugaverðara að sjá að þrátt fyrir
vinsældir Les nombrils-bókanna í
Quebec hafa þær öðru hverju mátt
sæta gagnrýni þar og jafnvel verið
tímabundið fjarlægðar af skóla-
bókasafni af ótta við að vaxtarlag
Beggu og Signýjar gæti ýtt undir
Með á nótunum eða
ekki með á nótunum?
Ádeila „Bókin er háðsádeila á kynvæðingu og útlitsdýrkun …og útmálar
Signýju og Beggu sem það versta sem slík menning hefur upp á að bjóða.“
anorexíu. Þetta vekur mann til um-
hugsunar, bæði um það hvar mörk
ádeilu enda og um það hvað er í lagi
að sýna í efni fyrir börn og ung-
linga. Það er satt að börn læra af
því sem haft er fyrir þeim. Það er
einnig satt að oft getur verið erfitt
að greina illa lukkaða ádeilu frá því
sem hún gerir grín að. Ég á þó af-
skaplega erfitt með að trúa því að
stelpur sem lesi Skvísur muni vilja
vera eins og Begga og Signý; til
þess eru persónurnar of af-
skræmdar og illkvittnar.
Hvað geta börn skilið?
Nýlega varð ég var við að systir
mín vildi ekki lesa bók um Einar
Áskel fyrir dóttur sína vegna þess
að henni þótti hún senda stúlkum
slæm skilaboð. Bókin fjallaði nefni-
lega um að Einar Áskell vildi ekki
leika sér við stelpur. Hins vegar var
boðskapur bókarinnar einmitt sá að
það væri rangt hjá Einari Áskeli að
hugsa svona og hann bætir ráð sitt í
lokin. Varla var bókin þá að mæla
með svona hegðun? Systur minni
þótti bókin eyða svo miklu púðri í
að útskýra hvers vegna Einari Ás-
keli væri í nöp við stelpur að áhrifin
væru í raun þau að hugmyndum um
staðalímyndir yrði plantað í huga
barnsins frekar en lokaboðskapnum
um að þær væru rangar. Sjónar-
miðið er skiljanlegt þegar um er að
ræða mjög ung börn líkt og frænku
mína en mér þykir það bera vott
um ofverndunarhyggju, jafnvel van-
mat á gáfum eldri barna og ung-
linga, að ætla að ekki sé hægt að
sýna neina slæma hegðun í barna-
efni og treysta þeim fyrir því að
gera sér grein fyrir því hvar samúð
þeirra á að liggja. Auðvitað vill
maður ekki að barnaefni verði of
gróft en það þarf þó ekki að vera
gersamlega bitlaust. Svo lengi sem
efnið er vel skrifað leikur sjaldan
vafi á því hver boðskapurinn er.
Skvísur: Ekki með á nótunum er
sem betur fer vel skrifuð bók og
dregur upp fyndna mynd af verstu
eiginleikum unglingamenningar.
Táningar munu (því miður) eflaust
kannast við sum hegðunarmynstrin
sem bókin dregur upp.
» „Auðvitað vill maðurekki að barnaefni
verði of gróft en það
þarf þó ekki að vera ger-
samlega bitlaust.“
Blindrahundur
er ný heimildar-
mynd um mynd-
listarmanninn
Birgi Andrés-
son, sem frum-
sýnd verður í
Bíó Paradís í
kvöld og fer síð-
an í almennar
sýningar. Í
myndinni er æviferill Birgis rak-
inn í gegnum frásagnir sam-
ferðafólks frá bernsku og þar til
hann lést sviplega 2007. Handrit,
leikstjórn og klipping er í hönd-
um Kristjáns Loðmfjörð og fram-
leiðandi er Tinna Guðmunds-
dóttir. Myndin var 9 ár í
framleiðslu, með hléum, og kem-
ur út þegar 10 ár eru liðin frá
fráfalli Birgis. Hún var sýnd á
Skjaldborg í sumar þar sem hún
hlaut hlaut bæði áhorfenda- og
dómaraverðlaun.
Blindrahundur
frumsýndur
Birgir Andrésson
Í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20
verður kynnt í
Listasafni
Reykjavíkur –
Hafnarhúsi bók-
in Útisýningar á
Skólavörðuholti
1967-1972 og
verða umræður
á eftir. Fimmtíu ár eru frá fyrstu
sýningu á skúlptúr í opinberu
rými á Íslandi. Sýningarnar urðu
fimm talsins, fóru fram á Skóla-
vörðuholti og voru haldnar að
frumkvæði Myndlistaskólans í
Reykjavík. Skólinn fagnar nú sjö-
tíu ára afmæli og af því tilefni er
bókin gefin út.
Höfundar eru Inga S. Ragnars-
dóttir og Kristín G. Guðnadóttir.
Markús Þór Andrésson á einnig
innlegg og Áslaug Thorlacius,
skólastjóri Myndlistaskólans í
Reykjavík, ritar inngang.
Kynna bókina um
útisýningarnar
Matur
SÝND KL. 8SÝND KL. 5.30
SÝND KL. 10
SÝND KL. 8, 10.25
SÝND KL. 5.30, 8, 10.15
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástSnickers vinnuföt í