Morgunblaðið - 09.11.2017, Page 44
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 313. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Talinn hafa lent á tveimur bílum
2. Nafn mannsins sem lést
3. „Hver í andskotanum ertu?“
4. Naumt íslenskt tap í Katar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á sunnudagskvöldið kemur verður
frumsýnd í Iðnó dagskráin Eftirherm-
an og orginalinn. Þar munu eft-
irherman Jóhannes Kristjánsson,
sem á 40 ára leiklistarafmæli, og
Guðni Ágústsson fara mikinn í gam-
ansögum og eftirhermum.
Jóhannes og Guðni
skemmta í Iðnó
Tónlistardúóið
Sigga Eyrún og
Karl Olgeirsson
halda tónleika í
Hannesarholti í
kvöld kl. 20:30
undir yfirskrift-
inni Haustróm-
antík. Þar flytja
þau úrval af róm-
antískum og hjartahlýjandi lögum
sem Karl hefur útsett af þessu til-
efni. Lögin eru sérvalin og úr ýmsum
áttum en eiga það sameiginlegt að
fjalla um ástina og rómantík. Miðar
fást á midi.is.
Haustrómantík í
Hannesarholti í kvöld
Lionsklúbburinn Fjörgyn heldur sína
15. stórtónleika í Grafarvogskirkju í
kvöld kl. 20 til styrktar Barna- og ung-
lingageðdeild Landspítala (BUGL) og
líknarsjóði Fjörgynjar.
Meðal þeirra sem fram
koma eru Ari Eldjárn,
Dísella Lárusdóttir,
Gréta Salome, Ragn-
ar Bjarnason og Sig-
ríður Thorlacius.
Kynnir er Gísli Ein-
arsson. Miðar eru
seldir á midi.is.
Stórtónleikar til
styrktar BUGL
Á föstudag Norðvestan 13-20 um landið austanvert, hvassast við
ströndina en mun hægari vindur vestantil. Snjókoma á Norðurlandi
um kvöldið, annars víða él, en léttskýjað SA-lands. Frost 0 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt 10-18 austanlands, annars mun
hægari. Él á landinu NA-verðu en skýjað með köflum syðra. Yfirleitt
vægt frost en 1-5 stiga hiti um landið sunnanvert fram á nótt.
VEÐUR
Birkir Már Sævarsson,
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, þarf ekki að gang-
ast undir aðgerð vegna við-
beinsbrotsins sem hann
varð fyrir með Hammarby í
lokaumferð sænsku úrvals-
deildarinnar á dögunum.
Birkir fór í röntgen-
myndatöku á þriðjudaginn
og niðurstöðurnar voru á
þá leið að beinið hefði
brotnað í tvennt án þess
að færast til. » 1
Birkir Már um sex
vikur að jafna sig
Flestir íþróttaáhugamenn búast við
því að KR-ingar standi uppi sem sig-
urvegarar í Dominos-
deild karla í körfu-
knattleik næsta
vor. Hvernig má
svo sem annað
vera þegar um er
að ræða lið sem er
Íslandsmeistari
síðustu fjögurra
ára og hefur
unnið tvöfalt
síðustu tvö
árin. Fleiri
öflug lið
eru að
sjálfsögðu í
deildinni en
öllum er ljóst
að KR er liðið
sem ryðja þarf
úr vegi á leið-
inni að bik-
arnum. »1
KR er liðið sem allir
vilja ryðja úr vegi
Ísland þurfti að sætta sig við 2:1 tap
fyrir Tékklandi í vináttulandsleik
karla í knattspyrnu. Leikurinn var
spilaður í liðlega 30 stiga hita í Katar
í gær. Margir fastamenn í landsliðinu
sátu utan vallar í þetta skiptið og
fengu aðrir að spreyta sig sem
sjaldnar koma við sögu hjá landslið-
inu. Einn þeirra, Kjartan Henry Finn-
bogason, skoraði mark Íslands. »4
Kjartan Henry skoraði í
tapleik gegn Tékklandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Áhorfendur hljóta að velta því fyrir
sér eftir að hafa séð myndina hvort
sögupersónan hafi að öllu leyti verið
af þessum heimi. Kraftarnir voru
nánast yfirnáttúrulegir og spurningin
er því sú hvort dulin öfl hafi búið með
manninum,“ segir Baldvin Z kvik-
myndagerðarmaður. Í fyrrakvöld var
í Smárabíói í Kópavogi og Borgarbíói
á Akureyri í gærkvöld forsýnd heim-
ildarmyndin Reynir sterki – almenn-
ar sýningar á myndinni hefjast í kvik-
myndahúsum á morgun, föstudag.
Lyfti björgum og
braust úr hlekkjum
Í myndinni er sögð saga Reynis
Arnar Leóssonar aflraunamanns,
sem nafntogaður var á sínum tíma.
Sem strákur heyrði Baldvin sögur af
afrekum Reynis, sem lyfti björgum,
sleit 6,1 tonns keðju og braust úr
hlekkjum í fangaklefa og þaðan út.
Alls setti Reynir þrjú heimsmet sem
komust í bók Guinness og standa enn.
„Þegar ég fór út í kvikmyndagerð
ákvað ég fljótt að gera mynd um
Reyni. Ég vann heimildavinnuna og
tók fyrstu viðtölin árið 2009 og eftir
það en inn á milli komu tímar sem ég
sinnti þessu lítið,“ segir Baldvin.
„Nálgunin á efnið breyttist eftir því
sem tímar liðu. Á fyrstu stigum
ræddi ég meðal annars við lækna, sál-
fræðinga og presta um þessa ótrú-
legu krafta Reynis og skýringar á
þeim. Svo fræðandi nálgun gekk ekki
upp þegar vinnsla myndarinnar hófst
svo ég varð að fara aðra leið.“
Efni sem nýttist Baldvini var með-
al annars heimildamyndin Sterkasti
maður heims sem Reynir lét gera um
sjálfan sig og kostaði talsverðu til. Þá
var ýmislegt efni einnig tiltækt í safni
RÚV. En mest munaði þó um viðtölin
við til dæmis systkini Reynis, fyrr-
verandi eiginkonu hans og börn.
Reynir var ekki allra
„Fólk var yfirleitt tilbúið að ræða
við mig, en sumir höfðu fyrirvara því
Reynir var ekki allra,“ segir Baldvin.
Hann telur að í æsku hafi Reynir um
margt verið afskiptur og verið mis-
þyrmt í sveit í Svarfaðardal. Það hafi
sett varanlegt mark á drenginn, sem í
sveitinni fékk þó einhverja vitrun –
kannski guðlega – og áhrifin af henni
vörðu alla tíð.
„Prestur sem ég talaði við sagði að
biblíusögurnar greindu frá mörgum
sem hefðu fundið guðleg áhrif eftir
áföll í æsku. Sú var ef til vill raunin
með Reyni, sem af mörgum var lítils
metinn og sagður svikull og óheiðar-
legur. Kjarninn er samt sá að Reynir
var rótlaus maður, sem í dag hefði
mögulega fengið greiningar um of-
virkni og athyglisbrest og hjálp sam-
kvæmt því. En allar sögurnar sem
viðmælendur segja eru frá þeim sjálf-
um, svo þetta er allt frá fyrstu hendi,“
segir Baldvin um Reyni, sem lengi
bjó suður með sjó, starfaði þar sem
vörubílstjóri og við járnsmíðar.
Fékkst einnig við ýmsar uppfinn-
ingar svo sem á útblástursbúnaði fyr-
ir bifreiðir, sem hann meðal annars
kynnti forsvarsmönnum Volvo í Sví-
þjóð.
Skilaboð af miðilsfundi
„Í þessari vegferð hef ég fundið
sterkt fyrir nærveru Reynis. Þegar
ég hóf gerð myndarinnar hafði ég
samband við Erlu Sveinsdóttur,
seinni konu Reynis, sem af miðils-
fundi kom með þau skilaboð frá hon-
um að ég skyldi fá myndefnið sem til
væri og gera myndina, en ekki aðrir
þeir sem höfðu bankað upp á. Það
ætti að bíða með málið og eftir unga
manninum, sem var ég. Linda dóttir
þeirra sagði mér líka af því að ákvörð-
un um ákveðið atriði í myndinni hefði
verið föður sínum að skapi,“ segir
Baldvin um samfylgd sína við jöt-
unmennið Reyni sterka.
Jötunmenni dulinna afla
Reynir sterki
brýst úr hlekkjum
á hvíta tjaldinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Reynir sterki Baldvin Z leikstjóri, til vinstri, Erla Sveinsdóttir, seinni kona Reynis Leóssonar, og börn þeirra Reyn-
is, Örn og Linda Björg, fyrir forsýninguna myndarinnar á Akureyri í gær. Almennar sýningar hefjast á morgun.
Hlekkjaður Reynir braust úr keðj-
um, fangaklefa og höndum fílefldra
laganna varða í Keflavík.