Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.12.2017, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.12.2017, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.12. 2017 VETTVANGUR Moskva, Volgograd ogRostov-on-Don. Á þess-um þremur borgum verða augu allra Íslendinga eftir nokkra mánuði, þegar karlalands- liðið í fótbolta tekur þátt í HM í Rússlandi. Þátttakan á HM verður líklega mesta landkynning sem Ísland hef- ur fengið frá upphafi. Næstum helmingur mannkyns mun fylgjast með keppninni, en aðeins 32 lönd eiga þar lið. Íslandsstofa vinnur nú þegar út frá því að markaðsstarf hennar er- lendis muni að verulegu leyti taka mið af HM og er byrjuð að leggja drög að því, sem er skynsamlegt. Af þessu tilefni er við hæfi að velta fyrir sér sjálfsmynd okkar Ís- lendinga. Að mínu mati eiga orð Jóns Sigurðssonar í fyrsta árgangi „Nýrra félagsrita“ vel við enn þann dag í dag. Jón segir þar: „En því aðeins geta þjóðirnar til fulls þekkt sig sjálfar, að þær þekki einnig aðr- ar þjóðir, gefi nákvæman gaum að öllu lífi þeirra og framförum, og taki dæmi þeirra og reynslu sér til eftirdæmis og viðvörunar. En það er bágt fyrir þá, sem búa langt frá öðrum, eins og Íslendingar, að þekkja nákvæmlega til slíks, og verður þeim því hætt við, eins og meira eða minna bryddir á hjá öll- um eyjabúum, að þeir gera annað hvort of mikið úr sjálfum sér eða of lítið, þykjast annað hvort vera sæl- astir manna eða vesælastir, og á hinn bóginn meta allt hið útlenda annað hvort of mikils eða of lítils.“ Þetta er ennþá dálítill ljóður á okkar ráði að mínu mati. Við förum öfganna á milli í áliti okkar á sjálf- um okkur og það sama gildir um hið erlenda; álit okkar á því er ým- ist í ökkla eða eyra. Vonandi öðl- umst við þroska til að skynja hér fleiri blæbrigði en svart og hvítt. Án nokkurs oflætis er óhætt að segja að það sé sláandi hvílíkur reginmunur er á sjálfstrausti þjóð- arinnar í dag í samanburði við þann tíma sem Jón Sigurðsson steig inn í. Við upphaf nítjándu aldar var al- menn deyfð yfir Íslendingum og svartsýni á möguleika og framtíð landsins, hvað þá að við gætum staðið á eigin fótum eða haft roð við öðrum þjóðum í alþjóðlegri sam- keppni. Landsmenn höfðu, með orðum Jóns sjálfs: „… misst traust- ið á sjálfum sér […] og viljann til að hjálpa sér sjálfir; þeir hafa misst hinn alþjóðlega anda til allra fram- kvæmda, og orðið kotungar […]“ – eins og hann segir í formála að „Lítilli varningsbók“. Í dag er þessu þveröfugt farið. Við erum sem betur fer full sjálfs- trausts og atorku og teljum okkur eiga fullt erindi á alþjóðavettvangi á hverju því sviði sem við kærum okkur um að stíga inn á. En hver erum „við“, það er að segja: við Ís- lendingar? Það er líka ástæða til að velta því fyrir sér. Við nútíma- fólkið teljum okkur almennt aðhyllast skyn- semi, vísindi og áþreifanleg rök fremur en tilbúning og hindurvitni. En þegar betur er að gáð eru furðulega margar stoðir í samfélagi okkar einmitt tilbúningur okkar sjálfra. Verðgildi peninga er eitt af þessum tilbúnu fyrirbærum sem hvíla á tiltrú og trausti allra hlut- aðeigandi fremur en hlutlægum, áþreifanlegum þáttum. Þjóðríkið og hverjir tilheyra því er annað dæmi. Það er mannanna verk. Sú staðreynd liggur kannski síður í augum uppi fyrir þá sem byggja eyjur með náttúruleg landamæri, en við þurfum ekki að horfa lengra en til Spánar til að sjá að mörk þjóðríkja eru langt frá því að vera sjálfsögð eða óumdeild. Hið sama gildir um sjálft þjóðerni hvers einstaklings. Það er hvorki einfalt né sjálfgefið. Sumpart er það lögformlegt og sumpart er það hreinlega ákvörðun hvers og eins, en hvort tveggja er mannanna verk. Í þeirri sterku bylgju rétt- mætrar gleði og stolti yfir þjóðerni okkar sem vænta má næsta sumar, þegar saman fara þátttaka á HM, þjóðhátíð og hundrað ára afmæl- isár fullveldis okkar, er full ástæða til að hugleiða þessa þætti vel. Að þekkja sjálfan sig ’Við förum öfganna ámilli í áliti okkar ásjálfum okkur og þaðsama gildir um hið er- lenda; álit okkar á því er ýmist í ökkla eða eyra. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kirkjuheimsóknir skólabarna eru gjarnan til umræðu á þessum árs- tíma. Sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan lýsti sinni skoðun á Facebook. „Nú er Davíð Þór fínn gæi og allt. En það breytir því ekki að kirkjuheimsóknir eru ekkert skárri í moskum, eða sýnagógum. Við þurfum að fara að hætta meðvirkni við þessi grímuböll öll sömul. Það er álíka relevant að senda börn í starfsþjálfun til loft- skeytamanns. Og fordómum fyrir einstaka trúarbrögðum verður ekki eytt með að senda barna- hópa á milli trúarleiðtoga. Sagan ætti að hafa kennt okkur það.“ Fjölmiðlakonunni Snærós Sindradóttur var forsetinn of- arlega í huga eftir ræðu hans við þing- setningu í vikunni. „Ég verð alltaf jafn hissa á því að við Íslendingar höfum borið gæfu til þess að kjósa svona frábæran forseta. Bendir til þess að við séum ekki alveg búin að missaða. Djöfull er þetta góð ræða.“ Facebooknotendur hafa undan- farna daga verið að birta nokkurs konar ársuppgjör þar sem sam- félagsmiðillinn velur myndir og viðburði sem talið er að not- endum þyki vert að minnast. Sirrý Arnardóttir deildi sínu uppgjöri en þó með ákveðnum fyrirvara. „Við förum öfganna á milli í áliti okkar á sjálfum okkur og það sama gildir um hið erlenda; álit okkar á því er ýmist í ökkla eða eyra.“ AF NETINU Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggmálning Dýpri litir – dásamleg áferð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.