Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 1
Opnar nýjar dyrHera Hilmarsdóttir er í aðalhlutverki í næstu stórmynd Peters Jacksons, mannsins á bak við Hringadróttinssögu og Hobbitann. Hlutverkið hefur opnað nýjar dyr fyrir Heru en hún segist hafa verið lengi að hvað þetta er stórt hlutverk, í stórri mynd yndislegasti leikari s 24. DESEMBER 2017SUNNUDAGUR Gleðileg jól L A U G A R D A G U R 2 3. D E S E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  302. tölublað  105. árgangur  TEKUR FÓT- BOLTA FRAM YFIR JÓLIN ERFITT AÐ SEGJA ÆVI- SÖGU SÍNA JÓHANNA SIGURÐAR 41BRAGI BRYNJARSSON 12 Kertasníkir kemur í kvöld 1 jolamjolk.is dagur til jóla  Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra fundar með fulltrúum vinnu- markaðarins milli jóla og nýárs til að leita sátta á vinnumarkaði. Hún boðar breytingar á bóta- kerfinu til að styrkja stöðu tekju- lágra, m.a. á húsnæðismarkaði. Félagsmálaráðherra muni á nýju ári endurskoða húsnæðisstuðning og yfirfara stofnframlög. Katrín segir ríkisstjórnina reiðu- búna að skoða lækkun trygginga- gjalds og lækkun á neðra þrepi tekjuskatts til að styðja tekjulága. Þá verði skattar á eignafólk hækk- aðir í gegnum fjármagnstekjuskatt. Hún kveðst hafa skilning á því að úrskurðir kjararáðs valdi ólgu. Spurð hvort til greina komi að Alþingi afturkalli úrskurði kjara- ráðs, segir Katrín fordæmi fyrir slíku í málum sem enduðu fyrir dómstólum og var snúið við. Fara þurfi aðra leið. baldura@mbl.is »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Milli jóla og nýárs Forsætisráðherra hyggst funda með aðilum vinnumarkaðarins. Forsætisráðherra boðar aukin framlög í húsnæðismálin  HB Grandi hefur á fimm árum látið smíða sex skip og nemur heildarfjárfesting í þeim um 20 milljörðum króna. Þannig hefur fyrirtækið keypt þrjá ísfisktogara fyrir um sjö milljarða, tvö upp- sjávarskip sem kostuðu rúmlega sjö milljarða eru í smíðum og eftir hálft annað ár fær fyrirtækið í hendurnar frystitogara sem áætl- að er að kosti rúma fimm millj- arða. »16 Tuga milljarða fjár- festing á fimm árum Skipulögðum glæpahópum hefur fjölgað á Íslandi á undanförnum miss- erum en eitt af því sem fylgir skipu- lagðri brotastarfsemi er að það verð- ur til samfélag inni í samfélaginu. „Stundum er það þannig að þegar einhver brýtur af sér í þessu sam- félagi þá er viðkomandi refsað án þess að við, sem eigum að koma að því, ger- um það. Slíkt ofbeldi er ekki kært til okkar sem er gríðarlega alvarlegt því þegar einhver samfélög inni í sam- félögum eru farin að ráða lögum og lofum þá er eitthvað mikið að,“ segir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn, sem hefur starfað í lögreglunni í þrjá áratugi. Hann segir að lögreglan heyri stundum ávæning af slíkum málum en því sé þannig farið að þessi mál rati mjög sjaldan á borð lögreglu. „Menn taka á því sem þeir líta á sem brot og refsa viðkomandi. Þeir stjórna með óttanum og þeir sem er refsað óttast frekari refsingar og það hvarflar ekki að þeim að láta lögreglu vita.“ Tveir karlmenn voru í gær úr- skurðaðir í þriggja vikna áframhald- andi gæsluvarðhald, eða til 12. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi. Mennirn- ir voru handteknir í viðamiklum að- gerðum lögreglu- og tollyfirvalda fyr- ir tíu dögum, en rannsókn málsins teygir anga sína til bæði Póllands og Hollands. Þriðji maðurinn, sem sat í gæsluvarðhaldi í tengslum við rann- sóknina, er laus úr haldi lögreglu. Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. Samfélög inni í samfélaginu Grímur Grímsson MÞeir stjórna með óttanum »20  Sigurður Sigurgeirsson fjárfestir krafði Reykjavíkurborg um allt að 1,3 milljarða í bætur vegna breytts skipulags á Hlíðarenda. Forsaga málsins er sú að Sigurður keypti tvo af fjórum helstu íbúðar- reitum svæðisins. Reykjavíkurborg heimilaði síðan aukið byggingar- magn á öðrum reit vestan við þá. Fram kom í bréfi lögmanns Sig- urðar að sú breyting myndi rýra verðmæti fyrirhugaðra íbúða á lóð- um hans. Vegna þessa færi hann fram á allt að 1.330 milljónir í bætur frá borginni. Við bótakröfuna var miðað við að meðalverð íbúða á Hlíð- arenda verði 580 þúsund á fermetra. Fjárfestir krafði borgina um milljarða Þær Kolfinna og Hugrún Edda skoða jólapakkana í jólakjólunum sínum og bíða spenntar eftir aðfangadagskvöldi á morgun. Senn rennur stóri dagur- inn upp. Prúðbúin börn og jólasveinar hafa sett svip sinn á aðventuna um allt land og má sjá myndir af því í Morgunblaðinu í dag. »26-27 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Börnin bíða spennt Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Sem leikari veit Hera upp á hár hvernig á að skapa leikflutning. Hún er alltaf sönn, alltaf ekta og fyrst og fremst, hún er ákaflega hugrökk. Það er enginn efi í mínum huga að hennar bíði glæstur frami,“ segir leikstjórinn og framleiðandinn Peter Jackson um leikkonuna Heru Hilmarsdóttur. Hera Hilmarsdóttir leikur aðal- hlutverk í næstu stórmynd Jacksons, Mortal Engines, sem verður jóla- myndin á næsta ári en fyrr í vikunni birtist fyrsta stiklan úr myndinni. Jackson er maðurinn á bak við stór- virki á borð við Lord of the Rings og Hobbitann og því ljóst að íslenskur leikari hefur ekki áður verið ráðinn í jafnstórt hlutverk í jafnstórri bíómynd og Hera. Í viðtali við Sunnudagsblað Morg- unblaðsins segir Hera frá tökunum á myndinni, sem fóru fram í sumar, hvernig var að vinna með Jackson og fjölskyldu hans og hvað þetta er strax farið að hafa mikil áhrif á feril hennar en hún hefur þurft að bæta við um- boðsmannateymi sitt til að koma til móts við fyrirspurnir. „Ég var svolítið lengi að átta mig á þessu, hvað þetta væri stórt. Svo gerð- ist þetta svo hratt,“ segir Hera. „Þetta gætu orðið nokkrar kvikmyndir ef vel gengur, en byrjum á einni.“ Alveg í skýjunum með Heru  Hera Hilmarsdóttir leikur aðalhlutverkið í næstu stórmynd Peters Jacksons  Enginn íslenskur leikari hefur fengið álíka samning í kvikmyndaheiminum Morgunblaðið/Hari Hera Peter Jackson segist heppinn að hafa fengið Heru í verkefni sitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.