Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 ur alveg eins og áður. Ég elska þig og mun sakna þín og afa alla ævi. Nína Dagbjört Helgadóttir. Í dag kveð ég ekki aðeins hana ömmu mína Esther Garðarsdótt- ur heldur einnig minn besta vin. Sannir vinir stíga skrefinu lengra í væntumþykju og kærleika. Þeir eru ávallt til staðar og veita manni ómetanlegan stuðning. Þannig var amma fyrir mér. Þeg- ar ég horfi til baka koma upp ótal minningar sem við áttum saman, sumarbústaðaferðirnar upp í Bir- kilund, stundirnar í Prestbakk- anum og sögurnar frá Fáskrúðs- firði, já, þær eru óteljandi. Amma hefur svo sannarlega haft mikil áhrif á mig og uppeldi mitt, fyrir það er ég ævinlega þakklátur. Elsku amma, þakka þér fyrir allar þær frábæru stundir sem við áttum saman. Takk fyrir að þykja svona vænt um mig, þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði. Georg Helgi Hjartarson. Allt frá fyrsta degi tók Esther mér opnum örmum, en í tæpan áratug hefur hún verið mér sem eins konar auka amma. Hún var alltaf áhugasöm (og áhyggjufull) um það sem maður var að gera og var dugleg að vera í sambandi. Hún var svo sannarlega um- hyggjan holdi klædd, ég hugsa að enginn hafi nokkurn tímann sýnt því jafn mikinn áhuga hvort ég væri ekki að borða nóg eða væri ekki örugglega með trefil um hálsinn. Hún var stórkostlegur karakt- er sem ég mun seint gleyma, hennar verður sárt saknað af mörgum. Elsku Esther, hvíl í friði – við sjáumst síðar. Jóna Margrét Guðmundsdóttir. Mér er ljúft og skylt að minnast hans Villa frænda míns á þessum fæðingardegi hans. Villi var ekki einhver frændi úti í bæ sem ég þekkti lítið, held- ur þvert á móti var hann sá frændi sem fylgt hafði mér allt frá fyrstu tíð. Um tveggja ára skeið bjuggu fjölskyldur okkar saman á Kárastígnum. Villi fylgdist með hvernig gengi hjá mér og fjölskyldu minni. Á ýms- um tímamótum voru gefnar gjaf- ir og langar mig í því sambandi að segja frá því þegar þau hjónin komu keyrandi til mín í vinnuna, hann þá kominn á níræðisaldur, með gjöf handa nýfæddu barna- barni mínu. Þá voru aðeins sex vikur frá andláti móður minnar en samband þeirra hafði alltaf verið náið. Villi var glaðlyndur og gaman- samur og gat gjarnan gert grín að samferðamönnum sínum án þess að það skaðaði neinn. Þrátt fyrir þennan háa aldur var minnið í lagi og gaman að geta rætt við hann um ýmis mál. Víglundur Sigurjónsson ✝ Víglundur Sig-urjónsson fæddist 23. desem- ber 1920. Hann andaðist 8. október 2017. Útför Víglundar fór fram 19. októ- ber 2017. Sérstaklega hafði hann gaman af þeg- ar við Óli kíktum í heimsókn og gátum sagt honum ein- hverjar fréttir úr Dölunum. Í hjarta sínu var hann alltaf Dalamaður. Heldur var farið að halla á heilsufar- ið undir það síðasta og gerði hann sér grein fyrir að hugsanlega ætti hann ekki langt eftir. Í minni síð- ustu heimsókn til hans sem ég fór ásamt systur minni hafði hann á orði, að líklega næði hann ekki því að verða 97 ára. Hann reyndist sannspár og fjórum dögum síðar var hann all- ur. Þetta var því kveðjustund okkar systra og erum við þakk- látar fyrir það. Í Kirkjuskógarfjölskyldunni sem alltaf var náin hafa nú orðið kaflaskil þegar sá yngsti og síð- asti hefur kvatt. Minningarnar eru margar og góðar. Á þessari stundu er hugur minn hjá Rögnu sem lifir nú jólin í hárri elli án lífsförunautar síns til 67 ára. Hennar stóri afkom- endahópur mun létta henni byrð- ina. Innilegar samúðarkveðjur til allra í fjölskyldunni frá mér og minni fjölskyldu. Blessuð sé minning elsku Villa míns með þakklæti fyrir allt. Svanhildur Hilmarsdóttir. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Dansk julegudstjeneste i Domkirken søndag den 24. december kl. 15.00 ved pastor Þórhallur Heimisson. Alle velkomne. Danmarks ambassade. Við þökkum auðsýnda samúð við fráfall systur okkar, RÚNU BÍNU SIGTRYGGSDÓTTUR, og þeim sem sýndu henni vináttu og tryggð. Þakkir til starfsfólks heimahlynningar og líknardeildar Landspítalans fyrir einstaka umhyggju og hlýju. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Anna Ingibjörg Sigtryggsdóttir Unnur Sigtryggsdóttir Jakobína Sigtryggsdóttir Jóhanna Sigtryggsdóttir Sigríður SigtryggsdóttirFlatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför okkar ástkæru HALLDÓRU HJALTADÓTTUR Seljavöllum. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins á Höfn fyrir góða umönnun. Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð. Anna, Valgerður, Hjalti, Eiríkur og fjölskyldur Elskulegur faðir minn og afi, WALTER EHRAT, bóndi og leiðsögumaður, Hallfríðarstöðum, varð bráðkvaddur á heimili sínu um síðastliðna helgi. Útför fer fram í Möðruvallakirkju 29. desember klukkan 13.30. Walter H. Ehrat, Tara Mist Ehrat, Tristan Ehrat, Tinni Ehrat, Tony Ehrat, Jenny Maydee Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar hjartkærs eiginmanns míns, TÓMASAR ÞORSTEINS SIGURÐSSONAR, fv. forstöðumanns vitasviðs Siglingastofnunar. Jóla- og nýárskveðjur. Sigrún Sigurbergsdóttir Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, PEDRO ÓLAFSSON RIBA læknir, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 17. desember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 27. desember klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Jósep Pétursson Riba Hrafndís Tekla Pétursd. Riba Guðný Maja Riba Karl Pétursson Riba Rannveig Lilja Riba Mohammed Zahawi Auðunn Hermannsson Óskar Barkarsson Una Dögg Guðmundsdóttir Jón Guðbjörn Ragnarsson og barnabörn Við þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, vinar, afa og langafa, ÞRASTAR SIGTRYGGSSONAR skipherra. Sérstakar þakkir til starfsfólks B6 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir einstaklega góða umönnun Þrastar í veikindum hans. Sigtryggur Hjalti Þrastarson Bjarnheiður D. Þrastardóttir Sigurjón Þór Árnason Margrét Hrönn Þrastardóttir Sigurður Hauksson Kolbrún Þrastardóttir Magnús Pétursson Hallfríður Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, BALDURS RAGNARSSONAR rafverktaka. Þorgerður Fossdal Thelma Baldursdóttir Friðbjörn Benediktsson Berglind Baldursdóttir Eiður Magnússon barnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum sem hafa stutt okkur og auðsýnt samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ÞORSTEINSSONAR læknis Hvassaleiti 73. Sigríður Jónsdóttir Ólafur Thoroddsen Eiríkur Jónsson Petrína Sæunn Úlfarsdóttir Margrét Jónsdóttir Aðalsteinn Þorgeirsson Ingunn Jónsdóttir Þórunn Jónsdóttir Enes Cogic barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JAKOBÍNA G. FINNBOGADÓTTIR, Bíbí, Aragötu 4, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítalans 8. desember. Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 29. desember klukkan 13. Þeim sem vilja sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Nanna D. Björnsdóttir Andrew Hunter-Arundell Ólöf G. Björnsdóttir Magnús Árnason Sveinbjörn Egill Björnsson Helga Lilja Björnsdóttir Guðrún Þ. Björnsdóttir Þorsteinn Barðason Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGUNN JÓNSDÓTTIR, Hlíf 1, Ísafirði, áður Gili, Dýrafirði, lést laugardaginn 16. desember á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Útförin fer fram frá Mýrakirkju laugardaginn 30. desember klukkan 14. Kristín Berglind Oddsdóttir Valgerður Jóna Oddsdóttir Sævar Ari Finnbogason Ingunn Rós Kristjánsdóttir Guðjón Andri Kristjánsson Oddrún Eva Kristjánsdóttir Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir Oddur Örn Sævarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.