Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 41
DÆGRADVÖL 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu ekki aðra fara í taugarnar á þér þótt þeir vilji tjá þér vangaveltur sínar um daginn og veginn. Þú ferð ekki alltaf hefðbundnar leiðir og stýrir lífi þínu meira af innsæi. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur þurft að einbeita þér mjög að ákveðnu verkefni sem þú sérð nú fyrir endann á. Öll él birtir upp um síðir, á því er enginn vafi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Jafnvel þótt þú hafir rétt í þessu komið reglu á litla heiminn þinn verðurðu að vera opin/n fyrr breytingum. Það þarf sterk bein til að bera góða daga. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú nýtur þess að vera með öðru fólki í dag. Félagslíf þitt stendur í miklum blóma um þessar mundir. Njóttu þess. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ættir að setjast niður og fara yfir skuldastöðu þína. Mundu að það er ekki til neins að hafa betur í rökræðum ef það kostar vinslit. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta er góður dagur til að velta fyr- ir sér hvernig eigi að bæta samskiptin við aðra. Krafturinn liggur í loftinu, notfærðu þér hann. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að leysa fjárhagslega flækju sem upp hefur komið. Vertu því ekkert að berja höfðinu við steininn. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Mundu að þú getur ekki alltaf gert svo öllum líki. Mundu að málamiðlun þarf til þegar tveir eða fleiri vinna saman. Iðjuleysi er rót alls ills. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ættir að líta yfir farinn veg í dag og velta því fyrir þér hvar þú viljir verða eftir tíu ár. Segðu frá ef þú ert óánægð/ur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ástin hreinlega eltir þig á rönd- um! Ekki vantar vini þá vel gengur, þú verð- ur var/vör við það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur þitt á hreinu og þarft því ekki að hafa áhyggjur af því þótt vinnu- félagarnir sæki að þér. Tilhneiging þín til þess að eyða of miklu fé má ekki bera skynsemina ofurliði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú væri kjörið að gera umbætur heimafyrir eða í vinnunni. Bækur hafa alltaf heillað þig, farðu tímanlega á bókasafnið til að ná þér í jólabækurnar. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Einatt þykir besta björg. Bráð í skapi kellíng örg. Rennur hún um götur greitt. Gleður svona yfirleitt. Gísli A. Bjarnason svarar: Reyður í fjöru rak út hungur. Reiðilestur kerlu er þungur. Bifreið eftir brautu ekur. bætist skap er reiðsprett tekur. Guðrún Bjarndóttir á þessa lausn: Hugnaðist villtum heimreið greið, þó heima biði kerling reið, því rennireið hún enga á og öðrum reið. Þá pening sá. Þannig leysir Harpa á Hjarð- arfelli gátuna: Reyðarhvalinn rak í strand. Reið varð kerling ær. Bifreiðarnar bruna um land. Blakk reið yngismær. Þessi er skýring Guðmundar: Silungsreyð er besta björg. Bálreið verður kellíng mörg. Bifreið fer um götur greitt. Gleði reið fær mörgum veitt. Þá er limran: Tvo graðfola átti Gissur, á Grænhól og þrjátíu hryssur, í reiðbuxum fínum á reiðskjótum sínum hann reið út um allar trissur. Síðan kemur ný gáta eftir Guð- mund: Gátu hef ég saman sett, sem ég læt nú flakka, flestir hana ráða rétt, reikna ég með, því hún er létt: Á hjálpræði bendir og huggar í neyð. Í holu býr fuglinn sá arna. Hjá veginum stendur og vísar oss leið. Hann vera má hálsliður gjarna. Að lokum er kveðja frá Helga R. Einarssyni. Hann óskar öllum les- endum Vísnahornsins gleðilegra jóla og vonar að Hagyrðingar hlakki til, hrútar geri ánum skil, óskir rætist, allir kætist, eignist bók og taki í spil. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Reið og reyð er sitthvað Í klípu „ÞETTA ER FARIÐ AÐ VERSNA. ÞÚ VERÐUR AÐ SNYRTA Á ÞÉR AUGABRÚNINA eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÁTTU EINHVER FÖT AFLÖGU?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... Þegar þú ert það sem ég vil fá í jólagjöf BÓKAHILLUR ÞAÐ ERU JÓL EINI DAGUR ÁRSINS SEM ÞAÐ ER Í LAGI AÐ TÆTA GRETTIR SÉRÐU EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA ALDREI LÆRT AÐ LESA JÁ ÉG VILDI AÐ ÞÚ GÆTIR HJÁLPAÐ MÉR MEÐ ÞESSAR LEIÐBEININGAR EN EKKI Í DAG Annað kvöld kemur í ljós hvernigtil tókst með gjafainnkaupin en vonandi verður niðurstaðan sú að gjafirnar gleðji viðtakendur. Það er nú einu sinni tilgangurinn með þessu öllu saman. Jólagjafir eiga ekki að vera kvöð heldur á að vera gaman að gefa og þiggja. x x x Stundum tekst vel til en í önnurskipti ekki. Víkverji veit ekki til þess að þetta hafi verið rannsakað hérlendis en samkvæmt Finder.com eyða Bandaríkjamenn um þúsund milljörðum króna eða um 7.500 kr. á mann í gjafir sem viðtakandinn hef- ur ekki áhuga á. x x x Hagfræðingurinn Joel Waldfogel,sem er prófessor við Háskólann í Minnesota, segir að það að gefa gjafir sé hreint ekki skilvirk leið til að nota peninga. „Við erum að giska á hvað annað fólk vill og hvað það hefur smekk fyrir,“ sagði Waldfogel í samtali við USA Today en hann er höfundur bókarinnar Scroo- genomics: Why You Shouldn’t Buy Presents for the Holidays. „Ég fer kannski út og eyði fimm þúsund krónum í gjöf handa þér sem þér finnst einskis virði,“ segir hann og bætir við að viðtakandinn vanmeti oftast verðmæti gjafarinnar um 18%. Ef það er ekki hægt að skila gjöfinni þá mun hún safna ryki inni í skáp eða það sem verra er, enda í landfyllingu einhvers staðar. x x x Víkverji er ekki alveg svona svart-sýnn og finnst oft heppnast að gefa gjafir sem nýtast vel. Líka er mikilvægt að vera vakandi allt árið fyrir hugmyndum og punkta þær niður jafnóðum. Þannig verður gjöf- in ígrundaðari og líklegri til að verða notuð. Gjafir sem eru valdar á síð- ustu stundu hafa tilhneigingu til að vera dýrari því þörfin til að klára innkaupin verður svo sterk. Víkverji hefur misst trúna á gjafabréfum og telur að of stór hluti þeirra nýtist ekki. Fyrir þá sem eiga allt kemur sterkt inn að gefa eitthvað til að bíta eða brenna, góðan mat eða vandað ilmkerti. Það ætti ekki að fara til spillis. Gleðileg jól! vikverji@mbl.is Víkverji Munnur minn er fullur lofgjörðar um þig, af lofsöng um dýrð þína allan daginn. (Sálm. 71:8) Bragð af vináttu • Hágæða gæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.