Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017
VIÐTAL
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Mikið álag hefur verið á starfsfólki mið-
lægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu undanfarið ár. Deildin
og stjórnandi hennar, Grímur Grímsson
yfirlögregluþjónn, voru á allra vörum í jan-
úar þegar ung kona, Birna Brjánsdóttir,
hvarf og fannst síðar látin. Fjölmörg stór
mál hafa komið upp á síðustu misserum og
segir Grímur að miðað við verkefnin þá
hefðu 100 manns nóg að gera. Starfsmenn
miðlægu rannsóknardeildarinnar eru aftur á
móti ekki nema 45.
„Þetta þýðir að við erum að margnýta
alla starfsmenn nema þá helst starfsmenn í
kynferðisbrotum enda lögð áhersla á að sú
vinna verði fyrir sem minnstri truflun,“ seg-
ir Grímur.
Miðlægu rannsóknardeildinni er skipt í
tvennt. Annars vegar kynferðisbrotamál og
hinsvegar allt annað, það er skipulögð
brotastarfsemi, hatursglæpir, auðgunarbrot,
fíkniefnamál, ofbeldisbrot, vændis- og man-
salmál.
Grímur segir að það gefi augaleið að
deildin nái ekki að sinna öllu eins og hún
vildi gera og það sé oft á kostnað frum-
kvæðisvinnu.
Fíkniefnabrotin færast
aftar í forgangsröðinni
„Ljóst er að það verður að fjölga í lög-
reglunni en það verður ekki gert í einu vet-
fangi. Við sjáum að auk frumkvæðisvinnu
þá náum við ekki að sinna fíkniefnamál-
unum eins og við vildum og ekki heldur um-
ferðarmálum sem er mikilvægt að sé sinnt
almennilega. Fíkniefnabrotin hafa því miður
verið að færast aftar í forgangsröðina. Í því
samhengi vil ég minna á að fyrir stuttu
voru tvær ungar stúlkur hætt komnar
vegna efna sem þær urðu sér úti um. Þetta
er kannski vísbending um að það sé búið að
draga of mikið úr rannsóknum á fíkniefna-
brotum,“ segir Grímur.
Alvarleg áhrif á öryggi
Í skýrslu greiningardeildar ríkislög-
reglustjóra sem kom út í október er sjónum
beint að skipulagðri glæpastarfsemi á Ís-
landi. Þar kemur fram að vitað er um að
minnsta kosti tíu hópa sem eru virkir í
skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi.
Grímur segir að eftir því sem skipulögð
glæpastarfsemi eykst og verður alvarlegri
hafi hún meiri áhrif á öryggisstigið í land-
inu. Álag á almenna löggæslu og rannsókn-
ardeildir eykst auk þess sem slíkt kallar á
stóraukna frumkvæðislöggæslu á sviði af-
brotavarna.
Grímur segir að engin spurning sé um að
fleiri brotahópar séu starfandi hér en áður
auk þess sem meiri harka sé í þessum heimi
en áður.
Samfélög inni í samfélaginu
Eitt af því sem fylgir skipulagðri brota-
starfsemi er að það verður til samfélag í
samfélaginu.
„Stundum er það þannig að þegar einhver
brýtur af sér í þessu samfélagi þá er við-
komandi refsað án þess að við, sem eigum
Þeir stjórna með óttanum
Á sama tíma og skipulögð brotastarfsemi eykst þá verða til samfélög inni í samfélaginu þar sem
önnur lögmál ríkja og mönnum refsað fyrir brot sem talin eru brjóta gegn reglum sem þar ríkja
Morgunblaðið/Hari
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Indriði Jónsson Karl Friðrik Schiöth
Óskum viðskiptavinumokka
og landsmönnumöllum
gleðilegrar hátíðar og
þökkum viðskiptin
á árinu!
r