Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Láttu þér ekki vera kalt Sími 555 3100 www.donna.is hitarar og ofnar Olíufylltir ofnar 7 og 9 þilja 1500W og 2000W Keramik hitarar með hringdreifingu á hita Hitablásarar í úrvali Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf LágmúLa 8 · sími 530 2800 Örbylgjuofnar Hvítur / Svartur / Grár / Lítrar: 23 / Vött: 800 Snúningsdiskur 29cm / TDS kerfi: Já, þreföld dreifing á geisla / Ofnhólf: Keramik-emelerað / LED skjár: Já / Stýring: Elektrónisk, snerlar / Styrkstillingar: 6 / Sjálfvirk kerfi : 1, afþýðing SAMS23F301EAS/EE 18.900,- 19.900,- Stál / Lítrar: 23 / Vött: 800 / Með grilli Snúningsdiskur 29cm / TDS kerfi: Já, þreföld dreifing á geisla / Ofnhólf: Keramik-emelerað / LED skjár: Já / Klukka: Já / Stýring: Elektrónisk / Sensorstillingar: Nei SAGE87MC/XEE 27.900,- Litur: Svartur / Lítrar: 28 / Vött: 1000 Snúnigsdiskur 31,8 cm, hægt að slökkva á snúningi / Keramik- emelerað, auðvelt að þrífa / Styrkstillingar: 7 / Sjálfvirk kerfi: 16, afþýðing, gufueldun ofl / Sparar allt að 40% rafmagn á "standby" SAMS28J5255UB/EE umboðsmenn um aLLt Land Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við gatnamót Geirs- götu/Lækjargötu/Kalkofnsvegar hafa tafist umtalsvert og mun þeim ekki ljúka fyrr en næsta vor. Framkvæmdir við gatnamótin hófust í lok mars síðastliðins og var götunum þá lokað að hluta. Til stóð að hleypa umferð á gatnamótin í ágúst en það dróst fram í nóvember. Í samráði við þau fyrirtæki sem vinna að uppbyggingu á svæðinu voru gerðar breytingar á áætlunum til að skapa þeim svigrúm við upp- bygginguna, samkvæmt upplýsing- um Jóns Halldórs Jónassonar, upp- lýsingafulltrúa hjá Reykjavíkur- borg. Gatnamótin áttu að vera fullfrá- gengin núna í desember en frost og kuldi komu í veg fyrir það. Malbikun og frágangi svæðisins verður frestað til næsta vors. Gert er ráð fyrir að frágangi á þessu svæði verði að fullu lokið í apríl 2018. Gatnamótin voru færð nokkra metra í vesturátt. Útbúin voru svokölluð T-gatnamót í stað sveigðrar Geirsgötu eins og áð- ur var. 30 kílómetra hámarkshraði verður á þessum götum. Eftir fram- kvæmdirnar verður Geirsgatan hornrétt á Lækjargötu/Kalkofnsveg. Lóðaþjónustan ehf. átti lægsta til- boð í verkið að upphæð 347,2 millj- ónir króna. Ófrágengið við nýbyggingar Svæðið milli Arnarhóls og ný- bygginga á Hafnartorgi er einnig ófrágengið. Eftir er að ganga frá aksturssvæðinu austan við Hafnar- torgið. Hluti af svæðinu er með bráðabirgðamalbiki og hluti þess er ennþá athafnasvæði byggingarverk- taka. Gert er ráð fyrir að fara í þessa vinnu í sumar og á henni að ljúka haustið 2018. Á Hafnartorgi er verið að byggja sjö hús með verslunum og íbúðum, alls 23.350 fermetrar. Þá er eftir að ganga frá gangstétt norðan við hin nýju hús, þ.e. með- fram Geirsgötu, frá Kolaportinu að Arnarhóli. Gert er ráð fyrir að vinna við frágang fari fram í vor og sumar í samvinnu við byggingaraðila. Loks er ráðgert að hægt verði að fara í frágang á hjólastíg norðan Geirsgötu með vorinu. Frágangur á gangstétt verður unninn í samvinnu við byggingaraðila norðan Geirs- götu. Þær framkvæmdir eru á áætl- un árið 2019. Miklar framkvæmdir Norðan Geirsgötu, þ.e. á lóðinni næst Hörpu, munu rísa 250 her- bergja hótel og fimm byggingar með 90 íbúðum og verslunum. Þá er einn- ig áformað að nýjar höfuðstöðvar Landsbankans rísi á lóðinni. Gríðarmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir við Gömlu höfnina í Reykjavík undanfarin misseri, lík- lega þær mestu í sögu höfuðborgar- innar. Þeim er hvergi nærri lokið.  Tafir hafa orðið á framkvæmdum í miðbænum  Frost og kuldi komu í veg fyrir malbikun Gatnamótin tilbúin næsta vor Gatnamótin Svona munu gatnamót Geirsgötu/Lækjargötu/Kalkofnsvegar líta út þegar framkvæmdum lýkur á næsta ári. Hér er horft frá Arnarhóli. Eliza Reid, forsetafrú, hefur verið tilnefnd sérstakur sendiherra ferðaþjónustu og markmiða sjálf- bærrar þróunar af hálfu Alþjóða ferðamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNWTO. Tilnefningin kemur í framhaldi af heimsókn Taleb Rifai, aðalritara UNWTO, hingað til lands í boði Ferðamálastofu í október sl. Tilkynnt var um tilnefninguna á annarri heimsráðstefnu UNWTO og UNESCO um ferðaþjónustu og menningu sem haldin var nýverið í Muscat, höfuðborg Ómans. Flutti Eliza ávarp á ráðstefnunni. Um nýja stöðu er að ræða en verkefni sérstakra sendiherra ferðaþjón- ustu og sjálfbærrar þróunar var komið á fót af UNWTO í tilefni af alþjóðlegu ári ferðaþjónustu og sjálfbærrar þróunar í ár, 2017. Markmiðið er að tala fyrir fram- lagi ferðaþjónustu til sjálfbærrar þróunar og hvetja til þess að ferðaþjónusta og markmið sjálf- bærrar þróunar verði innleidd að fullu í áætlanir þjóðlanda og svæða sem og áætlanir á heims- vísu. Sérstakur sendi- herra ferðaþjónustu Sendiherra Eliza Reid forsetafrú tekur við tilnefningunni á ráðstefnu SÞ.  Tilnefnd af Alþjóða ferðamálastofnun SÞ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.