Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Kæli- og frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 Plasti blásið frá (væntanlegt) Möguleg sérsöfnun frá heimilum Grenndargámar Metan Jarðvegsbætir Gas- og jarðefnastöð (2018) Þurrkað Ruslið sigtað Prófað til gasgerðar Eldsneyti (dísilolía) Eldsneyti (brenni) Endurvinnsla (plast) Endurvinnslustöðvar Sorpu Endurvinnsluleiðir heimilisúrgangs Pappírstunna Orkutunna Málmar flokkaðir frá Pokaopnari Framtíðin – gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi Gas- og jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi mun gera það mögulegt að endurnýta um 95% af öllum úrgangi frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu Teikning: Sorpa Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Útlit er fyrir að meira berist af úr- gangi til SORPU bs. á þessu ári held- ur en nokkru sinni áður. Að sögn Björns Hall- dórssonar, fram- kvæmdastjóra, endurspeglar „sorpvísitalan“ ástandið í þjóð- félaginu. „Vissulega varð stopp í þjóðfélag- inu á árunum 2008 og 2009 og kannski er orðin upp- söfnuð þörf hjá fóki að skipta út hús- gögnum eða raftækjum. Ég held samt að aukin neysla með aukinni hagsæld endurspeglist í því sem við sjáum hjá SORPU og sé einn mæli- kvarðinn á velmegun í þjóðfélaginu,“ segir Björn. Vendipunktur árið 2014 Árið 2016 barst SORPU um 15% meira magn af úrgangi en árið á und- an og hefur sú þróun haldið áfram í öllum flokkum úrgangs í ár, þó svo að tölur liggi eðlilega ekki fyrir. Að sögn Björns er aukningin hjá SORPU í ár eins og í fyrra mest í flokkum sem hægt er að tengja byggingarstarf- semi, hvort sem um er að ræða gróf- ari úrgang, eins og timbur eða steypubrot, eða húsgögn og raftæki. Árið 2014 var ákveðinn vendi- punktur hvað magn úrgangs varðar. Þá tók það að aukast á ný eftir að hafa dregist saman um 40% árið 2009 í kjölfar efnahagshrunsins. Yfir 50 þúsund tonn á endurvinnslustöðvarnar Á endurvinnslustöðvarnar bárust í fyrra um 45 þúsund tonn, en vísbend- ingar eru um að magnið fari yfir 50 þúsund tonn á þessu ári og verði meira en nokkru sinni. Þar til nú var árið 2016 það stærsta í sögu endur- vinnslustöðvanna en þá tóku þær við yfir 45.000 tonnum af úrgangi. Til samanburðar var fyrra met á endurvinnslustöðvunum sett árið 2007 er þangað bárust um 42 þúsund tonn. Árið 2010 bárust á stöðvarnar um 28 þúsund tonn og var það minnsta magn sem þangað hafði bor- ist frá árinu 1999. Endurvinnslustöðvar þjóna fyrst og fremst einstaklingum og heimil- um, en fyrirtækjum er frekar beint í móttökustöð í Gufunesi og urðunar- stöð í Álfsnesi. Björn segir að hafa verði í huga við samanburð á milli ára að síðasta ára- tug hafi fólki fjölgað um fleiri þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Eigi að síður séu vísbendingar um að sorp á hvern íbúa hafi aukist síðustu ár. „Sorpvísitalan“ styrkist  Meira magn hefur borist til SORPU á þessu ári heldur en nokkru sinni áður  Einn mælikvarðinn á velmegun  Mest aukning tengd byggingarstarfsemi Björn H. Halldórsson Útboð er nú í gangi á Evrópska efnahags- svæðinu í gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi. Tilboð verða opnuð í janúar og segist Björn Halldórsson, framkvæmdastjóri SORPU, gera sér vonir um að framkvæmdir geti hafist á miðju næsta ári. Aðspurður segir hann að miðað hafi verið við að stöðin kosti um þrjá milljarða króna með tækjum, búnaði og öðr- um kostnaði. Með tilkomu stöðvarinnar verður hætt að urða heimilisúrgang en í staðinn verða gas- og jarðgerðarefni unnin úr honum. Stefnt er að því að yfir 95% af heimilisúrgangi á sam- lagssvæði SORPU verði endurnýtt þegar stöð- in er komin í gagnið. Mikil breyting verður með nýrri stöð í Álfsnesi Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarfélög og stofnanir þeirra sem eiga aðild að Brú – lífeyrissjóði þurfa að greiða rúma 40 milljarða króna vegna uppgjörs á réttindum sjóðs- félaga í A-deild sjóðsins. Þar af þarf Reykjavíkurborg að greiða nákvæm- lega 15.025.158.187 krónur. Samræming réttinda Í kjölfar breytinga á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins sem ætlað var að samræma lífeyr- isréttindi opinberra starfsmanna við það sem gengur og gerist á almenna vinnumarkaðnum þurfti að breyta A-deild Brúar – lífeyrissjóðs starfs- manna sveitarfélaga. Jafnri réttindaávinnslu var breytt í aldurs- tengda réttindaávinnslu og lífeyris- aldur hækkaður úr 65 í 67 ára aldur. Breytingin tók gildi 1. júní sl. og síð- an hefur verið unnið að trygginga- fræðilegu uppgjöri deildarinnar sem starfað hefur frá árinu 1997. Gerður Guðjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Brúar, segir að upp- gjörið sé gert til að tryggja að sjóð- félagar haldi sínum réttindum. Hún segir að verið sé að ljúka uppgjöri deildarinnar þessa dagana. Sveitar- félögin hafi frest til loka janúarmán- aðar til að greiða sinn hlut. Þeim gefst kostur á að greiða með skulda- bréfum, það er að segja ef þau kjósa svo. Borgin greiðir með peningum Reykjavíkurborg mun gera upp við sjóðinn fyrir áramót og greiða með peningum. Birgir Björn Sigur- jónsson fjármálastjóri segir að skuldbindingar borgarinnar hafi lengi legið fyrir og verið til umfjöll- unar í borgarráði og borgarstjórn. Bókanir á fundum síðustu daga hafi snúist um að heimila greiðslu fjárhæðarinnar. Hann segir að borg- in hafi búið í haginn með því að taka 5 milljarða króna lán fyrr á árinu en afganginn eigi hún í handbæru fé frá rekstri. Sveitarfélög gera upp 40 milljarða lífeyrisskuld  Reykjavíkurborg tekur 15.025.158.187 kr. úr sjóðnum „Það á eftir að koma í ljós hvernig árið í heild hefur verið en sam- kvæmt tölum sem við höfum frá Hagstofunni um veltu bókamark- aðarins fyrstu átta mánuði ársins þá hélt því miður áfram sá sam- dráttur sem verið hefur í sölu bóka á undanförnum árum. Þrátt fyrir það fæ ég ekki betur séð en að jóla- vertíðin hafi gengið vel. Það er erf- itt að átta sig á heildinni en mér sýnist að mest seldu bækur ársins séu að seljast betur en í fyrra. Þannig sjáum við meiri sölu hjá Arnaldi, Gunnari Helgasyni, Ævari, Ragnari og Yrsu,“ segir Egill Örn Jóhannsson, formaður Félags ís- lenskra bókaútgefanda. „Það er ánægjulegt að sjá fyrir þessi jól að þá eru líklega fimm eða sex titlar sem ná vel yfir tíu þúsund eintaka upplag. Fyrir 20-30 árum, þegar ég hóf að fylgjast með útgáf- unni, þá seldust bækur Alistairs MacLean langmest um hver jól. Þá var upplagið tíu þúsund eintök. Nú sjáum við marga titla fara yfir þetta og jafnvel yfir 20 þúsund ein- tök.“ Í nýlegu svari á Vísindavefnum fer Már Jónsson sagnfræðingur yfir upplag prentaðra bóka hér á landi fyrr á öldum. Þar kemur til að mynda í ljós að Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar voru prent- aðir í um sjö þúsund eintökum á níu ára tímabili frá 1832 til 1841. „Árið 1840 voru Íslendingar 57 þúsund talsins og jafngilda 7000 bækur á níu árum því að eitt eintak var prentað á hverja átta íbúa. Það er ævintýralega mikið og sam- svarar hvorki meira né minna en 40 þúsund eintaka upplagi nú, sem vart þekkist,“ skrifar Már. „Á þeim tíma var kannski ekki um aðra afþreyingu að ræða en bóklestur og á flestum bæjum var eitthvert úrval bóka,“ segir Egill sem segir að meðalupplag bóka á Íslandi sé svipað og í nágranna- löndunum, rúmlega þúsund eintök. Upplög geti verið frá 200 eintökum og hátt í þrjátíu þúsund. hdm@mbl.is Bóksalar ánægðir með söluna Morgunblaðið/Eggert Bóksala Vinsælustu bókatitlarnir hafa selst afar vel í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.