Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 21
að koma að því, gerum það. Slíkt ofbeldi er ekki kært til okkar sem er gríðarlega alvar- legt því þegar einhver samfélög inni í sam- félögum eru farin að ráða lögum og lofum þá er eitthvað mikið að. Lögreglan fær stundum ávæning af slík- um málum en því er þannig farið að þessi mál rata mjög sjaldan á borð lögreglu. Menn taka á því sem þeir líta á sem brot og refsa viðkomandi. Þeir stjórna með óttanum og þeir sem er refsað óttast frekari refs- ingar og það hvarflar ekki að þeim að láta lögreglu vita, segir Grímur sem hefur starf- að í lögreglunni í þrjá áratugi. Ágætt dæmi um breytinguna sem orðið hefur á starfi lögreglunnar undanfarna ára- tugi er klæðaburður lögreglumanna. „Þegar ég var að byrja í lögreglunni voru lögreglumenn klæddir jakkafötum. Þau eru í dag kölluð hátíðarbúningur. Allir lögreglu- menn sem starfa á vettvangi eru klæddir vestum (skotheldum) og við höfum þurft að vopna menn sem er eitthvað sem við þurft- um aldrei hér áður fyrr. Ég tek samt fram að sérsveitin er alltaf fyrsti kostur þegar fara þarf gegn mönnum sem grunur leikur á að séu vopnaðir. Vopn eru einnig orðin al- gengari en áður, sérstaklega hnífar og þess vegna þurfa lögreglumenn að fara mjög varlega. Á sama tíma hefur neysla vímuefna aukist og hömluleysi fylgir því enda lítil skynsemi í höfði manna sem neyta harðra fíkniefna,“ segir Grímur. Samstarfið við Europol mikilvægt Grímur færir sig um set í starfi 1. febr- úar og tekur til starfa hjá Europol og tekur við sem tengslafulltrúi Íslands þar 1. apríl þegar Karl Steinar Valsson snýr aftur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Europol, sem er ein af stofnunum Evr- ópusambandsins, er með höfuðstöðvar í Haag í Hollandi og hefur Ísland verið með samning um að eiga þar einn tengslafulltrúa frá árinu 2007. Grímur segir samstarfið mikilvægt fyrir lögregluna á Íslandi og öflugt enda flestar þjóðir Evrópu með tengslafulltrúa hjá Europol. Með auknu samstarfi þvert á landamæri er Europol oft tengiliður í slík- um verkefnum lögreglu auk þess sem stofn- unin rekur gagnagrunna á ýmsum sviðum sem nýtist lögreglu um allan heim. Europol er með öflugar greiningardeildir og kemur meðal annars þannig inn í stærri verkefni þegar fleiri en eitt land koma að. Jafnframt greiðir Europol kostnað sem annars myndi lenda á viðkomandi landi. Þetta hefur komið íslensku lögreglunni vel og aukið erlenda samvinnu. Eitt þeirra mála sem íslenska lögreglan hefur unnið í samstarfi við lögreglu í öðrum ríkjum er stórfellt fíkniefnabrot og pen- ingaþvætti sem lögreglan upplýsti um á blaðamannafundi fyrr í vikunni. Talið er að götuverðmæti fíkniefna sem hald var lagt á sé um 400 milljónir króna en eignirnar hátt í 200 milljónir. Grímur segir að lögreglurannsókn í tengslum við málið hafi hafist í Póllandi ár- ið 2014. Haustið 2016 kom íslenska lög- reglan að málinu, fyrst með fundi ríkislög- reglustjóra hjá Europol. Ríkislögreglustjóri, Haraldur Johannessen, átti frumkvæði að fundinum hjá Europol 2016 en þá eru Pól- verjarnir sem tengjast málinu sestir að á Íslandi. Fylgst hefur verið með þeim síðan þá. Eftir að samstarfið hófst voru haldnir reglulega fundir um málið á vegum Europol en stofnunin fjármagnar flug og annan kostnað sem tengist slíkum fundum. Grímur segir að slíkir fundir geti skipt miklu máli í stað þess að öll samskipti milli lögreglu- embætta fari fram í gegnum síma. Euro- just, sem er sambærileg stofnun og Europol en þar starfa saksóknarar, kom einnig að samstarfinu. Saksóknarar Eurojust veittu lögreglunni til að mynda aðstoð varðandi al- þjóðlegar réttarbeiðnir og fleira. Líkt og fram hefur komið leikur grunur á að kyrrsettu eignirnar og haldlagt lausafé sé allt tilkomið vegna gróða af ólöglegri starfsemi. Um er að ræða íslensk fyrirtæki sem mennirnir áttu hlut í. Jafnframt var lagt hald á lausafé og bíla og eins voru fast- eignir kyrrsettar. „Alþjóðleg brotastarfsemi virðir engin landamæri og þeir sem stýra slíkri starf- semi vita mjög vel að um leið og farið er yfir landamæri þá flækir það málið. Því skiptir það mjög miklu máli fyrir lögregluna að vinna saman, bæði óformlega sem og formlega. Upplýsingar frá okkar litla landi hafa orðið til þess að mál hafa upplýst ann- ars staðar. Til að mynda sala á fölsuðum varningi,“ segir Grímur. Grímur segir að nýja starfið, sem er til þriggja ára með möguleika á framlengingu í eitt ár, leggist mjög vel í hann. „Ég og konan mín förum bara tvö út þar sem börnin eru uppkomin. Okkur líst vel á að flytja til Hollands og starfið er mjög áhugavert. Staðan er rekin af fimm emb- ættum, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ríkislögreglustjóra, tollstjóra, löreglunni á Suðurnesjum og héraðssaksóknara. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Fasteignir Um miðjan janúar hvarf ung stúlka, Birna Brjánsdóttir, sporlaust í miðborginni og fannst hún látin átta dögum síðar, 22. jan- úar. Rannsókn málsins var undir stjórn Gríms og starfssystkina í miðlægu deild- inni og vakti málið gríðarlega athygli bæði innanlands sem utan. Hann segir að morðið á Birnu hafi verið eitt erfiðasta mál sem kom til kasta lögreglunnar á árinu sem er að líða. „Þetta var mjög sérstakt mál og ekki bara á einn veg heldur margan hátt. Bæði að það byrjaði sem mannshvarf, leitað var að ungri konu sem skilaði sér ekki heim og síðan eru þrír í áhöfn grænlensks togara handteknir um borð þegar skipið er á leið til Íslands. Hvarfið og morðið á Birnu greip þjóðina og fólk fylgdist grannt með fjölmiðlum og störfum lögreglu. Grímur segir að fólk hafi samsamað sig við Birnu og margir, ekki síst ungar konur, hugsuðu um eigið öryggi og vildu að það væri tryggt. „Að sjálfsögðu eiga ungar konur, líkt og aðrir, að vera öruggar þegar þær eru ein- ar á ferð. Því er aldrei þannig farið að þeg- ar einhver er beittur ofbeldi að það sé við- komandi að kenna og það á að vera algjörlega á hreinu að fólk á að geta verið eitt á ferð og verið öruggt, jafnvel þó að einhvers áfengis sé neytt. Við vitum alveg að mikið er um að vera í skemmtanalífinu í miðborginni um helgar og þess vegna held ég að margir foreldrar hafi haft áhyggjur af sínum ungmennum í kjölfar hvarfs Birnu. En ég held að í framhaldinu hafi þessi umræða þróast á réttan hátt og ég hef það ekki á tilfinningunni að fólk upplifi sig óöruggara eftir þetta. Við bætt- um við öryggismyndavélum í miðborginni án þess þó að auka endilega viðveru lög- reglu þar. Við erum á öllum tímum sólar- hringsins að reyna að tryggja öruggi borg- aranna eins og hægt er og hvar sem er í umdæminu,“ segir Grímur. Málið sem skók þjóðina Morgunblaðið/Eggert Manndráp Birnu Brjánsdóttur var leitað víða en bæði björgunarsveitir og almenningur tóku þátt í leitinni í janúar. Hún fannst látin átta dögum eftir að hún hvarf. Ítarlegt viðtal er við Grím á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.