Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 LAUS VIÐ VERKI VEGNA SLITGIGTAR FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA „Ég hef verið að kljást við slitgigt í hnjám og mjóbaki í fjölmörg ár og prófað margt, bæði lyf og náttúrulyf . bæklunarlækni r benti mér á að huga betur að lífstílnum og taka innNUTRILENKGOLD Ég fór að hans ráðum og batinn er ótrúlegur. Ef ég sleppi því að taka inn NUTRILENKGOLDþá finn ég verkina koma aftur. Ég mæli heilshugar meðNUTRILENKGOLD.“ Hinrik Ólafsson leikari, kvikmyndagerðarmaður og leiðsögumaður Nutrilenk fyrir liðina Náttúr ulegt fyrir li ðina GOLD NNA Vertu laus við LIÐVERKINA Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu. Suður landsbraut 52 S ími 533 6050 Faxnr. 533 6055 www.hofd i . i s Jólakveðja, starfsfólk Höfða fasteignasölu Fyrir þrjú þúsund árum gerði Davíð kon- ungur Jerúsalem að höfuðborg Ísrael og sonur hans, Salómon konungur reisti fyrsta musterið á Musteris- hæðinni í Jerúsalem sem varð ein glæsileg- asta borg Mið- Austurlanda. Ísraels- menn voru hnepptir í þrældóm í Babylóníu þegar Nebúkadnesar lagði musterið og Jerúsalem í rúst 586 fyrir Krist. Ísraelsmenn sneru aftur til landsins helga og borgar sinnar Jerúsalem og endurreistu Musterið. Alexander mikli lagði Jerúsalem undir sig árið 332 fyrir Krist. Grikkir gerðu musterið að hofi en eftir upp- reisn Ísraelsmanna, 164 fyrir Krist, var ríki Ísraelsmanna endurreist og Musterið helgað Drottni Biblíunnar á ný. Dýrðin stóð ekki lengi því á fyrstu öld fyrir Krist féll Júdea í hendur Rómverjum og þar með Jerúsalem. Svo var á dögum Jesú Krists. Róm- verjar lögðu Musterið í rúst árið 70 eftir að gyðingar risu gegn kúgurum sínum. Hadrían keisari Á annarri öld eftir Krist urðu ör- lagaatburðir í sögu gyðinga í tíð Hadríans 14. keisara Rómarveldis sem ríkti frá 117-138 eftir Krist. Hadrían heimsótti Jerúsalem árið 130 og hóf endurbyggingu Jerúsalem og endurskírði borgina Aelia Capitol- ina í höfuðið á sjálfum sér og hinum rómverskum guðum. Hann endur- reisti Musterið og helgaði rómverska guðinum Júpiter. Musterið var heil- agt í augum gyðinga. Þeir risu aftur upp gegn kúgurum sínum, nú undir forystu Símonar Bar Kokhab á ár- unum 132-136. Bar Kohkhab- uppreisnin var blóðug. Talið er að um 600 þúsund Ísraelar hafi misst lífið og yfir þúsund bæir og þorp rústir einar eftir hildarleikinn. Mannfall í liði Rómverja var einnig gríðarlegt. Rómarkeisari var æfur af reiði í garð þessarar þrjósku þjóðar fyrir botni Miðjarðarhafs og úthýsti gyð- ingum frá landinu helga. Og ekki bara það. Hadrían nefndi landið eftir fornum óvinum Ísraela; Assýringum og Filisteum og kallaði Sýrland- Palestína til þess að nudda salti í sár- in. Þar er komið nafnið Palestína. Tó- rah – helgustu bókum gyðinga Móse- bækurnar – var kastað á eld. Fræðimenn Gyðinga voru líflátnir og þjóðinni bannað að iðka trú sína á Drottin, skapara himins og jarðar. Gyðingar dreifðust á meðal þjóðanna og sættu vægðarlausum ofsóknum í gegn um aldirnar. Býzantíum-ríkið vann borgina snemma á fjórðu öld. Jerúsalem varð kristin borg og kristnar kirkjur reist- ar á borginni helgu. Þegar íslam hóf útþenslu og lagði undir sig þjóðir með sverði tóku múslimar Jerúsalem árið 634 eftir Krist og reistu mosku á Musterishæðinni 691 á rústum Must- eris Salómons. Krossferðir tíundu aldar voru and- svar við útþenslu íslams. Múslimar gengu á land á Íberíuskaga á áttundu öld en voru stöðvaðir við Tours í Frakklandi og hlið Vínarborgar á sextándu öld. Krossfararnir náðu Jerúsalem á sitt vald 1099. Blóð rann í stríðum straumum, sýnagógur voru lagðar í rúst, moskur gerðar að kristnum kirkjum. Jerúsalem varð kristin höfuðborg krossfaranna. Saladín náði Jerúsalem á sitt vald 1187 en Ottóman-heimsveldið tyrk- neska tók borgina fyrir 500 árum. Ot- tómanveldið hrundi í lok fyrri heims- styrjaldar. Bretar tóku Jerúsalem 1917 og sama ár var hin svokallaða Balfour-yfirlýsing samin; loforð um að gyðingar fengju að snúa heim til landsins helga. Á fjórða áratug 20. aldar komust nazistar til valda í Þýskalandi og gyð- ingahatur náði nýjum hæðum í ver- öldinni. Gyðingar voru hundeltir um alla Evrópu. Helförin er mesta skömm mannkyns. Sex milljónir manna biðu bana í út- rýmingarbúðum naz- ista. Gyðingar vonuðust til að geta stofnað eigið ríki laust undan stöð- ugu hatri og ofsóknum og flykktust til landsins helga. Ályktun 181, 29. nóv- ember 1947: Drottinn sagði við Abraham í fyrstu Móse- bók. „Ég mun leiða blessun yfir þá sem blessa þig.“ Ísland lék lykilhlutverk við stofnun Ísraels eftir stríð. Þá var Thor Thors sendiherra Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og talaði fyrir ályktun 181 um stofnun Ísraelsríkis og Palestínu. Abba Eban, utanríkisráðherra Ísraels 1966-1974, sagði við Thor að morgni þessa dags: „Hér getur Ísland, smæsta ríkið í samfélagi þjóðanna, haft úrslitaáhrif á hvort gyðingaþjóðin fær sjálfstæði eður ei ... kannski um alla framtíð.“ Thor svaraði. „Hvernig gat það kom- ið til að litla eyjan okkar ætti eftir að hafa jafn afgerandi áhrif á sögu svo mikillar þjóðar.“ Eban taldi ræðu Thors í New York magnaða og hafa skipt sköpum. Ályktun 181 var samþykkt með 33 at- kvæðum gegn 13. Ísraelskir leiðtogar hafa allar götur síðan lagt mikið upp úr „sérstöku sambandi“ þjóðanna og saga þessi verið kennd í ísraelskum skólum. Arabar ráðast á Ísrael Ísrael var stofnað 14. maí 1948. Arabaríki neituðu að viðurkenna landið og Egyptar, Sýrlendingar og Jórdanir gerðu að kvöldi loftárásir á hið nýstofnaða lýðveldi sem þó stóðst atlögur fjenda sinna. Vopnahléi var lýst í apríl 1948. Jórdanía lagði undir sig hinn svokallaða Vesturbakka og A-Jerúsalem. Á Biblíutíma var Vest- urbakkinn Júdea og Samaría. Árið 1967 hótuðu Arabar að tortíma Ísrael og útrýma gyðingum. Þeir stilltu upp 500 þúsund manna her við landamæri hins litla ríkis með innan við 3 millj- ónir íbúa; 2800 skriðdrekum og 800 orrustuflugvélum. Ísraelar hins veg- ar gersigruðu Araba á sex dögum og tóku Vesturbakkann, A-Jerúsalem, Gaza, Gólanhæðir Sínaí-eyðimörkina og Gólanhæðir. Enn fóru Arabar með stríði gegn Ísrael árið 1973 og enn voru þeir hraktir til baka. Árið 1979 viðurkenndu Egyptar Ísrael og fengu Sínaí; 1987 hófst fyrri Intifada-uppreisn Palestínumanna á Vesturbakkanum; 1988 afsöluðu Jórdanar sér tilkalli til Vesturbakk- ans og A-Jerúsalem; 1993 var Oslóar- samkomulagið undirritað og Yitzak Rabin og Yasser Arafat tókust í hendur í Washington með Bill Clin- ton á milli sín. Vesturbakkinn og Gaza fengu sjálfstjórn. Árið 2000 hafnaði Yasser Arafat sáttartilboði Bill Clinton og gekk út. Clinton lýsti því sem mestu pólitísku vonbrigðum ferils síns. Hryðjuverkasamtökin Hamas komust til valda á Gaza á nýrri öld. Síðan hefur árásum ekki linnt frá Gaza. Sameinuðu þjóðirnar mátu að 4.800 eldflaugum hefði verið skotið á Ísrael frá 8. júlí til 26. ágúst 2014. Um 224 eldflaugur sprungu í ísraelskum borgum og þorpum. Arabar hafa alltaf hafnað friði Helsta ógnin stafar nú af Íran með liðlega 80 milljónir íbúa. Eftir bylt- ingu harðlínuklerkanna árið 1979 hefur ógnarstjórn ríkt í landinu sem heitir því að tortíma Ísrael og útrýma gyðingum. Eldflaugaárás frá Íran færi yfir Vesturbakkann sem gæfi gyðingum nokkrar mínútur til við- bragða. Heimsóknir ísraelskra leiðtoga Hinir stóru leiðtogar Ísraels, Dav- id Ben-Gurion, fyrsti forsætisráð- herra landsins, og utanríkisráðherr- arnir Abba Eban og Golda Meir komu í opinberar heimsóknir til Ís- lands á sjöunda áratugnum. Í ræðu til heiðurs Ben-Gurion í september 1962 á Hótel Borg sagði Ólafs Thors for- sætisráðherra: „Við vitum öll, hvað þjóð okkar, eins og aðrar vestrænar menning- arþjóðir, á að þakka andlegri leiðsögn mikilla trúarleiðtoga Ísraels. Þeir gáfu mannkyninu Biblíuna, trúna á einn Guð, skapara himins og jarðar. Þeir voru fyrstir til að vekja máls á vilja Guðs og skyldum manna við Guð sinn. Vizka þeirra og andlegur styrk- ur urðu mannkyni leiðarljós á leið sinni frá ruglingi og skekkjum fyrri tíma til siðferðilegrar meðvitundar og lagasiðgæðis.“ Ólafur Thors kvað Íslendinga ein- lægt hafa sótt í sögu Gyðinga. End- urheimt landsins helga væri sem „ljóðrænn draumur“. Eftir Oslóar- samkomulag Araba og Ísraels í ágúst 1993 flaug Shimon Peres frá Osló til fundar við Davíð Oddsson forsætis- ráðherra. Þeir hittust á Þingvöllum. Peres kynnti það íslenska forsætis- ráðherranum í trúnaði, fyrstum er- lendum ráðamanni. Íslandsför ísraelska ráðherrans undirstrikaði hið sérstaka samband Íslands og Ísraels. Peres sagði ís- lenskum fjölmiðlum á Þingvöllum að hann væri bjartsýnn á mikil tíðindi. Mótmæli voru uppi við stjórnarráðið og leiðtogar Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grímsson, og Fram- sóknarflokksins, Halldór Ásgríms- son, neituðu að hitta Peres. Utanrík- isráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson fór af landi brott. Árið 1990 hafði Steingrímur Her- mannsson rofið „hið sérstaka sam- band“ þegar hann hitti Yasser Arafat í Túnis. Steingrímur lýsti yfir stuðn- ingi við stefnu Araba í deilum við Ísr- ael. Faðir Steingríms neitaði gyð- ingum um skjól undan ofsóknum nazista. Ekki er langt síðan yfirvöld í Reykjavík settu bann á ísraelskar vörur. Ísrael eina lýðræðisríkið Ísrael er eina lýðræðisríkið fyrir botni Miðjarðarhafs og eina ríkið sem hefur haft Jerúsalem að höfuðborg. Um aldamótin 1900 voru íbúar Jerú- salem 45 þúsund; gyðingar um 30 þúsund, arabar og kristnir 8 þúsund. Íbúar Ísraels eru nú um 8,5 milljónir og Jerúsalem tæp milljón. Um ein og hálf milljón ísraelskra ríkisborgara er af arabísku bergi brotin, játar mú- hameðstrú, á sæti í ríkisstjórn og hæstarétti. Lýðræði viðgengst ekki í hinum íslamska heimi. Jafnrétti þekkist ekki. Réttindi kvenna og samkyn- hneigðra eru fótum troðin. Innan Arababandalagsins eru 22 ríki með 430 milljónir íbúa á liðlega 13 milljón ferkílómetra landsvæði. Veröldinni finnst ofrausn að hin of- sótta þjóð fái að búa á 20 þúsund fer- kílómetra landsvæði á stærð við Ár- nes- og Rangárvallasýslur og endurreisa Jerúsalem sem höfuð- borg. Gyðingar hafa verið ofsóttir í Evrópu um aldir. Gyðingaofsóknir náðu hámarki með helför nazista. Ís- lensk stjórnvöld neituðu þá gyð- ingum um skjól. Nú stendur hvorki Þýskaland né Evrópa með Ísrael. Þjóðarútvarp Íslendinga elur á andúð og hatri í garð gyðinga. Dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár, áratug eftir áratug hefur RÚV flutt fréttir hálfsannleika og lygi um Ísrael og afvegaleitt þjóð- ina. Íslensk stjórnvöld hafa sögulegt tækifæri til að gera hið rétta í málinu og viðurkenna Jerúsalem sem höfuð- borg Ísrael. Íslendingar eru kristin þjóð sem trúir á Guð Biblíunnar skapara himins og jarðar. Af því til- efni er vert að minnast orða Drottins við Abraham: „Ég mun blessa þá sem blessa þig.“ Hið sérstaka samband Íslands og Ísraels Eftir Hall Hallsson » Íslensk stjórnvöld hafa sögulegt tæki- færi til að gera hið rétta í málinu og viðurkenna Jerúsalem sem höfuð- borg Ísraels. Hallur Hallsson Höfundur er fréttamaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.