Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 ✝ Esther Garð-arsdóttir fædd- ist í Miðbæ á Búð- um á Fáskrúðsfirði 29. mars árið 1935. Hún lést 28. nóv- ember 2017 á Hrafnistu í Hafnar- firði. Foreldrar henn- ar voru Guðbjörg Erlín Guðmunds- dóttir, f. 15. júlí 1911 á Búðum Fáskrúðsfirði, d. 24. mars 2003, og Garðar Krist- jánsson, f. 27. ágúst 1909 á Stöðvarfirði, d. 8. febrúar 1964. Systkini Estherar eru Ásta, f. 1931, Guðrún Birna, f. 1932, d. 1933, Kristján, f. 1937, Halldór, f. 1939, Guðrún, f. 1941, Guð- mundur, f. 1946, d. 2009, Garð- ar, f. 1947, og Stefán, f. 1954. Árið 1957 eignaðist Esther dótturina Íris Öldu, með unn- usta sínum Gunnari Gíslasyni rafvirkjameistara, f. 22. janúar 1937, d. 5. ágúst 1969. Esther kvæntist 30. desember 1960 Stefáni Jónssyni lækni, f. 6. mars 1930 á Neðri Svertings- stöðum í Miðfirði, d. 21. júlí 2013. Þau eignuðust tvö börn saman, Pétur Hafstein og Rúnu Ósk, sambýlismaður Einar Óm- ar Eyjólfsson. Esther ólst upp á Fáskrúðs- firði og lauk þar almennri skóla- göngu. Hún fluttist til Reykja- víkur árið 1956 og hóf störf í snyrtivöruversluninni Hygea. Hún fór í Leiklistarskóla Ævars Kvaran, starfaði sem sýningar- stúlka og var fyrirsæta í dag- blöðum. Árið 1959 var hún krýnd ungfrú Reykjavík. Í kjöl- farið fór hún að starfa sem söngkona og vann með lands- þekktum tónlistamönnum, Hauki Morthens, Hljómsveit Árna Elfars og KK. Hún söng í kabarettsýningum Austur- bæjarbíós. Esther útskrifaðist sem ljósmóðir úr LSMÍ 1960 og starfaði á Fæðingarheimili Reykjavíkur frá janúar- september 1961. Árið 1961 flutt- ist Esther með Stefáni og dóttur sinni til Ólafsfjarðar þar sem hann gegndi starfi héraðslæknis í tvö ár. Árið 1966 fluttu þau til Svíþjóðar og bjuggu í sex ár á meðan Stefán var í sérfræði- námi. Esther starfaði sem ljós- móðir í Centrallasarettet Vänersborg í Svíþjóð árið 1968. Við heimkomu árið 1971 hóf Esther störf á Fæðingarheimil- inu. Hún starfaði lengst af á fæðingardeild Landspítalans en vann tímabundið hjúkrunarstarf á Læknastöðinni í Álfheimum 1978-1980. Útför Estherar fór fram í kyrrþey. Gerði. Íris Alda varð kjördóttir Stefáns. 1) Íris Alda f. 20.12. 1957, sam- býlismaður Heimir V. Pálmason. Börn Írisar Öldu og Egils Þórs Ragnarssonar (skildu): a) Pétur Ingi, sambýliskona Elva Rut Antons- dóttir, dætur þeirra eru Amelía Ósk og Ronja Nótt. b)Ingibjörg Ragnheiður, barnsfaðir Þor- steinn Metúsalem Jónsson, son- ur þeirra er Jón Metúsalem. c) Stefanie Esther, barnsfaðir Heiðar Austmann, dóttir þeirra er Emilía Þórunn. d) Atli Fann- ar, sambýliskona Áshildur Guð- mundsdóttir. c) Hugrún Birta. 2) Pétur Hafsteinn f. 26.3. 1962, kvæntur Áslaugu Sigurð- ardóttur. Sonur þeirra er Jón Stefán. Stjúpdóttir Péturs er Heiðrún Gissunn. 3) Rúna Gerð- ur f. 23.11. 1964, kvænt Helga Óskari Víkingssyni, dóttir þeirra er Nína Dagbjört en fyrir átti Rúna soninn Georg Helga Hjartarson. Stjúpdóttir Rúnu er Ingibjörg Í nokkra daga var búið að vera mjög kalt, stillt en sólbjart veður. Það var líkast því sem verið væri að undirbúa komu þína, elsku fal- lega mamma mín. Ég var svo þakklát fyrir að geta setið hjá þér og lýst fyrir þér hve fallegt væri að líta út um gluggann þinn. Það var svo mikill friður í loftinu og meira að segja krummi flaug krunkandi fram hjá glugganum, eins og hann væri kominn til að kveðja. Krummi var uppáhalds- fuglinn þinn, en þú varst mikill fuglavinur. Hann kom bæði oft í Prestbakka en einnig upp í Birki- lund. Alltaf gafstu honum og smáfuglunum að borða. Við upp- lifðum margt saman, elsku mamma, erfiða sem góða tíma. Þegar ég var lítil dáðist ég svo að þér, hvað þú varst falleg og elegant. Ekkert var meira gaman en að sjá þig tilbúna í síðkjól á leið á ball. Þú varst fallegri en allt fallegt. Tónlistin var aldrei langt undan en ég fékk ástina á söng í vöggugjöf. Þér fannst ekki gaman að taka til, en þú reyndir að bæta það upp með músík. Plötu var skellt á fón- inn, ég var látin hjálpa til, og þökk sé þér í dag þá kynntist ég á unga aldri góðri tónlist eins og með Mahaliu Jackson, Harry Belafonte, Frank Sinatra, Tom Jones og Presley. Við hlustuðum á allt nema þungarokk. Þú hafðir ekki smekk fyrir því og kallaðir það eiturlyfjamúsík. Ég og Georg vorum algjörir heimalningar hjá þér og pabba í níu ár. Engin jól eða áramót voru án ykkar og ekki breyttist það neitt eftir að Helgi, Nína og Ingi- björg bættust í líf okkar. Ég man varla eftir neinum jólum eða ára- mótum án ykkar um ævina, nema kannski örfáum. Það var alltaf svo gaman að gefa ykkur að borða og hvað þið dásömuðuð matinn og voruð þakklát. Að taka upp pakka með ykkur var hrein unun og skemmtun. Þessi jól munu þ.a.l. verða okkur öllum mjög erfið. Engin sumur voru án þess að fara í Birkilund, litla Edengarðinn ykkar. Þar höfðum við það notalegt en þið þáðuð samt alltaf að koma með okkur í aðra bústaði sem við leigðum oft að gamni hjá stéttarfélögunum. Já, margar dýrmætar minn- ingar höfum við skapað saman. Eftir andlát pabba misstir þú haldreipið í lífi þínu. Þið voruð svo ólík en hann var þér allt. Þú áttir erfitt með að vera ein og varst svo einmana. Þú áttir við veikindi að stríða, varst oft að brotna, og því fylgdu miklir verk- ir og vanlíðan. Ég kom til þín alla daga, og fylgdi þér hvert fótspor. Sú vegferð gerði okkur nánari og mig að betri manneskju fyrir vik- ið. Þú fluttir á Hrafnistu í fyrra en það fyllti ekki tómarúmið í hjarta þínu. Einmanaleikinn, verkir og veikindi tóku sinn toll, en þú varst samt ótrúlega dugleg og reyndir eftir bestu getu að gera það sem þú elskaðir mest, að mála. Þú varst alltaf svo þakklát að við skyldum koma í heimsókn en enginn dagur leið án þess að við töluðumst saman minnst þrisvar á dag. Ég þurfti á þér að halda líka, elsku mamma mín. Það er stórt tómarúm í hjarta mínu í dag en ég veit að þú ert komin í faðm pabba og þér líður loksins vel. Takk fyrir allt, ég elska ykkur. Megi góður Guð geyma ykkur, minning ykkar mun ávallt lifa í hjarta mínu. Rúna Gerður Stefánsdóttir. Elsku Esther amma, mér þyk- ir svo sárt að hugsa til þess að ég fái aldrei að heyra rödd þína aft- ur og að þú sért farin frá okkur. Þú hringdir í mig á hverjum degi til að spjalla og athuga hvernig ég hefði það. Ég á svo margar góðar minningar með þér. Þú hafðir alltaf áhyggjur, yfirleitt allt of miklar. Þú vildir manni alltaf svo vel, og þér leið best ef þú vissir að allir væru komnir heim, búnir að borða og bara að hafa það kósý. Þú spurðir oft hvort ég væri ekki í ullarsokkum, engin mátti fá kvef. Þú vildir manni alltaf svo vel. Vinkonur mínar héldu mikið upp á þig. Þú varst alveg ótrúleg og varst oft svo fyndin. Ef þú hringdir í mig og einhver vinkona mín var í heimsókn vildirðu alltaf líka fá að spjalla við hana. Þeim þótti þú al- veg frábær. Ég man varla eftir neinum jólum eða gamlárskvöldi án þín eða afa. Alltaf komuð þið með pakkana á aðfangadag og sturtuðuð jólagjöfunum við jóla- tréð. Þið voruð sannkallaðir jóla- sveinar. Þú varst mjög nýtin og gafst oft eitthvað sem þú áttir, t.d. skartgripi. Mér fannst mjög skrýtið að fá þessar gjafir þegar ég var yngri enda smekkurinn ekki alveg sá sami og í dag. En með árunum fór ég að skilja þetta betur og í dag þykir mér þetta ómetanlegt og mun alltaf varð- veita allar þessar gjafir. Þú varst oft að baka í Prestbakkanum, yf- irleitt brúnköku eða lummur. Þú fylgdir sjaldan uppskriftum og það má segja að þú varst enginn stjörnukokkur. Kakóið þitt sló samt alltaf í gegn, það var mitt uppáhald. Ein af bestu minning- um mínum með þér og afa var uppi í bústað, Birkilundi. Ég á eftir að sakna þess að upplifa aldrei framar að sjá þig og afa veifandi viskustykki á veröndinni og fagna okkur sem vorum að koma, og þú hættir ekki fyrr en við vorum komin inná lóðina. Ég man hvað ég flýtti mér að skrúfa niður rúðuna og veifa bara ein- hverju á móti. Ég og afi fórum og settum fánann upp, það var alltaf spennandi. Yfirleitt fórum ég, Georg, afi, mamma og pabbi í langa göngutúra, og stundum til að tína bláber. Það var gaman að tína bláber og koma hlaupandi inn til að sýna þér boxið. Þá var mikið fagnað. Þú vildir sjaldan fara langt frá bústaðnum enda hafðir þú veikst alvarlega árið 2003, svo þegar að við komum til baka varstu yfirleitt búin að stússast eitthvað í eldhúsinu, bakandi lummur eða vöfflur og það var yndislegt. Litli Birkil- undur, kofinn við hliðina, var mikið notaður. Þar vorum ég og Jón Stefán oft í búðarleik. Þá komstu stundum með eitthvað að drekka eða borða en þú vildir aldrei að við værum svöng. Síð- ustu árin þín hafa verið þér erfið, en alltaf heyrði ég í þér alla daga. Ég er svo þakklát að þú komst, þrátt fyrir mikla verki, til að sjá mig syngja á Jólatónleikum Björgvins árið 2015. Þú varst svo stolt af mér og svo ánægð að hafa komið. Þetta var auðvitað flott- asta og stærsta sýning sem þú hafðir nokkurn tímann séð eða upplifað. Núna ertu komin til afa og ég veit að þið fylgist með okk- Esther Garðarsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS HELGASON, lést á Borgarspítalanum sunnudaginn 3. desember. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 27. desember klukkan 13. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Geðverndarfélag Íslands. Helgi Tómasson Anna Sigurmundsdóttir Þór Tómasson Gunnhildur Þórðardóttir Kristinn Tómasson Þorbjörg Jóh. Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR GUNNAR SIGURÐSSON, bifvélavirki frá Ísafirði, lést á heimili sínu í Gautaborg þriðjudaginn 19. desember. Útför hans verður gerð frá Lundby Gamla Kyrka í Gautaborg þriðjudaginn 16. janúar klukkan 14. Britt Sigurðsson Kolbrún Svavarsd. Sörensen Sören Erik Sörensen Sigríður Svavarsd. Sörensen Davíð Arndal Höskuldsson Óttar Rúnar Svavarsson Kristín Norðmann Jónsdóttir Jörgen Hansson Susanne Hansson barnabörn og langafabörn Móðir okkar, LÁRA SÆMUNDSDÓTTIR, lést 8. desember á Droplaugarstöðum. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum starfsfólki Droplaugarstaða góða umönnun. Dýrley Sigurðardóttir Sigríður Gísladóttir Oddur Gíslason Unnur Gísladóttir Gunnar Gíslason Ástkær uppáhaldsfrænka og mágkona, HELGA S. HELGADÓTTIR lífeindafræðingur, Tjarnarbóli 14, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 15. desember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 29. desember klukkan 15. Helgi Björnsson Einar Björnsson Alda Ásgeirsdóttir Björn Ragnar Björnsson Gréta Mjöll Bjarnadóttir Soffía Björnsdóttir Herbert Eiríksson Gunnlaugur Gunnlaugsson Björn Gunnlaugsson Rósa Ásgeirsdóttir Arndís Björnsdóttir Þórhallur Halldórsson Erla Kristjánsdóttir bræðrabarnabörn og bræðrabarnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, GUÐFINNUR GEORG SIGURVINSSON, lést föstudaginn 15. desember, hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 28. desember klukkan 15. Helga Guðfinnsdóttir Pétur Sigurvin Georgsson Sonja Ósk Georgsdóttir Telma Rut Georgsdóttir Hrafnhildur Sigurvinsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýliskona og móðir, SIGURVEIG SIGURÐARDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Otrateigi 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum 20. desember. Björn Ingvarsson Svanhvít Ada Sigrún Sif

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.