Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS 23. desember: Ketkrókur kemur kl. 11 24. desember: Kertasníkir kemur kl. 11 Leitin að jólakettinum er stórskemmtilegur jólaratleikur fyrir alla fjölskylduna Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Sérkenni sveinanna jólasýning á 3. hæð Guðmundur Ingólfsson – Á eigin vegum í Myndasal og á Vegg Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Jólatré úr safneign Sýning í lestrarsal Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Listasafn Íslands sendir bestu jóla- og nýárskveðjur með þakklæti fyrir árið sem er að líða. ANGE LECCIA - LA MER 2.11. - 4.2.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR - Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019 PABLO PICASSO 22.7.2017 - 14.01.2018 Jacqueline með gulan borða (1962) / Jacqueline au ruban jaune (1962) COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018 - Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism ORKA 14.9. - 7.1.2018 Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga. Safn Ásgríms Jónssonar og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar eru lokuð í desember og janúar. Söfnin opna aftur 2. febrúar 2018. „Þetta hefur maður heyrt í gegn- um tíðina og ekki bara hvað mig varðar heldur fleiri konur, það er alltaf verið að meta raddir þeirra út frá því hvort þær séu hvellar eða skrækar, en maður heyrir ekkert hvað varðar raddir karla.“ – Það birtist líka vel í bókinni þar sem vitnað er í það sem sagt var um þig: þú ert alltaf frek og ósam- vinnuþýð, ekki nógu lipur og með yf- irgang, en karlarnir standa fastir á sínu, eru fylgnir sér og ákveðnir hugsjónamenn og svo framvegis. „Þetta var nú á þeim tíma sem það voru fáar konur í pólitík, við vorum bara þrjár þegar ég byrjaði á þingi 1978. Hjá mér voru það velferðar- málin sem ég beitti mér helst fyrir og það var almennt ekki mikill stuðningur við þau svo það var ann- aðhvort að beita hörku eða lyppast niður í baráttunni við karlana. Ég hef nú vitnað til Ingibjargar Sól- rúnar sem sagði að það sé eitur í beinum allra valdamanna ef konur vilja ekki hlýða. Ég varð mjög mikið vör við það á þessum árum, sérstaklega á þessum fyrstu árum, en ég var eina kona í þingflokki Alþýðuflokksins í tíu ár og í ríkisstjórn var ég eina konan í sjö ár.“ Ekki allir karlar, en allar konur – Ungt fólk fær náttúrlega áfall að horfa á myndir frá þeim tíma og átta sig á hvað Alþingi speglaði illa ís- lenskt samfélag. „Það hefur orðið gjörbylting á þessu sviði. Það var náttúrlega aug- ljóst að það varð breyting með kjöri Vigdísar Finnbogadóttur og Kvennalistanum, þannig að það var voða gaman að upplifa þessa bylt- ingu inni á þingi og líka í ýmsum stjórnunarstöðum. Nú erum við svo að ganga í gegnum #metoo- byltinguna.“ – Það er merkilegt að þú nefnir hana – iðulega hefur það verið við- kvæðið hjá körlum þegar kvartað er yfir kynferðislegri áreitni: það eru nú ekki allir karlar sem áreita. Já, það er vissulega rétt, það eru ekki allir karlar, en það eru allar konur – allar konur eiga einhverja sögu um áreitni, misalvarlega en áreitni samt. „Með #metoo er stigið mjög stórt skref í jafnréttisbaráttunni og við sjáum það til dæmis niðri á þingi að þar er verið að taka þessi mál mjög föstum tökum.“ – Oft hafa menn sagt að það séu svo fáar konur í stjórnmálum vegna þess að þær hafi ekki áhuga á þannig starfi en sýnir #metoo-byltingin ekki hvers vegna konur hafa meðal annars hrökklast frá pólitísku starfi? „Jú, ég held að það megi alveg örugglega segja það og líka vinnu- brögðin hvernig þau eru niðri á þingi og hvað þingmönnum er liðið. Mér finnst mjög sérkennilegt, og í raun áhyggjuefni, að stjórnvöld virðast ekkert hafa lært af hruninu. Mér finnst að við séum frekar að fara skref aftur á bak en áfram og sið- ferðisbrestir og leyndarhyggja ekki vera á undanhaldi eins og kom í ljós í uppljóstrunum um skattaskjól og Panamaskjölin. Mér finnst að heið- arleiki sé á undanhaldi, að það sé sið- rof á milli þjóðar og þings og ég held að það fæli konur líka frá því að taka þátt í stjórnmálum.“ Jafnréttismálin eru mál beggja kynja – Eitt af baráttumálum þínum sem rakin eru í bókinni er það sem kallað var jákvæð mismunun og rætt eins og það væri verið að hjálpa kon- um. Fyrir mér hefur þetta alltaf ver- ið spurning um að með jákvæðri mismunun sé verið að hjálpa körl- um, að koma í veg fyrir að karlar lendi í störfum sem þeir ráða ekki við. „Já, það má segja það, en það má líka segja það að jafnréttismálin og jafnrétti kynjanna, bæði í stöðuveit- ingum og í launum, séu mál beggja kynja. Þetta mál sem þú ert að vísa í var að ef um stöðu var að ræða þar Fannst ég eiga ýmis- legt eftir óuppgert  Jóhanna Sigurðardóttir segir að erfitt hafi verið að segja ævisögu sína, en hún hafi svo fundið fyrir ákveðnum létti VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Minn tími heitir ævisaga Jóhönnu Sigurðardóttur sem Páll Valsson rit- ar og kom út í haust. Í bókinni er rakin saga Jóhönnu allt frá bernsku og fram til þess að hún lætur af störfum sem forsætisráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna eftir hrun. Þó að til sé grúi viðtala við stjórn- málamanninn Jóhönnu Sigurðar- dóttur hefur hún ekki hleypt fjöl- miðlum of nálægt þér í gegnum árin og hún segir að sér hafi þótt svolítið erfitt að opna sig fyrir Páli „en svo þegar við vorum búin að tala saman fann ég fyrir ákveðnum létti að tala um þetta og margt sem var mjög erfitt. Mér fannst það líka svolítið erfitt á köflum að rifja þetta upp en ég ákvað að fallast á að það yrði skrifuð um mig ævisaga, enda fannst mér ég eiga ýmislegt eftir óuppgert í pólitíkinni. Ég þurfti að loka betur ákveðnum köflum sem mér fannst ég ekki hafa komið nægilega skýrt til skila, bæði ýmsu í forsætisráð- herratíð minni og líka í stjórnmál- unum áður. Eins og þessi barátta sem ég háði við marga karla í póli- tíkinni og af hverju ég var að berjast framgangi ýmissa mála og af hverju það var svo mikilvægt að ná því fram. Ég held að það sé öruggt að ég hefði ekki verið svo lengi í pólitík ef ég hefði bara verið að lufsast með, eins og maður segir, og ekki náð fram þeim málum sem ég var að berjast fyrir í kosningabaráttunni.“ Konur sem vilja ekki hlýða – Í bókinni Women & Power fjallar Mary Beard, prófessor í klassískum fræðum við Cambridge- háskóla, um það hvernig konum hef- ur verið haldið utan við samtal þjóð- arinnar með því að amast sífellt við því hversu raddir þeirra séu óþægi- legar, hvellar eða skerandi. Vefurinn Metacritic, sem tekur sam- an gagnrýni ýmissa fjölmiðla og þá einkum bandarískra og breskra, hef- ur birt lista yfir þær tíu kvikmyndir sem oftast eru nefndar meðal þeirra tíu bestu á árinu sem er að líða og er bandaríska kvikmyndin Get Out þar í fyrsta sæti. Listi Metacritic er fenginn með því að fara yfir lista ýmissa miðla yf- ir tíu bestu myndir ársins og gefa einstaka kvikmyndum stig. Kvik- mynd hlýtur þrjú stig fyrir að vera sett í fyrsta sæti, tvö stig fyrir annað sæti og þrjú fyrir þriðja sæti eða neðri sæti. Samkvæmt þeirri stiga- gjöf hlýtur Get Out flest stig en hún þykir forvitnileg blanda spennu-, gaman- og hryllingsmyndar og ádeila á kynþáttafordóma í Banda- ríkjunum. Í öðru sæti á þessum lista Meta- critic er kvikmyndin Lady Bird og í því þriðja Call Me By Your Name en hvorug þeirra hefur verið sýnd hér á landi. Það sama á við um kvikmynd- ina í fjórða sæti, Florida, en í fimmta sæti er kvikmyndin Dunkirk sem sýnd var á Íslandi í sumar og hlaut, líkt og Get Out, jákvæða gagnrýni í Morgunblaðinu. Lista Metacritic má finna á slóðinni metacritic.com/ feature/film-critics-list-the-top-10- movies-of-2017. Óvænt Lítið fór fyrir kvikmyndinni Get Out í fyrstu en gagnrýnendur voru hrifnir og nefna hana margir hverjir sem bestu kvikmynd ársins 2017. Get Out efst á lista yfir bestu kvikmyndir ársins » Jón Jónsson hélt sína árlegu jólatónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði í gærkvöldi.Auðvitað sveif jólaandinn og kærleikurinn yfir vötnum en lagabálkurinn sam- anstóð þó að mestu af lögum úr smiðju Jóns. Sem fyrr naut Jón fulltingis hljóm- sveitar sinnar, blásara og bakradda og strengjakvartetts í völdum lögum, þeirra á meðal laginu „Þegar ég sá þig fyrst“ sem Jón sendi nýverið frá sér. Segir hann það forréttindi að fá að flytja lögin sín í sinni veglegustu mynd árlega, rétt fyrir jólin, og hann sé þakklátur öllum þeim sem mætt hafa á síðustu árum. Jólatónleikar Jóns Jónssonar í Bæjarbíói í gærkvöldi Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.