Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 23.12.2017, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fyrir hver jól koma ávallt útnýjar jólaplötur með lista-mönnum sem hafa nú af- ráðið að láta jólalagaslag standa. Plöturnar eru eins mismunandi og þær eru margar og heimtur voru ekki sérstaklega góðar í ár. Jóla- plata Sia virtist spennandi en er það svo alls ekki, Tom Chaplin (Keane) er með plötu sem virkar lítt og Gwen Stefani er og með plötu og sama sagan þar. Merki- legt mál, því hvað er það sem keyrir þessa hluti farsællega í höfn? Rod Stewart gaf út plötu fyrir fimm árum sem mér leist ekkert á en sú plata hitti hins veg- ar þráðbeint í mark. Nei, ég nýtti tímann þess í stað að kanna anga sem ég var ekki búinn að rannsaka nægilega vel. Tökum t.d. sálartónlistina. Þar hafa menn einnig verið að ná landi og síðan alls ekki. Al Green og Whitney Houston eiga misheppn- aðar tilraunir, Jackson 5 eiga neglu, Stevie Wonder platan er ágæt svona meira og minna. Nýsál- arplötur, eins og Houston-platan, eiga það jafnan sammerkt að vera tilgerðarlegar og sírópshjúpaðar, með endalausum söngslaufum sem senda aulahroll um þig allan. Nefni þó eina eftirminnilega undantekn- ingu, plata Mary J Blige (sem heit- ir að sjálfsögðu A Mary Christ- mas), hún er góð. Svo eru plötur úr þessum ranni sem maður heyrir sjaldan af. Tökum t.d. Christmas with the Miracles, hvar Smokey Robinson stendur í stafni. Hún er frá 1963, fylgir sömu línu og flestar plötur þeirra tíma upp á efnisval o.s.frv. Það er hins vegar skemmti- lega hispurslaus tónn í henni, viss hráleiki og heilnæmt kæruleysi sem býr til töfra. Önnur jólaplata kom svo út 1970, og býr hún yfir svipuðu kynngimagni, en er um leið tíma sinna tákn. Þegar ég var ungur var ég fordómafull pönkrotta og allt sem var ekki á jaðrinum var drasl. Menn eins og Harry Connick Jr. voru útsendarar djöfulsins. Síðan eru liðin mörg ár. Connick hefur áru Sinatra yfir sér en ólst upp í New Orleans. Píanisti, söngvari, leikari og allra handa „sjóbiss“ gaur. Hann hefur gefið út þrjár jólaplötur og allar eru þær frábær- ar. Og enginn talar um það! „Krúnukalla“-vinkill, (Crosby, Nat King, Sinatra), New Orleans- stemning, djass, gamall blús. Þriðja platan, What a Night!, er nokkurs konar hápunktur. Útsetn- ingar eru pældar, hlaðnar og djúp- ar – oft farið í óvæntar sveigjur og beygjur – og útsetningin á „O Come All Ye Faithful“ er beinlínis avant-garde. Já, ég var að segja þetta! Þetta ameríska rennerí á jólalögunum er eitthvað sem er af- ar nálægt okkur, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Langflestir standardarnir voru samdir þar ca. 1930-1940. Jólaplötur Nat King Cole og Bing Crosby holdgera jólin því á margan hátt. Ég held mig t.a.m. sterkt við eina hefð. Hinn 24. desember er það mitt fyrsta verk að setja „White Christmas“ með Bing á fóninn, hækka vel og leyfa laginu að fylla upp í stofuna. And- aktin sem leggst yfir mig á þeirri stundu er rosaleg. Gleðileg jól. » Þegar ég var ung-ur var ég fordóma- full pönkrotta og allt sem var ekki á jaðrinum var drasl. Menn eins og Harry Connick Jr. voru útsendarar djöfulsins. Í þessum síðari pistli veltir höfundur fyrir sér nýrri jólatónlist m.a. en rýnir og í sálar- jólatónlist og Harry Connick Jr. Hvað ertu, jólatónlist? Síðari hluti Lokkandi jól Gwen Stefani. Tveimur sýningum í Hafnarborg lýkur í dag, Japanskri nútímahönn- un 100 og Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla. Japönsk nútímahönnun 100 er farandsýning sem leggur áherslu á hönnun nytja- hluta á árunum 2010-17 og voru hundrað vandaðar hönnunarvörur valdar til sýningar um allan heim. „Á sýningunni er að finna hvers- dagslega gripi sem sýna ekki að- eins fremstu hönnun og nýjustu stefnur í Japan, heldur varpa einn- ig ljósi á líf og áherslur fólks, sem lifir og hrærist í japanskri sam- tímamenningu,“ segir í tilkynn- ingu. Með augum Minksins – Hönnun, ferli, framleiðsla er í Sverrissal en þar er hönnun og þróun ferða- vagnsins Minksins skoðuð allt frá frumskissum yfir í teikningar af lokafrágangi, efnisvali og tækni- legum lausnum. Minkurinn er ís- lensk hönnun og framleiðsla. Sýningum lýkur í Hafnarborg Japanskt Gjallarhorn eftir Shin Azumi. Nokkrar af þekktustu sinfóníu- hljómsveitum Evrópu og Bandaríkj- anna hafa rift samningum við hinn þekkta hljómsveitarstjóra Charles Dutoit, í kjölfar alvarlegra ásaka fjögurra kvenna um að hann hafi áreitt þær kynferðislega. Dutoit, sem er 81 árs gamall Svisslendingur, er aðalstjórnandi The Royal Philharmonic Orchestra í Lundúnum. Í yfirlýsingu frá hljóm- sveitinni segir að hann hafi verið leystur undan öllum samningum um verkefni hjá hljómsveitinni, um ófyrirsjáanlega framtíð. Þá hafa The Boston Symphony Orchestra og San Francisco Symphony einnig rift samningum við Dutoit en hann hefur verið einn af vinsælustu gestastjórnendum hljómsveitanna, og auk þess hafa The New York Philharmonic, Chicago Symphony Orchestra og Cleveland Orchestra lýst yfir að aðrir stjórnendur taki við tónleikum sem Dutoit átti að stjórna á árinu. Þrír óperusöngvarar og einn hljóðfæraleikari hafa lýst því hvern- ig Dutoit hafi á níunda og tíunda áratugnum áreitt þær, meðal annars með því að króa þær af, káfa rudda- lega á þeim, kyssa þær með valdi og þá hafi hann neytt þær til að þukla á sér. Tvær kvennanna koma fram undir nafni en hinar treysta sér ekki til þess þar sem þær óttast að hinn áhrifamikli stjórnandi kunni að reyna að skaða feril þeirra. Dutoit hefur stjórnað öllum helstu sinfóníuhljómsveitunum og við helstu óperuhúsin. Hann hefur tíu sinnum verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og hreppt þau í tvígang. Ásakanir Charles Dutoit á einni hljómplatnanna sem Decca hefur gefið út þar sem hann stjórnar flutningi á sinfónískum verkum. Rifta samningum við Dutoit eftir ásakanir Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 X LED kerti Verð frá 5.990,- Gjöf sem gleður SOMPE ATH: Sýningartíma dagsins í dag má finna inná midi.is eða laugarasbio.is LITLU JÓLIN Í LAUGARÁSBÍÓI á allar myndir allan daginn.* Jólin byrja í Laugarásbíói 750 kr í dag, Þorláksmessu *Nammipoki frá Nóa Síríus ásamt Svala eða kók frá Coca-Cola fylgir öllummiðum á allar sýningar fyrir kl. 19:00 © 2017 STUDIOCANAL S.A.S. All Rights Reserved. #PADDINGTON2/PADDINGTONBEAR FRUMSÝND 12. JANÚAR LÍTILL BJÖRN. STÓR VANDAMÁL. BRENDAN GLEESON JIM BROADBENT PETER CAPALDI JULIE WALTERS HUGH GRANT WITH AND AS THE VOICE OF PADDINGTON BEN WHISHAW HUGH BONNEVILLE SALLY HAWKINS ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.