Morgunblaðið - 23.12.2017, Side 12
Þjálfari Jurgen Klopp, þjálfari Liv-
erpool er í miklum metum hjá bæði
stuðningsmönnum og leikmönnum.
Morgunblaðið/Eggert
Stuðningsmaðurinn Bragi Brynjarsson hefur haldið með Liverpool frá því að hann man eftir sér og hefur ákveðið
að gefa sjálfum sér miða á leik Liverpool gegn Everton í enska bikarnum í jólagjöf.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Maðurinn er markmið ísjálfum sér og það eraldrei eins skýrt ogum jól og áramót.
Ætla mætti að í ekki stærra landi
en Íslandi væru jólahefðir keim-
líkar en meðan sumir nostra allan
aðfangadag við jólasteikina og
taka fram allt sitt fínasta, sækja
aðrir kirkju og enn aðrir eitthvað
allt annað. Bragi Brynjarsson
heldur jólin hátíðleg en hann for-
gangsraðar í þágu fótboltans.
„Engu munaði að fresta þyrfti
jólunum um tæpa tvo tíma en
fyrirhugað var að leikur Liverpool
og Arsenal færi fram klukkan
fjögur á aðfangadag,“ segir Bragi
en hann er formaður Liverpool-
klúbbsins á Íslandi.
„Blessunarlega ákvað enska
knattspyrnusambandið að færa
leikinn. Jólasteikin verður því á
réttum stað á réttum tíma.“
Spurður hvort hann myndi
virkilega fresta jólahaldi meðan á
leik stendur segist hann ekki hika
við það.
„Í fyrra áttum við leik við
Manchester city á gamlársdag og
það þurfti að fresta gamlársboðinu
meðan á leiknum stóð,“ segir hann
en er konan og fjölskyldan sátt við
að leikir séu teknir fram yfir jól
og áramót? „Konan tók mér með
öllum mínum kostum og göllum,
hún vissi hvað hún var að fara út í
með mér,“ segir Bragi og hlær.
Fótbolti hluti af jólum
Allt frá því Bragi man eftir
sér hefur hann fylgst með enska
boltanum og jóla- og áramótaleikir
eru stór hluti af hátíðarhefðinni.
„Þetta er skemmtileg hefð
sem hefur verið hluti af enska
boltanum lengi. Að skjótast á
pöbbinn eða fara á leik með góð-
um vinum í jólafríinu er einstök
upplifun. Jurgen Klopp var einu
sinni spurður að því hvað menn
gerðu yfir jólin í Þýskalandi. Hann
svaraði um hæl að þar borðuðu
menn góðan mat og horfðu á
enska boltann,“ segir Bragi en
Klopp er þjálfari Liverpool en
þjálfaði áður þýska liðið Borussia
Dortmund .
„Þetta er kannski verst fyrir
leikmenn og þjálfara þeirra liða
sem eru að spila en ég vorkenni
ekki mönnum sem fá greiddar
milljónir á mánuði fyrir að spila
fótbolta.“
Annan í jólum mætir Liver-
pool gamla liði Gylfa Sigurðssonar,
Swansea, og ætlar Bragi ekki að
láta sig vanta á Sport þar sem
hann og félagar hans mæta til að
horfa á alla leiki Liverpool.
„Ég sagði konunni að við
þyrftum bara að mæta snemma í
þau jólaboð sem væru annan í jól-
um og fara snemma því leikurinn
byrjar klukkan 17:30.“ Varla er þó
opið á Sport annan í jólum?
„Árni, sem á og rekur staðinn,
hefur alltaf opnað hann fyrir okk-
ur þegar það eru leikir. Hann lok-
ar svo fljótlega þegar leikurinn er
búinn.“
Jólapakkinn í ár
Það þarf ekki að spyrja að því
hvort jólapakkinn sé mjúkur eða
harður í ár, það er augljóslega
miði á leik í pakkanum. Spurn-
ingin er bara hvort það er Anfield
eða Rússland.
„Þegar stórt er spurt. Ég ætl-
aði ekki á EM sumarið 2016 en
þegar Ísland komst í 16. liða úrslit
var ekki annað hægt en að fara út.
Eini leikurinn sem ég fór á var því
Ísland – England og sé ég ekki
eftir því. Stóð þar fremst í stúk-
unni og grét af gleði og ánægju.
Hugsa sér að horfa íslenska lands-
liðið sigra hetjurnar sem maður
hefur horft á og fylgst með í enska
boltanum öll þessi ár,“ segir Bragi
sem hefur velt því vel og lengi fyr-
ir sér hvort farið verði til Rúss-
lands.
„Mér finnst svolítið skrítið að
þurfa að bíða fram í febrúar til að
vita hvort ég fái miða á leik. Ég
ákvað því að jólagjöfin frá mér til
mín í ár væri miði og ferð á leik
Liverpool gegn Everton í enska
deildarbikarnum, sem fer fram
þann 5. janúar nk. Haraldur vinur
minn í BK-kjúklingum er mikill
Everton maður og við ætlum að
fara saman á leikinn þó svo hann
verði í gestastúkunni en ég með
mínum mönnum í Liverpool á
sjálfum leiknum.“
Í liði Everton er að sjálfsögðu
einn af okkar bestu knatt-
spyrnumönnum, Gylfi Þór Sigurðs-
son, en hann spilaði fyrir Breiða-
blik árið 2003, heimalið Braga hér
á Íslandi.
„Ég held alltaf með íslensku
strákunum og liðum þeirra, nema
þegar þeir eru að spila við Liver-
pool. Ég fagna því alla jafna mörk-
um Gylfa en geri undantekningu á
því þegar hann mætir mínum
mönnum í bikarnum á nýju ári.“
Tekur fót-
boltann fram
yfir jólin
Bragi Brynjarsson heldur fast í þá hefð að fylgjast
með enska boltanum um jól og áramót. Frestar hann
frekar jólaboðum og áramótaboðum en að missa af
leik sinna manna í Liverpool.
AFP
Knattspyrna Gylfi Sigurðsson í leik Liverpool og Everton fyrr í þessum
mánuði en liðin mætast aftur þann 5. janúar í enska birkarnum.
AFP
Goðsögn Hinn spræki markaskorari Philippe Coutinhoatch ĺætur öllu jafna
finna fyrir sér en hér er hann í leik Liverpool og Everton.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017
JÓLATVENNA