Morgunblaðið - 23.12.2017, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017
FRÍSKANDI
BRAGÐ OG
FULLT AF
HOLLUSTU
LÝSI MEÐMYNTU- OG SÍTRÓNUBRAGÐI
Lýsi með myntu- og sítrónubragði
er ný vara frá Lýsi sem innheldur
omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA
og er þar að auki auðugt af A-, D-
og E-vítamínum.
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
NÝ
F
E
R
S
K
T
O
M
Y
N
T
U-
OG SÍTRÓN
U
B
R
A
G
Ð
V
E
R
T
Gunnar Birgisson og fjölskylda
færðu hjarta- og lungnaskurðdeild
Landspítalans nýverið að gjöf að-
gerðargleraugu til að sýna mynd-
skeið úr aðgerðum. Gunnar var á
deildinni eftir alvarlegt hjartaáfall
en er á góðum batavegi.
Tækið nýtist bæði skurðteyminu
á deildinni og nemendum í faginu,
sérútbúin aðgerðargleraugu sem
gera kleift að taka upp það sem
skurðlæknirinn sér einn í hjartanu
og streyma því beint til teymis á
skurðstofu eða í kennslustofu.
Gaf hjartadeildinni
aðgerðargleraugu
Gjöf Bjarni Torfason yfirlæknir ásamt
hjónunum Gunnari og Vigdísi Karlsdóttur.
kominnar tillögu að breytingu á
deiliskipulagi á Hlíðarenda“. Sagði
þar að tillagan væri í andstöðu við al-
menna skilmála deiliskipulagsins. „Í
sérstökum skilmálum deiliskipulags-
ins er tiltekið að á lóð A sé gert ráð
fyrir allt að 12.500 fermetra bygg-
ingu á fjórum hæðum … Í breyting-
unni felst að byggingarmagn á lóð-
inni er aukið „til samræmis við lóðir
G og H“ úr 12.500 fermetrum í
17.500 fermetra“.
Bent var á að umbjóðandi Lex
ætti lóð D vestan við lóð A. Hann
hafi „í ljósi nálægðar lóðar D við lóð
A verulegra grenndarhagsmuna að
gæta af fyrirhugaðri breytingu á
deiliskipulagi Hlíðarenda“. Þá væri
rannsókn máls ófullnægjandi með
vísan til stjórnsýslulaga. Engin
rannsókn hefði farið fram á skugga-
varpi vegna fyrirhugaðrar aukn-
ingar á byggingarmagni á reit A.
Byggingarmagn aukið um 40%
„Með tillögu að breytingu á deili-
skipulagi verður byggingarreitur
ofanjarðar á lóð A stækkaður um
94% en um ræðir 40% aukningu á
byggingarmagni … Umbjóðandi
minn byggir á því að breytingin
valdi því að söluverð íbúða á reit D
lækki um 3-7% ef ekki meira. Á reit
D er heimilað að byggja 16.457 fer-
metra íbúðarhúsnæðis og hefur ver-
ið reiknað með að verðmæti hvers
fermetra muni nema um 580.000
krónum. Taki breytingin gildi mun
3% verðmætisrýrnun á söluverði
íbúða því fela í sér 285.000.000 króna
tjón fyrir umbjóðanda minn en verði
7% lækkun mun tjónið nema
665.000.000. Yrði því um gríðarlegt
tjón að ræða sem sveitarfélagið ber
ábyrgð á.“
Mun leita réttar síns
Sama bótakrafa var lögð fram
vegna reits C. Hljóðaði bótakrafa
Sigurðar Sigurgeirsson því upp á
570 til 1.330 milljónir. Tekið var
fram í lok tveggja bréfa vegna reita
C og D að lóðarhafi myndi „leita
réttar síns fyrir úrskurðarnefnd um-
hverfis- og auðlindamála og/eða
dómtólum taki umrædd breyting á
gildandi deiliskipulagi gildi“.
Það fékkst ekki staðfest hjá lög-
manni Sigurðar, Óskari Sigurðssyni
hrl., hver næstu skref verða.
Krafðist allt að 1,3 milljarða
bóta vegna Hlíðarenda 2
Fjárfestir krafði Reykjavíkurborg um bætur vegna aukins byggingarmagns
Teikning/Alark arkitektar
Bitbein A-reitur er fyrir miðri myndinni. Arminum til vinstri var bætt við.
Hlutafélaginu Skallagrími hf. hefur
verið slitið. Tilkynning um slitin
birtist í Lögbirtingablaðinu 11. des-
ember síðastliðinn, rúmum 19 árum
eftir að hluthafafundir ákváðu að
slíta félaginu. Þeir fundir voru
haldnir haustið 1998.
Skallagrímur hf. gerði út Akra-
borgina, sem annaðist siglingar milli
Akraness og Reykjavíkur. Þrjú skip
í eigu Skallagríms hf. hafa borið það
nafn. Hið fyrsta var tekið í notkun
árið 1956, en áður hafði fyrirtækið
gert út Laxfoss til áætlunarsiglinga
á Faxaflóa.
Eftir að göngin undir Hvalfjörð
voru opnuð, sumarið 1998, var út-
gerð Akraborgar hætt. Hún er núna
skólaskip, Sæbjörg, í eigu Slysa-
varnarfélagsins Landsbjargar.
Skjöl félagsins eru varðveitt á
HéraðsskjalasafniAkraneskaup-
staðar.
Engar gildar fjárkröfur eða rétt-
indakröfur komu fram á félagið í
innköllunarfresti og var lýstum kröf-
um hafnað án nokkurra eftirmála af
hálfu kröfulýsenda á slitafundi sem
haldinn var 10. febrúar 1999. Þetta
kemur fram í Lögbirtingarblaðinu.
Skilanefnd lagði fram lokareikning
félagsins dags. 26. maí 1999 og út-
hlutunargerð á hluthafafundi í félag-
inu 27. maí 1999. sisi@mbl.is
Síðasta Akraborgin Rekstrinum var hætt 1998 og skipinu breytt í skólaskip.
Hlutafélaginu Skalla-
grími loksins slitið
Séra Hjálmar
Jónsson snýr aft-
ur í Dómkirkjuna
á aðfangadag
þegar hann sér
um aftansönginn
kl. 18 ásamt sr.
Sveini Valgeirs-
syni dómkirkju-
presti, sem mun
predika. Hjálmar
hætti sem kunnugt er í Dómkirkj-
unni fyrr á þessu ári en nýr prestur
hefur ekki verið skipaður í hans
stað.
Aftur í sína gömlu sókn
Um áramótin liggur leið Hjálm-
ars norður á Sauðárkrók þar sem
hann mun gerast afleysingaprestur
í sinni gömlu sókn. Þjónaði hann
þar sem sóknarprestur á árunum
1980 til 1995. Fyrsta messan verður
strax á nýársdag kl. 17.
„Börnin sem ég skírði og fermdi
eru uppkomin og ég skíri og fermi
börnin einhverra þeirra. Það er góð
tilfinning að fara heim norður, rifja
upp gömul kynni, treysta vinskap-
inn og kynnast nýrri kynslóð,“ seg-
ir sr. Hjálmar við Morgunblaðið.
Hjálmar snýr aftur
á aðfangadag
Hjálmar Jónsson
Jóhann Halldórsson, fjárfestir og hrl., gætir hagsmuna O1 ehf. sem er lóðar-
hafi H-reits á Hlíðarenda. Hann mótmælti í bréfi til skipulagsfulltrúa í maí
sl. „harðlega framkominni tillögu“ að breyttu skipulagi Hlíðarenda 2.
Jóhann rifjaði upp að samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
hafi verið heimilað að byggja allt að 60 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði
á svæði Hlíðarenda auk allt að 360 íbúða. Íbúðum hafi síðan verið fjölgað
(sjá grein hér til hliðar) og aðrar breytingar gerðar.
Jóhann gerði jafnframt athugasemdir við áform um allt að 500 herbergja
hótel á reit A. Fallið hefur verið frá þeim áformum. Á H-reit hefur Jóhann
haft áform um 444 herbergja hótel. Taldi Jóhann að 500 herbergja hótel
myndi kalla á „a.m.k. 18-20 rútur á dag“. „Er það mjög íþyngjandi í íbúa-
hverfi, svo ekki sé fastar að orði kveðið“. Var tekið fram að umbjóðandi Jó-
hanns myndi leita réttar síns fyrir Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlinda-
mála og/eða dómstólum tæki umrædd breyting á gildandi deiliskipulagi
gildi. Jóhann sagði aðspurður í gær að málinu væri lokið með sátt.
Samkvæmt fyrirtækjaskrá Creditinfo á hann 95% í O1 ehf., sem heitir nú
REY Hotel hf., og kona hans, Valgerður Margrét Backman, 5% hlut.
Gagnrýndi áform um hótel
FULLTRÚI LÓÐARHAFA Á H-REIT
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eigandi tveggja byggingarreita við
Hlíðarenda krafðist allt að 1,3 millj-
arða í bætur frá Reykjavíkurborg
vegna aukins byggingarmagns á lóð
í eigu Vals. Taldi hann það rýra
verðmæti íbúða á lóðum sínum.
Málið varðar svonefndan A-reit á
Hlíðarenda 2. Hann verður sunnan
við fyrirhugað knatthús Valsmanna.
Ætlunin er að á norðurhlið knatt-
hússins verði stúkusæti við aðal-
leikvang Vals sunnan megin.
Sigurður Sigurgeirsson fjárfestir
hefur átt tvo byggingarreiti vestan
við A-reit í gegnum félögin Dalhús
og NH eignir. Elfar Ólason, löggilt-
ur fasteignasali og talsmaður Sig-
urðar, sagði í gær að samkomulag
hefði náðst við fjárfesta um samstarf
við uppbyggingu á D-reit. Málin
væru komin skemmra á veg á C-reit.
Elfar kvaðst ekki þekkja til kæru-
mála vegna framkvæmdanna.
Gætir hagsmuna lóðarhafa
Samkvæmt tillögu að breyttu
deiliskipulagi verður byggingar-
magn á A-reit aukið í 17.500 fer-
metra, auk 4.600 fermetra af sam-
eiginlegu rými og 12.000 fermetra
bílakjallara, alls 34.100 fermetrar.
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík
hafa jafnframt heimilað fjölgun
íbúða á reitum C, D, E og F í allt að
673 íbúðir. Á reit B er bygging fjöl-
býlishúss með 40 íbúðum langt kom-
in. Á reit A eru nú hugmyndir um 67
íbúðir og 100-150 stúdentaíbúðir.
Samanlagt gætu því orðið 880 til 930
íbúðir á svæðinu fullbyggðu.
Fram kom í bréfi Lex lögmanns-
stofu til skipulagsfulltrúa borgar-
innar í maí að lóðarhafi á Hlíðarenda
28-34 (C-reitur/Dalhús) og Hlíð-
arenda 1-7 (D-reitur/NH eignir)
hefði falið lögmanni stofunnar að
„gæta hagsmuna sinna vegna fram-