Morgunblaðið - 23.12.2017, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.12.2017, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á hversu nákvæmlega Hagstofan nær utan um Airbnb og aðra íbúðargist- ingu.“ Nokkrar ástæður samdráttar Kristófer segir að það sé erfitt að keppa við leyfislausa gistingu vegna þess að hún stendur ekki skil á opin- berum gjöldum. „Hótel greiða gisti- náttaskatta, virðisaukaskatt, mun hærri fasteignagjöld eða 1,65% en íbúðargisting ber einungis 1,18% og hótel greiða lögboðin gjöld af launum svo sem tryggingagjald. Leyfislaus gerir það ekki,“ segir hann. Að hans sögn þarf að framfylgja lögum sem tóku gildi 1. janúar í fyrra sem kveða á um að allir sem auglýsa gistingu þurfa að birta leyfisnúmer. „Lögreglan ætti að fletta upp eignum á Airbnb og setja sig í samband við þá sem ekki framfylgja lögunum,“ segir Kristófer. Ingibjörg Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hótels Sögu, segir að nokkrar ástæður séu fyrir téðum samdrætti. „Krónan er sterk og fyrir erlenda ferðamenn er dýrt að borða og búa á Íslandi. Mikið framboð er svo á heimagistingu í einhverri mynd og það er ekki nema lítill hluti þar sem skilar sér í gistináttatalningu,“ segir hún og bendir á að hið jákvæða sé að gistinóttum á höfuðborgarsvæð- inu hafi fjölgað um 13% það sem af er ári. Gistinóttum fækkar í fyrsta skipti frá 2010 Morgunblaðið/Árni Sæberg Hótelrekstur Forsvarsmenn hótelanna segja að það sé erfitt að keppa við leyfislausa gistingu.  Vöxtur í Airbnb-gistingu í höfuðborginni leiðir til þess að hótelnóttum fækkar Bæta ætti eftirlit með Airbnb » Framfylgja þarf lögum frá 1. janúar í fyrra um að allir sem auglýsa gistingu þurfi að birta leyfisnúmer, segir Kristófer Oliversson, framkvæmdastjóri CenterHótels. » Kristófer segir að lögreglan ætti að fletta upp eignum á Airbnb og setja sig í samband i við þá sem ekki framfylgja lög- unum. BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Gistinóttum erlendra ferðamanna á hótelum fækkaði um 1% í nóvember á milli ára. Þá fækkaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu um 4%, sam- kvæmt tölum frá Hagstofu. Fjöldi gistinátta stóð í stað litið til landsins alls vegna aukningar á landsbyggð- inni. Gistinætur hafa ekki dregist saman á milli ára síðan áður en upp- sveiflan í ferðaþjónustu hófst eða í desember árið 2010, samkvæmt Hagsjá Landsbankans. „Það hefur ekki orðið samdráttur í gistinóttum í mörg ár,“ segir Krist- ófer Oliversson, framkvæmdastjóri CenterHotels, í samtali við Morgun- blaðið. „Það er mjög einföld skýring á þessu. Það eykst jafnt og þétt hlut- fall leyfislausrar gistingar. Um helm- ingur af framboðnum herbergjum í höfuðborginni er leyfislaus.“ Gistirýmum á Airbnb fjölgaði um 11% á milli ára í nóvember, sam- kvæmt Hagsjá Landsbankans. Til samanburðar jókst framboð gisti- rýmis hótela um 5,1% mælt í fjölda herbergja, samkvæmt tölum frá Hagstofu. Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustu, segir að síðustu misseri hafi þróun í fjölda ferðamanna og fjölda gistinátta ekki farið saman. „Ástæður eru nokkrar. Miklar launahækkanir, styrking íslensku krónunnar og fjármagns- kostnaður hefur veikt samkeppnis- hæfni okkar sem áfangastaðar, ferðamenn koma en þeir dvelja skemur og spara við sig í afþreyingu og annarri neyslu. Þá er spurning 23. desember 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 105.01 105.51 105.26 Sterlingspund 140.51 141.19 140.85 Kanadadalur 81.82 82.3 82.06 Dönsk króna 16.749 16.847 16.798 Norsk króna 12.495 12.569 12.532 Sænsk króna 12.476 12.55 12.513 Svissn. franki 106.35 106.95 106.65 Japanskt jen 0.9251 0.9305 0.9278 SDR 148.65 149.53 149.09 Evra 124.7 125.4 125.05 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.7563 Hrávöruverð Gull 1265.85 ($/únsa) Ál 2108.0 ($/tonn) LME Hráolía 64.49 ($/fatið) Brent ● Knattspyrnu- samband Íslands (KSÍ) hefur með sátt við Sam- keppniseftirlitið skuldbundið sig til að gera breyt- ingar á skipulagi og háttsemi samtak- anna og til að vera í forsvari fyrir bætta samkeppn- ishætti innan knattspyrnuhreyfingar- innar á Íslandi. Um er að ræða aðgerðir til að koma í veg fyrir samræmt miðaverð á leiki í Pepsideild karla í knattspyrnu, eins og segir í frétt á vef eftirlitsins. Málið varð- ar birtingu á lágmarksverði fyrir miða á leiki í Pepsideild karla í knattspyrnu í Handbók leikja, sem útgefin er af KSÍ. Tryggja á að háttsemin endurtaki sig ekki og stuðlað verður að fræðslu um sáttina og reglur samkeppnisréttar. Miðaverð í Pepsideild verði ekki samræmt Fótbolti Sam- keppnislög gilda. STUTT Sjóður á vegum bandaríska sjóðastýringarfyrirtækisins Wellington Management Group hefur minnkað hlut sinn í Högum í 1,2% úr 1,8% frá mánaðamótum. Sjóðurinn kom inn á lista 20 stærstu hluthafa fyrirtækisins hinn 17. ágúst með 1,3% hlut. Þetta má lesa úr hluthafalista Haga, sem er endurnýjaður vikulega. Hagar hafa m.a. glímt við aukna samkeppni frá Costco frá því í maí. Á hálfu ári hafa hlutabréf Haga lækkað um 23% og undanfarinn mánuð hafa þau lækkað um 5%. Í liðinni viku jók Wellington við hlut sinn í Nýherja um tæplega 400 milljónir króna. Nemur eignarhluturinn nú 9%. Sjóður á vegum Eaton Vance, Global Macro Absolute Return Fund, birtist á hluthafalista Icelandair Group í vikunni með 1% hlut. Markaðsvirði hlutarins er tæplega 800 milljónir króna. Gengi Icelandair lækkaði hratt við upphaf árs en mið- að við undanfarna níu mánuði hafa bréfin staðið í stað. Undanfarinn mánuð hefur gengið lækkað um 8% sem rekja má til verkfalls flugvirkja. helgivifill@mbl.is Wellington minnkar hlut sinn í Högum Hlutabréf Bónusverslanirnar eru í eigu Haga. JÓLASÖFNUN Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Skrifstofusími 10 til 16. S. 551 4349, 897 0044, netfang: maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17. Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is Jón Guðmundsson, lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf. Gleðin kemur innanfrá Óskum viðskiptavinum okkar nær og fjær og landsmönnum öllum gleðilegra jóla ● Ætli Alþingi sér að stuðla að auknu trausti til löggjafans og sátt á vinnumarkaði þá er endurskoðun á ákvörðunum kjararáðs óumflýjanleg. Þetta kemur fram í ályktun Við- skiptaráðs. „Síðustu úrskurðir falla illa að þeim bættu vinnubrögðum sem að- ilar vinnumarkaðarins hafa unnið að á síðustu árum. Atvinnurekendur og stéttarfélög eru á einu máli í þessum efnum og ábyrgð nýs Alþingis því mikil. Viðskiptaráð skorar á þing- menn að grípa tafarlaust til ráðstaf- ana og draga til baka úrskurði kjar- aráðs,“ segir í ályktuninni. Alþingi endurskoði úrskurði kjararáðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.